Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 15

Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 22. október TÍMINN 15 Ástand fiskistofna og friðunaraðgerðir fenginn vestur af landinu á milli 65 N og 66 N frá 50 sm mörkun- um að miðlínu milli tslands og Grænlands á timabilinu april-júni, þegar grálúðan er að koma frá hrygningu og er ekki búin að dreifa sér. Nauðsynlegt kann þvi að reynast að banna veiðar á þessu svæði á ofan- greindu timabili. A árunum 1970—1973 minnkaði heildargrálúðuaflinn á Islands- miðum úr 34,7 þúsund tonnum i 20,1 þúsund tonn og var minnkun- in i okkar afla hlutfallslegra meiri en i afla annarra þjóða. Grálúðustofninn er nú talinn of- veiddur og með tilliti til þess, er lagt til að heildaraflinn árið 1976 fari ekki fram úr 15 þús. tonnum. Liklegt er talið, að taka mætti úr stofninum 20 þúsund tonn árlega, er hann hefur náð sér. Steinbitur Meðalafli steinbits hefur verið 18 þúsund tonn á ári á árunum 1953—1972. Arin 1971—1973 reyndist meðalaflinn 13 þúsund tonn á ári. Einustu friðunarákvæði varð- andi steinbit eru þau, að bannað er að hirða fisk undir 40 cm að lengd. Miðað við ástand stofnsins, . er ekki talin ástæða til frekari verndunar, hvorki lokun veiði- svæöa né að ákveða hámarksafla. Þó telur stofnunin að nauðsynlegt sé að draga úr sókn i steinbit á hyrningartima og fyrst á eftir (september til janúar), enda er hann lélegt hráefni þessum tima. Er hér bent á, að á sl. hausti var greitt lægra verð fyri steinbit veiddan á þessu timabili og er ef- laust gagn að slikri óbeinni friðunaraðgerð. Spærlingur Spærlingsstofninn er ennþá litið nýttur að þvi talið er. Veiðin hefur komist upp i 14 þúsund tonn á ári, en áætlað er að afkastageta stofnsins sé margfalt meiri. Ekki er álitið nauðsynlegt að gera neinar breytingar á þeim skilyrðum, sem nú eru fyrir leyf- um til spærlingsveiða. 3. Veiði uppsjávarfiska Sild Astand islensku sildarstofn- anna var svo slæmt við árslok 1971, að setja varð algert veiði- bann að undanteknum veiðum með reknetum. Bann þetta verður væntanlega i gildi til 15. september 1975, þannig að is- lensku vor- og sumargotssildar- stofnarnir hafa þá fengið nær al- gera friðun i 3 1/2 ár. Rannsóknir á stærð þessara sildarstofna gefa til kynna að sumargotssildin hafi rétt veru- lega við á þessu timabili, en ekki hefur enn orðið vart bata að þvi er varðar vorgotssildina. Sildveiðar verður þvi um fyrirsjáanlega framtið að stunda með itrustu varkárni, eins og gert verður grein fyrir siðar i þessari skýrslu og er því lagt til að hámarksafli árið 1976 fari ekki fram úr 15000 tonnum skv. nánari stofnstærðar- mælingum siðar á þessu ári. Loðna A undanförnum árum hefur verið fylgst allnáið með göngum og hegðun hry gningarloðnunnar á timabilinu janúar-april og til- raunir gerðar til þess að merkja hana áður en og um það bil, sem veiðar hefjast. Vegna þessara rannsókna má leiða að þvi all- sterkar likur að árlega hafi yfir- leitt ekki verið veitt nema sem svarar 1/10 hluta hrygningar- stofnsins, jafnvel á seinustu þremur vertiðum (1973—1975), þegar veiddust 440—460 þúsund tonn árlega. Margt bendir þvi til þess, að úr stofninum megi taka allmiklú meira, án þess að þess sjái merki I viðgangi stofnsins. Sfðan 1974 hefur verið gerð ár- leg