Tíminn - 10.08.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 10. ágúst 1976
TÍMINN
3
Sjötugur einbúi fannst
eftir að hafa legið
hjálparvana í 5—6 daga
-hs-Rvik. — Þetta er svo
sannarlega mikil sorgarsaga og
aðkoman var vægast sagt
hryllileg, sagði Pálmi Matthias-
son, rannsóknarlögreglumaður,
sem kom að sjötugum manni
liggjandi i ibúð sinni á laugar-
daginn, eftir að hafa verið kall-
aður til af nábúa mannsins, en
álitið er að gamli maðurinn hafi
verið búinn að liggja hjálpar-
vana i 5-6 sólarhringa, þegar að
var komiö.
Gamli maöurinn bjó einn og
þegar ekkert hafði heyrzt til
hans frá þvi rétt eftir helgi, i
vikunni sem leið, hafði nábúinn
samband við rannsóknarlög-
regiuna. Fannst þá gamli
maðurinn liggjandi á gólfinu og
eftir öllum ummerkjum að
dæma hefur hann legið þar I
tæpa viku, án þess að geta
nokkra björg sér veitt. Að sögn
Pálma munhannsennilega hafa
fengið aðkenningu að heilablóö-
falli, en hann hafði átt við van-
heilsu að striða um nokkurt
skeið. Hálfbróðir hans, einnig
gamall maður, hafði veriö veik-
ur í vikunni og þvi ekki getað
heimsótt gámla manninn og lit-
ið tii með honum, eins og venju-
lega.
Gamli maðurinn, sem liggur
nú meðvitundarlaus á Landa-
kotsspitala og er varthugað lif,
varrænulitill erað var komið og
i einhvers kona r dái. Virtist
hann þó gera sér einhverja
grein fyrir þvi að menn voru i
kringum hann. Hann var kom-
inn með mikil legusár á höfuð,
brjóst og fætur. Gólfdúkurinn
hafði bráðnað undan þunga
hans, likamshita og -sýrum,
ásamt vessum úr sárunum og
þvagi, sem hann haföi misst.
— Astæðan fyrir þvi, að ég
segi frá þessum atburöi er sú,
að ef til vill gæti frásögnin orðið
til varnaðar, þvi að vitað er að
hér i borginni býr mjög margt
gamalt fólk, sem sjaldan er litið
eftir og þetta er dæmi um það,
hvernig farið getur, sagði Pálmi
Matthiasson, rannsóknarlög-
reglumaður, að lokum.
Langanes fann
enga rækju í
fyrstu feroinni
gébé-Rvik. — Langanes, hiö
nýja skip Þórshafnarbúa er nú i
fyrstu úthafsrækjuveiöiferðinni,
en samkvæmt þeim upplýsingum
sem Timinn hefur aflaö sér, haföi
skipiö cnga rækju fundið i gær og
var það væntanlegt inn til Þórs-
hafnar i dag.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá i Timanum, er skipið sérstak-
lega útbúið til rækjuveiða, en það
var smiðað á Seyðisfirði og var
nýlega afhent eigendum sinum
hlutafélaginu Langanes h.f. á
Alvarlegt umferðar
slys á Snorrabraut
—hs-Rvik. Mjög alvarlegt um-
ferðarslys varð I gær á Snorra-
braut, þar sem ekiö var á gang-
andi vegfaranda, er var að fara
yfir götuna. Sá sem fyrir bQnum
varð er 84 ára gamaU maður og
mun hann hafa beinbrotnaö
meira og minna, auk þess sem
hann hlauthöfuðmeiösl. Var hann
fluttur á slysadeild Borgarspital-
ans og var talinn mjög alvarlega
slasaður.
Maðurinn var á leið vestur yfir
Snor rabrautína og bilstjóri
bilsins, sem var á norðurleið
Þórshöfn. Samningar tókust milli
hlutafélagsins og Hafrannsókna-
stofnunar um að skipið skyldi
leigt til tilraunaveiða á úthafs-
rækju, og er sérfræðingur frá
stofnuninni um borð.
í fyrstu veiðiferðinni var skipið
út af norðausturlandi, en fann,
sem fyrr segir, enga rækju.
eftir vinstri akrein, sá hann ekki
fyrren um seinan. Maöurinn lenti
fyrst upp á bllnum, sem var af
Volkswagen-gerð, en kastaðist
siðan i götuna.
Annað svipað slys varð i Bú-
staðahverfi, nánar tiltekiö viö
GauMand, þar sem miðaldra kona
hljop út á götuna, að sögn öku-
manns bifreiöarinnar sem hún
lenti fyrir, og féll i götuná. Mun
hún hafa handleggsbrotnaö.
Tvö önnur umferðarslys af
svipuðu tagi urðu 1 gær i höfuð-
borginni, ai meiösl voru óveru-
leg.
Að öðru leyti gekk umferöin i
höfuöborginni ákaflega illa i gær-
dag, þvi að um kvöldmatarleytiö
höfðu oröiö hvorki meira né
minna en 20 árekstrar frá þvi
klukkan 6 um morguninn.
Óvarkárni mun vera aðalorsök
allra þessara siysa.
Bruni í
tjaldvagni
-hs-Rvik. Þessi járngrind
var tjaldvagn, en vegna gá-
lausrar meðferðar með gas-
tæki breyttist hann úr þægi-
legu útivistartæki i logandi
viti,sem fólkið bjargaðist út
úr fyrir snarræöi og mildi.
