Tíminn - 22.05.1976, Side 12

Tíminn - 22.05.1976, Side 12
TÍMINN Laugardagur 22. mai 1976 Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI Effir Rona Randall 59 * hrædd. — Hef ég gert einhverja vitleysu, læknir? Fæð- ingin gekk vel. Ég vona, að þér hafið ekkert út á vinnu mina að segja? Hann áttaði sig. Hann varð að muna, að samband beirra var aðeins á starfsgrundvelli, einkalíf hennar kom honum ekkert við. En samt... hún varð að fara héðan. Hún varð að fara! Hann gat ekki haft hana í ná- vist sinni, hún truflaði hann á allan hátt. Jafnvel núna, þegar hann var henni bálreiður, fann hann áhrifin, sem hún hafði á hann. Hann langaði til að hella úr skálum reiði sinnar yfir hana, skipa henni að hætta alveg að um- gangast Brent Taylor....en mest af öllu langaði hann þó til að taka hana í faðm sér og kyssa hana þangað til hún steinhætti að hugsa um Brent. Svo sterkar voru tilf inningar hans, að hann varð hissa, þegar hann heyrði sjálfan sig segja, ósköp rólega: — Ég hef ekkert út á staf yðar að setja, læknir. Mér þykir leitt, að hafa þurft að vera svo lengi á skurðstof unni, að ég gat ekki komið og verið við fæðinguna. — Já, það var leitt, að þér gátuð ekki komizt þaðan fyrr. Ég held að Jósel gamli hefði gjarnan viljað kveðja yður. — Ó, gamli maðurinn....er hann farinn? Augu Marks urðu hlýlegri. — Ég vona að honum vegni betur í þetta sinn.... — Alveg áreiðanlega. Nú er hann hjá vinum, sem hugsa um hann. Það lék bros um varir hennar. Þetta var augnablikið, sem hún hafði beðið eftir, Nú gæti hún sagt honum allt um Jósep gamla, nú sviki hún ekki loforð sitt við gamla manninn lengur. Auk þess hafði yf irlæknirinn réttá að vita að, því hann hafði alltaf haftáhuga á Jósep gamla. Mark leit spyrjandi á hana. — Jæja, svo einhver hugs- ar um hann? Það var gott að heyra. segðu mér... Síminn hringdi ákaf lega og Myra bölvaði í hljóði. Hún vonaði að samtalið yrði stutt. Þetta hafði skemmt tæki- færið, sem hún fengi ef til vill ekki aftur. Hún gat varla beðið lengi með að segja það sem henni lá á hjarta. En þetta var persónulegt samtal.... svo persónulegt, að Mark eldroðnaði. Myra sá það og skildi ástæðuna, því kvenrödd heyrðist skýrt og greinilega út i herbergið. Það var rödd Venetiu. — Mark, elskan, hvernig líður þér í dag? Hann roðnaði af undrun og vandræðum, en það vissi Myra ekki. Hún hélt að það væri af gleði og ef til vill slæmri samvizku vegna þess að hún var inni. Vonbrigðin stungu hana eins og hnífur í hjartað. Þetta var áfall. hún var hrædd. Aldrei hafði henni dottið í hug, að Mark og Venetia yrðu vinir, en greinilega voru þau góðir vinir, annars myndi Venetia ekki hringja til hans á sjúkra- húsið. Myru langaði til að fara, en Mark, yfirmaður hennar hafði ekki gefið henni merki um að samtali þeirra væri lokið. Þess vegna sat hún óróleg í stólnum og gat ekki annað en heyrt það sem Venetia sagði. Hún var að tala um að borða saman kvöldverð aftur. Aftur? Það þýddi sem sagt, að þau höfðu gert það áður, ef til vill oft, hugs- aði hún afbrýðisöm. Hún fann að vonin slokknaði innra með henni, rétt eins og þegar blásið er á kerti. Hún ætti að hlæja að sjálfri sér, að barnaskap sínum. Hver var hún eiginlega, yngsti aðstoðarlæknirinn á sjúkrahúsinu, að leyfa sér að vona.... já hún hafði verið það heimsk að vona, að sambandið milli hennar og yf ir- læknisins gæti orðið annað og meira en hvað starfið varðaði. Ensamtsem áður hataði hún konuna, sem hann var að tala við, hataði hana með ákafa, sem hún héjt, að hún byggi ekki yfir. Það hlaut að vera Venetia, hugsaði hún beizklega. Venetia, sem hafði valdið henni svo miklum sársauka fyrir aðeins fáum mánuðum, Venetia, sem