Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 20

Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 20
Miðvikudagur 22. október SÍMI1E234 ttERRft GARDURINN A-ÐALSTRÆTI9 SÍS-FÓlHJll SUNDAHÖFN G0ÐI fyrir góöan ntai $ KJÖTIÐNAÐARSTÖO SAMBANDSINS FRANCOFÉKK HJARTA- ÁFALL í GÆR — Sterkur orðrómur um andlót hans Reuter/Madrid. Fréttir frá Madrid i gær hermdu, að Francisco Franco, þjóðar- leiðtogi Spánar, hefði fengið væga aðkenningu að hjarta- slagi i gær, en væri á bata- vegi. t kjölfar þessarar fréttar bárust aðrar fregnir, sein sögðu Franco látinn. Franco er nú 82 ára að aldri og hefur verið við stjórn i tæplega fjörtiu ár. Fregnin um að Franco væri látinn, var borin til baka af talsmönnum spænsku stjórnarinnar. Segja þeir Franco einungis þjást af kvefi sem hann hafi fengið i siðustu viku, en væri nú á góðum batavegi. Fréttin um að Franco væri látinn birtist fyrst, þegar bandariska fréttastofan ABC rauf útsendingu sina og sagði, að starfsmönnum Hvita hússins hefði verið skýrt frá þvi, aö Franco væri iátinn. Talsmaður banda- riska sendiráðsins i Madrid neitaði þvi i gær að fréttin um andlát Francos væri komin frá sendiráðinu. Ron Nessen, blaðafulltrúi Fords Bandarikjaforseta, sagði, aö fréttin um andlát Francos hefði borizt til Hvitahússins, en hún hefði ekki verið stað- fest. Spænskir fréttaritarar hjá Sameinuðu þjóðunum skýrðu svo frá i gær, að þeim hefði verið tjáö, að búast mætti við yfirlýsingu frá Madrid þess efnis, að Juan Carlos, rikis- erfingi á Spáni, myndi taka við stjórn landsins. Frá þessu var skýrt áður en ABC birti frétt sina. Fréttaskýr- endur eru mjög i vafa um, hvernig túlka beri fregnirnar um heilsu Francos. Vitað er, að suður-afriski hjartasér- fræðingurinn, dr. Barnard, var i Madrid i siðustu viku, og dvaldi hann þá hjá tengdasyni Francos, sem einnig er þekktur hjarta- læknir. Átök í Oporto í Portúgal Margt hefur angrað Franco að undanförnu. Hér sést hann ásamt Juan Carlos, rikiserfingja. Er Sithole Idtinn? Reuter/Rhodeslu. N.anir aðstoðarmenn dr. Sithole, eins helzta leiðtoga innfæddra Rhodesiubúa, óttast nú, að dr. Sithole sé látinn. Ekkert hefur spurzt tii dr. Sithole frá þvi á miðvikudag i siðustu viku, en þá hvarf hann ásamt ritara sfnum. Vegfarandi, sem leið átti fram hjá hóteli þvi I Salisbury, þar sem Sithole hélttil, heldur því fram að hann hafi séð tvo hvíta menn ráðastað Sithole og nema hann á brott. Bretar og Norð- menn ræða um fiskveiðimál Reuter/Osló. Areiðanlegar fréttir frá Osló I gær hermdu, að Norðmenn hefðu mikinn hug á að færa núverandi fiskveiðimörk sin i Norður-Noregi út, en á þvi svæði eru fiskveiðar jafnt norskra sem erlendra togara bannaðar. Er það ætlunin, að þeir sjómenn, sem veiði nálægt landi, sitji einir að þeim veiðisvæöum, sem við út- færsluna myndu falla innan hinna nýju marka. Sagði i fréttunum að Jens Evensen, hafréttarráðherra Norðmanna myndi ræða þennan möguleika, þegar hann hittir David Ennals, aðstoðarutanrikis- ráðherra Breta, í London á fimmtudaginn. Evensen mun einnig ræða við Ennals um fyrir- huguð áforin Norðmanna um að færa auðlindalögsögu landsins út i 200 sjómilur. — Leiðtogar sósialista og kommúnista þinga Beirút: 10 manns létu lífið f gær — Fer Karami til Damaskus? Reuter/Lissabon. Atök brutust aftur út I Norður-Portúgal f gær, og urðu þau til þess að auka enn á þá óvissu, sem rikir I stjórnmála- og hernaðarlifi iandsins. Atökin urðu með þeim hætti, aö óþekktir árásarmenn réðust að bókaverzlun, sem kommúnistar i Oporto reka, og vörpuðu þeir sprengju að verzluninni. Hinn hægfara flokkur miðdemókrata, CDS, lýsti þvi yfir i gær að bensinsprengju hefði verið varpað að skrifstofum þeirra i Leiria, suður af Oporto. Francisco da Costa Gomes, Portúgalsforseti, kallaði saman til fundar i gær leiðtoga kommúnista og sósialista, i þeirri von, að með þeim fundi mætti lægja nokkuö öldurnar i portú- gölsku stjórnmálalifi, en mikil spenna hefur verið i samskiptum þessara tveggja stjórnmálafylk- inga. Mið-demokrötum var hins vegar ekki boðiö til fundarins. Reuter/London. Reutersfrétta- stofan I London skýrði frá þvf I fyrradag, að mikill uggur sé nú meðal brezkra umhverfisfræð- inga, þar sem komiö hafi I Ijós, að baneitraö kjarnorkuúrgangsefni, sem taki þúsundir ára að eyöast, sé flutt til Bretlands tii frekari vinnslu og fullnýtingar. Stjórn Verkamannaflokksins, sem gerir nú allt sem i hennar valdi stendur til þess að styðja viö bakiðá brezku viðskiptalífi I þeim