Tíminn - 22.10.1975, Page 10
10
TÍMINN
Miövikudacriir 29 nktnhor
Miövikiiriniriir 29 aItUKap
TtlVITW
Starfsiþróttir eru vinsælar.
Hver er staða UMFÍ, innan is-
lenzkrar iþróttahreyfingar?
Þessi spurning hlýtur að vakna
nú, þegar á næsta leiti er
fjárlagagerð Alþingis, og i beinu
framhaldi af þeirri umræðu sem
Gunnar Sveinsson, gjaldkeri
UMFI, hóf i fyrra eftir hina
furðulegu afgreiðslu á
fjárveitingum til landshreyfing-
anna tveggja UMFI og ÍSÍ, þar
sem UMFI fékk 800 þúsund kr.
hækkun á móti 6milljónum til ISI.
Lengst af sátu þessar lands-
hreyfingar við sama borð i fjár-
veitingum rlkisins, þar til nú hin
slðari ár, að veruleg mismunun
hefur átt sér stað i fjárveitingum
til þeirra hver svo sem ástæðan
er?
Af gefnu tilefni virðist það lika
vera nauðsyn að rifja upp nokkr-
ar ákveðnar staðreyndir i þessu
sambandi, þótt ekki væri til ann-
ars en að kveða niður visvitandi
sögufalsanir um uppruna is-
lenzkrar iþróttahreyfingar, og
siðast en ekki sizt til þess að gefa
alþingismönnum og öðrum opin-
berum aðilum upp raunverulega
stöðu Ungmennafélags íslands
innan Iþróttahreyfingarinnar fyrr
og siðar.
Landssamböndin tvö
Með orðinu iþróttahreyfing er
að sjálfsögðu átt við alla þá aðila
með einni þjóð, sem að Iþrótta-
starfseminni standa, bæði á
frjálsum áhugamannagrundvelli,
og á vegum opinberra aðila. Sam-
kvæmt íþróttalögunum frá 1940
eru það landssamböndin tvö
UMFl og ISI, sem spanna að
mestu hinn félagslega þátt
áhugamannastarfsins, en auk
þess hefur iþróttastarfsemi skóla
farið mjög vaxandi ár frá ári, og
almannaiþróttir ófélagsbundins
fólks aukast jafnt og þétt, meðal
annars fyrir tilstilli áðurnefndra
félagshreyfinga og jákvæða af-
stöðu opinberra aðila hérlendis.
Upphaf islenzkrar iþrótta-
hreyfingar á félagslegum grund-
velli hefst með stofnun ung-
mennáfélaganna fyrir tæpum 70
árum og fyrsta landssamband fé-
lagsbundis iþróttafólks hér á
landi er Ungmennafélag Islands
stofnað 1907.
A öðru sambandsþingi UMFI
sem haldið var 1908, var landinu
skipt niður i fjórðungssambönd,
og þegar stofnuð fjórðungssam-
bönd i öllum landsfjórðungum
nema Vestfirðingaf jórðungi.
Fljótlega var svo rætt um að
stofna sýslu-eða héraðssambönd,
þar sem fjórðungssamböndin
þóttu óeðlilega stór félagssvæði,
kostnaðarsöm, og starfsemin öll
þung I vöfum. A þriðja sam-
bandsþingi UMFI kemur fram sú
hugmynd að stofna eitt allsherj-
ar-samband um iþróttir, er sér-
staklega legði stund á útbreiðslu
þeirra. Arið 1912 er svo íþrótta-
samband Islands stofnað fyrst og
fremst fyrir skelegga baráttu
Sigurjóns Péturssonar á Álafossi,
sem taldi slikt nauðsynlegt, ef is-
lenzkir Iþróttamenn ættu að koma
fram erlendis og taka þátt f kapp-
mótum þar, og eins og segir i frétt
frá þessum tima i Skinfaxa, mál-
gagni islenzkra ungmennafélaga,
„Máliðhafði lengi verið á döfinni
og meðal annars verið eitt af
áhugamálum nokkurra ung-
mennafélaga”.
Þannig greinir sagan okkur frá
stofnun islenzkra ungmenna-
félaga og annarra áhugamanna á
sérsambandi um iþróttir ISl árið
1912. Eitt af fyrstu verkefnum
hin nýstofnaða iþróttasambands
var svo sem kunnugt er, að undir-
búa þátttöku islenzkra iþrótta-
manna i Olympiuleikunum i
Stokkhólmi það sama ár.
