Tíminn - 06.08.1976, Qupperneq 3
Föstudagur 6. ágúst 1976.
TÍMINN
3
Loðnan:
Verksmiðj-
urnar bíða
gébé Rvik. — Ekkert skip hefur
tilkynnt loönunefnd um afla frá
þvi á þriðjudag. Að sögn Andrés-
ar Finnbogasonar hjá Loðnu-
nefnd, er mjög lltið að gerast á
loðnumiöunum, að vlsu reyndu
nokkur skip að kasta I fyrrinótt og
i gær, og fengu einhvern smá-
afla, en það var þó mjög litið.
Loðnan er mjög stygg og erfitt að
ná henni, enda er enn nokkuð um
Ishrafl á veiðisvæðunum norður
af Horni. Véður var þó gott á mið-
unum i gær. — I þessari veiði get-
ur þó alltaf eitthvað óvænt gerzt,
það geturaðeins þurft fáa tima til
að skipin fái fullfermi, sagði
Andrés, og vonandi veröur það
fljótlega, þvi nú hafa loðnuverk-
smiðjurnar vlða um land flestar
unnið úr þvi hráefni sem þær
fengu um og eftir siðustu helgi.
Ekkert rannsóknar-
skip á loðnumiðunum
gébé-Rvik. — Ekkert rann-
sóknarskip frá Hafrannsóknar-
stofnun er á loönumiðunum norð-
ur af Horni, þar sem Arni Frið-
riksson kom til Reykjavlkur I
gærkvöldi, en skipiö hefur verið
viö loðnuleit að undanförnu.
Rannsóknarskipin tvö, Bjarni
Sæmundsson og Arni Friöriksson,
munu hefja seiöarannsóknir fljót-
lega, bæði umhverfis tslands og I
Grænlandshafi. — Timinn hefur
fregnaö, að óvist er á þessu stigi
málsins, hvort annað skip verði
sent til loðnuleitar fyrir Norður-
landi.
Skreið aftur seld
til Nígeríumanna
Gott verð fæst fyrir hana um þessar mundir
gébé Rvík. — Innflutningshöft-
unum á skreiö til Nigeriu hefur
verið aflétt aö vissu marki,
sagöi Bragi Eiriksson, forstjóri
Samlags skreiöarframleiöcnda,
en Samlagiö geröi nýlega samn-
inga viö innflutningsfyrirtæki i
Nigeriu um sölu á niu hundruö
tonnum af skreiö. — Viö vitum
ekki hve margir hafa fengið inn-
flutningsleyfi, en viö munum
haida samningum áfram viö
sama innflutningsfyrirtæki i
Nigeriu, sagöi Bragi. Gott verö
fékkst fyrir skreiöina nú, eöa kr.
715,- fyrir þorsk og keilu pr. kg.,
kr. 681,- fyrir kg af ufsa, löngu
og ýsu.
Fyrrnefnd nlu hundruö tonn,
sem Samlag skreiðarframleiö-
enda gerði sölusamninginn um
nýlega, verða flutt i tveim förm
um til Nigeriu I lok ágústmán-
aðar og I september. Aö sögn
Braga eru nú um 2500 til 3000
tonn af skreið I landinu, en af
þvi veröur ákveöið magn selt til
italiu.
Stjórnvöld i Nigeríu settu
fyrir nokkrum vikum bann á
skreiöarinnfiutning til landsins
vegna óhagstæðs verðs á skreiö-
inni, en hafa nú aflétt þvi banni,
a.m.k. að einhverju leyti.
Stjórnin hefur þó hönd i bagga
með leyfisveitingu enn þá til
innflutningsins.
Innbrot
-hs-Rvik. Brotizt var inn I timbur-
verzlun StS viö Armúla I fyrrinótt
og einnig I raftækjadeild Dráttar-
véla h/f, sem er isama húsi. Þeir
sem þarna voru aö verki höföu
litið upp úr krafsinu, 3000 krónur
á fyrrnefnda staönum, en segul-
bandstæki á hinum siöarnefnda.
Að sögn Gísla Guðjónssonar,
rannsóknarlögreglumanns, hafði
verið brotinn gluggi á bakhlið
hússins og farið þar inn. Ráfað
hafði veriö um allt húsið og rótað I
ýmsu og var aðkoman vægast
sagt heldur sóöaleg.
