Tíminn - 06.08.1976, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.08.1976, Blaðsíða 9
Föstudagur 6. ágúst 1976. Otgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjöri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús- inu viö Lindargötu, simar 18300 —-18306. Skrifstofur I Abalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verö i lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Efnahagsmálastefna Alþýðubandalagsins Það er staðreynd, að viðskiptakjör þjóðarinnar versnuðu um 10% á árinu 1974, miðað við næsta ár á undan, og á árinu 1975 versnuðu þau um 15% miðað við árið 1974. Hið stórfellda áfall, sem fylgdi þessu fyrir þjóðarbúið, hlaut að leiða til kjaraskerðingar. Vegna aðgerða núverandi rikis- stjórnar hefur kjaraskerðingin orðið minni en óttast mátti, eins og sést á þvi, að kaupmáttur ráðstöfunartekna verkamanna var næstum hinn sami á árinu 1975 og 1972, sem var annað valdaár vinstri stjórnarinnar. Þetta hefur hins vegar orsakað viðskiptahalla og erlenda skuldasöfnun, sem ráða verður bót á, þegar viðskiptaárferði fer batnandi. Þjóðviljinn reynir oft með miklu offorsi að ráðast á rikisstjórnina og kenna henni um kjara- skerðinguna, sem hlotizt hefur af rýrnun við- skiptakjaranna á árinu 1974 og 1975. Þetta er þó býsna erfitt verk fyrir þá Þjóðviljamenn, þvi að núverandi rikisstjórn hefur i stórum dráttum beitt sömu efnahagsaðgerðum og vinstri stjórnin beitti og Alþýðubandalagið taldi þá góð og gild. Vinstri stjórnin bæði felldi gengið og sleit kaup- gjaldsvisitöluna úr sambandi. Færasti blaða- maður Alþýðubandalagsins, Magnús Kjartans- son, varð lika að viðurkenna það á siðastliðnu sumri, að Alþýðubandalagið legði ekki bann á neinar sérstakar efnahagsaðgerðir. Honum fórust þá svo orð i Þjóðviljanum (3. ágúst): „Ekkert er nýtt undir sólinni, sizt af öllu hag- stjórnaraðgerðir. Ekki er kunnugt um, að neinn stjórnmálaflokkur á íslandi telji einhverja hag- stjórnaraðferð bannhelga i sjálfri sér, hitt skiptir öllu máli i hvaða tilgangi þeim er beitt”. Efnahagsstefnu Alþýðubandalagsins verður sennilega ekki betur lýst i fáum orðum. Sam- kvæmt þessu telur Alþýðubandalagið enga sér- staka efnahagsaðgerð bannhelga. Undir þetta falla að sjálfsögðu gengisfelling, kaupbinding og aðrar efnahagsaðgerðir. Afstaðan til aðgerðanna fer eingöngu eftir þvi ,,i hvaða tilgangi þeim er beitt”, eða enn nánara sagt, eftir þvi hvort Al- þýðubandalagið er i stjórn eða ekki. í samræmi við þetta hafa lika vinnubrögð Al- þýðubandalagsins verið. Meðan það sat i vinstri stjórnini, tók það þátt i gengisfellingunni 1972, og var meðmælt gengisfellingu um sumarið 1974. Það tók þátt i kaupbindingu og tillögum um grunnkaupslækkun vorið 1974. Þetta var nauðsynlegt þá vegna efnahagsástandsins og var það þó ekki orðið eins erfitt og siðar varð. Nú telja ritstjórar Þjóðviljans slikar aðgerðir núver- andi rikisstjórnar óhæfar, þótt tilgangurinn með þeim hafi verið hinn sami og hjá vinstri stjórninni og rökin fyrir þeim hafi verið enn gildari en 1974. Það er vissulega rétt, að Alþýðubandalagið telur enga éfnahagsaðgerð bannhelga. Afstaðan fer eingöngu eftir þvi hvort það er i stjórn eða ekki. Það verður þvi enginn vandi fyrir Alþýðu- bandalagið, hvað efnahagsmálin snertir, að ná samkomulagi við Sjálfstæðisflokkinn um ,,sögu- lega málamiðlun”, en mörgum leiðtogum þess mun nú þykja hin itaiska fyrirmynd lokkandi og þeirra á meðal munu vera báðir ritstjórar Þjóð- viljans. ' Þ.Þ. TÍMINN 9 ERLENT YFIRLIT Stórglæpir aukast mjög í Svíþjóð Olof Palme verður fyrir alvarlegri hótun SA ATBURÐUR geröist i Sviþjóð siðastliöið laugar- dagskvöld, að hringt var á hótel i Bengsfors, þar sem Olof Palme forsætisráðherra ætlaði að dvelja um nóttina. Sá, sem hringdi, gaf ekki upp nafn sitt, en erindi hans var að segja frá þvi, að sprengju hefði veriðkomið fyrir á hótel- inu og myndi hún springa inn- an ákveðins tima. Þegar þetta gerðist, var Palme enn á flokksskemmtun, þar sem hann dansaði af mestu list, en hann var á kosningaferðalagi i vatnahéruðum Sviþjóðar (umhverfi Vánern-Vattern). Hótelstjórinn þoröi ekki annað en að taka þessa upphringingu alvarlega og voru