þrengingum, sem gengið hafa yf- ir að undanförnu, viðurkenndi i gær, að i Bretlandi væru úrgangs efni þessi, sem koma frá nokkr- um þjóðum, geymd. Jafnframt viðurkenndu talsmenn stjómar- innar, að nú stæöu yfir samninga- viðræður milli stjórna Bretlands Fransisco da Costa Gomes fer i dag til Italiu, og mun hann þar meöal annars eiga viðræður viö Pál páfa. Frá Italíu heldur hann til Júgóslaviu til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Hættulegt leikfang Reuter/Nairobi, Kenya. Fullorð- inn maður og fimm börn biðu bana, þcgar gömul fallbyssu- sprengja sprakk I þorpinu Embu, norður af Nairobi. Fann maður- inn sprengjuna i skóginum utan viö þorp sitt og fór meðhana heim til sin. Þar handiék hann sprengj- una án þess að vita, hvers konar grip var um að ræða, með framangreindum afleiðingum. og Japans um aö Bretar kaupi fjögur þúsund tonn af þessum banvæna úrgangi. Fréttirnar um úrgang þennan birtust I blaðinu Daily Mirror I fyrradag, og hafa þær vakið, eins og fyrr segir, mikinn ugg meðal vfsindamanna, þar sem þeir ótt- ast, aö úrgangsefnin kunni að berast út i umhverfi sitt, þótt stjórnin haldi þvi fram, að fyllsta öryggis sé gætt. Telja visinda- menn það einnig hæpna stefnu, að ætla aö gera Bretland að eins konar ruslatunnu fyrir hættuleg úrgangsefni frá öðrum þjóðum. Úrgangsefnin eru geymd i höggþéttum stáltönkum, sem hafðir eru 6,5 metra undir vatns- yfirborði i kjarnorkutilraunastöð- inni I Windscale f Cumbira I Norð- vestur-Englandi. Reuter/Beirut. Skothvellir og sprengjuhvinir kváðu viö I Beirut, höfuðborg Libanon, i gær, og létu að minnsta kosti 10 manns lifið, að þvf er segir i fréttum frá Bei- rut i gær. Þingmenn á libanska þinginu létu þó allt slikt sem vind um eyru þjóta, þvi að þeir komu saman tii fundar í miðborg Beirut I gær til þess að kjósa nýjan þing- forseta. Fallbyssusprengju var skotið að húsi einu i hverfi kristinna manna I borginni og létu þá þrir llfið, en 10 særöust alvarlega. Seinna um daginn var svo annarri sprengju skotið að skála öryggis- varöa I austurhluta borgarinnar, en við það biðu þrfr öryggisverðir bana og einn óbreyttur borgari. Einn maður varskotinn til bana við vegartálma i norðurhluta borgarinnar og svo fundust sex önnur lik þeirra, sem fallið hafa i baráttunni, sem átti sér stað i fyrrinótt. Mikið var um mannrán þá nótt, bæði af hálfu múhameðs- trúarmanna og kristinna manna. Orrustugnýrinn kvaö við um alla borgina og úthverfi hennar, eins og fyrr segir. óttazt var, að þingmennirnir á libanska þinginu gætu ekki komiðsaman til fundar sins, eins og fyrirhugað var, en á fundinum átti að velja nýjan þingforseta og ræða hið alvarlega ástand stjórnmála i landinu. 99 kjömir fulltrúar sitja á þinginu I Beirut. Þingmennirnir létu þó eins og fyrr segir orrustugnýinn sem vind um eyru þjóta og óku eftirauðum strætum borgarinnar til þinghússins, sem var vandlega gætt af öryggisvörðum og lög- .reglusveitum. Kamal Asaad, var endurkjörinn forseti þingsins I ni- unda skiptið. Hann er múhameðs- trúarmaður. 23 biðu bana i fyrradag I átökunum, sem þá áttu sér stað, og opinberar skýrslur herma, að tala þeirra, er látið hafá lifið sl. 7 mánuði sé nú komin upp i eitt þúsund sex hundruð og fimmtiu en meira en þrjú þúsund manns hafa særzt. Vopnaðir menn úr sveitum beggja deiluaðila ráfuðu um göt- ur borgarinnar I gær, þrátt fyrir samninga þá, sem leiðtogar deiluaðila hafa gert með sér að undanförnu um aö slikt ætti ekki að eiga sér stað. Fregnir herma, að átök hafi átt sér stað I gær á aöalgötu Beirut borgar, þar sem upplýsingamála- ráðuneyti rikisstjórnarinnar hef- ur aðsetur sitt. ísýrlenzka blaðinu Pro-Syrian, var skýrt frá þvi i gær, að Rashid Karami, forsætisráðherra Liban- on, væri bráðlega væntanlegur til Damaskus til viðræðna við sýr- lenzka leiðtoga um ástandið i Libanon. Frétt þessi var ekki staðfest I rikisútvarpinu i Liban- on I gær. I sýrlenzka blaðinu sagði ekki, hvenær Karami kæmi til Sýr- lands, en þar sagði hins vegar, að áður en hann snéri aftur til Beirut myndi hann gefa út örlagarika yfirlýsingu, sem skipta kynni sköpum i átökum hinna striðandi aðila I Libanon. tspKSanEK v&vr"*$£■ vv'. viÍ'ÍtÆÍ'/íK • * Sýrlenzka biaðið Pro-Syrina heidur þvi fram að fyrirhuguð Damaskus- ferð Karamis ráði úrslitum um framgang borgarstriðsins i Libanon. Fær hann deiluaðiia til að leggja niður vopnin? Bretland ruslatunna eitraðra úrgangsefna frá öðrum þjóðum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.