Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 14

Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Miðvikudagur 22. október LÖGREGLUHA TARINN 46 Ed McBain Þýðandi Haraldur Blöndal Sá grunaði tók til fótanna. Genero féll til jarðar og hundurinn sleikti andlit hans. Willis komst upp úr svefn- pokanum og Eileen Burke hneppti að sér blússunni og kápunni. I sama mund kom Hawes hlaupandi inn í skrúð- garðinn, en rann til á hálum stígnum framan við þriðja bekk. AAinnstu munaði að hann hálsbryti sig í fallinu. — STANZ....LÖGREGLAN, hróppaði Willis. Þá gerðist kraftaverk kraftaverkanna. Sá grunaði snarstanzaði og varð eins og steinrunninn. Hann beið eft- ir að Willis nálgaðist með byssu í annarri hendinni og útataður í varalit í andlitinu. xxx Sá grunaði hét Alan Parry. Þeir fræddu hann um lögvernduð persónuréttindi hans, og hann samþykkti að ræða við þá, án þess að hafa lögfræðing sér við hlið, þrátt fyrir að viðstaddur væri lögmaður, ef ske kynni að hann óskaði þess. — Hvar átt þú heima Alan, spurði Willis. — Við hornið hér f yrir handan. Ég þekki ykkur alla. Ég mæti ykkur hvern einasta dag. Þekkið þið mig ekki. Ég bý hinum megin við hornið. — Kannizt þið við hann, spurði Willis félaga sína. Allir hristu þeir höfuðið og mynduðu hring umhverfis manninn. Þarvoru mættir kexsölumaðurinn, nunnurnar tvær, ástfangna parið og stór, rauðbirkinn maður með svolitla gráa slikju á hárinu. Hann var með sáraumbúðir á fætinum og á ullarnærfötunum. — Hvers vegna ætlaðir þú að hlaupa Alan, spurði Will- is. — Ég heyrði skothljóð. Þegar fólk heyrir skothljóð í þessu hverfi, er ráðlegast að hlaupa. — Hver er félagi þinn? — Hvaða félagi? — Sá sem er með þér í þessu. — AAeð mér í HVERJU?? — AAorðsamsærinu. — AAORÐSAAASÆRINU??? — Vertu ekki að látast, Alan. Ef þú kemur vel f ram við okkur, munum við láta þig njóta þess. — Þú hefur handsamað rangan mann, sagði Parry. — Hvernig ætluðuð þið að skipta peningunum? — Hvaða eningum? — Peningunum i nestisskrínunni. — Heyrðu mig nú. Ég hef aldrei séð þessa skrínu fyrr. — Það eru þrjátíu þúsund dollarar í henni, vinur sæll, sagði Willis. Reyndu nú ekki að látast með þetta. Þetta er enginn leikur. Annað hvort varaðist Parry þessa gildru, eða hann vissi ALLS EKKI að í skrínunni áttu að vera fimmtíu þúsund dollarar. Að minnsta kosti hristi hann höfuðið og sagði: — Ég veit ekki neitt um neina peninga. Ég var beðinn að sækja skrínuna og gerði það. — Hver bað þig um það? — Stór, I jóshærður maður með heyrnartæki á öðru eyr- anu. — Ætlastu til aðég trúi því? sagði Willis. Þetta var lykilsetning, sem leynilögreglumenn 87. sveitar höfðu margoft beitt við yf irheyrslur. AAeyer blandaði sér þegar f yfirheyrsluna: — Vertu ekki of harður sagði hann, Hal.... Þetta var lika lykilsetning. Þar með var Willis gefið til kynna, að enn gætu þeir sett á svið tvo andstæða póla í yf irheyrsl- unni. Willis yrði harðsnúni fanturinn, sem reyndi hvað hann gat til að hanka vesalings Alan Parry á falskri ákæru — en AAeyer yrði sá samúðarf ulli. Hinir leynilög- reglumennirnir yrðu eins konar þróað af brigði af gríska leikkórnum. Þeirra hlutverk var að kinka öðru hverju kolli, íbyggnir á