UMFí stofnar héraðs-
samböndin
Fyrir þennan tima höfðu komið
fram megnar óánægjuraddir með
fjórðungssamböndin, og fyrir
sambandsþingið 1911 ræðir þá-
verandi formaður UMFt, Helgi
Valtýsson f Skinfaxa, um nauðsyn
þess, að skipta landinu i sýslu-
eða héraðssambönd, og var það
siðan gert með lagabreytingu á
sambandsþingum UMFÍ 1914 og
15.
Það er þvi furðulegt, að ábyrgir
starfsmenn innan iþrótta-
hreyfingarinnar i dag skuli koma
fram fyrir alþjóð I f jölmiðlum og
halda þvi fram, að ISl hafi
stofnað héraðssambönd islenzkra
ungmennafélaga. Það er svona
álika fávizkulegt og ef einhver
heföi haldið þvi fram að UMFl
hefði stofnað iþróttabandalögin
innan ISÍ. öðru máli gegnir hins
vegar um stofnun ÍSl, eins og áð-
ur getur, og sérsambanda þess.
Við stofnun sérsambandanna inn-
an 1S1 hefur komið til fulltingi
héraðs.sambandanna innan
UMFI, þvi að ákveðinn fjölda
iþróttabandalaga og héraðssam-
banda þarf til stofnun sérsam-
bands um sérstakar iþróttagrein-
ar, samkvæmt lögum ISl.
Móðurhreyfing
islenzkra iþróttamanna
Móðurhreyfing islenzkra
iþróttamanna, UMFÍ, og forustu-
menn hennar, hafa alltaf álitiö
rétt að stofna sérsamband um
Iþróttir, og sérsambönd um
iþróttagreinar. Það stuðlar að
framvindu og eflingu iþróttanna,
sem er einn af höfuðþáttum i
starfi ungmennafélagshreyfing-
arinnar. Forustuhlutverk ISI,
eins og það er skilgrein-i íþrótta-
lögum, breytir ekki þeirri stað-
reynd, að landssambönd is-
lenzkra iþróttamanna hafa siðan
1912 verið tvö! UMFÍ og ÍSI og
þessi skipan mála fékk svo ótvi-
ræða lagalega staðfestingu með
íþróttalögunum 1940. Margt
bendir hins vegar til þess nú, að
landssamböndum iþróttafólks á
Islandi geti fjölgað á næstunni, og
er þá helzt talað um stofnun sér-
staks iþróttasambands skóla og
ef til vill fleiri. Hér er ekki um
neitt sérislenzkt fyrirbæri áö
ræða, þvert á móti er það mjög
algengt, að íþróttahreyfingar
þjóða samanstandi af talsveröum
fjölda iþróttasambanda, sem
hvert um sig eru siðan sjálfstæðir
Sýningaflokkur á landsmótinu á Laugarvatni.
______________
Starfið er margt
Hafsteinn Þorvaldsson, form. U.M.F.Í.:
Hver er staða UMFI
innan íslenzkrar
íþróttahreyfingar t
aðilar innan iþróttahreyfingar-
innar og njóta fjárhagslegrar
fyrirgreiðslu opinberra aðila sem
slik, eða i gegnum sameiginlegar
fjáröflunarleiðir i hlutfalli við
umsvif og starf.
lþróttalögin gera ráð fyrir þvi
að kosin sé sérstök Iþróttanefnd
rikisins, sem sjái um framkvæmd
laganna. Form. nefndarinnar
er tilnefndur af menntamálaráð-
herra án tilnefningar, en lands-
samböndin tvö, UMFl og ISI til-
nefna svo sinn fulltrúann hvor i
nefndina.
Rökstuðningur eins nefndar-
manna sem sömdu iþróttalaga-
frumvarpið 1940, Aðalsteins
Sigmundssonar, var á þessa leið:
„Eftir mikla og vandlega ihugun
komst Iþróttanefndin, sem samdi
frumvarpið, að þeirri niðurstöðu,
að heppilegast væri og eðlilegast,
að þrir menn ættu sæti i íþrótta-
nefndinniog þeir væru valdir eins
og lögin gera ráð fýrir. Að tveir
nefridarmanna standi I beinni lif-
andi snertingu við hina frjálsu,
félagsbundnu iþróttastarfsemi
áhugamanna i landinu, séu
kunnugir henni og njóti
óvéfengjanlegs trausts hennar.