Þarna var skipt um gaskút
inni i tjaldinu og þegar aftur
var kveikt á gastækinu stóð
allt i björtu báli. Þeir, sem i
tjaldinu voru, brugðu við
hart og skáru sér leiö út og
sluppu að mestu óslösuð. Þaö
verður vist aldreiof oft brýnt
fyrir fólki aö skipta ekki um
gaskúta inni I tjöldum sin-
um. Slikt á að gera utan
tjalds, annars getur farið
sem að framan greinir, en
myndina tók Sigurður
Pálmason hjá Kirkjubæjar-
klaustri, þar sem atburður
þessi varð um helgina.
Al >9 • •• lor bylt ing í atvinnuháttum á Þórshöfn
með tilkomu nýs togara og nýs frystihúss sem er að taka til starfa
gébé Rvik — Hinn nýi skuttogari
Þórshafnarbúa hefur nú verið
formlega afhentur eigendum sin-
um og er þegar farinn á veiðar.
Hlaut togarinn nafnið Fontur ÞH
255, en hét áður Suðurnes KE 12.
— Nýja frystihúsið á Þórshöfn
tekur til starfa næstu daga og rik-
ir almenn ánægja ogbjartsýni hjá
fólki hér, en atvinnuástand hefur
vægast sagt verið mjög bágborið
frá áramótum, sagði Helgi Jóna-
tansson, forstjöri þegar Timinn
ræddi við hann i gær. Sagði Helgi
að nú yrði gjörbreyting á atvinnu-
háttum á staðnum, þvi að nóg
hráefniætti nú að fást til vinnslu i
hinu nýja frystihúsi með tUkomu
nýja togarans og þeim bátaflota
sem fyrir er. — Þetta er algjör
bylting til batnaðar, sagði hann.
— Atvinnuástand hefur veriö
mjög bágborið allt þetta ár, sagði
Helgi. — Frystihúsiö nýja sem
slikt bætir ekki ástandiö nema
hráefni sé til staðar, en úr þvi ætti
núaö rætast með tilkomu Fonts. 1
nýja frystihúsinu getur mun
fleira fólk unnið en i þvi gamla og
afköst þess nýja eru miklu meiri,
eða geta orðiö 35-40 tonn á dag,
sagði hann.
Helgi sagði að ibúar Þórshafn-
ar væruum 480 talsins, og af þeim
hóp heföu fimmtiu til áttatiu
manns veriö á atvinnuleysisskrá
frá áramótum. — Frystihúsið og
togarinn munu þvi gjörbreyta at-
vinnuháttum hér á Þórshöfn,
sagði hann. Frystihúsið mun taka
til starfa næstu daga og fær fyrst
hráefni frá bátaflotanum, sem
gerir út á færi, net og dragnót.
Fontur er siðan væntanlegur úr
fyrstu veiðiferðinni innan
skamms.
Fontur ÞH 255 er 300 lestir aö
stærð og hét áður, Suðurnes KE
12. Skipstjóri á Fonti er Kjartan
Ingimundarson. Eigendur skut-
togarans eru sveitarfélagið á
Þórshöfn að tveim þriðju hlutum,
en Hraðfrystistöðin á einn þriöja,
auk þeás eiga nokkur smærri
félagasamtök hluti i skipinu.
Fontur hélt i fyrstu veiöiferðina
s.l. sunnudag, en þá hafði skipið
tekiö is og kassa i Reykjavik.
— Þaö eru rúmir 3 mánuðir sið-
an viö byrjuöum að athuga um
kaup á togaranum, sagbi Helgi,
og fólk hér á Þórshöfn er almennt
mjög bjartsýnt að nú rætist úr at-
vinnumálum þess.
Ókeypis kolmunni
í fiskbúðunum
gébé Rvik — Skuttogarinn
Runólfur landaði 90-100 tonnum af
kolmunna i Reykjavik i gær-
morgun. Smáhluti af aflanum var
gefinn í fiskbúðir i Reykjavik, og
var ætlunin að leyfa viðskiptavin-
unum að fá þessa fisktegund
ókeypis. A timabili i gærdag var
löng lest bila fisksala i Reykjavik
við skipshlið Runólfs aö taka kol-
munna. Má þvi búast við að kol-
munni hafi verið á boröum
margra Reykvikinga i gærkvöldi.
Nokkur hluti aflans fór til vinnslu
i Þorlákshöfn og I Garðinn, eða
Það er ekki annað að sjá i
svip fisksalans og viöskipta-
vinarins en að kolmunninn
sé skemmtileg tilbreyting i
Fiskbúð Vesturbæjar.
Timamynd: Róbert
um 20 tonn á hvorn stað, að sögn
Björns Dagbjartssonar, forstjóra
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
ins, þá fengu nokkrir aðilar kol-
munna sem ætlaö er að frysta i
beitu og um 10 tonn voru sett i
bræðslu.
Samningar hafa tekizt með
Hafrannsóknastofnun og eigend-
um Runólfs um áframhaldandi
leigu á skipinu, a.m .k. fyrir næstu
tvær vikur. Runólfur fer i botn-
hreinsun i slipp i Reykjavik og er
áætlaö að skipið geti aftur fariö til
veiðanna n.k. miðvikudag.
Eins og fyrr segir, eru þaö
nokkrir aöilar sem hafa fengið
nokkuð kolmunnamagn til að
frysta i beitu. Ishús Hafnarfjarð-
ar mun fá um 7 tonn, tsbjörninn
og Keflavik hf. fimmtán tonn
hvor, auk þess sem Bæjarútgerð
Reykjavikur mun e.t.v. lika taka
eitthvert magn.