Tíminn - 10.08.1976, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.08.1976, Blaðsíða 6
TÍMINN Þriðjudagur 10. ágúst 1976 6' Þegar auðmanns- synir leika sér Þeir skólafélagar James (t.v.) og Frederich á leiðinni til réttarsalarins. Umfangsmiklar varúðarráðstafanir voru gerðar, þvi yfirvöldin óttuðust hefndarráðstafanir for- eldranna. Úr myndaalbúmi fjölskyldunnar. Frederich giftist Songel Nichols árið 1971, en ári siðar sleit hún sambúð sinni við Fred. Richard Schoenfeld, yngri bróðirinn. Eldri bróðirinn, James Schoenfeld, var gamall skólabróðir Freds. lUmi fimmleytiö. fimmtudag- inn 15. jUli' s.l. hafði lögreglan i Miö-Kaliforniu tekiö á móti nokkrum isimtölum frá áhyggjufullum foreldrum, sem sögöu að börnin þeirra hefðu ekki ikomiö með skólabilnum eins og venjulega. Nánar tiltek- ið, þá haföi billinn alls ekkisézt. Vegalögreglunni var þegar til- kynnt um hvarfið og þá hófst leit,isem bæöi Bandarikjamenn ogaðrirfylgdustmeöaf miklum áhuga. Klukkan var. rúmlega f jögur á þessum i fimmtudegi, þegar Frank Edward Ray, bilstjóri skólabifreiöarinnar, var neydd- ur af þremur mönnum til að stööva bilinn. I honum voru 26 börn á aldrinum 5-14 ára. Ræningjarnir, .sem voru allir hvltir, neyddu börnin og bil- stjóra þeirra til að fara inn i tvo sendiferöabila og siöan huldu þeir skólabilinn með laufi og trjágreinum.i Um nóttina voru fórnarlömbin neydd ofan i stóra gryfju og slðan fylltu ræn- ingjarnir upp i opiö. Þegair mennirnir þrir voru farnir, þá hóf Frank Ray björgunaraðgeröir sinar. Ræn- ingjarnir höföu skiliö eftir eitt- hvað af mat og vatni, og auk þess skildu þeireftirdýnur. Með aðstoö stærri barnanna, þá hlóð Ray dýnunum hverja ofan á aöraogþannig gátu þaukrafsaö imölina og moldinar sem lokaöi opinui Um sjöleytið kvöldiö eft- ir, en þá voru 27 timar liönir frá ráninu, fór hreint loft aö berast inn i gryfjuna og skömmu siöar tóksteinu barnanna aö skriöa út um þröngt opiö og kalla á hjálp. Lögreglan brást fljótt við og um nóttina voru öll börnin komin heim til foreldra sinna — i lög- reglufylgd. Leitin hefst Að visu voru foreldrarnir ánægöir aö sjá börnin sin aftur, en þeir vildu llka sjá mannræn- ingjana — i lögreglufýlgd. 1 byrjun vissi lögreglan ákaflega litið. Ræningjunum haföi veriö lýst þannig, að einn væri á i fimmtugsaldri, en hinir tveir á aldrinum milli 35-40, hvitir, há- vaxnir og einn þeirra var vopnaöur. Nöfn þeirra og til- gangur ránsins var á huldu. Að visu fannst pappirsmiöi, sem greinilega var uppkast af stærra bréfi, þar sem farið var fram á 5 milljón dollara lausnargjald fyrir börnin, en ekki var tekið fram hver ætti aö borga. Synir auðugra manna Mjög fljótlega féll þó grunur á þrjá unga menn, Frederick N. Nýr skeiðvöllur vígður á Kaldármelum KB-Stykkishóimi — Hesta- mót Snæfeliings var haldið aö Kaldármelum laugardaginn 31. júli, en þar var verið að vigja nýjan skeiðvöll. Mótið hófst ineö þviað fonnaður setti mótið, siðan fóru féiagar i hópreiö einn hring á vellinum og staðnæmdust fyrir framan dómpail á meðan Albert Jóhannsson formaður