Tíminn - 31.01.1976, Page 2
2
TÍMINN
Laugardagur 31, janúar 1976.
Jarðhitarannsóknum á Vest-
fjörðum haldið áfram í sumar
★ Tilraunaborun á Reyðarfirði í sumar?
★ Úttekt á jarðhita á Snæfellsnesi fyrirhuguð
FB-Reykjavik. Fyrirhugað er
að hefja rannsóknir á jarðhita-
svæðum á Vestfjörðum með
jarðeðlisfræðilegum mælingum
á sumri komanda, samkvæmt
upplýsingum Axels Björnssonar
hjá Orkustofnun. Ráðgert er, að
fara með stærri bor til Tálkna-
fjarðar, Suðureyrar og ísafjarö-
ar og bora þar, en þær holur,
sem boraðar hafa verið á þess-
um stöðum spá nokkuö góöu um
framtiðina, hvað hitaveitu
snertir.
Axel sagði i samtali við Tim-
ann, að til þessa hefði litið verið
leitað að jarðhita á Vestfjörð-
um, og jarðhitasvæði ekkert
verið könnuð með jarðeðlis-
fræðilegum mælingum. Þá
hefðu svæðin verið kortlögð, og
jarðfræði þeirra skoðuð. 1 sum-
ar og i haust voru gerðar nokkr-
ar rannsóknarborholur vestra á
Tálknafirði, Suðureyri og á Isa-
firði.
A Suðureyri sagði Axel, að
telja mætti vist, að nægilegt
vatn væri fyrir hendi til þess að
hita staðinn upp með hitaveitu.
Þangað verður farið með stóran
bor i sumar, og endanlega geng-
ið frá holunni og hún útbúin
þannig, að hægt verði að fara að
huga að hitaveituframkvæmd-
um. Svipaða sögu sagði hann, að
mætti segja um Tálknafjörð.
Þótt árangurinn hefði ekki orðið
eins góður þar og á Súganda-
firði. Ekki er enn komið nægi-
legt vatn til hitaveitu, en þar
ætti að mega fá meira vatn með
frekari borunum.
Á ísafirði er nýlokið við eina
tilraunaholu, en Axel kvað
niðurstöður ekki liggja fyrir
enn. Þrátt fyrir það sagði hann,
að allt benti til þess að vænlegt
væri að fara til tsafjarðar með
stærri bor og halda áfram
borunum.
— Næsta skrefið er að hefja
jarðeðlisfræðilegar rannsóknir,
og þær verða framkvæmdar i
sumar, auk frekari borana,
sagði Axel.
— Að svo komnu máli munum
við ekki hafa aðstöðu til þess að
sinna stórum verkefnum á
Austfjörðum. Það er takmark-
að, sem við komumst yfir á einu
sumri, og við getum ekki sinnt
næstum þvi öllu, sem við erum
beðnir um, sagði Axel ennfrem-
ur. — Til þess skortir bæði
mannafla, fé og tæki. Þó er
áætlað að bora eina rann-
sóknarholu eystra I sumar, og
hefur verið talað um, að hún
verði á Reyðarfirði, en endan-
lega ákvörðun hefur þó ekki
verið tekin enn.
Hitastigið i holunum á Vest-
fjörðum er fremur lágt. A
Tálknafirði er það um 50 stig, en
yfir 60 stig á Suðureyri. Hitinn á
þessum slóðum er miklu minni
en t.d. hér i Reykjavik, enda
hitastigullinn miklu lægri þarna
i jarðskorpunni. Til glöggvunar
má geta þess, að vatnið i holun-
um i Mosfellssveitinni er um 80
stig, og hvorki meira né minna
en 120 stig i holunum i Laugar-
nesi.
Þá gat Axel þess, að verið
væri að flytja borinn Jötunn úr
stað á Laugalandi i Eyjafirði.
Myndi senn verða hafizt handa
um að bora aðra holu þar, 700
metra frá þeirri fyrri, sem ný-
lokið er við. Sú hola gaf um 95
sekúndulitra af sjálfrennandi 93
stiga heitu vatni, og er þetta ein
bezta borholan á lághitasvæð-
um landsins.
A döfinni er að bora fleiri hol-
ur á Siglufirði, og má telja lik-
legt, að Siglfirðingar fái með
þeim nægilegt vatn fyrir hita-
veitu sina.
Talað hefur verið um að gera
úttekt i sumar á jarðhita á Snæ-
fellsnesi fyrir þéttbýliskjarnana
þar, Ólafsvik, Sand, Stykkis-
hólm og Grundarfjörð, og er það
áframhald rannsókna, sem
hafnar voru sl. sumar.
