Tíminn - 10.08.1976, Blaðsíða 16

Tíminn - 10.08.1976, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriðjudagur 10. ágúst 1976 Þeir beztu ÞEIR kylfingar, sem komu inn á bezta skorinu á meistaramótinu i golfi voru: Björgvin Þorsteinsson GA .... 300 (74 — 76 — 71 — 79) Ragnar Ólafsson, GR.302 (73 — 79 — 75 — 75) Siguröur Thorarensen GK ....306 (78 — 78 — 73 — 77) Sigurður Pétursson GR......3X8 Óskar Sæmundsson GR........318 Þorbjörn Kjærbo, GS........319 Einar Guðnason, GR ........321 Magnús Halldórsson GK......321 SIGURÐUR THORARENSEN... átti stórglæsilegt ,,pútt” á 8-undu braut. — Ég heföi átt að gera betur, ég fór með f jöldann all- an af „púttum", sem ég klúðraði á klaufalegan hátt, eft- ir að hafa leikið brautirnar vel, sagði Björgvin Þor- steinsson, hinn stórefnilegi 23ja árá kylfingur frá Akur- eyri, eftir að hann var búinn að tryggja sér Islands- meistaratitilinn i golfi, fjórða árið í röð og í fimmta skiptið á aðeins 6 árum. Björgvin, sem hef ur að undan- förnu verið kallaður „Goldfinger", varð fyrst meistari 1971 — og eftir það hef ur hann verið ókrýndur konungur kylfinganna, unnið öll stærstu golfmót landsins með glæsibrag. Björgvin sýndi gífurlega yfirvegun og þolin- mæði síðasta keppnisdaginn, þegar Ragnar Ólafsson veitti honum geysilega keppni, en hann var nærri búinn að vinna upp 6 högg forskot, sem Björgvin hafði á hann, þegar lokabaráttan hófst, en í henni tóku þátt þrír okkar beztu golfleikarar. Það varð fljótt ljóst, að barátt- an myndi standa á milli ungu kylfinganna, Björgvins Þor- steinssonar— Akureyri, Ragnars Ólafssonar — Reykjavik og Sig- urðar Thorarensen — Hafnar- firöi. Ragnar tók forystuna fyrsta daginn, en siðan tók tslands- meistarinn Björgvin við og var meö forystuna, þegar siðasta um- ferðin hófst. Björgvin lék meist- aralega vel þriöja daginn — lék þá 18 holurnar á 71 höggi, eða að- eins einu yfir pari og tryggði sér þar með 6 högga (221)forskot á Ragnar (227), en Sigurður lék 54 holurnar á 229 höggum. Óskabyrjun hjá Ragnari. Ragnar byrjaði á þvi að minnka muninn niður i 4 högg á fyrstu holunni — siðasta daginn. Hann sló glæsilega inn á ,,green”-flöt- ina, og siðan átti hann mjög gott „pútt”, sem hafnaði hálfu feti frá holu. Ragnar sendi siðan kúluna auðveldlega niður — 3 högg, eða einu undir pari. Björgvin var of langur og fór brautina á 5 högg- um, en hinn ungi og efnilegi Hafn- firðingu, (Sigurður), hafði ekki heppnina meö sér — lenti i „röggi” og siðan i sandgrifju við „green” og fór brautina á 6 höggum. .. ■ \ Björgvin lendir í vandræð- um. — Óneitanlega hefur þetta góð áhrif á mig, ég næ mér oftast á strik undir spennu, sagði Ragn- ar, eftir þessa óskabyrjun. Ragn- ar átti siðan eftir að vinna önnur tvö högg af Björgvin — á 3ju braut. Ragnar lék brautina á pari — 4 höggum og það gerði Sigurður einnig, en með smá heppni. Hann var á tveimur höggum rétt við „green” — sló með 7-járni, þannig að kúlan skall i stöng og féll dauð niður á barm holunnar. Björgvin var þá óheppinn — fyrsta högg hans lenti út i „röffi”. Hann tók þá trékylfu og hugöist gera gott, en það fór á annan veg — kúlan náði aldrei ferð i blautu grasinu og skoppaöi hún aðeins um 30 m. — Þarna tefldi Björgvin djarft, sögðu áhorfendur, sem voru fjölmargir. — Ég tefldi ekki djarft, sagði Björgvin. — Ég var hræddur um, að slá undir kúluna, þar sem hún lá i grasinu, — ef ég heföi gert þaö, þá hefði hún farið beint upp i loft. — Hræðslan hafði sitt að segja og þess vegna var ég ekki öruggur og sló ofan á kúluna, þannig að hún náði aldrei flugi, sagði Björgvin. Staðan eftir fyrstu holurnar þrjár, var þvi þessi: Ragnar 10 högg (237) — Björgvin 14 (235) — Sigurður 14(243). Björgvin