L.H. flutti ræðu ogséra Hjalti Guðmundsson sóknarprestur i Stykkishólmi fór með bæn. Þá stigu hópreiöar- menn aftur á bak og riðu af velli. Næst lýsti Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðunautur dómum kynbótahrossa sem var eitt stærsta númer mótsins. Fyrst var sýndur stóðhesturinn Sörli frá Stykkishólmi og hlaut hann eink: 7,92., sem mun vera með betri eink, sem gefið er fyrir fjögurra vetra stóöhest. Sörli er undan Sörla 653 frá Sauðárkróki og Þotu frá Innra Leiti.Eigandi Sörla er Jónas Þorsteinsson, Ytri Kóngs- bakka Helgafellssveit, Þá voru sýndar tvær hryssur meö af- kvæmum. Þota frá Innra Leiti og Gjósta frá Innra Leiti. Þota hlaut eink: 8.09 og fyrstu verölaun en Gjósta hlaut eink: 7.81 og fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Eigandi Þotu er Leifur Kr. Jóhannesson Stykkishólm i en eigandi Gjóstu er Edilon Guömundsson Stykkis- hólmi. Þá voru sýndar hryssur 6 v. og eldri en þær voru 10. Efst i þeim hópi stóö Hryðja frá Stykkishólmi, eigandi Leifur Kr. J<(hannesson Stykkishólmi. Hryöja hlaut eink 8.00 og I. verð- launJIryöjaer undan Glampa 643 og Þotu frá Innra Leiti. Næst voru sýndar 5 v. hryssur en þar stóö efst Assa frá Kross- holti, eigandi Siguröur A. Kristjánsson Stykkishólmi. Assa er undan Brún frá Brúarhrauni og Brún-Skjónu frá Krœsholti. Assa hlaut eink: 7,63 og önnur verölaun og aö lokum voru sýnd- 4 v. hryssur en þar stóö efst Elding frá Stykkishólmi, eig- andi Eysteinn Leifsson Stykkis- hólmi. Elding er undan Sörla 653 og Lipurtá 3587 Elding hlaut eink, 7.73 og önnur verðlaun. Dómarar kynbótahrossa voru Þorkell Bjarnason hrossaræktar- ráðunautur og ráöunautarnir Guömundur Péturssonog Þóröur Sigurjónsson. Næst var lýst dóm- um góöhesta, en þá dæmdu Arni Guðmundsson Beigalda, Hallur Jónsson Búöardal og Ragnar Hin- riksson Rvlk. Efstur i A-flokki góöhesta var Reykur 5 v. frá Stykkishólmi, eigandi Njáll Þor- geirsson Stykkishólmi.Reykur hlaut eink.: 8.16, annar var Glófaxi, eigandi Högni Bær- ingsson Stykkishólmi. Glófaxi hlaut eink: 8.03 og þriöji var Gustur 6 v. frá Fáskrúösbakka eigandi Högni Bæringsson Stykkishólmi. Gustur hlaut eink. 8.02. Efstur I B. flokki góöhesta var Bjarna-Skjóni 10 v. frá Barða- stööum eig. Bjarni Einarsson Barðarstööum Staðarsveit. Bjarna-Skjóni hlaut eink: 7.81. annar var Hrollur 8 v. frá Seljum Helgafellssveit eigandi Bernt H. Sigurösson Stykkishólmi. Hrollur hlaut eink. 7.80. Þriðji var Skjóni I6v.frá Hausthúsum Skjónihlaut eink. 7.66 eigandi Gisli Sigur- geirsson Hausthúsum. Þá hófust kappreiöar og uröu úrslitinþau, aöi 250 m skeiöi sigr- aði Kolbakur 12 v. Borgafirði eig. Bragi Asgeirsson knapi Ragnar Hinriksson timi 26,8, annar var Nótt 11 v. Borgafirði eigandi Edda Hinriksdóttir knapi Ragnar Hinriksson timi 28.7, þriöji Grettir 6 v. Snæfellsnessýslu eig- andi Valentinus Guönason Stykkishólmi knapi Halldór Sigurösson timi 29,5. 