könnun á magni og útbreiðslu loðnuseiða og hlutfallsleg stærð árganganna 1970—1974 áætluð. I ljós hefur komið, að loðnuklak hefur ekki mistekist þetta fimm ára timabil, fyrstu tveir ár- gangarnir (1970og 71) geta flokk- ast sem stórir og þrir þeir siðast- töldu (1972-74) sem mjög stórir. Þar sem loðnan verður ekki nema 3-4 ára gömul og aðeins tveir ár- gangar standa að hrygningunni, geta sveiflur i stofnstærð orðið mjög snöggar og miklar, ef klak mistekst, þó ekki sé nema einu sinni. Þó ætti að vera kleift að sjá fyrir og vara við slikum sveiflum I tæka tið. Rannsóknir og veiðitilraunir hafa ennfremur leitt i ljós: a. Aö ókynþroska, auðveidd og mögur loðna hefur vetursetu á djúpmiðum austanlands á timabilinu janúar — april. b. Að tveggja og þriggja ára loðna hefur ekki náð viðunandi fitumagni (10%) á ætissvæðinu norðanlands fyrr en i ágúst. c. Að unnt er að veiða mikið af 1 1/2 árs gamalli, magurri (5—6%) feitri loðnu noröan- lands að sumarlagi. d. Að þessi 1 1/2 árs loðna nær tvöfaldar lengd sina og a.m.k. þrefaldar þyngdina til næsta árs. Með tilliti til hins góða ásig- komulags loðnustofnsins er engin ástæða til að kveðið sé á um há- marksafla að svo stöddu. 4. Rækju-, humar- og skelfiskveiðar Rækja Rækjuveiðar hafa lengi verið háðar leyfum og ber að halda þvi. Flest mið eru innan gömlu 12 milna fiskveiðilandhelginnar og þau, sem utan eru, einungis nýtt af islenskum veiðiskipum. Forgangsréttur heimamanna til veiða á eigin miðum hefur án efa haldið sókninni I skefjum, en stofnunin telur, að sóknin sé of mikil bæði við Isafjarðardjúpog á Arnarfirði. Til þess að stemma stigu við veiði á smárækju væri heppilegra að ákveða viku- skammt fyrir hvern bát i stað þess að ákveða heildarvikuafla allra bátanna. Nauðsynlegt er þó að haldið verði áfram tak- mörkunum á heildarafla á hverju veiðisvæði fyrir sig. Æskilegt er að taka upp notkun flokkunarvéla eins og gert er þegar i Húnaflóa. Nauðsynlegt er að ákveða meðallágmarksstærð landaðrar rækju fari ekki yfir 300 stk/kg. (Nú er meðallágmarks- stærðin i Húnaflóa 300 stk/kg, i Isafjarðardjúpi 340 stk/kg — var 350 stk/kg — og er svo enn i Arnarfirði). Hafrannsóknastofnunin þarf að geta friðað svæði vegna smá- rækju eða smáfisks, eins og verið hefur, sem og stöðvað veiðar, er æskilegum heildarafla er náð. Hafrannsóknastofnunin tekur undir þær tillögur smábátaeig- endafélagsins Hugins að bátur verði til eftirlits og aðstoðar veiðiskipum i ísafjarðardjúpi. Væri hugsanlegt að láta starfsemi sliks báts einnig ná til Arnar- fjarðar og Húnaflóa. Iluniar Hámarksafli sá, sem settur var á humarveiðina árið 1973 hefur gefið góða raun og er stofninn nú I vexti, þótt vertiðin i ár hafi geng- ið verr en efni stóðu til vegna slæms tiðarfars. Reiknað er með að auka megi aflahámark á næstu árum, svo að taka megi allt að 3600 tonnafhumri, þegar stofninn hefur náð sér. Þó verður að halda áfram með þau ákvæði, sem i gildi eru um humarveiðar svo sem hámarksafla, lágmarks- stærð humars, möskvastærð o.fl. Þá þykir sýnt að takmarka þurfi bátafjölda. Hörpudiskur Til hagkvæmrar nýtingar á hörpudiskstofninum þarf að beina veiðiskipunum á fleiri veiðisvæði en gert hefur verið að undan- förnu. Stofnunin mælti með 5 þús- und tonna hámarksafla á Breiða- firði en þetta