svip. Faulk úr 88. sveit var vel kunnugur þessari aðferð, og var því sem á heimavelli. Willis létekki svo lítiðað lita á AAeyer, en sagði hvasst: — Of harður? Hvað áttu i við? Hann er búinn að spinna lygavef síðan hann kom hér inn. i — Kannski hitti hann stóran, Ijóshærðan mann með heyrnartæki á öðru eyra. Gefðu honum tækifæri til að segja okkur frá þessu, sagði AAyer. — Kannski sá hann líka röndóttan fíl með bláum f lekkjum, sagði Willis... — Hver er félagi þinn? Svaraðu mér, þroturinn þinn. — Ég er ekki með neinn FÉLAGA, sagðiParry. Hann sneri sér til AAeyers og sagði í umkvörtunartón: — Viltu segja honum aðég séekki meðneinn félaga? — Vertu rólegur, Hal. Segðu okkur nánar frá þessu, Alan, sagði AAeyer. — Ég var á leið heim, þegar... — Hvaðan? — hvæsti Willis. I i í E í f !■ ! iil liffiMi !i MIÐVIKUDAGUR 22. október 7.00 Morguniítvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugreinar dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Björg Arnadóttir les söguna „Bessi” eftir Dorothy Canfield i þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur (15). Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriða. Kirkjutóniist kl. 10.25: Morguntónleikar kl. 11.00: 12.00 Dagskráin. Tónleikar, Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: ,,A fullri ferð” eftir Oscar Clau- sen. Þorsteinn Matthíasson les (7). 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphorn. 17.00 Lagið mitt. ^ 17.30 Smásaga: „Sakra- menti” eftir Þóri Bergsson. 17.50 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 A ,kvöldmálum. 20.00 Ginleikur i útvarpssal: Rögnvaldur Sigurjónsson leikur á píanó Sónötu pathetique op. 13 eftir Beet- hoven. 20.20 Sumarvaka. 21.35 tJtvarpssagan: „Fóst- bræður” eftir Gunnar Gunnarsson. Þorsteinn ö. Stephensen leikari les (4). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Kjarval” eftir Thor Vilhjálmsson. Höfundur les (5). 22.35 Skákfréttir. 22.40 Orð og tónlist. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. AAiðvikudagur 22.október 18.00 Mynd án orða Fylgst með tveimur litlum, jap- önskum stúlkum i skólanum og að leik. 18.20 Höfuðpaurinn Bandarisk teiknimynd. Þýðandi Stefán Jökulsson. 18.45 Kaplaskjól Breskur myndaflokkur byggður á sögum eftir Monicu Dickens. Afmælisveisla i Kaplaskjóli. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Hlé 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.40 Nýjasta tækni og visindi. Of hár blóðþrýstingur. Sam- ræmingbjörgunaraðgeröa á sjó. Hættuiegt ryk. Umsjónarmaður Siguröur H. Richter. 21.05 Farþeginn. Breskt saka- málaleikrit. 2. þáttur. Aðal- hlutverk Peter Barkworth og Paul Grist. Þýöandi Jón Thor Haraldsson. 21.50 Huglækningar. Endursýndur þáttur úr myndaflokknum Sjötta skiiningarvitið. Fjlalað um lækningar Einars Jónssonar bónda á Einarsstöðum i Reykjadal. Rætt er við hann og Hrafnkel Helgason, yfirlækni, og fyrrverandi sjúkling þeirra beggja, Baldur Sigurösson bónda i Reykjahlið. Einnig tekur séra Sigurður Haukur Guðjónsson þátt i umræðunum. Umsjónar- menn Jökull Jakobsson og Rúnar Gunnarsson. Þessi þáttur var frumfluttur 3. ágúst 1975. 22.40 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.