Einnig voru brotnar þrjár hurð-
ir, þegar farið var inn I raftækja-
deildina og til þess voru notuð öxi
og kúbein, sem tekin voru I
timburverzluninni. Gisli taldi
ekki ósennilegt að brotið hafi
verið framið af drukknum mönn-
um, að minnsta kosti var sóða-
skapurinn slikur að allsgáðir
menn hefðu vart farið svo að.
Tjóniö vegna brotinna hurða og
karma er talsvert.
'
Raforkuflutningur um sæstreng:
Slíkir flutningar fara fram
en dýpið umhverfis ísland
er erfiður Þrdndur
-hs-Rvik. —t framhaidi af fregn-
um um möguieika á orkuflutningi
um gervihnött, sem m.a. var sagt
frá i biaöinu i gær, var Jakob
Björnsson, orkumálastjóri,
spuröur um möguieika á flutningi
raforku um sæstrengi til annarra
landa.
Hann sagði, að á sinum tima
hefðu verið gerðar áætlanir um
þetta atriði, en þær hefðu bent til
þess, að ekki gæti orðið um mik-
inn hagnað að ræða. Sérstaklega
væri það dýpið i hafinu umhverfis
tslands, sem kynni að valda
erfiðleikum.
Jakob sagði, að erfitt væri að
meta það hvort slikur útflutning-
ur væri kostnaðarlega hag-
kvæmur I dag, en vafalaust heföi
í Götu
tækninni f þessum málum sem
öðrum fleygtfram, siðan þessi at-
hugun var gerð. Hann bætti þvi
við, að enginn slikur kapall hefði
nokkru sinni verið gerður, en fyr-
irbærið v*ri hins vegar ekki al-
veg óþekkt, þvi að Norömenn
flyttu til dæmis raforku til Dan-
merkur um sæstreng, en þar er
um stutta vegalengd og litið dýpi
að ræða.
MÓL-Reykjavik. Þetta er
ekki atriði úr bandariskri
sakamálamynd, þar sem ill-
virkinn hefur að lokum veriö
klófestur eftir haröan
eltingaleik. Hins vegar má
segja, að Reykvikingurinn
hafi fengiö nokkuð óbliðar
móttökur hjá Akureyring-
um, en myndin er tekin á
horni Glerárgötu og Gránu-
félagsgötu á Akureyri.
Areksturinn mun hafa átt
sér þannig staö, aö sendibif-
reiðin ók inn i hægri hlið R-
bilsins, sem kastaöist við það
á þriðja bllinn, sem var
kyrrstæður.
Engin slys urðu á mönn-
um, en R-billinn er mikiö
skeir.m jijr.
TfmafJiynd Karl.
Flugleiðir
í píla-
grímaflug?
MÓL-Reykjavlk. Um þessar
mundir eru staddir á vegum
Flugieiða hf. nokkrir menn I
Nigeriu, þar sem þeir standa I
samningaviðræöum viö þarlenda
múhameöstrúarmenn um plia-
grlmsflutninga. Fleiri fiugfélög
en Fluglciöir berjast um þessa
flutninga, þannig aö enn er ekki
Ijóst hvort Flugleiðir fái þennan
samning. Takist samningar hins
vegar, þá veröa þeir undirritaöir
næstkomandi mánudag.
Að sögn Alfreðs Ellassonar,
forstjóra Flugleiða, þá liggur
ekki enn fyrir hve margar ferðir
er um að ræða, þótt vitaö sé aö
þær verði fleiri en slðast þegar
Flugleiðir stóðu að pilagrims-
flutningum. Verði úr samningum,
þá munu tvær vélar félagsins
vera i þessu leiguflugi.
Þó að ekki verði úr samningum,
þá er samt ekki loku fyrir það
skotið, að Flugleiöir fljúgi með
pllagrlma, og þá frá Indónesiu. 1
vor og sumar voru menn frá
Flugleiðum staddir i Indónesiu.
Að sögn Alfreðs Eliassonar, sem
var með I förinni, þá voru það ein-
ungis könnunarviðræður, en
Indónesiumenn hafa siðar haft
samband við Flugleiðir. Litið sem
ekkert er vitað um fjölda þessara
ferða.