hún hafði talið víst fyrir andartaki, að yrði hamingjusöm með Brent. Já, hún hafði raunverulega vonað það, en tilhugs- unin um að Mark og Venetia væru saman, þó ekki væri nema andartak, var henni óbærileg. — Þá er það ákveðið, kvakaði Venetia. — Á Maxim eftir sýninguna í kvöld? — Ég hélt að þú kynnir ekki við þig þar, sagði Mark og brosti. Það var eins og hann hefði gleymt að Myra var viðstödd og það var ekki svo undarlegt, hugsaði hún döp- ur. Mönnum hætti til að gleyma öllum öðrum, þegar Venetia var nálægt. Myra stóð snögglega upp og gekk til dyra, en henni til undrunar kallaði Mark á eftir henni: — Bíðið andartak, læknir! Venetia hló í símann.— Elskan, ertu upptekinn? Fyrirgefðu, ég vissi það ekki. Sjáumst þá í kvöld, á Maxim. Svo lagði hún á. Mark lagði líka á og það var ásökun í rödd hans, þegar hann sagði: — Ég var ekki búinn að tala við yður, læknir. Viöhöfum fengiösamning um aöráöaLuaga af dögum fyrir eina milljón! 'Bjánarnir ykkar aö koma meö njósnara 'vtjingaö! Finniöhann i grenjandihvelli! LAUGARDAGUR 22. mai 7.00 Morgunútvarp. Veöur- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbfen kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45 Tilkynningar kl.9.30. Óskalög sjúklinga kl. 10.25 12.00 Dagskráin, Tónleikar, Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 tþróttir. Umsjón: Jón Ásgeirsson. 14.00 Tónskáldakynning Atla Heimis Sveinssonar. 15.00 Endurtekiö efni. a. Um afbrot unglinga. M.a. rætt viö nokkra unglinga frá upptökuheimilinu i Kópa- vogi og Kristján Sigurösson forstööumann. (Aöur út- varpað I marsbyrjun i þætt- inum Aö skoða og skil- greina, sem Kristján Guð- mundsson stjórnaöi). b. Guörún á Firöi. Bergsveinn Skúlason flytur frásögu (Aður útv. 12. mars i fyrra). 16.00 Fréttir. 16.15 Veöurfregnir. t'slenskt mál.Gunnlaugur Ingólfsson cand. mag. flytur þáttinn. 16.40 Popp á laugardegi. 17.30 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Hugleiðingar um ham- ingjuna.Sigvaldi Hjálmars- son flytur erindi. 20.00 Hljómplöturabb Þor- steins Hannessonar. 20.45 ,,Ég vil bara veröa bóndi”. Jónas Jónasson ræðir viö Jón Pálmason bónda á Þingeyrum. 21.40 Danshljómsveit út- varpsins í Vlnarborg leikur létta tónlist. Stjórnandi: Karel Krautgartner. 22.00 Fréttir. 22.15 Veöurfregnir. Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. 17.00 tþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Týndi konungssonurinn Leikrit byggt á ævintýra- leiknum Konungsvalinu eftir Ragnheiði Jónsdóttur. 1. og 2. þáttur. Leikendur: Kristján Jónsson, Þórunn Sveinsdóttir, Erna Gisla- dóttir, Gunnar Kvaran, Sævar Helgason, Guðrún Stephensen, Jónina H.' Ölafsdóttir, Jónina Jóns- dóttir, Sveinn Halldórsson, Bessi Bjarnason, Harald G. Haralds og Gerður Stef- ánsdóttir. Leikstjóri Kristin Magnús Guðbjartsdóttir. Aður á dagskrá 16. nóvember 1969. 19.00 Enska knattspyrnan. Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Læknir tii sjós. Breskur gamanmyndaflokkur. 1 kvennafans.Þýðandi Stefán Jökulsson. 21.00 Svartur könnunar- leiöangur Bresk mynd um leiðangur fjögurra Afriku- búa til Englands. Þýöandi og þulur Ellert Sigur- björnsson. 21.50 Hráskinnsleikur (Fortune Cookie) Bandarisk gamanmynd frá árinu 1966. Leikstjóri er Bily Wilder, en aðalhlutveric leika Jack Lemmon og Walter Matthau. Harry Hinkle verður fyrir smá vægilegum meiöslum viö störf sin, og er færður á sjúkrahús. Mágur hans, sem er lögfræðingur, fær hann til að þykjast þungt haldinn, og þannig hyggjast þeir hafa fé af trygginga- félaginu. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 23.50 Dagskrárlok

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.