Tíminn - 27.07.1976, Side 3
Þriðjudagur 27. júll 1976.
TÍMINN
3
Fimm íbúða raðhús
á Bjargslóðinni?
-hs—Rvik. — Við höfum frá fyrstu
tið gert ráð fyrir því að hcr yrði
grænt útivistarsvæði, og haft
ærna ástæðu til að ætla að svo
yröi, sagði einn af íbúum Laugar-
neshverfisins I viðtali við Tim-
ann. Mjög mikil óánægja er
meðal ibúa hverfisins, milli
Laugalækjar og Otrateigs, vegna
fyrirhugaðs raðhúss á lóð Bjargs,
sem var i aðalskipulagi Reykja-
vikurborgar, staðfestu 1967 ætl-
uðu sem útivistarsvæði, en frá þvi
var svo horfið i árslok 1973.
Vegna þessa máls, sendu 75
ibúar hverfisins, eða nánast allir,
borgarverkfræðingi mótmæla-
bréf, þvi aö þeim finnst heldur að
sér þrengt með fyrirhugaöri rað-
húsbyggingu. Verður barnaleik-
völlurinn m.a. minnkaður, ef af
byggingu raðhússins verður.
I lok ársins 1973 samþykkti
borgarstjórn Keykjavikur iram-
tiðaráætlun um umhverfi og úti-
vist i Reykjavik, sem Irægt er
orðið. «g var kallað „græna bylt-
ingin". i áætlun þessari er
framangreint útivistarsvæði fellt
niöur, en gróðurræma fyrirhuguö
meöfram Sundlaugavegi. Á þeim
forsendum samþykkti skipulags-
nel'nd i desember s.l. afmörkun
lóöar fyrir Bjarg um 3300 ferm.,
svo og borgarráð nokkru siðar.
Ekki var þá gengið frá bygginga-
möguleikum á lóðinni, en gertráð
fyrir að byggja mætti ibúðarhús
svipað aö magni og rifið yrði.
A fundi sinum 14. júni s.l. sam-
þykkti skipulagsnefnd uppdrátt
lóðarhafa, sem eru erfingjar
Erlings heitins Pálssonar, lög-
regluþjóns, að fimm ibúða
raðhúsi á norðurhluta lóðarinnar.
Skilyrði fyrir byggingu þess, er
niðurrif útihúsa Bjargseignarinn-
ar, en starfsemi þar hefur á liðn-
um árum valdið ónæði og um-
kvörtunum i hverfinu.
Borgarverkfræðingur sendi
ibúum hverfisins bréf þann 8. júli
s.l., þar sem ofangreint er rakið
og þess vænzt, að mótmæli geti
falliö niður, og þess jafnframt
óskað, að viðbrögðum ibúanna
verði komið á framfæri.
i samtali við borgarverkfræð-
ing i gær, Þorð Þ. Þorbjarnarson,
kom fram, að enn hafi ekki komið
frakarimótmæli, nema frá einum
ibúa hverfisins.
Sagði Þórður, að samþykki
skipulagsnefndar yrði Hklega
tekið fyrir á fundi borgarráðs
þann 10. ágúst n.k., ef ekkert
heyrðist frekar frá ibúunum.
Nýr þáttur hefur bætzt i
miðborgarlifið I Reykjavik
þar sem er gosbrunnur i
Tjörninni. Gýs brunnurinn 20
metra hárri súlu, sem er
upplýst aö kvöldlagi.
Gosbrunnur þessi er gjöf
frá Replogle, fyrrum banda-
riskum sendiherra hér á
landi. Gosbrunnurinn er
þannig, að hann slekkur
sjálfkrafa á s'ér, ef mikið
hvessir, svo fólk á ekki á
hættu að vökna af völdum
brunnsins. Þá er sérstakur
tækjabúnaöur, sem sér til
þess að vatnssúlan er i öllum
regnbogans litum.