Sjálfvirkur sími á
Breiðdalsvík, Djúpa-
vogi og Stöðvarfirði
Gsal-Reykjavik. — Á komandi
hausti verður komið upp sjálf-
vlrkum simstöðvum i Breið-
dalsvik, Djúpavogi og Stöövar-
firði, en simstöðvarhús hafa
verið i byggingu á þessum
stöðum og voru húsin orðin
fokheld um slðustu áramót, að
sögn Siguröar Þorkelssonar,
forstjóra tæknideildar Pósts og
sima. Þessi kauptún eru í hópi
hinna siðustu sem fá sjálfvirkan
sima. Flestar svcitir landsins
eru enn án sjálfvirks slma, en á
siðustu misserum hafa þó
nokkrar sveitastöðvar verið
teknar i gagnið, s.s. á Hvann-
eyri, Varmahlið og á Húsatólft-
um á Skeiðum.
Gert var ráð fyrir þvi, að'
byggingu stöðvarhúsanna I
áðurnefndum kauptúnum yrði
lokið um s.l. áramót, en að sögn
Sigurðar gat það ekki orðið
sökum fjárskorts, og þvi
ákveðið að byggja húsin i
tveimur áföngum.
Sigurður sagði að ekki lægi
fyrir nein áætlun um það,
hvenær sjálfvirkur simi yrði
kominn um allt land. Hann
sagði, að Póst og simamála-
stofnunin hefði gert bráða-
birgðaáætlanir öðru hverju, en
vegna fjárskorts stofnunar-
innar, væri næstum ógjörningur
að segja nákvæmlega til um
það.
— Við erum að byrja á þeim
þéttbýliskjörnum i dreifbýlinu,
sem við komumst að með þægi-
legu móti, en ég vil geta þess,
að það verður ekki hjá þvi
komizt, að kostnaður á hvern
notanda i dreifbýlinu sé mun
meiri en i þéttbýlinu — og það
gerir okkur naúðugan þann eina
kost, að doka svolitið við, sagði
Sigurður.
Um þessar mundir er verið
að bæta langlinusambandið við
Norðurland, og sagði Sigurður,
að þessi margumtalaða ör-
bygljuleið yrði væntanlega
tekin i gagnið fyrri hluta þessa
árs. Af öðrum framkvæmdum
Pósts- og sima má nefna, að
verið er að stækka sjálfvirku
stöðvarnar i Reykjavik. A
Akureyri er verið að auka við
númerum, og sömu sögu er að
segja um Vestmannaeyjar, en
þar verður fjölgað númerum
um 600 á árinu, og veröur stöðin
þar þá orðin svipuð á stærö og
fyrir gos.
Bréf frá einum bankaráðsmanni Búnaðarbankans:
Biður um rannsókn af
hálfu Seðlabankans
FYRSTA LOÐNAN
TIL SIGLUFJARÐAR
OG HORNAFJARÐAR
BH-Reykjavik. — Fyrsta loðnan
barsttil Sigluf jarðar og til Horna-
fjarðar i gær. Þá lönduðu Gisli
Arni 500 lestum á Homafirði og
Sigurður 650 lestum á Siglufirði.
Þrjú önnur skip tilkynntu um afla
i gær. Á Vopnafirði lönduðu
Reykjaborgin 430 lestum og
Helga II 3-20 lestum, og Sæbjörg
landaði 290 lestum á Stöðvarfirði.
Veiði var treg i gær, eins og
ljóst má vera af þessum fregnum,
en þó mun veður á miðunum hafa
verið gott. Það nægði þó ekki til
þess að loðnan léti aðra i sig ná en
þegar hefur verið getið.
Ályktun blaðstjórna vikublaðanna
á Ákureyri:
Ríkisstyrkur viku-
blaðanna úti á landi
verði ein milljón kr.
FB-Reykjavikl — Blaðstjórn
Dags á Akureyri hefur samþykkt
áskorun um að rikisstyrkur til
blaða úti á landsbyggðinni verði
hækkaður frá þvi, sem nú er.
Samþykktin var gerð 24. janúar,
og næstu daga á eftir gerðu blað-
stjórnir hinna þriggja viku-
blaðanna á Akureyri einnig
samþykktir, sem efnislega eru
samhljóða þeirri, sem blaðstjórn
Dags gerði.
Askorun blaðstjórnar Dags er
á þessa leiö:
„Blaðstjórn Dags á Akureyri
samþykkti á aðalfundi sinum, 24.
janúar 1976 að beina þeirri
ákveðnu ósk til stjórnvalda, að
stærri hluti rikisstyrks til
blaðaútgáfu landsmanna renni til
blaöa utan Reykjavikur en nú er.
