Tíminn - 27.07.1976, Blaðsíða 5
Þriöjudagur 27. júli 1976.
TÍMINN
5
1
111111
1
111111111
n
VrlV
u
Þungur róður
t sunnudagsblaði Mbl. er
beint spurningu til nokkurra
hagfræðinga um álit þeirra á
ástandi og horfum í efna-
hagsmálum. í |gj
svari Jóns
Sigurðssonar
forstjóra
Þjóðhags-
stofnunar
segir m.a.
„Það er
þakkarvert,
að þrátt fyrir Jón
margvislega
efnahagsöröugleika hefur hér
ekki gætt atvinnuleysis. En
þessi mikilsverði árangur er
ekki einhlltur; honum fylgir
skuggi, sem grúfir yfir þjóðar-
hag i ár og næstu ár. Gjald-
eyris varasjóði þjóðarinnar
hefur verið eytt og stofnað til
mikilla erlendra skulda. ör
veröbólga hefur geisaö. Þótt
verðbólgan sé nú nokkuð tekin
að réna vantar mikið á, að við-
unandi árangur hafi náöst i
þessum efnum. Þessar að-
stæður setja þróun þjóðarút-
gjalda á næstunni þröngar
skorður. A næstu tveimur til
þremur árum verðum við að
stefna að þvi að eyða við-
skiptahalianum með öllu og
snúa honum i afgang. Þessi
róður verður þungur, þar sem
svo horfir með helztu fisk-
stofna við iandið, að vart má
búast við auknum útflutningi
sjávarafurða allra næstu ár,
heldur fremur hið gagnstæða.
Vissuiega horfir nú vel um
þróun viðskiptakjara á árinu
1976, en sé iitið til nokkurra
ára fram i timann er óvariegt
að treysta á árvissan ávinning
af þvi tagi. Rey ndar gæti verið
nokkur hætta á, að hækkun
hráefnisverðs á heimsmark-
aði verði nú svo snögg, að
valdið gæti óþægiiegu bak-
slagi siðar. Undir þetta þurf-
um við að vera búnir.”
Styrkari stjórn
stjórnmóla
1 svari Jónasar Haralz
bankastjóra segir m.a. eftir að
lýst hefur verið efnahagsbata
erlendis.
„Hér in'nanlands hefur
einnig ýmis-
legt gengið i
haginn.
Tiltölulega
hóflegir
1 a u n a -
samningar á
siðastliðnu ári
ásamt miklu
minni aukn- Jónas
ingu i útlánum banka en áður
stuðlaði að verulegri minnkun
verðbólgu siðari hluta ársins.
Á móti þessu vóg hins vegar
áframhaldandi aukning opin-
berra útgjalda, halli hjá rikis-
sjóði og mikil útlánaaukning
fjárfestingarlánasjóða. Halli á
viðskiptajöfn uði varð þvi enn
mikill á árinu 1975. Nú eru
horfur á, að styrkari stjórn
fjármála og lánamála yfirleitt
ásamt þeim bata, sem orðið
hefur i utanrikis viðskiptum
muni leiða til verulegrar
lækkunar viðskiptahallans, og
er það mikilsverður árangur.
Þvi miður leiddu launa-
samningarnir i febrúar hins
vcgar til nýrrar aukningar
verðbólgu, sem þó mun aftur
réna siöari hluta ársins.”
Varað við of
mikilli bjartsýni
Óiafur Björnsson prófessor
segir m.a.
„Það er ekkert álitamál að
verzlunarárferði hefur farið
verulega batnandi frá sl.
áramótum.
Viðskiptahalli
á þessu ári
verður til
muna minni
e n á r i n
1974-75.
Kemur þar til
talsverð verð-
h æ k k u n á
Ólafur
mörgum útflutningsafurðum,
nokkur aukning á útfluttu
magni og samdráttur i inn-
flutningi, einkum fjár-
festingarvöru. Góöar horfur
eru á áframhaldandi hag-
stæðri þróun i þessum efnum.
Þóber aövara við of mikilli
bjartsýni. Arfurinn frá erfið-
leikatimabilinu er enn svo
þungur á metum, að ótima-
bært er að hækka neyzlustig
þjóðarinnar frá þvi sem nú er.
Auðvitað eru til hópar scm
dregizt hafa aftur úr i kapp-
hlaupinu um hærri tekjur, en
sanngjarnar kjarabælur þeim
til handa mega ekki hafa i för
með sér að allir aðrir heimti
það sama.” Þ.Þ.
unglingahátíö
að ÚlfIjótsvatní um verslunarmannahelgi
Forsala aðgöngumiða
og rútumiða er hafín
Með fyrstu 1000 aðgöngumiðunum
fylgja sérstök Rauðhettu-lukkutröll
Aðgöngumiðar verða seldir i sölutjaldi
i Austurstræti og Umferðarmiðstöðinni
í dag og næstu daga frá kl. 10-22.
Rútumiðar eru seldir í Umferðarmiðstöðinni.
Verð aðgöngumiða er kr. 3.500 og rútumiða fró og
til Reykjavíkur kr. 1.400.
Vegna mikillar eftirspurnar er
vissara að kaupa miða sem fyrst,
Bændur. Safnið auglýsingunum.
Eignist þannig heimildaskrá. Auglýsing nr. 9-’76.
CLAAS
Heyhleðsluvagnar
0 Sterkbyggóir og liprir.
0 Flothjólbarðar.
0 Stilianlegt dráttarbeisli.
0 Þurrheysyfirbyggingu má fella.
0 Hleóslurými 24 rúmmetrar.
Claas heyhleösluvagnar eru tilbúnir til afgreiðslu
strax.
Leitiö upplýsinga um veró og greiðsluskilmála í
næsta kaupfélagi eöa hjá okkur.
A/
SUÐURLANDSBRAUT 32* REYKJAVÍK* SÍMI 86500* SlMNEFNI ICETRACTORS
■ • X • • •• XC
Laxveiðijoro
Stor hluti i góðri laxveiðijörð til sölu, eí
viðunandi tilboð fæst. Tveggja tima akst-
ur frá Reykjavik.
Á jörðinni er gott veiðihús, raflýst. Jörðin
á land að sjó og upp til heiða. Til viðbótar
lax og silungsveiði fylgja jörðinni hlunn-
indi svo sem gott berjaland og fuglaveiði.
Mikið landrými — Tilvalið fyrir sport-
menn, — Góð fjárfesting.
Farið verður með hvert tilboð sem
trúnaðarmál.
Tilboð sendist blaðinu merkt ,,10 M 1486”
fyrir 6. ágúst.
Tbe Beach Boys — 15 Big Ones
The Beatles — Rock'n Roll Music
David Bowie — Greatest Hits
Rod Steward — A Night on the Town
Sendum gegn póstkröfu
Laugavegi 89 Hafnarstræti 17
simi 13008 simi 13303.