Gosbrunnurinn fór I gang á
sunnudag og þá tók J.G.
myndina hér fyrir ofan.
LITLU AAUNAÐI
AÐ BYSSUSKOT
FÆRI í GESTINN
-hs-Rvik. — Það var ekki um að
ræða ásetning heldur einhvers
konar fiflaskap vegna ölæöis,
sagði Haukur Bjarnason, rann-
sóknarlögreglumaður, en hann
hefur haft með höndum rannsókn
á þvi atviki, er skotið var að
manni úr skammbyssu i einu af
fylliriispartyum helgarinnar.
Atvik málsins voru þau, að eftir
drykkju á vinveitingastað, var
haldið áfram á heimili mannsins,
sem byssuna átti. Maður þessi er
fyrrverandi lögregluþjónn og
hafði leyfi fyrir byssunni. Er
nokkuð var liðið á samkvæmið,
þurfti einn gestanna að bregða
sér i annað herbergi, en þegar
hann kom til baka, þaut byssu-
kúla skammt frá honum og lenti i
vegg.
Upphófust nú nokljur átök um
byssuna, sem lyktaði með þvi, að
hún flaug út um glugga. Gestur-
inn forðaði sér siðan og tók með
sér byssuna og hafði tal af lög-
reglunni. Var hann mikið drukk-
inn og látinn jafna sig um stund,
en þegar málin voru komin á
hreint var byssueigandinn hand-
tekinn og settur i varðhald. Segist
hann ekki hafa vitaö af þvi, að
byssan var hlaðin.
Air Viking:
Kröfur alls
330 milljónir
-hs-Rvik. Skiptafundur I þrotabúi
Flugféiagsins Air Viking h.f. var
haldinn i gær á skrifstofu borgar-
fógetaembættisins. Lýstar kröfur
voru kannaðar og gerð grein fyrir
athugun, sem nú fer fram á ýms-
um forgangskröfum á hendur
þrotabúinu.
Upphæö heildarkrafnanna
nemur 330 milljónum og þar af er
um 70 milljónum lýst sem for-
gangskröfum, en ef að likum læt
ur verða þær ekki allar teknar til
greina sem slikar. Kom fram á
fundinum, að óvist væri hvort
eignir búsins hrykkju til greiöslu
forgangskrafnanna.
Eftir er að kanna einstaka
kröfur nákvæmlega og bensaman
kröfuskrá og bókhalda.
Lystisnekkja
til ísafjarðar
GS—isafirði. Nýlega bættist nýtt
skip við flota Isfirðinga. Er það 32
feta lystisnekkja, sem kemur frá
Englandi, tvisigld og með 40hest-
afla hjálparvél.
Skipstjóri á heimsiglingu var
Steingrimur Bjarnason úr
Reykjavik, en eigendur eru Jón
Grimsson og Hjalti og Gunnar
Þórðarsynir frá ísafirði.
Leiðrétting
I frétt um endurbyggingu
Snóksdalskirkju i Timanum
fyrir skömmu misritaðist
nafn gjaldkera bygginga-
nefndar, sem tekur við fjár-
framlögum til kirkjunnar.
Gjaldkerinn heitir Ragnhild-
ur Hafliðadóttir, Hörðabóli
Dalasýslu.
Timinnbiðstvelvirðingar á
þessum mistökum.
er peninga
3
MIKLIR ÓÞURRKAR Á
SNÆFELLSNESINU
ASK-Reykjavík. — Heyskapur
gengur hér ekki sem bezt, sagði
Jón Bjarnason I Bjarnarhöfn I
Helgafellssveit er Timinn hafði
samband við hann i gær. — Þeir
sem náðu að byrja fyrst og hafa
góða súgþurrkun eru að visu
þokkalega á vegi staddir, en úr-
koma hefur hindrað hina upp á
siðkastið.
