Tíminn - 31.01.1976, Qupperneq 13
Laugardagur 31. janúar 1976.
TÍMINN
13
„Strák-
arnir vita
að þeir
þurfa að
leggja hart
að sér"
— segír Þorsteinn Friðþjófsson,
þjólfari Blikanna í Kópavogi
— Viö munum búa okkur vel undir keppnistímabilið/
þar sem við stefnum að sjálfsögðu að því að halda sæti
okkar í deildinni/ sagði Þorsteinn Friðþjófsson/ þjálfari
Breiðabliks-liðsins í Kópavogi, sem endurheimti 1. deild-
arsætið sitt sl. sumar, þegar það sigraði með yf irburðum
i keppninni í2. deild.— Strákarnir vita, að þeir þurfa að
leggja hart að sér til að standa sig i deildinni. Ef þeir
gera það, þá þurfa þeir ekkert að óttast fallið — þeir
hafa bæði kunnáttu og mikla leikreynslu, sem er mjög
þýðingarmikið — til að vera í hópi þeirra beztu, sagði
Þorsteinn.
Þorsteinn Friöþjófsson, sem
hefur yfir mikilli reynslu aö ráða
— sem leikmaöur með Valsliðinu
og landsliðinu — er einn af okkar
beztu þjálfurum. Það er ekki
langt siðan hann tók við þjálfun,
en á þeim stutta tima, sem hann
hefur verið þjálfari, hefur hann
náð mjög góðum árangri, fyrst
með Hauka i Hafnarfirði 1974,
þegár hann var nær búinn að
koma Hafnarfjarðarliðinu upp i 1.
deild, og siðan með Breiðabliks-
liðið, en hann visaði þvi veginn
upp i 1. deild sl. sumar. Þorsteinn
hefur næmt auga fyrir knatt-
spyrnu — og hann er ófeiminn að
gera breytingar á liði sinu, ef
hann sér einhvern veikleika.
Þessir kostir hans komu vel i ljós
ÞORSTEINN FRIÐÞJÓFSSON.... sést hér stjórna æfingu hjá Blikunum á fimmtudagskvöldiö. (Tima-
mynd Gunnar).
á sl. keppnistimabili, þegar hann
stjórnaði Blikunum til sigurs i 2.
deildar keppninni. Þorsteinn náði
þá að binda Breiðabliks-liðið
saman og blása nýju lifi i það.
Þorsteinn er einnig fullur
sjálfsgagnrýni — hann veit það
bezt sjálfur, þegar hann gerir
mistök. Og þegar honum finnst,
eitthvað hafa farið úr skoðrum
hjá sér, ver hann mörgum timum
til að lagfæra það — ákveðinn i að
gera ekki sömu mistökin tvisvar.
Það verður gaman að fylgjast
með Þorsteini og strákunum hans
i sumar. Breiðabliks-liðið hefur
yfir að ráða áhugasömum leik-
mönnum á góðum aldri — sem
leika góða knattspyrnu. Þeir eiga
örugglega eftir að verða erfiðir
heim að sækja — á nýja og glæsi-
lega grasvöllinn i Kópavogi.
— Við verðum stórt
spurningarmerk i, sagði
Þorsteinn. — Það er ekki ástæða
til annars en að vera bjartsýnn.
Það er mikill áhugi rikjandi með-
al strákanna —■ þeir mæta vel á
æfingar, sem eru nú tvisvar sinn-
um i viku og fjölgar fljótlega.
Arangur liðsins fer eftir strákun-
um — hvort þeir treysti sér til að
leggja hart að sér og æfa af kappi.
Ég hef leyft þeim að átta sig á
hlutunum og gera það upp við sig,
hvort þeir ætli að leggja hart að
sér og vera með. Fljótlega gefa
þeir ákveðin svör, og þá mun ég
velja ákveðinn 20 manna hóp til
æfinga. Ég reikna með að liðið
verði byggt upp á sama kjarnan-
um og lék með þvi á siöasta
keppnistimabili, sagöi Þorsteinn.
