Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 22. október TÍMINN 9 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla- son. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargöty, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, sími 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð f lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði. Blaðaprent H.f. AAanndómspróf Á þessum degi eru rétt hundrað ár liðin siðan fjölmennur hópur langhrakinna íslendinga, karla, kvenna og barna, var settur á land i kulda og stormi á vesturströnd Winnipegvatns, þar sem seinna nefndist Viðines, örskammt þaðan sem nú er bærinn Gimli. Þetta fólk var komið óraleið um haf og hauður til þess að gerast landnemar á ókunnum slóðum og stofna þar islenzka nýlendu. Það steig fyrst hvitra manna fæti á það land, sem kallað hefur verið Nýja-ísland, i þeim vændum að hefja þar búskap og hafa þar fasta búsetu. Þessa fólks biðu miklar raunir. Þvi var fleygt á land i jaðri eyðiskógar i byrjun vetrar, þegar kom- ið var frost og snjór á jörðu. Það hafði enga gripi til þess að lifa við, enda engin heyjaföng til þess að framfleyta á skepnum, og það hafði ekki að nein- um skýlum að hverfa. Það hafði ekki heldur neinn forða matvæla, nema hvað það flutti með sér, og þó af skornum skammti. Ein konan i hópnum tók jóðsótt samtimis og land var tekið, og ól barn und- ir stórum steini, sem enn er til sýnis þar á vatns- bakkanum. Hið fyrsta fæðingarheimili landnem- anna var aðeins lélegt hróf, sem tildrað var upp i snatri af allslausu fólki, og þar léku vindar lausum hala og snjór þyrlaðist inn á sængurkonuna. Löng- um hefur verið til þess vitnað, er kona ein úr Ár- neshreppi á Ströndum ól barn i hákarlalegu i kringum 1840. Fæðingu fyrsta Islendingsins á Nýja-lslandi bar að með svipuðum hætti. Þarna í auðninni var fólkið skilið eftir, eitt sins liðs og öllu ókunnugt. Hreppstjórar á Islandi voru á þeim dögum margir harðir i horn að taka og ó- náðugir, þegar örbjarga fólk baðst af þeim liknar. í eyðiskóginum við Winnipegvatn voru aðeins fá- mennir flokkar Indiána og firnalöng leið til byggð- ar hvitra manna suður við Rauðá. Hver, sem á þennan stað var kominn, hlaut annað tveggja að duga eða drepast. Skýli varð aðeins fengið með þvi að fella tré og hrófa upp bjálkakofum, sem íslend- ingar kunnu þó ekki tökin á, og matfanga varð ekki aflað nema með veiði i vatni og skógi. Aðkomu- fólkið vissi ekki heldur, hvernig henni varð helzt hagað með árangri, en naut þess, að sumir Indián- anna urðu þeim vinsamlegir leiðbeinendur. í kjölfar alls annars kom svo mannskæð bólusótt og langvarandi sóttkvi með margvislegum þreng- ingum. Vosbúð, skortur og sjúkdómar hjuggu stórt skarð i hópinn. Það er hinn átakanlegi þáttur i upphafskafla islenzks landnáms á Nýja-lslandi, að þar laut verulegur hópur Islendinga siðast i lægra haldi fyrir harðrétti. Og kálið var ekki sopið, þótt i ausuna væri komið. Þegar þessir fyrstu landnemar höfðu rutt land og komið sér fyrir, svo að við hefði mátt una, urðu þeir fyrir nýjum áföllum — ekki sizt stórflóð- um, sem eyðilögðu uppskeruna, svo að margir hrökkluðust burt til nýs landnáms á nýjum slóð- um. Um þær raunir fjallar hið fræga kvæði Gutt- orms J. Guttormssonar, Sandy Bar. Hundrað ár eru liðin, og mikil saga hefur gerzt. íslenzki kynstofninn i Vesturheimi, sem upphaf- lega var ekki i miklum metum, hefur getið sér góðan orðstir og stendur i hvivetna jafnfætis fólki af öðru þjóðerni, þótt fámennur sé. Vissulega sjá- um við hér heima enn i dag eftir öllu þvi fólki, sem fluttist vestur um haf. Hitt höfum við hreppt i staðinn, að geta glaðzt yfir þvi, hve vel það og niðj- ar þess hafa staðizt