1 250 m fola- hlaupi var fyrstur Goöi 5 v. Borgafirði.eigandi og knapi Guð- rún Fjelsted Ferjubakka timi 21,0, annar var Fluga 5 v. Snæf. eigandi og knapi Bjarni Eyjólfs- son Grundafiröi timi 21,1, þriðji Litli Asi 5 v. Arnessýslu eigandi Hinrik Bragason Borganesi knapi Einar Karelsson timi 21,2. I 300 m stökki var fyrstur Eyfirðingur 7 v. Eyjafirði, eigandi og knapi Guörún Fjelsted timi 23,6. Annar Trantur 13 v. Dalasýslu eigandi og knapi Unnsteinn Tómasson Ólafsvik timi 23,8 þriöji Þrasi 8 v Arnessýslu eigandi Edda Hin- riksdóttir Borganesi timi 23,9. 1 800 m. stökki varfyrstur Þjálfi 11 v. Skagafiröi, eigandi Sveinn Kr. Sveinsson Rvik. knapi Guörún Fjelsted timi 1.09:2 annar var Logi 8 v. eigandi og knapi Halldór Sigurösson S-Göröum timi 1. 4:6, þriöji Ljóma 7 v. eigandi og knapi Svanur Aöalsteinsson Hellissandi timi 1.16:0. I 800 m. brokki var fyrstur Máni 21 v. Snæf., knapi og eigandi Halldór Sigurösson S-Göröum timi 2.07.1, annar Logi 13 v. Borgafiröi eigandi og knapi Kristján Eyþórsson Borgarn. timi 2.11.4., þriöji Þruma 5 v. Arness., eigandi Ragnar Tómas- son Rvik. knapi Tómas Ragnars- son Rvik. Góðhestar unglinga 16 ára og yngri voru dæmdir af þeim Al- berti Jóhannssyni og Ragnari Jónatanssyni. 11 hestar og ung- lingar tóku þátt i þeim. Efstur stóö Sprækur 4 v. eig. Kristmann Jóhannesson Ólafsv. Sprækur hlaut eink. 8,00. Annar varð Snúð- ur 6 v. eig. Heimir Kristinsson Stykkishólmi.Snúður hlaut eink. .,90. Þriðji varö Grettir 6 v. eig. Valentinus Guönason Stykkis- hólmi. Grettir hlaut eink. 7,80. Unglingarnir sýndu hesta sina sjálfir og gerðu það mjög vel. Þar með lauk þessu hestamóti Snæfellings sem tókst I alla staöi mjög vel. Tuttugu hryssur voru sýndar sem einstaklingar. Þrjá- tiu og sjö góðhestar voru sýndir og sextiu og fimm hlaupahestar mættu til leiks. Engin peninga- verölaun voru veitt en þrir efstu hestar í hverjum hópi og hverju hlaupi hlutu verölaunapening. Efsti hestur i A. flokki gæðin^a hlaut Snæfellingsistaðiö, sem Kaupfélag Borgfiröinga gaf á sin- um tima. Efstihestur i B. flokki gæöinga hlaut bikar, sem Búnaöarbanki tslands Stykkis- hólmi gaf, og var veittur nú i fyrsta sinn. Þulur mótsins var Haukur Sveinbjörnsson Snorrastöðum. TÍMINN Þriöjudagur 10. ágúst 1976 7 Frederich Woods fæddist með silfurskeið í munninum, en lítið annað. Hann ótti fáa vini, misheppnuð ástarsambönd að baki og þjáðist af sjúklegri feimni. Þá var það, að hann og félagar hans rændu skólabílnum og börnunum 26. Sum þeirra munu bera sálræn merki þess jafnvel ævilangt. Frederich N. Woods, 24 ára gamall forsprakkinn i barnaráninu. Myndin er tekin skömmu eftir handtöku hans I Kanada. Woods, en faöir hans átti svæö- iö, þar sem gryfjan er, svo og á bræöurna Richard og James Schoenfeld. Richard var handtekinn viku siðar, en Frederich og James 28. júli s.l. Þeir eru allir synir frekar auöugra manna og til- gangur ránsins viröist ekki hafa veriö beinlinis peningalegur heldur frekar til aö auka spenn- inginn i lifinu. Nú hefur komiö i ljós, aö for- sprakki hópsins var Frederich Woods og hafa blaöamenn veriö aö grafa ýmislegt upp úr fortiö hans til aö varpa einhverri birtu á persónuleika hans, sem gæti skýrt tilganginn. Gervikúreki