Tíminn - 06.08.1976, Blaðsíða 13

Tíminn - 06.08.1976, Blaðsíða 13
Föstudagur 6. ágúst 1976. TÍMINN 13 inu 1953. Aðalhlutverk Jean Simmons og Victor Mature. William Blakley er þekktur leikritahöfundur. Sú saga kemst á kreik, að hann ætli að skilja við konu sina, og gerir slúðurdálkahöfundur einn sér mat úr þeirri sögu. Þýðandi Stefán Jökulsson. 23.40 Dagskrárlok. MM/íO&SVtoiS®* hljóðvarp FÖSTUDAGUR 6. ágúst 7.00 Morgúnútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Ingibjörg Þorgeirs- dóttir les fyrri hluta sögu sinnar „Hreiðurhólmaferð- arinnar”. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milíi atriða. Spjallað við bændur kl. 10.05 Tónleikar kl. 10.25. Morguntónlcikar kl. 11.00: Katia og Marielle Labéque leika Svitu nr. 2 fyrir tvö pianó op. 17 eftir Sergej Rakhmaninoff / Fil- harmoniusveit Lundúna leikur. „Falstatt”, sinfóniska etýðu i c-moll op. 68 eftir Edward Elgar: Sir Adrian Boult stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Blóm- ið blóörauða” eftir Johann- es Linnankoski. Axel Thor- steinson les (4). 15.00 Miðdegistónleikar. Peers Coetmore og Eric Parkin leika Sónötu i a-moll fyrir selló og pianó eftir Moeran. Maurice Sharp, Harvey McGuire og Sin- fóniuhljómsveitin i Cleve- land leika Kammerkonsert fyrir flautu, enskt horn og strengjasveit eftir Arthur Honegger, Louis Lane stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. 17.30 „i leit að sólinni”. Jónas Guðmundsson rithöfundur rabbar við hlustendur (1). 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 iþróttir. Umsjón: Jón Ásgeirsson. 20.00 Sinfóniutónleikar. Flytj- endur: Kammerhljómsveit- in i Stuttgart. Stjórnandi: Wolfgang Hofmann. Ein- leikari á óbó: André Lar- drot. a. Konsertserenaða i Es-dúr op. 20 eftir Ignaz Pleyel. b. Sinfónia i D-dúr eftir Francois Joseph Goss- ec. (Hljóðritun frá útvarp- inu I Stuttgart). 20.40 Viðdvöl i sumarbúöum KFUK i Vindáshlið. Gisli Kristjánsson ritstjóri ræðir við gesti og forstöðufólk. 21.00 Emsöngur: Theo Adam syngurlög eftir Tsjaikovský og Richard Strauss, Rudoíf Dunckel leikur á pianó (Hljóðritun frá Búdapest). 21.30 (Jtvarpssagan: „Stúlkan úr Svartaskógi” eftir Guðmund Frimann, Gisli Halldórsson leikari les (8). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Til um- ræðu. Baldur Kristjánsson sér um þáttinn. 22.55 Afangar. Tónlistarþátt- ur i umsjá Asmundar Jóns- sonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. ET í JÖTUNHEIMUM FJALLANNA 34 fykju af grunni í ofviðrum. Það voru til staðir inni í fjallahlíðunum, þar sem leita mátti afdreps í gömlum kjallara eða skríða undir f jalir, sem eitt sinn höfðu verið stofugólf, ef fárviðri skall snögglega á. Nóttin færðist yfir, og ekki slotaði veðrinu. Uppi í brunateignum, þar sem Lapparnir höfðu einu sinni kveikt í skóginum, voru ný trén í uppvexti. en nú stóðu aðeins örfáir veðurbarðir stofnar upp úr fönninni, sem virtist hafa einsett sér að kaffæra þá líka. í dala- drögunum milli f jallgnýpanna háði gamli greni- skógurinn harða orustu við storminn. Það hrikti og brakaði í trjám og öðru hverju heyrðust þungir dynkir og þytur í toppum, sem brotnuðu, þegar hríðin gerði tryllt- ustu áhlaupin. Fyrir ofan skógarmörkin hefði engum manni verið stætt á bersvæði. Það drundi í f jöllunum, og fönnin gus- aðist í stríðum strengjum gegnum skörðin, eins og hvitur