sitt manndómspróf. JH Grænhöfðaeyjar — lítið ríki með hungur í arf Portúgalir settu tugi þús. eyjaskeggja, sem ekki gátu framfleytt sér sjálfir, i vegavinnu, svo aö nú eru viða góöir vegir á Grænhöfðaeyjum. ÞEGAR HIÐ sjúka og fom- eskjulega nýlenduveldi Portú- gala hrundi til grunna með skjótum hætti, og þó tiltölu- lega skaplegum, voru Græn- höfðaeyjar ( Cap Verde) — litill, mannfár og snauður eyjaklasi I Atlantshafinu vest- an Afriku — meðal þeirra svæða, sem öðluðust sjálf- stæði. Grænhöfðaeyjar bera tæp- ast nafn, sem lýsir þeim rétt. Græni liturinn lætur þar litið yfir sér, og má helzt segja, að eyjarnar séu gráar eða brúnleitar, enda eru þar mest sandar og auðnir. Þar er oft mjög þurrviðrasamt, þótt Uti i reginhafi sé, og sólin sviður eyjarnar og geitfénaður hefur gengið nærri þeim gróðri, sem þar hefur þrifizt i öndverðu. t fimm hundruð ár drottn- uðu PortUgalar á þessum eyj- um, sem fyrr á timum vom mikilli siglingaþjóð þægilegur hvildarstaður á langferðum. En eyjunum sjálfum hafa þeir ekki orðið til gagnsmuna, þótt þeir hafi haft þar fimm aldir til athafna. Þegar portúgalski fáninn var dreginn niður, voru þar um þrjU hundruð þúsund snauðar sálir, sem eiga ætt sina að rekja til afriskra þræla og ambátta, portUgalskra þrælakaupmanna og gæzlu- manna þeirra og örfárra jarð- eigenda, sem sölsuðu undir sig hvern nýtan skika. Siðustu aldir hefur fólk si- fellt verið að flytjast brott frá Grænhöfðaeyjum. 1 Ameriku er fleira fólk ættað þaðan heldur en á eyjunum sjálfum, og segir það sina sögu um lifs- kjörin heima fyrir, sérstak- lega þegar haft er i huga, að eignalaus og margkUgaður lýður átti ekki greiða leið til annarra heimshluta. Fyrstu eyjarskeggjarnir,' sem leituðu brott, komust með bandariskum hvalveiðibátum tilMassachusetts og Rhode Is- land að frumkvæði skipstjóra, sem voru að leita sér áhafnar, sem þeir gátu látið þræla kauplítið eða kauplaust. Ahab skipstjóri i Moby Dick hefur sjálfsagt haft menn frá Græn- höfðaeyjum meðal háseta sinna. Þegar hungur svarf að, voru menn fúsir til þess að ráðast á slik skip, hvað sem svo beið þeirra þar, rétt eins og fjölmargir Vestfirðingar réðust á hollenzkar skútur á átjándu öld, þegar þær höfðu bækistöð á Tálknafirði, er á þeirra máli hét Luze Bay. Sið- ast var hungursneyð á Græn- höfðaeyjum á árunum upp úr 1940, og sú hungursneyð hratt af stað mikilli öldu landflótta, sem eitt af skáldum eyjar- skeggja hefur lýst á átakan- legan hátt og likt við fjöldaaf- töku. Langvinnir þurrkar og mikil neyð hefur á ný orðið hlut- skipti þess fólks, sem byggir Grænhöfðaeyjar, nú á allra siðustu árum. Þar hafa eyj- arnar verið undir svipaða sök seldar og belti það i Afríku sem harðast hefur orðið úti. Slðastliðin sjö ár hefur regn verið þar af skornum skammti, og þetta árið, sjálf- stæðisárið, hefur varla komið dropi úr lofti. Þegar þurrkarnir byrjuðu i lok sjöunda áratugarins, gerð- ist það i fyrsta skipti, að portúgölsk yfirvöld á eyjunum töldu sig helzt ekki geta látið fólkið deyja úr hungri og ves- öld. Orsökin var sú, að augu heimsins hvildu á Portúgöl- um, sem sjálfir þóttust vera bandamenn lýðræðis og frelsis, mitt i harðstjórn sinni og óstjórn, en voru á hinn bóg- inn harla illa séðir bandamenn viða um lönd. Foringi eyjar- skeggja i sjálfstæðisviðleitni þeirra, Amilcar Cabral, sneri sér til Sameinuðu þjóðanna og gagnrýndi harðlega nýlendu- stjórn Portúgala, og Portúgal- ar urðu nauðugir viljugir að treina liftóruna i fólkinu á eyj- unum af pólitiskum orsökum. Þannig er það til komið, að nú eru viða ágætir vegir á Grænhöfðaeyjum. Karlar og konur, öldungar og börn — allir, sem ekki gátu framfleytt sér sjálfir, voru kvaddir i vegavinnu, alls