Tíminn - 31.01.1976, Qupperneq 3
Laugardagur 31. janúar 1976.
TÍMINN
3
fallsheimild á mánudag
BH-Reykjavik. — Næsti fundur
samninganefndar ASl og vinnu-
veitenda hjá sáttasemjara vcrður
i dag kl. 10 árdegis. A mánudag
verður haldinn baknefndarfundur
ASt, og tjáði Ólafur Hannibals-
son, skrifstofustjúri ASt, Timan-
um það i gær, að þar yrði tekin
ákvörðun um verkfallsboðun,
hvað timasetningu varðar.
Verzlunarmannafélag Reykja-
vikur heldur félagsfund i dag kl.
2, þar sem verkfallsheimildin
verður til umræðu. Flest önnur
stærstu aðildarfélög ASt hafa
þegar haldið fundi um málið og
samþykkt verkfallsheimildina
einróma, og má þar nefna Dags-
brún, Einingu, Járnsmiðafélagið,
Trésmiðafélagið og Sókn.
t gær og fyrradag voru haldnir
ýmsir fundir þeirra aðila, sem nú
vinna að gerð kjarasamninga. t
fyrradag var haldinn fundur i
trygginga- og veikindadaga-
nefnd, i gær var haldinn fundur i
Verkamannasambandinu vegna
kauptrygginga, og sömuleiðis sat
samninganefnd Sóknar fund með
viðsemjendum sinum, sem ekki
eru i Vinnuveitendasambandinu,
en hér er um rikisspitalana að
ræða. Var talið i gær, að til greina
kæmi að gera samninga við alla
spitalana i heild.
A miðnætti rennur út skilafrestur á skattskýrslum en undanfarna
daga hefur verið mikil örtröð á Skattstofunni I Reykjavfk og búast
má fastlega við að biðraðir myndist við lúgur skattstofunnar þegar
liða tekur á kvöldið, ef marka má reynslu siðustu ára. A Skattstof-
unni fékk Timinn þær upplýsingar, að talsvert væri alltaf um það að
menn óskuðu eftir fresti til að skila skattskýrslu, en ekki var þó talið
að heimtur yrðu með verra móti nú en áður. Myndin er tekin við
lúgu Skattheimtunnar i gær. Timamynd: G.E.
Byggingarframkvæmdir í Hafnarfirði 1975:
Lokið var við smíði 55 húsa
með 93 íbúðum í Hafnarfirði
Stöðugir fundir um kjarnork kjarasamningana:
Baknefndarfundur um verk
Togaraaflinn á siðasfa ári:
VESTFIRZKU TOGARARNIR
MEÐ HÆSTAN MEÐALAFLA
Reykjavíkurtogarinn Ögri með hæsta skiptaverðmætið
BH-Reykjavik. — Landssamband
islenzkra útvegsmanna hefur gef-
ið út yfirlit yfir aflamagn, afla-
verðmæti og úthaldsdaga togara
árið 1975. Kemur þar fram, að
meðaltölur skiptaverömætis á
kiló, afla á úthaldsdag og skipta-
verðmætis á úthaldsdag eru i all-
flestum tilfellum talsvert hærri
en árið áður, eða sem hér segir:
(tölur ársins 1974 i svigum fyrir
aftan):
Minni skuttogarar: Meðal
skiptaverðmæti á kg. 32.08
(24.00), meðalafli á úthaldsdag
8,5 tonn (7.9) og meðalskipta-
verðmætiá úthaldsdag 272.936 kr.
(189.367). Af minni skuttogurum
eru þessir þrir efstir á blaði, hvað
þrjú áðurgreind atriði snertir:
Meðal skiptaverðmæti: Dagný Si
70, kr. 38,40 á kg., Dagrún IS 9 kr
36,85 og Páll Pálsson IS 102, kr.
36,26. — Meðalafli á úthaldsdag:
Guðbjörg IS 46, 10,64 tonn, Bessi
1S 410 10,61 tonn og Július Geir-
mundsson 1S 270 10,41 tonn.
Meðalskiptaverðmæti á úthalds-
dag: Guðbjörg IS 374.703 kr.,
Július Geirmundsson IS 374.409
kr. og Bessi IS 368.994.