Sprettu sagði Jón vera i góðu
meðallagi, en gras væri farið að
spretta úr sér og yrði um slæmt
ástand aö ræða, ef það drægist
öllu lengur að hann færi að
þorna. Sjálfur sagðist Jón vera
búinn að ná um 2/3 af heyfeng
sinum.
Aðspurðurum framkvæmdir i
hreppnum sagði Jón aö þær
væru ekki miklar. Eitt fjós er i
byggingu á Arnarstöðum og
ibúðarhús á öðrum bæ. Einn nýr
bóndi kom i sveitina i sumar, en
það eru ung hjón úr Reykjavlk
sem festu kaup á jörðinni Grisa-
holt. Sagði Jón að róðurinn yrði
eflaust erfiður fyrir þau. Menn
gætu varla hafið búskap nema
af hreinni hugsjón nú á dögum.
Hljóðið var fremur slæmt i
Guðjóni Magnússyni i Hrúts-
holti i Eyjahreppi, en þar hafa
verið samfelldar rigningar
siðan s.l. þriðjudag. Tún eru
orðin blaut og ef ekki hættir að
rigna, þá sagði Guðjón aö hætta
væri á skemmdum.
— Það er að visu ekki svo
langt liöiö á heyskap að ef kæmi
þurrkur þá myndi þetta lagast
fljótt, sagöi Guðjón. — Hefði tið
hinsvegar verið góð, þá myndi
heyskap hafa lokið nú um
mánaðamótin. En þeir, sem
hirða i súrhey geta unnið við það
þessa dagana, en jörðin fer að
verða það blaut að ekki verður
unnt að keyra á henni, ef heldur
sem horfir.
Guðjón sagði súrheysverkun
stöðugt vera að aukast, en erfitt
væri að fá lán til bygginga nýrra
súrheysgryfja. Að visu var
nokkuð byggt i fyrra og árið þar
á undan, en þörfin fyrir nýjar
byggingar er stöðugt fyrir
hendi. Ef tið verður slæm nú á
næstunni, taldi Guðjón aö það
kæmi sérlega niður á nautgripa-
stofninum sem svo siöar leiddi
til minnkandi mjólkurfram-
leiðslu.
— Viða eru gömul fjós og
menn ráðast ekki i byggingar
nýrra og það eru frekar kýrnar
sem látnar eru fara en kindur-
nar, ef illa árar. Það getur þvi
orðið mjólkurskortur strax I
vetur, sagði Guðjón að lokum.
— Heyskapurinn hefur gengið
betur niðri i lághéraðinu, en
meira hefur rignt fram til dal-
anna, sagði Magnús Sigurðsson
Gilsbakka i Hvitársiðuhreppi.
Þeir sem byrjuðu fyrst hafa
gert það betur en hinir, það voru ‘
nokkrir þurrkdagar sem komu
þeim til góða. Gras er að spretta
úr sér, hér hafa verið hlýindi og
rigningar i um hálfan mánuð.
Hins vegar hafa þetta ekki
verið miklir óþurrkar, en
tafsamt nokkuð.
Framkvæmdir i hreppnum
sagði Magnús að væru ekki
miklar i ár, endp væri þaö yfir-
leitt komið i gott horf. 1 smiðum
eru þó ein hlaða og ibúöarhús.
Hjá Baldri Gestssyni á Orms-
stöðum i Klofningshreppi fékk
blaðið þær upplýsingar að hey-
skapur gengi illa. Rigningar
hafa verið stöðugar siðan á
þriðjudag. Bændur voru komnir
nokkuð vel á veg, en þegar rign-
ingarnar hófust þá stöðvaðist
heyskapur alveg.
— Þetta leit mjög vel út til að
byrja með, en hér er mest hirt i
þurrhey. Fáeinir bændur eru
búnir að ná einhverju inn, en
bróðurparturinn er eftir.
Sjálfur sagðist Baldur ekki
vera búinn að ná neinu, en hann
hefur þegar slegið nokkuð, en
það liggur flatt meðan beðið er
eftir þurrkinum.