Takist samningarnir viö
Nigeriumennina, þá verður ekk-
ert af leigufluginu fyrir hina, þar
sem Flugleiöir hafa ekki flug-
flota, sem gæti annað öllum þess-
um flutningum.
Aætlun Flugleiöa um að stækka
flugflota sinn verður I athugun út
þennan mánuð og verður ákvörð-
un tekin um miðjan næsta mánuð.
Nauteyrarhreppur við Isafjarðardjúp:
Áætlun um að stórbæta óstandið
í símamólum í haust
ASK-Reykjavik. — Það hefur ver-
iö gert sem hægt er viö núverandi
aöstæöur, viö erum aö undirbúa
aögeröir sem ég get ekki timasett
núna, né heldur sagt hvaöa leiö
veröur valin, sagöi Sigurður Þor-
kelsson framkvæmdastjóri
tæknideiidar Pósts og S<Ima er
Timinn spuröist fyrir hvaö iiöi
viðgeröum á simalinum i Naut-
eyrarhreppi viö tsafjaröardjúp.
— Þaö var farið yfir allar Ilnur
þarna og þær settar i það stand,
sem hægt var og ég veit að á-
standið batnaði eitthvaö. Hins
vegar vitum við að slmasamband
við Nauteyrarhrepp er lélegt. Það
hafa lengi verið uppi ráðagerðir
meðað bæta þaö, en fjárhagurinn
hefur stöðvað okkur. En vonir
standa til þess, að yið fáum
tækjabúnað sem geti bætt ástand-
iö nokkuð meira. Það er síður en
svo, að við viljum ekki gera bet-
ur, en Póst og Slma er sniðinn
þröngur stakkur, með hvaða
framkvæmdir hægt er að leggja I.
Þá sagði Sigurður að einkum
væri um tværleiðir að velja til að
bæta talsimasambandið i Naut-
eyrarhreppi. Sú fyrri væri að
byggja upp radio-stöðina á bæj-
um sem hefur beint samband við
Isafjörð gegnum radióstööina i
Arnarnesi og tengja þaðan á
nokkra staði. Þeir yrðu siðan
tengipunktar fyrir bæina i kring.
Þetta ætti að gera leiðirnar til
tsafjarðar öruggari.
Hin leiðin er sú, að losa út linur
sem notaðar eru fyrir fjölsimann
á IsafirðitilHólmavIkur.þar með
yrði hægt aö losa linur san settar
væru á f jölsima inn Djúpið, en til
þess þarf Póstur og Slmi einnig að
ná fjölsíma sem losnar aö öllum
Ukindum i haust. Að sögn Sigurð-
ar þá bendir flest til þess að hægt
verði að ráðast i þessa fram-
kvæmd síðar i sumar. Hins veg-
ar sagði Sigurður, að ekki væri
enn fullljósthvorleiðin yröi valin,
eða hvor væri fjárhagslega hag-
kvæmari.
— Það er mikið gert hér hjá
okkur til að þessari framkvæmd
verði lokið fyrir veturinn. Þá er
seinni aðgerðin bundin öörum
framkvæmdum, sagöi Sigurður.
— Við fáum ekki efni til að losa út
leiðina Hólmavík-Isafjörður, fyrr
en við erum búnir að koma ann-
arri leið i' gagmð.
Þá sagði Sigurður að gefin heföi
verið heimild fyrir talstöð i
hreppinn ogætti hún að koma nú I
sumar. Hins vegar sagði hann að
beiðni um talstöðina hefði komið
svo seint I fyrra aö hún náðist
ekki fyrir veturinn.
Eins og Timinn greindi frá,
ekki alls fyrir löngu þá neituðu
nokkrir ibúar Nauteyrarhrepps
að greiða afnotagjöld sln. Þetta
aftur leiddi til þess að simunum
var lokað. Samkvæmt upplýs-
ingum Erlings Sörensen um-
dæmisstjóra Pósts og Sima á
Vestfjörðum þá hafa nú nær all-
ir greitt gjöldin.
— Það var ekki óeölilegt, að
fólk væri óánægt með simann,
sagði Erling, þetta svæði haföi
oröið á eftir öðrum landshlutum
nú á undanförnum árum. En þær
aðgerðir sem Landsiminn ætlar
að fara I næstkomandi haust,
urðu til þess að menn greiddu af-
notagjöldin.