Þegar Fred Woods var hand- tekinn, sá siöasti af þeim þrem- ur, þá var hann klæddur eins og gervikúreki að sögn kanadisks lögreglumanns. Fred var i kúrekafótum, meö baröastóran kút-ekahatt og á hælaháum kúrekastigvélum. Það var kanadiska riddara- lögreglan, sem tók Woods, og þá sagöi strákur aöeins: „Anzi er þaö leiðinlegt, að sjá ekki hand- tökuna í sjónvarpinu i kvöld.” í fleiri ár og Þegar þeir fóru meö hann upp á hóteliö, sem hann bjó á, þá sagöi hann viö afgreiöslumann- inn: „Mér þykir það leitt, en ég heiti ekki Ralph Snider (falska nafniö, sem hann notaði). Ég er Frederich Woods og það nafn mun ég nota héöan i frá.” Þetta varpar örlltilli birtu á persónuna Fred Woods, en ein- ungis hinn Fred, þvi það má segja aö Fred Woods hafi verið tveir menn, gjörólikir. Klofinn persónuleiki Frá þeim samtölum, sem blaöamenn hafa átt viö fyrrver- andi vini og venzlamenn Freds, þá kemur fram áberandi mót- sögn i skapferli hans. Annars vegar er hann kúrek- inn, hortugur mannræningi. Hins vegar er hann feiminn, ófélagslyndur maöur, sem eyddi öllum stundum sinum viö að gera upp gamla bila. Þaö eru einungis tvær persón- ur, sem hægter að segja, að hafi þekkt hann eitthvaö, að ráöi — konan, sem hann var kvæntur og skildi viö hann og kærasta hans eftir skilnaöinn. Aörir þekktu hann aðeins litillega, þvi hann átti fáa vifii einungis nokkra kunningja, skólasystkini og nágranna. Þeim kemur þó saman um, að i heild hafi Fred alltaf veriö mjög feiminn, en átti þaö þó til að vera öruggur með sig og hortugur. Forfeðurnir komu með Mayflower Frederich Newhall Woods er 24 ára gamall og sonur mjög auðugs námueiganda. Faöir hans á fyrirtæki, sem veltir milljónum dollara á ári auk þess, sem fjölskyldan öll á eign- ir og fyrirtæki um gjörvöll Bandarikin. Það er sagt, að Fred geti rak- ið ætt sina alla leiö til innflytj- endanna, sem komu meö May- flower á sinum tima, en þaö þykir ákaflega merkilegt i Bandarikjunum. En Woods-ætt- in hefur ekki látiö sér það nægja, þvi hún getur rakið ætt sina aftur til hvorki meira né minna en sex Mayflower pila- grfrna. Skrykkjótt skólaganga Litið er vitað um unglingsár Freds Woods. Bekkjarfélagi hans úr gagnfræðaskóla sagði að Fred heföi alltaf verið svolit- iö öðruvisi en aðrir og ákaflega feiminn, þannig að fólk gerði grin að honum. Þrátt fyrir aö lög Kaliforniu banni, aö gamlar skólaskýrslur séu skoöaöar, þá hafa blaöa- menn komizt aö þvi, aö náms- árangur hans hafi veriö mjög lélegur. Framhaldsskóli hans var einn af þessum, sem þú lýgur, svikur og stelur til þess aö komast inn i. Þar hitti hann James Schoai- feld, sem var meö honum i mannráninu, og einnig hitti hann þar Songel Nichols, sem siöar varö kona hans — þaö hjónaband varaöi i eitt ár. Bandarisk gifting Gifting þeirra var ekkert nema ósköp venjuleg bandarisk gifting. Fjölskyldualbúmiö sýn- ir myndir af brúöinni meö brúöargjöfunum, handklæöi, straujárn, bollastell og af- sláttarkort. Aðrar myndir sýna ungu hjónin I ævintýralandi Disneys, en þangaö fóru þau i brúökaups- ferö. Á einni