Tíminn - 10.08.1976, Blaðsíða 15
TÍMINN
15
Þriðjudagur 10. ágúst 1976
Góður
sigur
Celtic
Skozka liöiö Celtic lék á
laugardaginn æfingaleik við
meistaraliö Uruguay, Penarol,
og fór leikurinn fram I Glasgow.
Celtic haföi algjöra yfirburöi i
leiknum, og aöeins frábær
markvarzla markvaröar Pena-
rol bjargaöi liðinu frá stórtapi. 1
hálfleik var staöan 1-0 og skor-
aöi McCluskey markiö úr vita-
spyrnu. t seinni hálfleik bættu
þeir Kenny Dalglish og Bobby
Lennox viö mörkum, þannig aö
lokastaöan varö 3-0 fyrir Celtic.
Liö Celtic var þannig skipaö:
Latchford, McGrain, Lynch,
McDonald, Edvaldsson, Glavin,
Dalglish, Doyle, G. McCluskey
(P. McCluskey), Burns, Wilson
(Lennox). Enska blaöiö
„Sunday Telegraph” skrifaöi þó
nokkuö um þennan góöa sigur
Celtic, en ekkert var minnzt á
frammistööu Jóhannesar Eö-
valdssonar i greininni.
— Ó.O.
3ja mark
Gunnars
Mark Gunnars Guömundssonar
fyrir Fram á móti FH var hans
þriöja mark I fyrstu deiid. Fyrsta
markið skoraöi hann á móti
Akureyri á Melavellinum 1970,
þegar Fram vann 7-1, en þá skor-
uöu bæöi Kristinn Jörundsson og
HelgiNúmason ,,hat-trick”. Bæöi
hin mörk Gunnars gáfu sigur i
leik. Hann skoraði sigurmark
Fram á móti Keflavik 1972, þegar
Fram vann 3-2 i Keflavik. Hann
skautþá lúmsku skoti af 30 metra
færi, sem hafnaöi i samskeytun-
um. Hans þriöja mark, af 13 sm
færi, eins og einn félagi Gunnars
sagöi, gefur siöan af sér sigur á
móti FH i Kaplakrika s.l. laugar-
dag. Ó.O.
t/als-
skuggi
Óskar hættir
keppa í
spjótkasti
— Ég hef ákveöið aö hætta aö æfa og keppa I spjótkasti, en snúa mér
aö kringlukastinu af fullum krafti, sagöi óskar Jakobsson, cftir spjót-
kastskeppnina á 50. meistaramóti Islands I frjálsum fþróttum. —
Ástæöan fyrir þessu er, aö ég hef ekki náö þeim árangri, sem ég hef
vonaö, vegna meiösla, sagöi óskar, sem á íslandsmetiö I spjótkasti —
75.86 m.
Óskar hefur átt viö þrálát meiösl aö striöa I öxl, og hafa þau komið I
veg fyrir aö hann geti æft spjótkast af fullu. Meiðslin hafa aldrei náö aö
jafna sig, þar sem hann rykkir til hendinni, þegar hann kastar spjótinu.
búning einnar mestu frjáls-
Óskar hefur ákveöiö aö snúa
sér algjörlega aö kringlukastinu,
en kringlukastiö virkar ekki eins
á öxlina á honum og spjótkastiö.
Óskar, sem varö sigurvegari i
spjótkasti (64.82) á meistaramót-
inu, varð annar i kringlukasti —
53.26. Erlendur Valdimarsson
(KR) varö sigurvegari — 59.35m,
sem er ágætur árangur.
Annars var meistaramótið
mjög sviplitiö og leiöinlegt á að
horfa, enda veður slæmt. Ahuginn
hjá keppendum var i lágmarki og
aðeins litill hluti af þeim, sem
skráðir voru til leiks, mættu til
keppni. Þá setti það leiöinlegan
svip á mótið, að flestir þátttak-
endurnir voru ekki i sinum fé-
lagsbúningum — heldur klæddust
þeir ýmiss konar búningum og
einn mætti t.d. i rússneska lan ds-
liðsbúningnum, sem er fyrir
neðan allar hellur. Sá hefur
kannski hugsað, að hann myndi
hlaupa hraðar, ef hann keppti i
íþróttir
Umsjón:
Sigmundur Ó.