Þautvöfélagasambönd, sem eiga
að velja menn i nefndina, hafa að
vlsu bæði með höndum Iþrótta-
hvatningu, þjálfun og kappleiki,
og samvinna þeirra hefur ætið
verið hin bezta, þau tæp þrjátiu
ár, sem þau hafa starfað samtim-
is. En verkum er þannig skipt
meö þeim, að hvorugt þeirra get-
ur komið fram i þessu efni fyrir
hins hönd.... ISI fer einkum með
iþróttastarfsemi I kaupstöðum og
þéttbýli, og með allsherjarkapp-
leiki og heildarstjórn Iþrótta-
mála. UMFI hefur aftur á móti
meginhluta iþróttastarfseminnar
I sveitum og dreifbýli, þar sem öll
aðstaða er örðugust. Þriðji
neftidarmaðurinn gætir þar hags-
muna rikisvaldsins og skólanna”.
Þessi skilgreining á ákvæðum
Iþróttalaganna um verkaskipt-
ingu og stöðu UMFI og 1S1 er i
fullu gildi enn þann dag í dag, og
tekur af öll tvimæli um sjálfstæði
þessara tveggja félagshreyfinga I
iþróttastarfinu hér á landi. ÍSI,
sem á sinum tima er stofnað sem
sérsamband um iþróttir, getur á
engan hátt talizt samband is-
lenzkra ungmennafélaga, og
hefur aldrei verið falið það hlut-
verk.
Fjölmörg stefnumál
Stefnumál ungmennafélaganna
eru fjölmörg önnur en iþróttir,
svo sem alþjóð er kunnugt. Til
þess að fyrirbyggja misskilning
skal það þó tekið fram, að ung-
mennafélögin eru öll aðilar að ISÍ
til þess að öðlastfyllstu réttindi til
hvers konar iþróttalegra sam-
skipta, fyrst og fremst við
erlenda aðila. Á sama hátt er
UMFI aðiliað Landvernd með öll
sin sambandsfélög vegna land-
græðslustarfsins.
En hver er þá hlutur UMFÍ inn-
an Islenzkrar iþróttahreyfingar,
og hvaða mælikvarði er þar
óhlutdrægastur? Enn verður
stuðzt við Iþróttalögin og þá út-
reikninga sem fengizt hafa úr
kennsluskýrslum Iþrótta- og ung-
mennafélaga á s.l. áratug og þar
má glöggt greina vaxandi starf-
semi ungmennafélaganna á sviði
Iþróttamála, sem meðal annars
má rekja til stórbættrar aðstöðu
úti á landsbyggðinni og vaxandi
félags- og iþróttastarfsemi á
vegum UMFl, einstakra héraðs-
samnanda og ungmennafélaga.
Þessu til viðbótar læt ég nægja
að minna á Landsmót UMFI, sem
ótviræðan vitnisburð, um árang-
ur Islenzkra ungmennafélaga á
sviði iþrótta- og félagsstarfs.
Hafsteinn Þorvaldsson.
íþróttahátiðir, sem allir lands-
menn þekkja, ýmist af eigin þátt-
töku, eða afspurn.
Aðurgreinda stjórnunar- og
hlutfallsskiptingu á milli lands-
hreyfinganna tveggja, UMFI og
ISI má rekja til annarra veiga-
mikilla þátta iþróttastarfseminn-
ar. Þannig eiga UMFI og ISÍ sinn
fulltrúann hvort I stjórn tþrótta-
kennaraskóla Islands. Eignarað-
ild að íslenzkum getraunum
skiptist þannig: ISÍ 70%, UMFl
20% og íþróttasjóður rlkisins
10%.
Réttlætiskrafa UMFÍ
Þá er ég komin-að kjarna máls-
ins, sem sé, hvort ekki sé réttlátt
að öörum opinberum fjárveiting-
um, og tekjustofnum til frjálsrar
Iþróttastarfsemi á vegum UMFI
og ISI sé skipt i sömu hlutföllum
og úrvinnsla kennsluskýrslna
gefur til kynna hverju sinni. I dag
er þar fyrst og fremst um að ræða
hina svokölluðú sigarettupen-
inga, en s.l. 10 ár hefur 1S1 haft
fastan tekjustofn af sölu
vindlingapakka i landinu á móti
Slysavarnafélagi íslands, en
pakkagjaldið var sem kunnugt er
tvöfaldað við afgreiðslu fjárlaga
ársins 1975. — Tekjustofn, sem
ætlaður var til styrktar hinu'
félagslega, og iþróttalega starfi
landsbyggðarinnar, eins og orðað
var á sinum tima. Vert er einnig
að geta þess, að alþingismenn
þess tima stóðu i þeirri góðu trú,
að þeir væru að leysa sameigin-
lega fjárþörf iþróttahreyfingar-
innar með lögfestingu þessa
tekjustofns, en siðar kom i ljós, að
þessi tekjustofn var eingöngu
ætlaður ISI til ráðstöfunar.