allir gestir og starfsmenn reknir út á götu, meðan lögregluleit fór fram. Engin sprengja fannst. Leitinni var lokið um miðnætti og fékk Palme ekki að ganga til hvilu fyrr. Það er enn óljóst hver eða hverjir hafa verið hér að verki en margir eru sagðir óttast, að hér hafi hægrisinnaðir öfga- menn verið að verki. í Sviþjóð rikir nú vaxandi ótti við hermdarverkamenn, bæði er- lenda og innlenda, ekki sizt þá fyrrnefndu, enda hafa þeir öðru hvoru látið til sin taka i Sviþjóð og beint hótunum að ýmsum forystumönnum þar. ÞAÐ hefur aukið á þennan ótta, að siðustu vikurnar hafa gerzt glæpir i Sviþjóð, sem benda til þess, aö hópar skipu- lagðra óaldarmanna séu að verki. Hinn 15. júli siðastliðinn var framið stærsta peningarán i sögu Sviþjóðar. Þá var ráðizt af þremur vopnuðum og grimuklæddum mönnum á flutningabil Götabanken i Gautaborg, þegar verið var að bera peningatöskur út I hann. Verðir voru að sjálfsögðu við- staddir, en árásin gerðist svo snöggt, að þeir fengu ekki af- stýrt ráninu. Litlum einkabil var skyndilega ekiö að hlið flutningabilsins og þutu tveir vopnaðir menn út úr honum og tókst þeim að ná töskunum með hótunum og komast aftur I bilinn, þar sem þriðji vopnaði maðurinn sat undir stýri og ók óðara á brott. Billinn fannst siðar, en þá voru ræningjarnir allir á brott. Þeir hafa ekki náðst enn. Ránsfengur þeirra Olof Palme hélt áfram að dansa. nam hvorki meira né minna en 1.536.000 sænskum krónum eða um 63 milljónum Isl. króna. Það gerðist svo fáum dögum siðar, eða 18. júli, að fjórum mönnum tókst að flýja úr fangelsinu i Norrköping. Meðal þeirra var Clark Olof- son, alræmdasti bankaræningi Sviþjóðar, sem oft áður hafði tekizt að brjótast út. Flóttinn var að þessu sinni ótrúlega vel skipulagöur. Hann gerðist með þeim hætti, að flutninga- bil með tveim vopnuðum og grimuklæddum mönnum var ekið i gegnum þrjú grindar- hlið, sem talin voru hin traust- ustu. Samtimis heyrðist merki og brugðu fangarnir þá fljótt við, ógnuðu varðmönnunum og tókst að kliíra yfir múrinn og komust i bilinn, sem ók óðara á brott. Eftir þetta hófst hin ákafasta lögregluleit i sögu Sviþjóðar og tókst að klófesta Olofson siðastliðinn sunnudag, en áður hafði lögreglan náö einum fanganum, sem strauk með hinum úr fangelsinu. Hinn 29. júli gerðist svo sá atburður, sem hefur vakiö hvað mestan ugg i Sviþjóð. Þá réöust þrir vopnaðir menn inn i skotfæraverzlun i Stokk- hólmi, bundu fjóra starfs- menn, sem þar voru og höfðu siðan burtu með sér um 30 byssur af ýmsum tegundum, ásamt miklu magni af hvers konar skotum og sprengjum. Lögreglan er sögð óttast, að ránið sé framið af óaldar- mönnum, sem ætli frekar að nota vopnin sjálfir en selja þau. Umræddir atburðir og aðrir, sem eru sömu ættar en ekkieins umfangsmiklir, hafa leitt til þess, að varðgæzla hef- ur verið aukin á ýmsum stöð- um, t.d. við banka, sendingu á peningum og fangelsi. Svo mjög hefur gæzlan verið auk- in, að löggæzlumenn kvarta undan yfirvinnu, sem sé aö verða svo mikil, að hún geti veikt árvekni þeirra. Eftir yfirmanni þeirrar deildar Stokkhólmslögregl- unnar, sem fæst við stærstu glæpamálin, er það haft, aö kunnugt sé um marga ófyrir- leitna afbrotamenn, sem leiki lausum hala, en þvi fylgi oft mikill kostnaður fyrir þá að fara huldu höfði. Þeir séu þvi vafalaust ýmsir orðnir pen- ingalitlir og geti þvi brátt látið til skarar skriða, þar sem sé vænleg fjárvon. Þess vegna verði alls staðar að vera á varðbsrgi, þar sem þannig er ástatt. ÓHJAKVÆMILEGT er að þessi mál setji nokkurn svip á kosningabaráttuna. Stjórnar- andstæðingar reyna að not- færa sér þetta til ádeilna á stjórnarfarið, sem hafi mynd- azt undir langvarandi stjórnarforystu sósialdemó- krata. Þó gera þeir.þettaekki að neinu höfuðmáli, enda erfitt að færa þetta á reikning stjórnarinnar einnar. Sósial- demókratar svara aftur á þann veg, að þetta sé eitt dæmið um neikvæöan og ó- heiðarlegan málflutning stjórnarandstæöinga, sem taki sér nú Jósef Strauss á margan hátt til fyrirmyndar. Þ.Þ. iii r-'l i | n 11 I III I I 1 . iHff III H ■ i § i S i * f ,1, . M m Götabanken þar sem rániö mikla var framiö.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.