foss steyptist úr gínandi gini. Sums staðarkomu ferlegar snjóskriður æðandi niður brattar hliðar og skullu af svo miklu af li á skriðurnar handan skarðanna að þær tættust bókstaf legá á loft í fárviðrinu og þyrluðust út í buskann og hrif u með sér allt steini léttara er á vegi varð. Marta lá grátandi í rúmi sinu i húsi Lars. Það var komið að miðnætti og enn hafði henni ekki komið blundur á brá. Við og við settist hún upp og hlustaði á hamfarir veðursins — þögul og sorgbitin. Það var eins og hún byggist hálfvegis við að heyra eitthvað annað en veður hljóðið. En hún heyrði ekki neitt annað, og stundum varð örvænting hennar svo sár, að hún varð að bíta á vörina til þess að stilla sig um að æpa. En ekkasogin gat hún ekki bælt niður, þótt f aðir hennar reyndi að sef a hana. — Svona Marta. Reyndu nu að sofna. Þetta fer allt vel, sé það vilji drottins. Viðgetum ekkertgert. Marta skreið undir gæruskinnið — hún nötraði öll. Faðir hennar hafði rétt fyrir sér. Þau gátu ekkert gert — áttu einskis úrkostar, nema bíða, bíða. En úti ...einhvers staðar úti í hríðinni...Ó, guð! Stúlkan tróð skækli af gæruskinnum upp í sig og nísti hann með tönnunum. Allt í einu var eins og allan mátt drægi úr kjálkunum, hún lá hreyfingarlaus og hlustaði. - Faðir vor, þú sem ert á himnum.... Móðir hennar var skjálf rödduð, og stundum urðu orðin að ekkablöndnu hvísli, sem hljómaði i eyrum Mörtu eins og hinzta bæn við líkbörur. Hún stundi lágt. Móðir hennar hélt áfram að biðjast fyrir, og stúlkan greip höndum fyrir eyrun til þess að losna við að hlusta á hana. Eftir nokkrar mínútur reis hún aftur upp, og nú heyrði hún ekkert annað en ýlfrið i storminum úti fyrir glugganum. Marta hlustaði um hríð, en allt í einu spratt hún upp og rak upp hátt óp. — Hvað er um að vera, barn? — Það var barið að dyrum, pabbi? stundi hún. — Barið að dyrum? — Já, flýttu þér fram úr. Hann liggur kannski aðfram kominn við hurðina. Lars og kona hans hlupu bæði fram úr fleti sínu. Þau voru alklædd, og Birgitta gekk að hlóðunum og náði í þurran birkibörk.Svo rétti hún sig upp með uppkveikjuna i hendinni, og sárir kippir fóru um þreytulegt andlitið. Það var ómögulegt að kveikja upp — á þessari nóttu var þess enginn kostur. Marta reif burt tuskurnar, sem troðið hafði verið milli stafs og hurðar, og fór með föður sínum f rami fordyrið. Lars opnaði útidyrnar og feðginin rýndu bæði út í iðu- lausa hríðina. Ekkert kvikt var að sjá, aðeins hriðar moldviðrið sem umlukti húsið, og þykkan skafl, sem hlaðizt hafði upp i hléi við eitt hornið og yrði sjálfsagt orðinn jafn hár þakskegginu að morgni. Lars dró andann djúpt og hrópaði út í myrkrið, dimmum rómi: — Jónas! — Jónas! Og Marga æpti líka í örvæntingu sinni: — Jónas! Ekkert svar, nema drauglegt kvein stormsins við hús- hornið. Stúlkan óð út í skaf linn og krafsaði niður í hann. Hríðargusurnar lömdu andlitið á henni. Lars starði vonleysislega út í myrkrið. Hann kallaði einu sinni enn, en hann gerði það f remur vegna Mörtu en líkindanna til þess, áð Jónas væri í kallfæri. Þau urðu að forða sér inn aftur. Það var tilgangslaust að leita um- hverfis húsið. Lars hálfdró dóttur sína inn. Hún hneig grátandi niður í rúmið sitt. HVELL G E I R I D R E K I K U B B U R Geiri er fljótur að losa sig við Lizard-manninn....

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.