Steinarsson
— eftir að hafa
nælt sér í 2
mikilvæg stig í
Hafnarfirði,
þegar þeir unnu
sigur (2:1) yfir FH
Kristin. Jörundsson, sem átti
máttlaust skot á mark. Ómar
hafði hendur á knettinum en
missti hann frá sér, og þegar bolt-
inn var að fara yfir llnuna kom
Gunnar Guðmundsson og bætti
um betur, 2-1 fyrir Fram. Þetta
var alveg rétt hjá Gunnari, þar
sem varnarmenn FH voru á
næsta leiti og verður markið að
skrifast á hann en ekki Kristin .
Þetta gerðist á 78. minútu.
Það sem eftir var af leiknum
var mest þóf, hvorugt liðið skap-
aöi sér færi, og þvi lauk honum
með sigri Fram 2-1.
FH liðið virkaði óöruggt i vörn-
inni án Janusar Guðlaugssonar,
en framherjar þeirra eru fljótir
og hættulegir. Eins og oft áður
var Ólafur Danivalsson sá sem
skapaöi mesta hættu, enda sá
eini, sem hefur eitthvað auga
fyrir spili i framlinunni. Leifur
Helgason er góöur hlaupari og
skapaði stundum hættu, þegar
hann hljóp á hælunum á hinum
þungu varnarmönnum Fram.
Hjá Fram voru það aðallega
tveir leikmenn sem báru af.
Pétur Ormslev átti skinandi leik,
og átti heiðurinn af báöum mörk-
unum. Trausti Haraldsson er
mjög vaxandi leikmaður. bæði
fljótur og leikinn, og hleypir ekki
mörgum i gegn um sig i vörninni.
Sigurbergur kom vel út i vörninni
en sem fyrr vantar hann meiri
hraða.
DÓmari var Valur Benedikts-
son og ætti hann að gera
knattspyrnuunnendum þann
greiða að skila flautunni. Maöur
leiksins: Pétur Ormslev.
Ó.O.
einnar
þróttarþjóöar heims. En nóg
um það. Fjórir Rússar kepttu
á mótinu og bar árangur
valkyrjunnar Khnelevskaya hæst
— hún setti nýtt vallarmet i
kringlukasti, er hún kastaði 56.95
m. Þá jafnaöi hún vallarmet
Mary Peters frá Bretlandi i kúlu-
Douft
Meistaramót
varpi — sett 1973, er hún kastaði
15.71 m.
Vilmundur Vilhjálmsson varð
meistari i 100 (11.4), 200 (22.1) og
400 m hlaupi (50.6
sékúndur). Þá vann Vil-
mundur fjórða islandsmeistara-
titilinn, þegar hann hljóp i 4x400
m boöhlaupi —- sveit KR, sem
hljóp vegalengdina á 3:31.5
minútum. Vilmundur heföi orðið
fimmfaldur meistari, ef 4x400 m
boöhlaupiö hefði ekki mistekizt.
Hlaupiðvarmjög sögulegt, þvi aö
KR-sveitin var sú eina, sem
mætti til leiks af 6 sveitum, sem
voru skráðar. Valbjörn Þorláks-
son hljóp fyrsta sprettinn, sem
varð aldrei meira en 30 m — þá
uppgötvaði hann, að hann hljóp
án keflis, en þaö þykir ekki gott i
boðhlaupi.
Annars var fátt um fina drætti á
meistaramótinu. Asgúst Asgeirs-
son sigraði bæði i 800 og 1500 m
hlaupi, Hreinn Halldórsson varð
sigurvegari i kúluvarpi — 19.20
m,sem er nýtt meistaramótsmeí.
ÓSKAR JAKOBSSON... hættur i
spjótkasti.
Þórdis Gisladóttir stökk hæst i
hástökki kvenna — 1.68 m. Val-
björn Þorláksson varð að sjálf-
sögðu sigurvegari i 110 m grinda-
hlaupi og stangarstökki 4.10 m, en
Rússinn Boikostökk hæst — 4.80
m.
—SOS.
PETER NOGLY
AAótherjar Kefl
víkinga urðu
fyrir ófalli...
Peter Nogly, fyrirliði Hamburger,
fótbrotnaði á laugardaginn
HAMBURGER SV frá V-Þýzkalandi, mótherji Keflvikinga I Evrópu-
keppni bikarhafa i knattspyrnu, varð fyrir miklu áfalli á laugardaginn.
