Tíminn - 06.08.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 6. ágúst 1976.
í spegli tímans
Listsýning Indiána í Moskvu
Nú stendur yfir i Sögulega rikis-
safninu i Moskvu sýning, sem
nefnd er „Menning Indiána-ætt-
bálka i nágrenni viö Amazon-
fljót”. A sýningunni eru um 500
hlutir, innanhússhlutir, áhöld,
vopn, skrautgripir og hljóöfæri.
Þessir hlutir eru nú sýndir i
fyrsta sinn utan Venezuela.
Fær hún ósk sína
uppfyllta ?
Kvikmyndaframleiöandinn
frægi, Alfred Hitchcock er um
þessar mundir að vinna að gerö
nýrrar kvikmyndar. Það hefur
ætiö veriö keppikefli leikara, að
fá hlutverk i mynd hjá honum,
en nú hefur hann alveg unga
óreynda stúlku I sigtinu i eitt
aðalhlutverkið. Sú er engin önn-
ur en hin nitján ára Karólina
prinsessa af Mónakó. Karólina
hefur lengi látið sig dreyma um
að verða leikkona en aldrei
fengið tækifæri að reyna sig
þrátt fyrir mörg tilboð, þvi
mamma hefur ævinlega tekið af
skarið og sent dótturina á
Klausturskóla i von um að hún
losnaði við þessar grillur úr
kollinum. Karólinu hefur verið
lýst sem einkar fallegri stúlku,
en fremur skapmikilli. Það
kemur þó ekki til með að valda
Hitchcock neinum vandræðum,
þvi hann hefur þurft að fkst við
margar duttlungafullar leik-
konur á löngum leikstjóraferli
sinum, Og eins og menn rekur
eflaust minni til, þá var það lika
Hitchcock sem fyrir um tuttugu
og fimm árum uppgötvaði leik-
hæfileika Grace Kelly, móður
Karólinu og gerði hana að
stjörnu.
¥ ¥ ¥ ¥ ¥
4 Kannizt þið við kauða ?
Það vefst vafalaust fyrir
mörgum, hver þessi snoðkollur
er, en við nánari aðgæzlu má
sjá, að hér er á ferð Ringó Starr,
fyrrverandi Bitill. Hann mun
hafa verið orðinn leiður á hár-
lubbanum, svo hann ákvað að
losa sig við hann. Þegar allt
kom til alls þótti honum það
ekki nægja og linnti ekki látum
fyrr en búið var að fjarlægja
bæði skegg og augnabrúnir úr
andliti hans, svo nú má með
sanni segja að þar finnist ekki
stingandi strá. Hann segir að
það sé stórkostleg tilfinning að
vera hárlaus, en ýmsir mein-
fýsnir náungar hafa ráðlagt
honum að halda sig innan dyra
eftir að fer að skyggja.
Ef þið haldið virkilega, aö þið kuldanum, þá skjátlast ykkur
getið lokað mig hérna úti I hrapallega..............
fVMGt
— Hvernig væri að drekka eina
úlfaldaskál?