Tíminn - 13.11.1975, Síða 1
HREYFILHITARAR
I VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
HF HÖRÐUR GUBfflARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
Landhelgissamningarnir renna út á miðnætti
ÓLAFUR JÓHANNESSON:
Vona að Bretar fylgi
fordæmi V-Þjóðverja
— og haldi sig fyrir utan 200 mílurnar
AÞ-Reykjavík. — i umræðum, sem urðu utan dag-
skrár i neðri deild Alþingis I gær um Iandheigismál-
ið, sagði Ólafur Jóhannesson dómsmáiaráðherra,
að ekki væri vitað, hver viðbrögð Breta yrðu, þegar
samkomulagið við þá rynni út á miðnætti i kvöld.
Sagði ráðherrann, að það væri skynsamlegast af
Bretum að fylgja fordæmi Vestur-Þjóðverja og
færa sig út fyrir 200 milurnar. Slikt myndi greiða
fyrir hugsanlegri bráðabirgðalausn I landheigis-
deilunni.
Nokkrar umræður urðu i neðri deild, er Lúðvik
Jósepsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár. Bað
þingmaðurinn um svör við þvi, hvenær samkomu-
lagið við Breta rynni út. Einnig krafðist hann svara
við þvi, hvað rikisstjórnin hygðist bjóða, ef til
samninga kæmi við Breta og Vestur-Þjóöverja. Og
loks hvernig Landhelgisgæzlan myndi haga störfum
sinum, eftir að samkomulagið rynni út.
Ólafur Jóhannesson svaraði þvi til, að samkomu-
lagið rynni út á miðnætti 13. nóvember, þ.e. á miö-
nætti i kvöld. Hann sagði, að ekki hefði verið bund-
inn endi á samkomulagsviðræður við þessar þjóðir.
Vestur-Þjóðverjar hefðu fært skip sin út fyrir 200
milurnar, og hann vænti þess, að Bretar gerðu slikt
hið sama.
Um gæzlu landhelginnar svaraði dómsmálaráö-
herra fyrirspurn Lúðvíks á þá leið, að henni yröi
haldið uppi með venjulegum hætti, nema hvað nú
bættust við þau svæði, sem áður hefðu veriö samn-
ingsbundin.
Sjá nánar um umræðurnar á þingsiðu bls. 8 og
Viðavangi bls. 5.
Umferðarmálin:
Tilraunir á döfinni
Gsal-Reykjavik — Orsakir þess-
ara tfðu umferðarslysa eru ef-
laust margar, en I mörgum tilfell-
um eru orsakirnar þær, að hvorki
ökumenn né gangandi vegfarend-
ur virða þær rcglui; sem i gildi
eru, sagði ólafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra i samtali við
Timann i gærkvöldi.
i gærmorgun gengu þrir
fulltrúar lækna við Borgarspital-
ann á fund ráðherra og ræddu við
hann um hin alvarlegu umferðar-
slys, sem orðið hafa að undan-
förnu.
— Ég var mjög ánægður yfir
þvi að fá þessa heimsókn og tel
þaö mjög virðingarvert hjá lækn-
unum að hefjast þannig handa tii
að vekja athygli á þessu máli,
sagði Ólafur Jóhannesson.
Dómsmálaráðherra kvaöst
hafa haft þessi mál til athugunar
að undanförnu, og sagði hann, að
á döfinni væru ýmsar tilraunir til
bóta, m.a. hækkun sekta og aukn-
ing ökuleyfissviptinga. í gær-
morgun hækkuöu sektir við of
hröðum akstri um 100%, og einnig
er nú heimilt að svipta menn öku-
leyfum sinum fyrir vltaverðan
akstur.
Ólafur Jóhannesson nefndi enn-
fremur, að reynt yrði aö auka
umferðarfræðslu i skólum, út-
varpi og sjónvarpi, ,,og ef til vill
viðar”. Hann gat þess, að ekki
væri nægilegt að fræöa barna-
skólanemendur um umferöar-
reglur og annaö I þvi sambandi,
heldur þyrfti einnig aö fylgja
þeirri fræðslu eftir og fræða nem-
endur á öðrum skólastigum.
Dómsmálaráðherra kvaöst
biða eftir sérstökum tillögum frá
umferðarráði, sem verið væri að
vinna að, og sagði hann, að til-
lagnanna væri að vænta fljótlega.
Þeir fulltrúar lækna, sem
gengu á fund ráðherra I gær-
morgun, voru dr. Asgeir B.
Ellertsson, Helgi Þórarinsson og
Kristinn Guðmundsson. A bls. 3
er viðtal við dr. Ásgeir B. Ellerts-
son.
30 LIGGJA í BORGARSPÍTAL-
ANUAA EFTIR UAAFERÐARSLYS »3
Brezkir hafa
fyrirmæli um að
forðast allar ögr-
anir við okkur
Þ.ö.-Reykjavik. 1 fréttum, sem
bárust frá London i gær, segir,
að brezkir togaraeigendur hafi
beint þeim tilmælum til skip-
stjórnarmanna sinna, að þeir
hafi ekki I frammi neinar ögr-
anir, sem leitt gætu til átaka við
islenzka varðskipsmenn.
Brezka stjórnin hefur engu að
siður, i varúðarskyni að þvi er
hún segir, tekið á leigu þrjú
skip, sem hingað til hafa haft
þann starfa með höndum að
vernda brezku oliuborpallana i
Norðursjó. Eiga verndarskip
þessi aö koma brezka fiskveiði-
flotanum við Islandsstrendur til
hjálpar, gerist þess þörf nú,
eftir að samkomulag milli rikis-
stjórna íslands og Bretlands um
fiskveiðar við Islandsstrendur
er gengið úr gildi.
Verndarskipin þrjú voru i gær
á leið til Leirvikur, en þar munu
þau biða, þar til málin skýrast.
Talsmaður brezku togaraeig-
endanna lýsti þeirri von sinni i
gær, að samkomulag næðist.