— Nú hefur þvi verið haldið
fram, að Breiöabliks-liöiö væri
malarliö, en ekki graslið. Hvaö
vilt þú segja um þaö, Þorsteinn?
— Það er enginn fótur fyrir
þessum sögusögnum. Þessu er
þveröfugt farið — strákarnir eru
miklu betri á grasi. Þeir eru
leiknir og léttleikandi — kunnátta
þeirra kemur miklu betur i ljós á
grasi, heldur en á möl. Ef Breiða-
bliks-liðið er kallað malarlið,
hvað er þá Keflavikur-liðið kall-
ar? Keflavikurliðið og sú knatt-
spyrna, sem þaö leikur, á hvergi
annars staðar heima en á möl.
— Telurðu, aö Breiöablik og
Þróttur komi til meö aö berjast á
botninum i sumar?
— Nei, ég er ekki hræddur um
það. Þessi lið hafa yfir góðum
leikmönnum að ráða, sem eiga að
geta veitt hinum liðunum harða
keppni. Ég get ekki séð að
Breiðablik og Þróttur séu léíegri
en önnur lið i l. deildar keppninni,
sagði Þorsteinn að lokum.
— SOS.
Jón Þorsteinsson
kjörinn heiðurs-
Þessi mynd var tekin á fundi framkvæmdastjórnar t.S.Í. I gær, á 64 ára afmælisdegi sambandsins, er
Jón Þorsteinsson veitti viöurkenningunni móttöku.
féiagi ISÍ
— Hann veitti viðurkenningunni móttöku
á 64 ára afmæli sambandsins
iþróttasamband tslands hefur kjöriö Jón Þorsteinsson iþróttakenn-
ara heiöursfélaga sambandsins. Var frá þessu greint á fundi fram-
kvæmdastjórnar sambandsins s.l. miövikudag (28. jan.), en þann dag
fyrir 64 árum var t.S.t. stofnað.
„Iþróttasambandið hefur einróma staðið að þessu kjöri i þakklætis-
og virðingarskyni fyrir frábært starf og framlag Jóns Þorsteinssonar
til eflingar alhliða iþróttastarfsemi og heilsurækt. tþróttasamband Is-
lands metur og virðir mikils þetta mikla framlag Jóns Þorsteinssonar i
þágu lands og lýðs, og er það sérstakt ánægjuefni að útnefna hann
heiðursfélaga Iþróttasambands tslands”, sagði Gisli Halldórsson,for-
seti t.S.t., þegar Jón veitti viðurkenningunni viðtöku.
Jón Þorsteinsson er fæddur i örnólfsdal i Þverárhlið, Mýrasýslu,
1898. Hann stundaði nám i Alþýðuskólanum á Hvitárbakka og síðar i
Samvinnuskólanum. Siðan stundaði hann nám við tþróttaháskólann i
Ollerup i Danmörku 1922-1923, og sótti enn fremur ýmis sérnámskeið.
bæði i Danmörku, Finnlandi og Noregi.
Aður en Jón hélt utan til náms, kenndi hann leikfimi, glimu og sund
viða á Vesturlandi og Vestfjörðum. En að loknu námi erlendis kenndi
hann einkum leikfimi og glimu hjá Armanni og einnig I.R. og K.R.
Hann fór margar sýningarferðir innanlands og utan með fimleika- og
glimuflokka við mjög góðan orðstir. Erlendir og innlendir aöilar hafa
sýnt Jóni Þorsteinssyni margvislegan sóma af þvi tilefni.
Arið 1924 stofnaði Jón eigin iþróttaskóla i Reykjavik og hefur rekið
hann siðan. Jafnframt þvi hefur hann kynnt sér æfingar til að ráða bót
á hryggskekkju, og fékk takmarkað lækningaleyfi árið 1934 til að taka á
móti sjúklingum með bakveiklun og hryggskekkju.
Margvisleg rit liggja einnig eftir Jón Þorsteinsson um iþróttir og
likamsrækt.
Af framansögðu má sjá, að Jón Þorsteinsson á langan og giftudrjúg-
an feril að baki til eflingar almennri iþróttastarfsemi og heilsurækt hér
á landi.