blaösiöunni er litill koparpeningur frá árinu 1971 og á blaðsiöunni stendur: Ham- ingjupeningurinn okkar. Þau skildu ári siöar. Vinirnir voru hennar — Hann fæddist meö silfur- skeiö I munninum, en hann var einrænn og þab var einmanalegt aö búa meö honum, sagöi konan hans fyrrverandi. Allir sem komu I heimsókn til ungu hjón- anna voru vinir og kunningjar hennar en ekki hans. — Ef ein- hver kom til hans, þá var þaö alltaf úr fjölskyldunni, sagöi hún. Songel Nichols fannst Fred vera óhóflegur i löngun sinni til aö eignast hluti. Út um alla lóö- ina voru hundruðir bila, sendi- ferðabilar jafnt sem strætis- vagnar. A þessum dögum var hann ekki mikiö fyrir iþróttir, en horföi þó á þær i sjónvarpi og þá aðallega kappaksturskeppnir. Honum fannst gaman af lög- regluþáttunum i sjónvarpinu. Vildi að faðirinn væri hreykinn Þau Fred og Songel fengu 50 dollara á viku frá f ööur Freds, og þaö dugöi þeim allvel, þvi þau þurftu ekki aö borga neina húsaleigu, en Fred keypti aldrei neitt fyrir heimiliö. Hann reyndi stööugt aö gera eitthvað, sem fööur hans llkaði, en mistókst alltaf. Faöir hans bjóst viö of miklu af stráknum, og þaö þoldi Fred illa. Þegar þau giftust, þá var Fred sölumaöur hjá málningar- fyrirtæki, en missti vinnuna. — Ef hann geröi vel i vinnunni, þá hrósaði hann sér aö þvi viö fööur sinn, en þegar hann missti vinnu, þá sagöi hann engum frá þvi, hvorki mér né fööur sinum, sagöi konan hans fyrrverandi. Þau höföu veriö gift i nokkurn tlma áöur en hann sagöi henni frá þvi, aö hann ætti vangefna systur. Fred sagöist skammast sin fyrir hana. — Hann var hræddur um, aö fólk geröi grin að sér fyrir hana, sagöi Songel. Hjónabandiö endaði snemma á árinu 1972, þegar Songel sagöi Fred, aö hún væri einfaldlega farin frá honum. Ein af þeim ástæöum, sem hún gaf upp, var aö Fred gat ekki átt börn. Kynþáttahatari Rúmum tveimur árum siðar kynntist Fred annarri konu, sem var meö honum i eitt ár. Hún segir, aö hann hafi verið bitur út I konuna sina fyrrver- andi. — Viö áttum aöeins eina sæla minningu, segir þessi kona,aö Fredhafi sagt. Þaövar þegar þau fóru á einhvern ákaf- lega afskekktan og einmana staöi Kalifomiu. Þar var ekkert nema auðn og aftur auðn. Henni féilu illa skoöanir Freds á kynþáttamálum, en hann hataöi svertingja ákaf- lega. Þá féll henni illa kaupæöi hans. Hann var alltaf að kaupa eitthvaö — t.d. litlar rafhlööur. Þaö var ef til vill vegna þess aö þær voru ódýrar. Og hann keypti skyrtur, sem hann þurfti alls ekki. Þaö kom þessari stúlku ekki á óvart, þegar henni var sagt, aö hann heföi verið handtekinn I kúrekaklæðum. Alveg einkenn- andi fyrir hann. Þýttogendursagt: MÓL. Ráðstefnulandið ísland: % 13 alþjóðlegar og norrænar ráð stefnur haldnar hér í ár gébé-Rvik. — Undanfarin ár hefur markaösdeild Flugleiöa i Iteykjavik unniöaöþvi markvisst I samvinnu viö skrifstofur félags- ins erieiidis, aö kynna island meöal annarra þjóöa sem ráö- stefnuland og reynt jafnframt aö lengja feröamannatimabiliö hér, sem til skamms tima hefúr veriö meira eöa minna bundiö viö há- sumarmánuöina