Réttlætiskrafa hefur það þvi ver-
ið alla tið, að skipta þessum
tekjustofn til ráðstöfunar milli
sambandanna, til dæmis sam-
kvæmt útreikningi kennslu-
skýrslna hverju sinni.
Undirritaður væntir þess, að
hæstvirtir alþingismenn geri sér
Ijóst við afgreiðslu næstu fjárlaga
rikisins, að UMFÍ er og hefur
alltaf verið sjálfsagður aðili að
iþróttastarfseminni i landinu, og
engar fjárveitingar fengið af
styrkveitingum til ÍSI, enda yrði
það að teljast i' hæsta máta óeðli-
leg afgreiðsla, þar sem UMFI er
jafnrétthár aðili samkvæmt
íþróttalögunum.
Þá vænti ég þess að menn kynni
sér starfsemi þjónustumiðstöðv-
ar (skrifstofu) UMFI i Reykjavik
við aðildarfélögin 190 viðs vegar
um land, þeir sem ekki þegar
hafa kynnzt þeirri starfsemi.
Sama má segja um ýmsa
veigamikla verkefnaþætti eins og
Félagsmálaskóla UMFl, en þess-
ar stofnanir báðar þekkir fjöldi
landsmanna bæði innan hreyfing-
arinnar og utan. Siðast en ekki
sizt vænti ég þess að hæstvirtir
alþingismenn meti að verðleikum
eigin fjáröflun hreyfingarinnar,
sem i dag nemur 2/3 hlutum af
heildarveltu sambandsins.
Frá landsmótinu á Sauðárkróki.
Fjöimargir fylgjast með leik og keppni á Landsmótum. Eiöar 1968.
Kennslustyrkir íþróttanefndar síðustu 10 órin
Skipting milli ungmennafélaga og annara félaga
Kennslust. alls Til ungmennaf. Til annarra Umf. önnur
1. 1964 500.000,- kr. 175.000,- kr. 325.000,- kr. 35% 65%
2. 1965 500.000,- kr. 170.000,- kr. 330.000,- kr. 34% 66%
3. 1966 1.000.000,- kr. 432.000,- kr. 568.000,- kr. 43,2% 56,8%
4. 1967 1.000.000,- kr. 328.000,- kr. 672.000,- kr. 32,8% 67,2%
5. 1968 925.000,- kr. 385.200,- kr. 539.800,- kr. 41,6% 58,4%
6. 1969 925.000,- kr. 424.000,- kr. 501.000,- kr. 45,8% 54,2%
7. 1970 925.000,- kr. 406.000,- kr. 519.000,- kr. 42,8% 57,2%
8. 1971 1.800.000,- kr. 812.000,- kr. 988.000,- kr. 45,1% 54,9%
9. 1972 2.000.000,- kr. 730.000,- kr. 1.270.000,- kr. 36,5% 64,5%
10. 1973 3.000.000,- kr. 1.500.000,- kr. 1.500.000,- kr. 50% 50%
ATH. Samkv. reglu sem samþykkt var I april 1958 ættu félög eða sambönd I sveitum sem eru
bæði i ISl og UMFÍ og fá 75% styrk á keypta kennslu og kemur sá hlutur til UMFÍ félaganna að
jöfnu i gegnum ISl og UMFt frá Iþróttanefnd rikisins.
t kaupstöðum er hlutfallið 50%.
Meðaltal siðustu lOára:
Meðaltal siðustu 5ára:
Umf.
Umf.
Kennslustyrkir þessir eru reiknaðir út eftir áriegum kennsluskýrslum frá félögunuin, og er
þetta eina raunhæfa matið á þvi hvar og hverjir framkvæma iþróttastarfiö. Þetta hlutfall ætti þvi
að gilda í skiptingu allra framlaga rikisins til áðurnefndra félagshreyfinga UMFt og tSt.
HBHHHH
HHHHfiHnHHHBnHHBHHHHHHHHHHHHHHHHHHHI
I^^HHHH^HIHHHHHHÍHHHII^IIHHHHhHHHHHIHHH