Tíminn - 10.08.1976, Blaðsíða 10
10
TÍMINN
Þriðjudagur 10. ágúst 1976
Hvað ætlar þú
að sjá af landinu
þínu í sumar?
Nokkur orð um Borgarfjarðarsýslu
Milli Borgarfjarðarsýslu og annarra
bvggðarlaga eru sjö höfuðleiðir á landi og
ein á sjó. Á Hvitá eru fjórar brýr i tengsl-
um við akvegi, og er hin neðsta þeirra á
þjóðleiðinni hjá Hvitárvöllum. Þaðan er
aðalvegurinn um sýsluna eins og leið ligg-
ur fyrir Hafnarfjall um Leirársveit og
Ilvaifjarðarströnd að brú á Botnsá íyrir
botni Hvalfjarðar, en Kjósarsýsla tekur
viö á þeim slóöum.
Sjóleiöin er á milli Akraness
og Reykjavikur, og fer Akraborg-
in, sem er bilferja, þá leið nokkr-
um sinnum á dag. Flugvöllur er
einnig viö Akraneskaupstaö, svo
að þangað má fara flugleiðis.
Annar flugvöllur er i upphérað-
inu, i Bæjarsveit, ef á þarf að
halda.
Bilfært er að öllum bæjum i
Borgarfjarðarsýslu og hringvegir
viða um byggðir, svo sem um-
hverfis Akrafjall, þótt höfuöleiöin
sé norðan fjallsins af Akranesi
inn á Lambhagamela, um
Svinadal og Lundareykjadal
neðan Brautartungu og viðar.
—oOo—
1 héraðinu eru tvö meginskóla-
setur, búnaðarskólinn á Hvann-
eyri og Reykholtsskóli, auk skóla
á Akranesi, Leirá og Klepps-
járnsreykjum, Stórt sjúkrahús
með tilheyrandi læknaliði og
annarri heilbrigðisþjónustu er á
Akranesi og héraðslæknir á
Kleppjárnsreykjum. A Akranesi
er lögreglustjóri, sem einnig er
bæjarfógeti.
Miklar laxár eru i héraði, og er
þar að nefna Laxá i Leirársveit,
Andakilsá, Grimsá og Tunguá i
Lundarreykjadal, Flókadalsá,
Reykjadalsá og sjálfa Hvitá á
norðurmörkum sýslunnar og
Botnsá á suðurmörkunum. Veiði
er einnig i Skorradalsvatni,
Reyðarvatni fram af Lundar-
reykjadal og Svinadalsvötnum.
Reykhblt
Reykholt er sögufrægasti stað-
ur i héraðinu þvi að þar bjó Snorri
Sturluson, sem mestu og lang-
vinnustu rithöfundafrægð hefur
hlotið af islenzkum mönnum, og
þar lét Gissur Þorvaldsson myrða
hann að boði Noregskonungs á
náttarþeli árið 1241. A skólahlaö-
inu i Reykholti stendur Snorralik-
neski Vigelands hins norska,
neðan við skólabyggingarnar er
Snorralaug, sem talin er eiga
uppruna sinn að rekja til fornald-
ar, og þar eru forn jarölög, sem i
ljós komu, þegar skólinn var
byggöur.
Þegar i Reykholt er komiö, er
skammt upp 1 Hálsasveit. Nokkuö
innan við Stóra-As blasa við
augum vegfarandans Hraunfoss-
ar, sem steypast hvitfyssandi
Við Reyöarvatn, Botnssúlur fyrir miðri mynd.
niður I Hvitá undan hrauninu á
norðurbakka hennar. Nokkru of-
ar er Húsafell, þar sem náttúru-
fegurð er rómuð. Þar sat Asgrim-
ur Jónsson listmálari löngum á
sumrin, svo sem mörg verka hans
eru til vitnis um.
Hvanneyri.
—oOo—
Rétt við Hvitárbrú eru Hvitár-
vellir, höfuðból um margar aldir.
Þar voru kaupstefnur oft i forn-
öld, og þar var amtmannssetur
um skeið. Við þennan staö er
kennd Hvitárvalla-Skotta, og þar
hafði skozkur maður, Ritchie aö
nafni niðursuður á laxi á siðustu
öld og um aldamótin siðustu bjó
þar franskur barón, sem Baróns-
stigur i Reykjavik er kenndur viö.
Brátt sjáum við á hægri hönd
hið veglega skólasetur á Hvann-
Akranes
eyri. Þar var búnaðarskóli stofn-
aður 1889 og þar gerði Halldór
Vilhjálmsson garöinn frægan á
sinni tiö. Þar er nú bændaskóli,
kirkjustaður, prests-’ og dýra-
læknissetur.
Við höldum áfram þjóöveginn
suður Melasveit, sem svo sannar-
lega ber nafn með rentu, þvi að á
löngum kafla liggur vegurinn um
blásna mela. Von bráðar sjáum
við heim að Leirárskóla. Leirá I
Leirársveit var lengi vel eitt af
mestu höfuöbólum landsins.
Sjálfsagt er fyrir þá, sem hafa
tima aðbregða sér frá Leirá upp i
Svinadal að fremsta bænum þar,
Draghálsi. Þar eru heimkynni
allsherjargoöa ásatrúarmanna,
Sveinbjörns Beinteinssonar og
Þórslikneski stendur þar I brekk-
unum.
Byggðasafniö I Görðum á Akranesi.
Cr Byggðasafninu l uaranm.