Tíminn - 22.10.1975, Qupperneq 13
Miðvikudagur 22. október
TÍMINN
13
SlI i
Leikhús eða
drykkjukrá?
H. Kr. skrifar:
„Ég fór i Þjóðleikhúsið á
sunnudaginn að sjá Ringulreið.
Mig langar að fylgjast með þvi,
sem islenzkir menn gera og
kallast leikhúsverk.
Mér brá i brún, þegar ég kom
i leikhúskjallarann. Þar er
borðum skipað eins og á veit-
ingastað, og fólk sezt þar að
mat og drykk. Sætum er þann
veg skipað, að flestir snúa hlið
að leiksviði, ef þeir sitja réttir á
stólunum. En þar sem flestir
hafa augun framan i andlitinu,
en ekki bæði augu á annarri
hliðinni eins og flatfiskurinn,
verða þeir að vinda upp á sig
eða snúa sér svo að stólbakið sé
til hliðar, komi þeir fótum fyrir
þannig.
1 fyrravetur var drykkjukráin
til hliðar við áhorfendasvæöið.
Nú er leikhúsið sjálft orðið að
drykkjukrá. Nærri má geta, að
það stuðlar ekki að kyrrð og
betra næði.
Það fylgir þessum nýja sið, að
leikhúsið gerir ráð fyrir að
áhorfendur reyki i sætum sin-
um, meðan á sýningu stendur.
Það er nýjung og ekki góð. Þar
með tekur Þjóðleikhúsið sér
stöðu með þeim, sem halda
þeim hugsunarhætti að fólki, að
ekki sé nema sjálfsagt að reykja
hvar sem er og hvenær sem
mönnum dettur það i hug. Þeir
sem þessu húsi stjórna, þykir
liklega ekki nóg að einn sveinn
af hverjum tuttugu sé byrjaður
reykingar niu vetra. Þeir vilja
a.m.k. láta sina menningar-
stofnun stuðla að þvi, að þar
verði aukning á.
Enn er til fólk, sem fellur illa
eiturstybba sigarettunnar. Það
væri kurteisi að virða rétt þess á
almannafæri. Það er ldgt undir
loft i kjallara Þjóðleikhússins.
Eru ekki til einhverjar reglur
um andrúmsloft i skólastofum?
Þær eiga kannski ekki við i leik-
húsum. Og reykingar á sam-
komustöðum almennings varða
vist ekki heilbrigðiseftirlitið.
Hvernig væri að kenna þvi
góða fólki, sem reykir, að tó-
baksreykur er i vitum sumra
óspilltra manna einn hinn hvim-
leiðasti fnykur, sem um getur?
Ég hef lesið nokkra listdóma
um sýningar i kjallaranum i
vetur, en man ekki eftir nokkru
orði þar um þennan nýja sið. Ef
til vill finnst listdómurum að
það varði engu listina, menn-
inguna eða . áhorfendur
almennt, þó að leikhúsið sé gert
að drykkjukrá.
Sjálfsagt er þessi nýja skipan
gerð til þess að koma til móts
við óskir fólksins og hressa við
fjárhaginn. Ekki er vanþörf á að
bæta afkomuna, ef hægt væri.
En þá er lika rétt að það komi
fram, að enda þótt þetta kunni
að laða vissan hóp i kjallarann,
heldur það öðrum frá honum..
Vinnirðu einn, þá taparðu hin-
um. Og þá er spurningin þessi:
Leikhús eða drykkjukrá?”
Síldartunnur ódýrari
að utan
Kaupid stniK-aq
MÚGA-
VÉL TS8D
Múgavél, sérstaklega
hentug til raksturs
á undan heybindivélum
og sjálfhleðsluvögnum
Skilur eftir sig jafna og
lausa múga
Lyftutengd og þvi lipur
í snúningum
Vinnslubreidd 2,80 m
BH—Reykjavik. „Samkvæmt á-
ætlun um innlenda tunnusmiði,
sem gerð var á vegum Tunnu-
verksmiðju rikisins i byrjun
þessa árs, var rúmlega 60% af
framleiðsluverði efniskostnaður,
sem kaupa verðui* erlendis frá.
Vinnulaun voru áætluð rúmlega
20% af framleiðslukostnaðar-
verði.
Fjórðungur áætlaðs skips-
hliðarverðs á tunnum þeim, sem
nú eru fluttar inn, er innlendur
kostnaður, svo sem flutnings-
gjald, uppskipun ofl. Allar tunnur
þær, sem keyptar eru erlendis
eru fluttarmeð Islenzkum skipum.