aflamagn hefur ekki náðst sökum litillar sóknar. Nauðsynlegt er að halda gild- andi ákvæðum um lágmarks- stærö, sem landa má. Þó kæmi til greina að lækka þessi mörk á svæöum þar sem hörpudiskur er frekar smár en i miklu magni. Mætti með þessu fá fram æski- lega grisjun stofnsins til aukins vaxtar. Talið er að veiðisvæði á Vest- fjöröum og Húnaflóa standi að- eins undir nokkur hundruð tonn- um á ári, enda hafa þessi svæði látið talsvert á sjá frá þvi veiðar hófust þar. 5. Tillögur a. Togveiðar skulu óheimilar innan 12 sm frá grunnlínu- punktun á svæðinu frá Látra- bjargi norður fyrir land að Papey, að Kolbeinsey meðtal- inni. Frá Papey vestur um að Látrabjargi skal togveiði hvergi leyfð nær landi en 4 sm frá grunnllnupunktum. Stofn- unin gerir ekki tillögur um skiptingu veiðisvæða milli mismunandi skipahópa. b. Reynsla undanfarinna ára hef- ur sýnt, að oft er þörf skjótra aðgerða til að stemma stigu við skaðlegum veiðum á Is- landsmiðum. Þar af leiðandi telur Hafrannsóknastofnunin nauðsynlegt, að henni verði veitt heimild til að stöðva veiðar á ákveðnum svæðum fyrirvaralaust i allt að 10 daga, enda fari strax fram nákvæm rannsókn á viðkomandi svæði, sem ákvarðanir stjórnvalda um frekari aðgerðir geti byggst á. Stofnunin telur, að þetta sé raunhæfasta og örugg- asta leiðin til þess að koma i veg fyrir skaðlegar veiðar á viðkvæmum svæðum án þess að hindra aðrar veiðar um- fram það sem nauðsyn krefur. Til þess að sllkar ráðstafanir komi að gagni þarf öflugt og stöðugt eftirlit á veiðisvæðinu, einkum þar sem hætta er á smáfiskdrápi sbr. þorskkafl- ann. Hafrannsóknastofnunin telur, að nauðsynlegt sé að hún fái sérstakt skip til þessara verkefna. c. Vegna alvarlegs ástands ýmissa islenskra fiskstofna og annarra dýrategunda er nauð- synlegt að ákvarða hámarks- afla einstakra tegunda til þess að stuðla að sem bestri nýtingu viðkomandi stofna. d. Hafrannsóknastofnunin hefur látið vinna úr öllum þeim gögnum, sem hún á um hrygn- ingu þorsksins við Suðvestur- land sl. 20 ár. 1 ljós kom að aðalhrygningarsvæðið á Sel vogsbanka liggurá svæði, sem takmarkastaf eftirfarandi lin- um: 63 15’N að sunnar, 63 32’N að norðan, 21 30’V að vestan og 20 40’V að austan. Er þvi lagt til, að svæði þessu verði lokað fyrir öllum veiöum timabilið 1. april til 15. mai i stað núverandi svæðis. e. Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á lág- marksstærð fisks, sem leyfi- legt er að hirða: þorskur 50 cm (i stað 43 cm nú) ýsa 45 cm (i stað 40 cm nú) ufsi 50 cm (i stað 45 cm nú) sild 27 cm (i stað 25 cm nú) loðna 12 cm (i stað engin stærðar- mörk) f. Koma máívegfyrirtöluverðar smáfiskveiðar með þvi að lögbinda stærri möskva við þorskveiðareða á svæðum þar sem þorskur er meginuppi- staða aflans. Sáralitið af þorski yfir 45 cm sleppur i gegnum 135 mm möskva I poka. Eina verulega vandamálið samfara frekari stækkun möskvans er i sambandi við karfaveiðarnar, eins og gerð var grein fyrir i 2. kafla. Stofn- unin leggur þvi til að fyrir Norður- og Austurlandi, þar sem karfaveiðar eru hverf- andi, verði möskvi i botn- vörpu, flotvörpu og dragnót stækkaður verulega. Möskva- stærð verði ákveðin með hlið- sjón af lágmarksstærð fiskteg- undar sem landa má og sam- kvæmt tilraunum, sem fram fara fyrir lok þessa