lenti siðan aftur i vandræðum á 5. braut, þar sem hann sló tvisvar út af braut, en hann lék sig skemmtilega út úr þeim vanda. Áður hafði hann par- að (5 högg) 4. brautina á skemmtilegan hátt. Sigurður lenti þar aftur á móti i miklum hrakförum og lék á 7 höggum, en Ragnar á 6 höggum. — Ég hafði það á tilfinning- unni, að Ragnar ætlaði að verða mér erfiður, enda hafði ég leikið mjög illa.sagði Björgvin, áður en hann fór að glima við 6. brautina. mdduin ^ugnablnfumí...ve't** Björgvin harða keppni, en hann fór ilia með stutt „pútt” á þýöingar- „Eg hefði átt að gera betur", sagði Björgvin Þorsteinsson, sem tryggði sér íslandsmeistara- titilinn í golfi í fjórða skiptið í röð og í fimmta skiptið á 6 árum Ragnar var þá fyrstur — stór- glæsilegt upphafshögg hans skall á flötinni, aðeins 10 m frá holu, en þeir Björgvin og Sigurður voru rétt fyrir utan „green”. Björgvin lék yfirvegað og paraði — 3 högg. Ragnar misnotaði stutt „pútt” og lék á 4 höggum, það sama gerði Siguröur. — Þetta var mikill BJÖRGVIN ÞORSTEINS- SON.... sýndi geysilegt ör- yggi, þegar Ragnar var að saxa á forskot hans. Hann var mjög yfirvegaður á loka- sprettinum og islandsmeist- aratitillinn varð hans. ®ÉP» . ■» klautaskapur, sem getur orðið mér dýrkeyptur, sagði Ragnar, eftir að hafa blótað i hljóði. — Kapparnir ungu léku 7undu holuna hörmulega — allir voru þeir á tveimur höggum inn á flöt, en siðan þri — „púttuðu” þeir. — Þetta á ekki að geta komið fyrir,— sagði Sigurður, sem hafði ekki leikið, eins og hann getur bezt. Sigurður náðu siðan góðum árangri á 8undu brautinni, þar var hann á tveimur höggum inn á flöt og átti siðan stórglæsilegt 6 m „pútt”, sem glumdi i holunni — 3 högg og eitt undir pari á braut- inni. Björgvin lék á 4 höggum og Ragnar, sem misnotaði enn eitt (3) stutta púttið”, lék einnig á 4 höggum. Björgvin tekur víti Björgvin fékk á sig viti á 9-undu brautinni, þar sem hann tók upphafsskot upp aftur, eftir að kúlan hans hafði lent bak við stein. — Ég þurfti endilega að lenda bak við eina steininn á brautinni, — sagði Björgvin, þeg- ar hann tók upp kúluna. Hann reyndi aftur (3 högg) og kúlan skall á flöt — siðan tvö „pútt” og kúlan ofan i. Sigurður lék einnig á 5 höggum, en Ragnar lék á 4 höggum. Staðan eftir 9 holurnar, var þvi þessi: Ragnar 37 högg (264) — Björgvin 41 högg (262) — Sigurður 42 (271). Spennan i hámarki Ragnar vann eitt högg af Björgvin á 10—undu brautinni og munaði þá aðeins einu höggi á köppunum — Ragnar (268) og Björgvin (267). Þessi munur hélzt næstu fjórar holurnar, eða þar til Björgvin vann högg af Ragnari á 14, -undu braut og náði aftur tveggja högga forskoti. Ragnar vann siðan högg af Björgvin á 15, -undu braut, en missti það siðan strax aftur á 16,-undu braut og Björgvin hélt sfðan forskotinu og lék 72 holurnar á 300 höggum, en Ragnarkom inn á 302 höggum. Björgvin sýndi mikla þolin- mæði, þegar Ragnar var aö saxa á forskot hans — og keppnis- reynsla hans og öryggi, var nokkuð sem Ragnar réð ekki við. Ragnar lék ekki mjög vel undir lokin — hann bjargaði sér þá oft úr klipu, með frábærum „pútt- um”, sem er sérgrein hans. Um tima leit út fyrir, að Sigurður Thorarensen myndi skjóta sér upp að hliðinni á þeim Ragnari og Björgvin, en hann lék um tima mjög vel — en aldrei eins vel heldur en á 11. braut, þegar hann lék hana á 2 höggum, eða einu undir pari. Upphafshögg hans hafnaði þá stutt frá holu og þá var eftirleikurinn auðveldur hjá hinum unga kylfingi. Það munaði ekki nema fjórum högg- um á Sigurði og Ragnari, og fimm höggum á honum og Björgvin , þegar þrjár holur voru eftir. Sigurður kom siðan inn á 306 höggum. — SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.