Fréttablaðið - 28.10.2005, Page 37
4 ■■■■ { tækniblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Xbox 360
Microsoft hefur orðið svolítið undir
í baráttunni við Sony á undanförn-
um árum eins og Nintendo. Þeir
hafa því lagt mikla vinnu og ekki
síst markaðssetningu í tölvuna.
Tölvan er af annarri kynslóð leikja-
tölva. Hún verður 3,2 GHz og mun
koma með 20 GB útskiptanlegum
hörðum disk auk þess að vera með
512 MB vinnsluminni. Tölvan verð-
ur byggð fullkomnu skjákorti og
fjölrása hljóðkerfi. USB-tengi verða
á tölvunni sem gefur möguleika á
tengingu við stafrænar myndavél-
ar. Hægt verður að tengja leikja-
tölvuna við aðrar venjulegar tölvur
auk þess sem hægt verður að tengj-
ast við netið þar sem
hægt verður að sækja
aukinn hugbúnað og
fleira. Tölvan mun
koma á almennan
markað mjög fljótlega.
PS3
Playstation-vélarnar
frá Sony hafa haft
gríðarlega yfirburði á
leikjatölvumarkaðnum
á undanförnum árum.
Engin leikjatölva hefur
selst eins vel og
Playstation 2 og yfir-
menn Sony vona að
nýja tölvan nái svipuðum árangri.
Sony-menn segjast hefa smíðað
fullkomnasta grafíkforrit sem
nokkurn tímann hefur komið á
markað. Tölvan verður með Blue-
tooth þannig að hægt verður að
nota allt 7 þráðlausar fjarstýringar
auk þess sem hægt verður að nota
Psp-handleikjatölvuna við nýju
Playstation-vélina. Hægt verður að
tengjast við netið og fara á videó-
spjallrásir. Hægt verður að tengja
ýmis minniskort við tölvuna og
einnig verður hægt að tengja harð-
an disk við tölvuna. Tölvan mun
styðja hið nýja form DVD diska,
svokallaðan Blue-Ray disk og að
sjalfsögðu mun tölvan geta spilað
allar eldri gerðir Playstation-leikja.
Búist er við því að tölvan komi á
markað næsta vor.
Nintendo Revolution
Nintendo hefur lifað á fornri frægð
á undanförnum árum. Gamecube
leikjatölvan hitti ekki eins vel í
mark og menn höfðu vonað en nú
ætla menn að snúa við þessari þró-
un. Það sem er byltingarkennt við
þessa vél er stýripinninn sem við
fyrstu skoðun lítur út eins og fjar-
stýring. Þessi stýripinni mun gefa
notendanum nýja vídd í þrívíddar
tölvuleikjum. Stýripinninn verður
byggður leysitækni þannig að tölv-
an nemur hreyfingar hans. Þannig
verður hægt að fara í veiðileik þar
sem þú þarft að kasta út sjálfur, þitt
hokkí þar sem þú þarft sjálfur að
hreyfa stýripinnann til að stjórna
vörn og sókn og fleira í þessum dúr.
Ekki verða allir leikir á þessu formi
því auk þeirra verður hægt að fara
í venjulega stýripinna leiki. Hægt
verður að tengjast við netið í gegn-
um tölvuna og þar verður hægt að
sækja klassíska Nintendo leiki. Ekki
er enn komin dagsetning á útgáfu
tölvunnar en það verður einhvern
tímann á næsta ári.
Ný kynslóð leikjatölva
Brátt mun nýtt leikjatölvustríð hefjast. Þá munu koma á markaðinn nýjar
leikjatölvur frá risunum þremur. Microsoft sendir frá sér Xbox 360, Sony
kemur með Playstation 3 og loks mun Nintendo færa okkur Nintendo
Revolution.
Hvað er UMD?
ENN EIN SKAMMSTÖFUNIN Í TÆKNIHEIMINUM.
UMD stendur fyrir Universal Media Disc. UMD hóf innreið sína með Play-
station Portable. En eins og allir glöggir tölvuunnendur vita er hægt að horfa
á kvikmyndir á PSP leikjatölvum. Margir í kvikmyndageiranum vestanhafs
voru efins um markaðinn fyrir kvikmyndaspilara í vasaformi, en annað kom
fljótlega í ljós, þar sem Sony og Disney seldu 100.000 eintök af tveim UMD
útgáfum á einungis tveim mánuðum. Nú er markaðurinn fyrir myndir af
þessu tagi orðinn mjög stór og líklegast verða gefnar út 250 myndir á UMD
formi fyrir árslok. En ekki er bara hægt að fá kvikmyndir heldur einnig tón-
leikaupptökur og sjónvarpsþætti. Svo virðist sem UMD-myndir hafi heldur
betur slegið í gegn, þó svo að verðið á myndunum sé frekar hátt og í raun
mun hærra en verð á DVD-myndum. Algengt verð fyrir UMD-mynd í Banda-
ríkjunum er ca. 20 dalir.
Uppáhaldstækið hans Ragnars er
DVD-diskur með hörðum disk.
,,Hann tekur upp efni af sjónvarp-
inu. Ég horfi rosalega mikið á frétt-
ir, þannig að ég get tekið upp frétt-
ir og svona. Ég get reyndar tekið
upp hvað sem er. Diskurinn er
alltaf á upptöku og þegar ég er að
horfa á sjónvarpið og einhver
hringir eða truflar mig, þá ýti ég
bara á pásu. Síðan kem ég bara
aftur og held áfram þar sem frá var
horfið.“ Ragnar segir að þessi tækni
sé að ryðja sér til rúms bæði í Bret-
landi og Bandaríkjunum og eru
ýmsar sjónvarpsstöðvar byrjaðar
að senda út á þannig formi að hægt
sé að panta og taka upp þætti eftir
þörfum. ,,Þetta er líka mjög þægi-
legt fyrir mig sem á einn tveggja
ára strák sem þarf að sinna á
kvöldin. Því þegar hann er sofnað-
ur þá getur maður bara spólað til
baka í dagskránni og horft á það
sem manni lystir.“ segir Ragnar að
lokum um þetta undratæki.
Setur bara á pásu meðan
hann talar í símann
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
B
R
IN
K
Ragnar Santos er annálaður tækjaáhugamaður og reynir iðulega að vera með puttann
á púlsinum í þeim málum.
04-05 tækni lesið 27.10.2005 15:18 Page 2