júni til ágúst. Umtalsveröur árangur hefúr náöst af þessu starfi, enda aö- stæöur til alþjóölegs ráöstefnu- halds i Reykjavik eins og bezt þekkist erlendis aö dómi sér- fróöra. Fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem starfa beggja vegna Atlantshafsins er tsland ákjósanlegur fundarstaöur vegna legu landsins, segir I nýútkomnu frettabréfi Flugleiöa, Fiug- fréttum. Þótt vel hafi tekizt til viö aö fá erlendar ráöstefnur hingað tik lands, þá á þetta ein kum og sér i lagi viö um hásumariö, en erfiðara hefur gengiö að dreifa sliku ráöstefnuhaldi á vor- og haustmánuði. Feröaþjónusta markaösdeildar Flugleiöa hefur þannig aöstoöaö viö undirbúning og framkvæmd átta sllkra ráö- stefna sem hér eru haldnar i júni, júli og ágúst, en aöeins fimm i mai og september-október. Þaö kemur fram i Flugfréttum, aö hér sé merkum áfanga náö og að stefnt sé i rétta átt, og er bent á, sérstaklega i sambandi við norrænar ráðstefnur að þar séu Islendingar „komnir inn i-hring- inn” og aö Island sé oröiö gjald- gengur aðili á borb við hin Norðurlöndin i skiptingu reglu- bundins fundarhalds hinna ýmsu stofnana og félaga milli land- anna. Þannig þinga norrænar hjúkrunarkonur nú reglulega hér á fimm ára fresti, frá því er alls- herjarþing þeirra var haldiö i Reykjavik 1970. 1 Flugfréttum er skýrt frá, aö ferðaþjónusta Flugleiöa hafi aö- stoðað viö undirbúning og fram- kvæmd átta norrænna ráðstefha i maf og júni I ár, meö samtals I. 885 þátttakendur. Þingin stóöu aö meðaltali i þrjá til fjóra daga, en hver hópur hafði hér allt aö sex daga viðdvöl. Gistinætur ráöstefnumanna á hó- telum I Reykjavik voru samtals II. 310 þessa tvo mánuði. Aö auki fóru allir I'ótal kynnisferðir um Reykjavik og nágrenni og með áætlunarflugi til Vestmannaeyja og Akureyrar, þar sem skoðunar- feröir voru skipulagöar i Mý- vatnssveit og jafnvel var flogiö til Kulusuk á Grænlandi. Aö ótöldum útgjöldum ráöstefnumanna vegna leigu á bilaleigubilum og kaupa á islenzkum varningi, eru gjaldeyristekjur vegna komu þeirra hingaö, áætlaðar kringum 150-160 milljónir islenzkra króna. Enn standa fyrir dyrum fimm alþjóðlegar og norrænar ráö- stefnurþetta ár, meö um 700 þátt- takendur, sem ferðaþjónusta Flugleiöa mun annast og fyrir næsta ár eru þegar sjö bókaöar meö milli 1000-2000 þátttakendur, segir i Flugfréttum. Ennfremur segir i Flugfréttum aö innan tiöar komi út aukin og endurbætt útgáfa af ráðstefnu- bæklingnum „The Mid-Atlantic Meeting Place”, sem gefinn var út fyrir nokkrum árum. Bækl- ingurinn er prentaður i 70 þúsund eintökum. Hann er fallega mynd- skreyttur og veitir allar upplýs- ingar um aðbúnaö hér á landi til ráöstefnuhalds, gistirými i Reykjavik og fundarsali og aöra þjónustu viö ferðamenn. Bæklingurinn er á fjórum tungu- málum, ensku, þýzku, frönsku og norsku. Annar minni bæklingur er þeg- ar kominn út og i dreifingu til skrifstofa Flugleiða erlendis. Hann er prentaður i 75 þúsund eintökum meö myndum aöallega frá Hótel Loftleiðum og Hótel Esju. Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.