Tillaga blaðstjórnar Dags i
þessuefnier sú, að styrkur rikis-
sjóðs til dreifbýlisblaða, sem eru
vikublöð og koma reglulega út
allt áriö nemi 1 milljón kr. á ári,
miöað við núverandi verðlag og 8
siðna blöð i venjulegri dagblaðs-
stærö. Styrkurinn verði hlutfalls-
lega minni eða meiri, ef um
annan tölublaðafjölda er að
ræða, og verði hann veittur beint
til viðkomandi blaða. Er þess
vænzt að þingmenn þessa kjör-
dæmis svo og aðrir þingmenn
dreifbýlisins fylgi máli þessu fast
fram.”
Aðalfundur FUF í Reykjavík:
Karl Árnason, sem er fulltrúi
Frjálslyndra og vinstrimanna i
bankaráði Búnaðarbankans,
hefur skrifað Seðlabankanum
bréf, sem einnig hefur verið sent
fjölmiðlum, þar sem farið er
Þóra Þorleifsdóttir
endurkjörinn
formaður
— á aðalfundi
Félags Framsóknar-
kvenna í Reykjavík
Aðalfundur Félags Fram-
sóknarkvenna i Reykjavik var
haldinn s.l. miðvikudag. Á
fundinum var Þóra Þorleifsdóttir
endurkjörin formaður félagsins.
Aðrar i stjórn voru kjörnar:
Guðný Laxdal, Elin Gisladóttir,
Kristin Karlsdóttir og Sigurveig
Erlingsdóttir. 1 varastjórn voru
kjömar: Dóra Guðbjartsdóttir,
Sólveig Alda Pétursdóttir, Sól-
veig Alexandersdóttir, Sigrún
Sturludóttir og Jónina Guö-
mundsdóttir.
Þóra Þorleifsdóttir.
fram á, að eftirlitsdeild Seðla-
bankans taki til rannsóknar at-
riði, sem hann telur sig ekki hafa
fengið um fullnægjandi
upplýsingar.
Varðar þetta einkum stöðu
útibús Búnaðarbankans i
Stykkishólmi gagnvart aðal-
bankanum, og skuldir tiu mestu
skuldanauta þess, og þó sérstak-
lega auknar skuldir ónefnds
fyrirtækis siðan á árinú 1972.
Gerir bankaráðsmaðurinn
einnig þá kröfu, að almenn lán-
þegaskrá um heildarskuldir allra
skuldunauta Búnaðarbankans og
útibúa hans verði látin banka-
ráðinu i tée Telur hann banka-
stjóra Búnaðarbankans hafa
haft slik tilmæli sin að engu.
Með bréfinu til Seðlabankans
fylgdi einnig til fjölmiðla annað
bréf, er hann hafði skrifað for-
manni bankaráðsins, Stefáni Val-
geirssyni, um sama efni.
Bankastjórar og formaður
bankaráðs segja aftur á móti að
bankaráðsmenn hafi alltaf átt að-
gang að þeim upplýsingum, sem
Karl Árnason ræðir um.
Sveinn Grétar Jónsson
endurkjörinn formaður
A aðalfundi FUF i Reykjavik,
sem haldinn var s.l. miövikudag,
varSveinn Grétar Jónsson endur-
kjörinn formaður félagsins.
Aðrir i stjórn voru kjörnir: Ás-
geir Eyjólfsson, Björk Jónsdóttir,
Daniel Þórarinsson, Pétur Orri
Jónsson, Pétur Sturluson, Sigur-
jón Einarsson, Sigurður Haralds-
son, Valgerður Brynjólfsdóttir og
Ragnar Atli Guðmundsson.
I varastjórn eiga sæti: Alfreð
Þorsteinsson, Ingþór Jónsson,
Kjartan Jónasson og Sigurður
Haraldsson.
A fundinum var samþykkt
eftirfarandi ályktun um land-
helgismálið:
Aðalfundur FUF i Rvk., hald-
inn 28. janúar 1976, itrekar við
stjórnvöld, hve litið svigrúm ertil
samninga við Breta i landhelgis-
málinu vegna ástands fiskstofna
umhverfis landið. Fundurinn fel-
ur jafnframt stjórn félagsins að
fylgjast vel með upplýsingum,
sem fram koma á næstu dögum
um viðræður Islendinga og Breta
i London, og fylgja fast eftir
skoðunum félagsmanna til varn-
ar efnahagslegu sjálfstæði lands-
ins.
Sveinn G. Jónsson.