Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 5
MlftviliBéagT 22. oktébcr TIMINN 5 Einn varaþing- maður d dag Á siðasta þingi var kvartað undan þvi, aðóeðlilega margir varamenn hefðu tekið sæti á Alþingi i fjarveru kjörinna þingmanna. Ekki virðist ætla að verða nein breyting til batnaðar i þessum efnum, ef marka má straum varaþing- manna i þingsali i byrjun þingsins nú, en varla liður sá dagur, að ekki komi inn nýr varamaður. tJt af fyrir sig er það ekki kvörtunarefni, þótt varamenn séu kallaðir inn, þegar þing- menn þurfa að sinna aðkailandi verkefnum innan- lands eða erlendis, og getaaf þeim sökum ekki gegnt þing- störfum. Eða þegar þingmenn forfaiiast vegna veikinda. Það er gert ráð fyrir þvi, að i slikum tiifellum hlaupi vara- menn i skarðið. En ekki er grunlaust, að i sumum tilfellum hafi verift ástæðulaust að kaila til vara- menn. Ekki sýnist t.d. nauðsyniegt að boða vara- menn, þótt þingmaður sé fjar- verandi I vikutima vegna erindagerða erlendis, eins og iðulega gerist. Aðstæður geta þó verið mis- munandi. Ef þingstyrkur rikisstjórnar byggist á fárra atkvæða meirihluta, er ekki nema eðlilegt, að leitað sé til varamanna. En eins og nú háttar, þegar stjórnin hefur að baki sér tvo þriðju hluta þingmanna, er um allt annað viðhorf að ræða. Annars eru stjórnar- flokkarnir ekki einir I sök. Það eru ekki sfður þingmenn stjórnarandstöðunnar sem kalla til varamenn. Þetta mál varðar þvi aila flokka þingsins. Og enn frekar er ástæða til þess, að þingmenn athugi sinn gang i þessum efn- um, þegar það er haft i huga, að þeir hafa sjálfir boðað að gæta verði sparnaðar og aðhaldssemi. Tið þátttaka varamanna I störfum Aiþingis eykur útgjaidakostnað Alþingis, sem er hár fýrir. Tilraunakennsla í vélfræði í fyrsta skipti í vetur MSig-Reyðarfirði — Barna og gagnfræðaskóli Reyðarfjarðar tók til starfa fyrir nokkru. Starf- ræktur er forskóli og gagnfræða- deild. Bekkjardeildir eru ellefu. Fastir kennarar við skólann eru niu auk skólastjóra. Stundakenn- arar eru þrir. Nemendur eru alls 171, I vetur. í vetur fer I fyrsta sinn fram tilraunakennsla i vél- fræði, skv. leyfi skólarannsóknar- deildar. Þrlr efstu bekkir skólans eiga kostá valgreinum, s.s. bókfærslu, iðnteikningu, blokkskrift, sjó- vinnu og handavinnu, auk þeirrar handavinnu, sem er skyldunáms- grein við skólann. Skólahúsið á Reyðarfirði er til- tölulega nýlegt, en þó nú þegar allt of litið, og er kennt að hluta i félagsheimilinu. Brýnt verkefni skólans á næstunni er söfnun bóka til skólabókasafns, að sögn skóla- stjórans, Kristins Þ. Einarsson- ar. Tónlistarskóli tók nú i fyrsta sinn til starfa hér i haust. Er hann rekinn af Eskifjarðarkaupstað og Reyðarfjarðarhreppi i samein- ingu. Kennari er Pavel Smid frá Prag i Tékkóslóvakiu, sem er há- skólamenntaður tónlistarkenn- ari, með pianó- og orgelleik sem sérgreinar. Unnið er að útvegun annars kennara, sem annaztgæti kennslu á blásturshljóðfæri o.fl. Skráðir nemendur eru 22 hér og álika margir eða fleiri á Eski- firði. Auk tónlistarkennslunnar ann- ast Pavel stjórn kirkjukórsins og er organisti i krikjunni. Samvinna Eskfirðinga og Reyðfirðinga um þetta mál