Tíminn - 18.10.1975, Blaðsíða 13
TÍMINN
13
Laugardagur 18. október 1975.
Loksins — loksins
Joh. B. sendir Landfara eftir-
farandi linur:
„Samkvæmt hinni nýju hag-
fræði gengur islenzku þjóðinni
nú margt i haginn: Vorið var
með eindæmum kalt. Viða kal i
túnum. Grasvöxtur litill framan
af sumri. Samfelldir óþurrkar
um mikinn hluta landsins, eftir
að sláttur gat hafizt. Heyin eru
þvi bæði litil og lélegt fóður.
Stórfelldur niðurskuröur búpen-
ings i haust óumflýjanlegur.
Fólksstraumurinn til þéttbýlis-
ins hlýtur að vaxa. Þjónustuliði
þjóðarbúsins fjölgar.
Visir hefur hlotið bænheyrslu.
Vonir rætast: Verðlagið mun
lækka,
— vitanlega hagvöxturinn
stækka —,
brúnin fljótt á burgeisunum
hækka,
ef bændum loks meö guðshjálp
tekst aö fækka.”
Jass og Ijóð í Norræna húsinu
Tilboð óskast í
eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa i
umf erðaróhöppum.
Flat 125 árg.1971
Volvo Amason árg.1965
Pontiac árg.1968
Vauxhall Viva árg. 1974
Datsun 180 b árg.1973
Volkswagen 1300 árg.1967
Fiat 125 árg.1968
Austin Gipsi árg.1963
Volkswagen árg.1963
Taunus 20 m árg.1967
Hilman Hunter árg.1974
Honda árg.1972
Bifreiöarnar veröa til sýnis að Smiðshöfða mánudaginn 20. október n.k. frá kl. 12-18. 17, Rvik,
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygg- inga, bifreiðadeild, fyrir kl. 17, þriðjudag-
inn 21. október 1975.
Erum fluttir
Höfum flutt skrifstofu
og söludeild að
Um helgina veröur ljóðalestur, og jassmúsik I Norræna húsinu. Eru þaö fjögur ljóðskáld, sem þar
lesa ljóð við jassundirleik.
Á blaðamannafundi sem haldinn var af þessu tilefni, sagði Jóhann Hjálmarsson, frá á þessa leið,
en hann hafði orð fyrir listamönnunum:
Jóhann kvaö þessa hugmynd um ljóðalestur og jass vera bandariska að uppruna. Menn hefðu
komizt aö raun um að ljóð færu vel við vissan jassleik, og öfugt. Slöan hefur þessi hugmynd breiðzt
Ut, og er mikiö um slikan samleik aö ræða I Danmörku og I Sviþjóö. Meðal annars er hin svonefnda
Werup-Sjöström grUppa, sem heimsótt hefur lsland.
Þá fluttu Islenzk skáld og hljómlistarmenn með þeim dagskrá I Norræna hUsinu og á Selfossi.
Dagskráin veröur flutt tvivegis, á laugardag og sunnudag, kl. 15.00 báða dagana.
Þeir sem taka þátt I dagskránni eru:
Gunnar Ormslev, Jóhann Hjálmarsson, Carl Muller, Þorsteinn frá Hamrl, Arni Scheving, Nina
Björk og Steinunn Sigurðardóttir.
r r
ARMULA 11
Barnamúsíkskólinn
fær hljómplötur
frá V-Þjóðverjum
Nýlega gaf Sambandslýöveldið
Þýzkaland Barnamúsikskóla
Reykjavikur allveglegt hljóm-
plötusafn fyrir milligöngu
vesturþýzka sendiráðsins.
Hljómplötur þessar eru ætlaðar
til tónlistarkennslu við skólann.
Er þetta I annað sinn að skólanum
berst slik gjöf.
Samvinnutryggingar:
Breyting á
deildaskiptingu
NO I byrjun október tók gildi ný
deildaskipting i Samvinnutrygg-
ingum. Söludeild og Tjónadeild
voru lagðar niður, en i staðinn
stofnaðar Bifreiðadeild og Bruna-
deild. Eftir þessa breytingu eru
fjórar tryggingadeildir I fyrir-
tækinu, þ.e. Bifreiðadeild, deild-
arstjóri Gunnar Sigurðsson,
Brunadeild, deildarstjóri Héðinn
Emilsson, Sjódeild, deildarstjóri
Sverrir Þór, og Abyrgðar- og
slysadeild, deildarstjóri Bragi
Lárusson. Auk þess eru svo þrjár
þjónustudeildir, Bókhaldsdeild,
Skýrsludeild og Fjármáladeild.
Framkvæmdastjóri Samvinnu-
trygginga er Hallgrimur Sigurðs-
son, og fulltrúi framkvæmda-
stjóra Bruno Hjaltested.
Kaupið bílmerki
Landverndar
Hreint É
tí&Slnnd I
fogurt I
land I
LAMDVERIMD
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensinafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöróustíg 25
Haustfagnaður FUF
verður haldinn í Fóstbræðraheimilinu
í kvöld og hefst kl. 21.00
Hin vinsæla hljómsveit
Opus og AAjöll Hólm
Hinir frábæru Hálfbræður
koma öllum i gott skap.
Komið og takið með ykkur gesti
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍ TALINN:
FóSTRA óskast til að taka að sér
forstöðukonustarf á dagheimili
fyrir börn starfsfólks frá 15.
nóvember n.k. eða eftir samkomu-
lagi. Nánari upplýsingar veitir for-
stöðukona spitalans. Umsóknir, er
greini aldur, menntun og fyrri störf
ber að senda skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 10. nóvember n.k.
Reykjavik 17. október 1975,
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRiKSGÖTU 5, SÍM111765
Laust starf
Starf slökkviliðsstjóra i ísafjarðar-
kaupstað er laus til umsóknar
Starfið felur i sér meðal annars stjórn
slökkviliðs, viðhald tækja og búnaðar og
eldfæraeftirlit.
Kjör samkvæmt kjarasamningum og
nánara samkomulagi.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýs. um
menntunog starfsreynslu berist skrifstofu
bæjarstjóra, sem veitir allar nánari
upplýsingar fyrir 10. nóv. n.k.
Bæjarstjóri ísafjarðar.