Þannig segir i fréttatilkynn-
ingu, sem Sildarútvegsnefnd,
sem fer með stjórn Tunnuverk-
smiðju rikisins, hefur sent frá sér
i sambandi við innlenda smiði
og innflutning á tunnum til sildar-
söltunar. Þar segir ennfremur:
Hinn 27. febrúar s.l. var Bæjar-
stjórn Siglufjarðar og Verkalýðs-
félaginu Vöku á Siglufirði ritað
bréf, þar sem leitað var álits
þessara aðila á þvi, hvort þeir
teldu æskilegt áð tunnufram-
leiðsla yrðihafin á ný á Siglufirði
og þess óskað að svör bærust sem
allra fyrst. Þrátt fyrir itrekaða
beiðni höfðu engin svör borizt, er
stjórn Tunnuverksmiðju rikisins
fjallaði um þessi mál á sérstökum
fundi 29. mai s.l. og var Bæjar-
stjórninni og Verkalýðsfélaginu
þá ritað á ný og óskað eftir að
álitsgerð þessara aðila bærist eigi
síðar en 20. júni.
Þann 6. júni barst svarbréf frá
Verkalýðsfélaginu Vöku, þar sem
félagið lagði til, að tunnufram-
leiðsla verði ekki tekin upp á
Siglufirði að svo stöddu eða
a.m.k. ekki fyrr en Húseiningar
h/f, sem fengið höfðu Tunnuverk-
smiðjuhúsið á leigu, hefðu mögu-
leika á að flytja I eigið húsnæði. 1
svarinu segir jafnframt orðrétt:
„Vérteljum það ekki óraunhæft
meðan ekki er séð, hve mikil þörf
er fyrir sildartunnur, að doka við
með framleiðslu þeirra eitt til tvö
ár, jafnvel þótt flytja þyrfti inn
nokkurt magn.....”
Undir bréf þetta ritar Óskar
Garibaldsson fyrir hönd Verka-
lýðsfélagsins Vöku.
Frá Bæjarstjórn Siglufjarðar
hafa engin svör borizt ennþá.
Með tilliti til framanritaðs hefir
megnið af þeim tunnum, sem
ætlaðar eru til sildarsöltunar á
yfirstandandi vertið, verið flutt
inn.
Meðan Tunnuverksmiðjur
rikisins störfuðu var jafnan flutt-
ur inn verulegur hluti þeirra
tunna, sem notaðar voru til
sildarsöltunar og var verð þeirra
komið á söltunarhafnir mun
lægra en verð á islenzkum tunn-
um.
Örfóar vélar óseldar — Greiðsluskilmólar
Hagkvæmt haust-verð
kr. 147 þúsund með söluskatti
Verðtilboð þetta stendur til 5. nóvember -
eða meðan birgðir endast
Ghbus?
LÁGMÚLI 5. SIMI 81555
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Fjölmiðlar
og
kvennafrí
gébé—Rvik. — Eins og kunnugt er
virðist fyrirsjáanlegt, þar sem
þátttaka kvenna á kvennafridag-
inn 24. okt. virðist vera mjög
aimenn, að Timinn komi ekki út
laugardaginn 25. október. Sömu
sögu er að segja um Þjóðviijann
og Alþýðublaðið, en ekki er enn
ákveðið hvernig verður meö Visi
og Dagblaðið. Aftur á móti virð-
ast aliar iikur benda til þess að
Morgunblaðið komi út, að sögn
skrifstofustjóra þess i gær. Enn
er það þó ekki fastlega ákveðið,
en ýmsar hugmyndir inunu vcra
á lofti um, hvernig ætti að gera
blaðinu kieift að koma út á
laugardagsmorgun.
Tíminn hefur fregnað að
setjarastúlkur hjá Morgunblað-
inu munu fúsar til að vinna eftir
klukkan tólf á miðnætti þann 24.
október.
Enginn kvenmaður verður við
vinnu á fréttastofu né auglýsinga-
deild rikisútvarpsins á þessum
margumtalaða degi, 24. október.
Sömu sögu er að segja um sjón-
varpið. Ef einhver vandkvæði
koma upp á þessum stöðuni þ.e.
að ekki fáist nógu margir til
vinnu, yrði það helzt vegna þess
að karlmennirnir neyðist til að
halda sig heima til að gæta bús og
barna á meðan húsmæðurnar
taka sér fri og sækja fundinn á
Lækjartorgi.
FRAMSÓKNARVIST OG DANS
Baldur Hólmgeirsson
stjórnar
Ánægjuleg kvöldskemmtun
jfyrir alla fjölskylduna
vetrarins
Súlnasal—
kl. 20,30
Sverrir Bergmann,
læknir flytur óvarp
Húsið opnað kl 20:00
Framsóknarfélag Reykjavikur
Fyrsta framsóknarvist
í KVÖLD að
Sögu