og fleiri, er staðirnir eiga sameigin- leg, hefur gengið mjög vel og er til fyrirmyndar. Tálknfirðingar hefja hesta- mennsku SJ-Reykjavik. I haust voru sex hestar fluttir inn til Tálkna- fjarðar, en ekki hafa verið hestar þar í langan tima, jafnvel hátt á þriðja áratug. Það eru ýmsir Tálknfirðingar, sem eiga hestana, og ætla þeir að leggja stund á hestamennsku i fristund- um og hugsa gott til að fara I út- reiðartúra næsta sumar. Nóg er af gömlum húsum i sveitinni, sem hægt er að nota fyrir hesthús án mikilla breytinga. 1975 Alþjóðlegt sueðismót í Zmal Toumament in Skáksambcmdíslands Taflfélag Reykjavikur SVARTUR DAGUR FYRIR ÍSLENDINGA 1. umferð: Friðrik—Parma, 0-1, 25 leikir. Hamann— Björn 1-0, 28 leikir. Timman—Ostermeyer, 1-0, 17 leikir. Hartston—Laine, 1-0, 38 leikir. Poutiainen—van der Broeck, 1- 0, 28 leikir. Zwaig—Jansa, 1-0, 40 leikir. Liberzon—Murray, frestað. Ribli sat hjá. Fyrsta umferð svæðamótsins i skák gat loks hafizt I fyrradag, 20. október, degi siðar en ákveð- iö hafði verið. Astæðan var sú, að Liberzon (ísrael) og Murray (írlandi) komu ekki til landsins fyrr en á mánudagskvöld. Murray tafðist vegna þoku, en ekki er enn vitað um ástæðuna fyrir seinkun Liberzons. Svæðamót er fyrsta þrepið I kerfi alþjóðaskáksambandsins til að ákveða næsta áskoranda heimsmeistarans. Svæðamótin eru mörg um allan heim, og komast efstu menn þeirra I tvö millisvæðamót, ásamt nokkrum stórmeisturum, sem alþjóða- skáksambandið velur sérstak- lega. Mótið hér i Reykjavlk veitir tvö sæti I millisvæðamót. Efstu menn millisvæðamótanna komast i áskorendamót, en sigurvegari þess móts teflir við heimsmeistarann um titilinn eftirsóknarverða. Mikil barátta einkenndi fyrstu umferðina á mótinu á Hótel Esju. Ekkert jafntefli og engin biðskák sýnir, að hart er barizt þegar I upphafi. Umferðin var mjög óhagstæð okkur íslending- um, Friðrik og Björn töpuðu báðir, en gamalt máltæki segir, að fall sé fararheill. Friðrik hafði hvitt gegn júgó- slavneska stórmeistaranum, Bruno Parma. Friðrik tefldi byrjunina mjög hvasst enda á hann harma að hefna á Parma, hefur tvisvar tapað fyrir hon- um, en aldrei unnið. Friðrik fórnaði peði, en Júgóslavinn tefldi af öryggi og náði undir- tökunum. Friðrik lenti I miklu timahraki og tapaði eftir 25 leiki. Björn tefldi við Sven Hammann frá Danmörku.Dan- inn fékk hættuleg sóknarfæri, sem Björn réði ekki við I miklu timahraki. Lauk sákinni með þvi, að Björn féll á tima i 28. leik I tapaðri stöðu. Hollenzki stórmeistarinn, Jan Timman, átti léttan dag. Peter Ostermeyer frá V.-Þýzkalandi vissi greinilega litið hvað hann var að gera og varð að gefast upp eftir aðeins 17 leiki. Tauga- spenna er oft mikil I fyrstu um- ferð stórmóta og hefur Oster- meyer sennilega verið óstyrkur. Belgiumaðurinn, van den Broeck, lenti i þekktri gildru gegn Pertti Poutiainen frá Finnlandi, og átti sér ekki viðreisnar von eftir það. William Hartston frá Eng- landi vann öruggan sigur á Eugene Laine frá Guernsey. Norðmaðurinn, Arne Zwaig vann sigur á V. Jansa, stór- meistara frá Tékkóslóvakiu. Byrjunin var frekar róleg, en Zwaig tókst að skipta upp i Reykjavík Reykjavík Lombardy mótsstjóri setur klukku Friftriks Olafssonar ai staft. Fyrsta umferft svæftamótsins i Reykjavik er hafin. Timamynd: Róbert. I betra endatafl. I timahraki lék Tékkinn af sér manni i erfiðri stöðu, sem hann hafði þó ein- hverja möguleika á að halda. Sigur Zwaigs er óvæntur, þvi Jansa er einn af sterkustu mönnum mótsins. Hvitt: FriOrik Svart: Parma Drottningarindversk vörn I. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 - - Friðrik hefur ekki löngun til að tefla Nimzoindverska vörn, er Parma þekkir flestum bet- ur. Sú byrjun hefði komið upp eftir 3. Rc3 Bb4. 3. - - bG 4. a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. cxd5 exd5 7. Bg5 Be7 8. e3 0-0 9. Hcl Rbd7 10. Bd3 c5 11. Bf5 - - Tvieggjaður leikur. öruggara hefði verið að hrókera stutt. II. - - go 12. Bh3 BaG. Parma reynir auðvitað koma i veg fyrir að Friðrik leiki 13. 0- 0. 13. Da4 cxd4. Auftvitaft ekki 13. - - Dc8 14. Bxf6 ásamt 15. Bxd7. 14. DxaG - - Ekki gengur 14. exd4 Bc4 og kóngur Friðriks er illa settur á miðju borði. Eftir 14. Rxd4 kem- ur 14. - - Rc5 ásamt 15. - -Rd3+. 14. - - dxc3 15. b4 - - Þessi leikur er líkiega aðalor- sök tapsins. Friðrik nær aldrei peðinu aftur og fær engin gagn- færi. Betra virðist 15. Hxc3 Rc5, 16. De2 Rfe4 17. Bxe7 Dxe7 18. Hc2 og þó aö Friðrik sé á eftir i liðskipan, er ekki þar með sagt, aö staðan sé töpuð. 15. - - Re4 16. Bh6 - - Ekki gengur 16. Bxe7 Dxe7 17. Db7 Hfd8 18. Rd4 (18. Dxd5 Rdc5 ásamt 19. - - Rd3+) Rd6 19. Da6 Hdc8 og hvitur á úr vöndu að ráða. 16. - - He8 17. 0-0 Bd6 18. Dd3 Re5 19. Rxe5 - - Ekki 19. Dxd5? Rxf3+ 20. gxf3 Bxh2+ o.s.frv. 19. - - Bxe5 20. g3 - - Nú er orðiö ljóst, að Friftrik stendur mjög höllum fæti. Hann hefur peði minna og þar að auki i miklu timahraki. 20. - - Bli8 21. f3 - - Svarti riddarinn á e4 er ó- þægilegur. 21. - - Rd2 22. Hf2 Df6 23. f4 - - Svartur hótaði aö loka Bh6 inni með 23. - - g5. Eftir 23. Dxd5 Had8 24. Dg5 Rxi'3+ vinnur svartur auðveldlega. 23. - - d4 24. exd4 Dxd4 25. Hxc3 - - Hvita staðan er töpuð. 25. - - Re4 og Friðrik gafst upp, þvi hann tapar miklu liði eftir 26. Dxd4 Bxd4 27. Hc2 Rxf2 28. Hxf2 He2. Ilvitt: Ilamman Svart: Björn Nimzoindversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. c3 c5 5. Bd3 d5 6. Rf3 0-0 7. 0-0 dxc4 8. Bxc4 Rc6 9. Bd3 cxd4 10. exd4 Be7 11. a3 b6 12. Be2 Bb7 13. Bg5 g6 14. Hel Rd5 15. Bh6 Rxc3 16. bxc3 He8 17. Dd2 Hc8 18. Rg5 Dc7 19. He3 Hcd8 20. Bdl Ra5 21. Hh3 Dc6 22. f4 Bf6 23. Df2 Hxd4 24. Rxh7 Bh8 25. Bg5 f5 26. cxd4 Bxd4 27. Rf6+ Bxf6 28. Bxf6 og svartur féll á tima. Hvitt: Zwaig Svart: Jansa Vængtafl 1. g3 g6 2. Bg2 Bg7 3. c4 d6 4. Rc3 Rf6 5. Rf3 0-0 6. 0-0 c6 7. d3 a6 8. Bd2 He8 9. Dcl e5 10. Bh6 b5 11. Bxg7 Kxg7 12. Rd2 Ha7 13. b4 d5 14. a4 dxc4 15. dxc4 d4 16. Rce4 Rxe4 17. Rxe4 f5 18. Rc5 DbO 19. Da3 a5 20. Hfbl Rd7 21. Rxd7 Bxd7 22. c5 Da6 23. e3 dxc3 24. Dxe3 axb4 25. Hxb4 Dc8 26. a5 Dc7 27. a6 e4 28. Dc3+ Kg8 29. Bfl Be6 30. Habl Dg7 31. Dxg7+ Kxg7 32. Hb7+ Hxb7 33. Hxb7+ KfG 34. Hc7 Bd5 35. Hxh7 Bf7 36. h4 Hb8 37. Be2 Hbl 38. Kg2 Hl)2 39. a7 Ha2 40. Hxf7+ og svartur gafst upp. Bragi Kristjánsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.