Stórir skuttogarar (þess ber að
geta, að þeir voru i verkfalli á
þriðja mánuð á árinu, en á sama
tima var góð veiði hjá minni
togurum): Meðalskiptaverðmæti
á kg. var 28,66 kr. (19.90), meðal-
afli á úthaldsdag 10.4 tonn (11.0)
og meðalskiptaverðmæti á út-
haldsdag kr. 298.165 (219.789).
Hæstir af stóru togurunum:
Meðalskiptaverðmæti á kg:
Svartbakur EA 302 34,47 kr.,
Kaldbakur EA 301 32,63 og Slétt-
bakur EA 304 kr. 32.51. Meðalafli
pr. úthaldsdag: Ingólfur Arnar-
son RE 210 13.38 tonn, ögri RE 72,
13.17 tonn og Júni GK 345 11.38
tonn. Meðalskiptaverðmæti pr.
úthaldsdag: Ögri RE 72/414.741,
Svalbakur EA kr. 351.369 og Slétt-
bakur EA kr. 350.363.
Siðutogarar eru þrir á skrá, og
er Harðbakur EA 3 þeirra efstur
með meðalskiptaverð á kg. 30.30
kr. og meðalskiptaverðmæti á út-
haldsdag kr. 185.680, en Þormóð-
ur Goði RE 209 hefur mestan afla
þeirra á úthaldsdag, 7.7 tonn.
Úr Sambands-verksmiðju á Akureyri
Viðtal við Erlend Einarsson
— framhald af bls. 1
Orkukaupin eru tvenns konar —
raforka og olia, þvi að hluti
verksmiðjanna notast enn við
oliukynta katla. Verksmiðj-
urnar á Gleráreyrum borguðu á
siðasta ári um 55 milljónir
króna fyrir þá orku, sem þær
notuðu. Af þvi fór um 25
milljónir i oliu.
Hefðu verksmiðjurnar á hinn
bóginn notað raforku eingöngu,
og fengið hana á sama verði og
álverksmiðjan i Straumsvik.
myndi sparnaður hafa numið á
milli fjörutiu og fimmtiu
milljónum króna, og þó að við
hefðum aðeins setið við sama
borð og áburðarverksmiðjan i
Gufunesi, hefðu samkvæmt
bráðabirgðaútreikningum spar-
azt þrjátiu til fjörutfu milljónir
króna siðast liðið ár.
Og hér erum við komnir að
mikilvægu máli, sagði
Erlendur. Það verður að gæta
þess, að setja innlendan
verksmiöjuiönað ekki mörgum
þrepum neðar en útlendan iðn-
að, heldur er það lágmarks-
krafa, að hann fái raforku á
sama verði og útlendingarnir.
Það er ekki nein vitglóra i þvi,
að mannfrekur, innlendur verk-
smiðjuiðnaður borgi orkuna
miklu hærra verði en útlendur
orkufrekur auðmagnsiðnaður,
sem veitir tiltölulega fáum at-
vinnu.
Við ætlum að rafvæða verk-
smiðjurnar á Akureyri að öllu
leyti og höfum leitað hófanna
um að fá tiu til tólf megavött á
ári handa þeim, þegar raforka
verður aflögu norðan lands. Þar
við liggur framtið mikilvægrar
atvinnugreinar, sem veitir
fjölda fólks atvinnu og nýtir inn-
lend hráefni, meðal annars i
fullunna útflutningsvöru. sem
,færir okkur verulegan gjaid-
eyri, og að okkur verði ekki sett-
ir neyðarkostir um orkukaupin.
FB-Reykja vik. 1 Hafnarfirði voru
i smiðum árið 1975 224 ibúðarhús
með 353 i'búðum, samtals 163.038
rúmmetrar. Þar af hafði verið
byrjað á 46 húsum með 57 ibúðum
á árinu, en hinar höfðu verið i
smiðum frá þvi fyrr.
Hús þessi skiptast þannig, að
186 eru einbýlishús, 20 eru með 2
RÆKJAN
HÆKKAR
UM
10-15%
ERLENDIS
FB-Reykjavik. Heldur hefur
birt yfir rækjumörkuðum
okkar, samkvæint upp-
lýsingum ólafs Jónssonar
hjá sjávarafuröadcild Sam-
bandsins. Hann sagði, að frá
því i haust hefði rækjuverðið
hækkað um 10 til 15%, en
þrátt fyrir það væri það eng-
an veginn orðið nógu hátt, og
hefði enn ekki brúaö það bil,
sem reynt hefði verið að
hrúa.