árs. Svæði þetta nái frá Kögri að vestan og austur um til suðurs að Berufjarðarál. Þá verði öllum togbátum, sem ekki stunda karfaveiðar (þ.e. minni tog- bátar, sem fiska á grunnslóð- um, sunnanlands og vestan) gert að nota þá möskvastærð, sem ákveðin verður við Norður- og Austurland. Sérstök ástæða er til að benda á gildandi reglur um klæðn- ingu poka og þýðingu eftirlits með þeim. Lagt er til, að skut- togaraflotinn taki upp svokall- aða pólska klæðningu, þar sem möskvastærð efra byrðis er tvöföld á við það, sem er i pok- anum. g. Sildveiðar i nót verði háðar leyfum og leyfisveitingum þannig háttað, að einungis fá- um skipum verði veitt veiði- leyfi samtimis, þar eð slikt myndi auðvelda eftirlit og draga úr hættu á smásildar- drápi i stórum stil. Sildveiðar i flotvörpu verði bannaðar og veiðar verði ein- ungis heimilaðar á þeim árs- tima, sem sumargotssildin gefur mestar og bestar af- urðir, þ.e. frá 15. september til 15. desember. Ennfremur verði heimilt að banna tog- veiðar á hrygningarsvæðum íslensku sildarstofnanna. h. Til þess að stuðla aðsembestri nýtingu loðnustofnsins er lagt til að allar loðnuveiðar verði bannaðar á timabilinu 15. mai til 1. ágúst. A timabilinu 1. mars til 15. mai verði allar loðnuveiðar bannaðar fyrir Norður- og Austurlandi frá Hornbjargi að Eystra-Horni utan gömlu 12 sjómilna land- helgislinunnar. Flotvörpu- veiðar á loðnu verði háöar leyfum. i. Stofnunin telur æskilegt að draga talsvert úr sókn með þorsknetum á vetrarvertið. Talið er, að slik sóknarrénun myndi ekki leiða til minnkandi vertiðarafla, en myndi koma i veg fyrir óþarfa kostnað. Stofn- unin treystir sér þó ekki til að leggja fram ákveönar tillögur i þessu efni, en bendirá nauðsyn þess, að raunhæft eftirlit verði haft með þessum veiðum. j. Stofnunin telur að beita megi verðmunun á fiski eftir stærð, frekar en nú er gert, til að draga úr smáfiskaveiði. Er sérstaklega bent á karfa i þessu sambandi. 6. Lokaorð. Tillögur Hafrannsóknastofnun- arinnar, sem fram hafa komið i 5. kafla og viðar i þessari skýrslu, byggjast fyrst og fremst á þvi, að raunhæfu og fljótvirku eftirliti með veiðunum verði komið á fót. Ef svo verður ekki, er ljóst, að nauðsynlegt er að loka öllum þeim veiðisvæðum, sem talin hafa verið viðkvæmari en önnur og nefnd hafa verið hér að fram- an. Ennfremur er ljóst, að há- marksafkastagetu einstakra stofna verður ekki náð nema heimilt verði að setja aflatak- markanir á viðkomandi tegund. Stofnunin telur, að islenski fiski- skipastóllinn einn sé nú meira en nógu stór til að tryggja varanlega hámarksnýtingu miðanna i fram- tiðinni. Af þvi leiðir, að nýting stofnanna verður ekki hægkvæm fyrr en erlend veiðiskip hverfa af Islandsmiðum. Reykjavik 13. október 1975 Jón Jónsson Hafnargerð í Þorlókshöfn miðar vel / PÞ Sandhóli — Syöri hafnargaröurinn I Þorlákshöfn er nú vel á veg kominn og er oröinn um 200 metrar á iengd. Hann á eftir aö hækka mikiö enn, eöa aö veröa tveim metrum hærri en kúian fremst á honum. Dóios-steinarnir, sem eru utan á garöinum, hafa þegar sannaö ágæti sitt, þvi aö þegar sunnanátt er og mikill sjór þá deyr aldan, er gefur yfir gamla garöinn. Nýlega var byrjaö að leggja noröurgaröinn og miöar þvi verki vel áfram.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.