Tíminn - 13.11.1975, Side 1

Tíminn - 13.11.1975, Side 1
HREYFILHITARAR I VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HF HÖRÐUR GUBfflARSSON SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 Landhelgissamningarnir renna út á miðnætti ÓLAFUR JÓHANNESSON: Vona að Bretar fylgi fordæmi V-Þjóðverja — og haldi sig fyrir utan 200 mílurnar AÞ-Reykjavík. — i umræðum, sem urðu utan dag- skrár i neðri deild Alþingis I gær um Iandheigismál- ið, sagði Ólafur Jóhannesson dómsmáiaráðherra, að ekki væri vitað, hver viðbrögð Breta yrðu, þegar samkomulagið við þá rynni út á miðnætti i kvöld. Sagði ráðherrann, að það væri skynsamlegast af Bretum að fylgja fordæmi Vestur-Þjóðverja og færa sig út fyrir 200 milurnar. Slikt myndi greiða fyrir hugsanlegri bráðabirgðalausn I landheigis- deilunni. Nokkrar umræður urðu i neðri deild, er Lúðvik Jósepsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár. Bað þingmaðurinn um svör við þvi, hvenær samkomu- lagið við Breta rynni út. Einnig krafðist hann svara við þvi, hvað rikisstjórnin hygðist bjóða, ef til samninga kæmi við Breta og Vestur-Þjóöverja. Og loks hvernig Landhelgisgæzlan myndi haga störfum sinum, eftir að samkomulagið rynni út. Ólafur Jóhannesson svaraði þvi til, að samkomu- lagið rynni út á miðnætti 13. nóvember, þ.e. á miö- nætti i kvöld. Hann sagði, að ekki hefði verið bund- inn endi á samkomulagsviðræður við þessar þjóðir. Vestur-Þjóðverjar hefðu fært skip sin út fyrir 200 milurnar, og hann vænti þess, að Bretar gerðu slikt hið sama. Um gæzlu landhelginnar svaraði dómsmálaráö- herra fyrirspurn Lúðvíks á þá leið, að henni yröi haldið uppi með venjulegum hætti, nema hvað nú bættust við þau svæði, sem áður hefðu veriö samn- ingsbundin. Sjá nánar um umræðurnar á þingsiðu bls. 8 og Viðavangi bls. 5. Umferðarmálin: Tilraunir á döfinni Gsal-Reykjavik — Orsakir þess- ara tfðu umferðarslysa eru ef- laust margar, en I mörgum tilfell- um eru orsakirnar þær, að hvorki ökumenn né gangandi vegfarend- ur virða þær rcglui; sem i gildi eru, sagði ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra i samtali við Timann i gærkvöldi. i gærmorgun gengu þrir fulltrúar lækna við Borgarspital- ann á fund ráðherra og ræddu við hann um hin alvarlegu umferðar- slys, sem orðið hafa að undan- förnu. — Ég var mjög ánægður yfir þvi að fá þessa heimsókn og tel þaö mjög virðingarvert hjá lækn- unum að hefjast þannig handa tii að vekja athygli á þessu máli, sagði Ólafur Jóhannesson. Dómsmálaráðherra kvaöst hafa haft þessi mál til athugunar að undanförnu, og sagði hann, að á döfinni væru ýmsar tilraunir til bóta, m.a. hækkun sekta og aukn- ing ökuleyfissviptinga. í gær- morgun hækkuöu sektir við of hröðum akstri um 100%, og einnig er nú heimilt að svipta menn öku- leyfum sinum fyrir vltaverðan akstur. Ólafur Jóhannesson nefndi enn- fremur, að reynt yrði aö auka umferðarfræðslu i skólum, út- varpi og sjónvarpi, ,,og ef til vill viðar”. Hann gat þess, að ekki væri nægilegt að fræöa barna- skólanemendur um umferöar- reglur og annaö I þvi sambandi, heldur þyrfti einnig aö fylgja þeirri fræðslu eftir og fræða nem- endur á öðrum skólastigum. Dómsmálaráðherra kvaöst biða eftir sérstökum tillögum frá umferðarráði, sem verið væri að vinna að, og sagði hann, að til- lagnanna væri að vænta fljótlega. Þeir fulltrúar lækna, sem gengu á fund ráðherra I gær- morgun, voru dr. Asgeir B. Ellertsson, Helgi Þórarinsson og Kristinn Guðmundsson. A bls. 3 er viðtal við dr. Ásgeir B. Ellerts- son. 30 LIGGJA í BORGARSPÍTAL- ANUAA EFTIR UAAFERÐARSLYS »3 Brezkir hafa fyrirmæli um að forðast allar ögr- anir við okkur Þ.ö.-Reykjavik. 1 fréttum, sem bárust frá London i gær, segir, að brezkir togaraeigendur hafi beint þeim tilmælum til skip- stjórnarmanna sinna, að þeir hafi ekki I frammi neinar ögr- anir, sem leitt gætu til átaka við islenzka varðskipsmenn. Brezka stjórnin hefur engu að siður, i varúðarskyni að þvi er hún segir, tekið á leigu þrjú skip, sem hingað til hafa haft þann starfa með höndum að vernda brezku oliuborpallana i Norðursjó. Eiga verndarskip þessi aö koma brezka fiskveiði- flotanum við Islandsstrendur til hjálpar, gerist þess þörf nú, eftir að samkomulag milli rikis- stjórna íslands og Bretlands um fiskveiðar við Islandsstrendur er gengið úr gildi. Verndarskipin þrjú voru i gær á leið til Leirvikur, en þar munu þau biða, þar til málin skýrast. Talsmaður brezku togaraeig- endanna lýsti þeirri von sinni i gær, að samkomulag næðist.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.