Aðalrækjumarkaðurinn
um þessar mundir er á
Norðurlöndum, og þá aðal-
lega i Sviþjóð. Ólafur sagði.
að ekki væri um neina sér-
staka rækjusölusamninga að
ræða, sem nú væri hægt að
ræða um. Að undanförnu
hefðu menn verið að selja og
afskipa i rólegheitum, eftir
þvi sem þurft hefði að losna
við rækjuna úr frystíhúsun-
um.
UMSÓKNARFRESTUR um
prófessorsembætti i grasafræði
við liffræðiskor verkiræði- og
raunvísindadeildar Háskóla Is-
lands lauk 15. þ.m. Um embættið
sóttu: Dr. Áskell Löve, Bjartmar
Sveinbjörnsson, liffræðingur.
Eyþór Einarsson, magister. og
dr. Höröur Kristinsson.
ibúðum, 2 með þremur ibúðum, 1
með fjórum ibúðum, 4 með sex
ibúðum, 9 með átta ibúðum, 1
með niu ibúðum og lmeð 12 ibúð-
um. Þar af var lokið við smiði 55
húsa með 93 ibúðum, samtals
13.159 fermetra, eða 39.874 rúmm.
Iðnaðar-og verzlunarhús, sem i
smiðum voru á siðasta ári eru 50
talsins, samtals 29.104 fermetrar
að flatarmáli. Þar af var lokið
smiðil2 húsa, 2.904 fermetra að
flatarmáli.
Bilgeymslur og viðbyggingar
viö eldri hús, sem i smiðum voru
siðasta ár voru 286 talsins, og lok-
ið var við 58 þeirra.
Ennfremur voru I byggingu
eftirtalin hús, samkvæmt skýrslu
byggingafulltrúans i Hafnarfirði:
Slökkvistöð og Ahaldahús við
Flatahraun. Lokið var við inn-
réttingu hússins. Búningsher-
bergi við iþróttahús við Flata-
hraun. Hafin var bygging dvalar-
heimilis DAS við Garðaveg. Eitt
dreifistöðvarhús Rafveitu
Hafnarfjarðar við Helluhraun.
Lokið var við byggingu III.
áfanga Viðistaðaskóla, 6 kennslu-
stofur, við Hraunvang 7. I bygg-
ingu var heimavistarskóli i
Krýsuvik. Dagheimili var einnig i
byggingu við Miðvang. Þá var i
byggingu iþrótta- og félags-
heimili við Strandgötu. Viðbygg-
ing við sjúkrahús St. Jóseps-
systra við Suðurgötu, og að lokum
vogarhús við hafnarbakka við
Vesturgötu.
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur:
Markús Stefánsson
endurkjörinn formaður
Markús Stefánsson var endur-
kjörinn formaður Framsóknar-
félags Reykjavikur á aðalfundi
félagsins s.l. miðvikudag.
Aðrir i stjóm voru kjörnir: Jón
Aðalsteinn Jónasson, Jón Abra-
ham Ólafsson, Páll Heiðar Jóns-
son, Einar Eysteinsson, Kristján
Friðriksson og Jón Gunnarsson.
1 varastjórn voru kjörnir:
Þórður Eliasson, Leifur Karls-
son, Geir Magnússon og Skúli
Þorleifsson.
A fundinum var samþykkt
eftirfarandi tillaga um.land-
helgismálið:
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavikur, haldinn að Hótel
Esju 28. janúar 1976, þakkar
starfsmönnum Landhelgisgæzl-
unnar fyrir frábær störf við
vörzlu landhelginnar og skorar á
þjóðina að standa einhuga um
þann helga rétt, að Islendingar
einir njóti þess arfs. sem landið
og sjórinn i kringum það gefa af
sér.
Þá vill fundurinn benda á, að
ein af hinum svokölluðu forystu-
þjóðum i samtökum vestrænna
þjóða, og bandalagsþjóð ls-
lendinga i Nato, hefur ein allra
þjóða ráðizt á okkur þrisvar með
hervaldi. þegar tslendingar hafa
verið að vemda lifsafkomu sina.
Slikar ofbeldisaögerðir hljóta
að vekja upp þá spurningu. hvort
ekki sé ástæða til að endurskoða
afstöðu Islendinga til verunnar i
Nato og þess varnarliðs. sem hér
dvelur á vegum Nato.
Markús Stefánsson