Peter Nogly, fyrirliði liðsins og landsliðsmaður, varð þá fyrir þvi
óhappi að fótbrotna I leik gegn Rot-Weiss Essen i v-þýzku bikarkeppn-
inni. Þetta er mikið áfall fyrir Hamburger-liðið, þvi aö Nogly hefur ver-
ið lykilmaður hjá liðinu undanfarin ár.
HamburgerSV vannsigur (4:1) yfir Essen-liðinu á hinum fræga leik-
velli félagsins — Volksparkstadion, sem tekur um 80 þús. áhorfendur.
Keflvikingar leika þar 15. september, en Hamburger SV leikur i Kefla-
vik 29. september. —-SOS
BLIKARNIR Á
FULLRI FERÐ
— og þeir óttu ekki í neinum vandræðum með
staðnað meistaralið Keflvíkinga
KEFLVIKINGAR, með alla
sina gömlu góðu stjörnuleik-
menn, höfðu ekkert að gera i
hendurnar á Breiðabliksmönn-
um, þegar þeir leiddu saman
hesta sina i Kópavogi á sunnu-
daginn. Blikarnir settu strax á
fulla ferð og yfirspiluðu „gömlu”
meistarana frá Keflavik — fyrr-
um stórveldiö i knattspyrnu.
Þeir sem fylgdust með viðureign-
inni, sáu Blikana leika Keflvik-
inga sundur og saman, svo að
Keflvikingar voru i varnarstöðu
nær allan leikinn og máttu þola
tap — 1:3.
Blikarnir tóku „gömlu” meist-
arana frá Keflavik i kennslustund
og sýndu þeim hvernig á aö leika
knattspyrnu. Keflvikingar héldu i
við Blikana i byrjun, eöa meðan
þeir höfðu úthald, en Blikarnir
náðu góðum tökum á miðjunni i
siðari hálfleiknum — og þeir
fundu leiðina i gegnum hinn slaka
varnarvegg Keflvikinga. Hinrik
Þórhallssonopnaði leikinn, þegar
hann komst einn inn fyrir varnar-
Slovan ekki
komið á skrið
Slovan Bratislava, liðið, sem Fram á að keppa við I UEFA keppn-
inni, mætti i siðustu viku þýzka liöinu Stuttgart i æfingaleik. Stutt-
gart spilar i 2. deild Sud i Þýzkalandi, sömu deild og liö Elmars
Geirssonar Eintracht Trier spilar I. Leikurinn fór fram I Stuttgart
og lauk honum með sigri heimaliðsins 3-0. Tékknesku evrópu-
meistararnir eru þannig greinilega ekki komnir á fullan damp enn
þá, en i liöi Slovan Bratislava spila 6 menn, sem léku I liði Tékkó-
slóvakiu á móti V-Þýzkalandi og ennfremur einn, sem var vara-
maður i þeim ieik. ó.O.
vegg Keflvikinga og skoraði
örugglega fram hjá Þorsteini
Ólafssyni, markverði. Þorsteinn
máttisiðan hirða knöttinn tvisvar
sinnum til viðbótar úr netinu hjá
sér — i bæði skiptin, eftir að Blik-
arnir höfðu skotið slökum skot-
um, sem fóru i gegnum klofið á
Þorsteini. Fyrst skoraði Vignir
Baldursson og siðan Heiðar
Breiðfjörð— og var þá staöan 3:0
fyrir Blikana. Einari Gunnars-
syni tókst að minnka muninn
(3:1) rétt fyrir leikslok, þegar
hann skallaði knöttinn i netiö hjá
Kópavogsliðinu.
Eins og fyrr segir, þá eru Kefl-
vikingar, sem voru stórveldi i
knattspyrnunni fyrir nokkrum
árum, óþekkjanlegir frá fyrri tið
og mega leikmenn liðsins muna
sinn fifil fegri. Gömlu lands-
liðsmennirnir i Keflavikurliöinu,
þeir Guðni Kjartansson, Karl
Hermannsson, Steinar Jóhanns-
son, Astráður Gunnarsson og Jón
Ólafur Jónsson, eru ekki þeir
sömu — leika langt frá þeim
gæðaflokki, sem þeir voru i fyrir
nokkrum árum.
Blikarnir fara vaxandi með
hverjum leik — lið þeirra er
skipað jöfnum og Meiknum leik-
mönnum, sem hafa komið einna
mest á óvart i 1. deildarkeppn-
inni. —SOS