um fimmtiu þúsund manns. Kaup full- friskra manna var um tvö hundruð krónur á dag. Upp- haflega var unnið átta klukku- stundir á dag, en smám sam- an var vinnudagurinn styttur i fjórar stundir. Hugsunin bak við þetta var ekki borin upp af neinum framfarahug, heldur einhverju ámóta og hagfræð- ingurinn Keynes kallar að grafa holu i jörðina og fylla hana aftur, svo að láta megi eins og fólk vinni fyrir kaupi. í sannleika sagt gat Portúgölum varla verið það mikið keppikefli i seinni tið aðhalda Grænhöfðaeyjum. En fyrsti forsetinn eftir fall ein- ræðisharðstjórnarinnarj, Spinóla, beitti sér af ofstopa gegn þvi, að Grænhöfðaeyjar fengju frelsi. Hann hafði hernaðaraðstöðuna i huga. Þarvar draumurhans að hafa virki og herstöð. Nú hefur komiðá daginn, að Portúgalar hafa (vafalaust á kostnað Atlantshafsbandalagsins) komið upp umfangsmikilli samgöngubækistöð á öðrum eyjaklasa við vesturströnd Afriku nálægt miðbaug, Saó Tóme, er fékk stjálfstæði nokkrum dögum siðar en Grænhöfðaeyjar. Er þessi bækistöð á eyju, sem heitir Saó Tiagó. A baksviðinu er svo Suður-Afrika, þar sem menn þykjast ekki óhultir um flugleiðir slnar. Vandkvæðum yrði bundið fyrir flugvélar þeirra að komast að heiman og heim til og frá Evrópu, ef þær gætu ekki lent á leiöinni. Flugvellir á meginlandi Afriku eru þeim viðast hvar lokaöir. Spinóla var steypt, svo sem allir vita, og nú er það PAIGC, frelsisflokkurinn i Guineu-Bissá og Grænhöfða- eyjum, er öllu ræður i þessum tveim nýju rikjum. A Grænhöfðaeyjum hlaut hann öll þingsætin, fimmtiu og sex, er kosið var þing, sem á að reyna að ráða fram úr erfið- leikjum eyjaskeggja. Kaþólska kirkjan, sem á af- armiklar lendur á Grænhöfða- eyjum reyndi i lengstu lög að koma I veg fyrir valdatöku frelsisflokksins. Beittu kirkju- höfðingjarnir sér af alefli, bæði I Portúgal og á eyjunum sjálfum. Bæði var skirskotað til trúarlegra tengsla og leitazt við að mikla þann mun, sem var á viðhorfum og hags- munum fólks á Grænhöfða- eyjum og i Guineu. Þar kom, að foringi frelsisflokksins á Grænhöfðaeyjum, Amilcar Cabral, var myrtur árið 1973, og svo virðist sem leynilög- reglan portúgalska og enda sjálfur Spinóla hafi komið þar mjög við sögu. Amilcar Cabral var talinn einn af fremstu hugsuðum þriðja heimsins. Þessi undirróður allur bar þann árangur, að sumir Afrikumenn fóru að trúa þvi, að foringjarnir á Grænhöfða- eyjum væru að sölsa undir sig öll yfirráð innan PAIGC, og loks brauzt út skotbardagi i Conakry að næturlagi. Fram á þennan dag hafa áhrifamiklir aðilar reynt að vekja ótta fólks á Grænhöfðaeyjum við afrisk yfirráð, en jafnframt hefursá áróður verið rekinn I Gineu- Bissá, að landinu sé i raun fjarstýrt frá Grænhöfðaeyj- um. Það eru þó PAIGC-foringjarnir, sem áhrifamestir eru. Raunar eru margir þeirra, sem starfa i Guineu-Bissá, frá Grænhöfða- eyjum, og þeir sem heim eru komnir, börðust flestir i skæruliðasveitum i Guineu, áður en veldi Portúgala hrundi. Það varpar þó ekki á þá neinum skugga heima fyrir. Þegar aðalritari PAIG-hreyfingarinnar, Aristides Pereira, kom heim til þess að gerast forseti hins nýja rikis, var það sem Che Guevara hefði komið heill á húfi með sigursveig um höfuð til heimalands sins eftir byltingu á Kúbu. A stefnuskrá PAIGC-hreyfingarinnar, er samband við Grænhöfðaeyja og Gufneu-Bissá. En það er margt sett i stefnuskrár flokka, sem aldrei verður að veruleika. Það er trúlegt, að PAIGC-leiðtogarnir á Grænhöfðaeyjum muni smám saman fara sinar götur og foringjarnir i Guineu-Bissá sinar. Eitt er að standa saman i skæruhernaði, en annað að taka ákvarðanir um stjórnarfar og fjármál, þegar sjálfsforræði er fengið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.