Tíminn - 13.08.1976, Page 1
YÆNGIR"
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Siglufjörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkishólm-
ur — Rif Súgandaf j.
Sjúkra- og leiguflug um allt
land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
178. tölublað — Föstudagur 13. ágúst—60. árgangur
Stjórnventlar
Oliudælur
Oliudrif
■■EEEm&XH
Síðumúla 21
Sími 8-44-43
Góðor loðnutorf-
ur flnnast suður
of Halamiðum
ASK-Reykjavík. I fyrrinótt fann loðnuleitarskipið Arni
Sigurður góðar loðnutorfur í kantinum suður af Hala-
miðum. Voru þær uppi, og að þvi er virðist vel veiðanleg-
ar. Samkvæmt sýnum sem tekin voru, þá var loðnan stór
og feit. Hversu mikið magn er um að ræða er hins vegar
ekki vitað ennþá.
Samkvæmt upplýsingum loðnu-
nefndar þá er vitað um þrjú til
fjögur skip, sem voru á leiðinni á
miðin, en flotinn hefur verið að
undanförnu á veiðum NNA af
ötraumnesi.
Fjögur skip tilkynntu um afla
s.l. sólarhring. Voru það Sæberg
(220), Súlan (230), Helga II (140)
og Svanur (170).
Ekki þörf á að fara norð-
ur fyrir land eftir hrefnu
ASK-Reykjavik. — Það er sagt að
nóg sé af hrefnu út af Garðskaga
og Hrauninu, þannig að það er
allsendis óvist hvort Óskar
Halldórsson fer norður fyrir land,
sagði Ólafur Óskarsson fram-
kvæmdastjóri I samtali við blaðið
I gær. — Annars er báturinn aftur
kominn til hafnar eftir skamma
útivist.
í dag
Oskar Halldórsson fór út á mið-
vikudag og liðu ekki nema þrir
tlmar þar til fyrsta hrefnan var
komin um borð. Fengust af henni
tvö tonn af kjöti. Það er sett i is og
siðan pakkað og flutt út til
Noregs. Sagði Ólafur að fyrir
hvert kiló fengjust 10 krónur
norskar en þá er reiknað með þvi
að séð verði um flutninginn til
Noregs. Er það allmikill kostnað-
ur, þannig að ekki fæst meira
fyrir kilóið en væri það sett á
innanlandsmarkað. Ekki sagði
Ólafur að kjötið yrði selt hér,
enda veiddi báturinn m .a. gamlar
og stórar hrefnur, sem óhæfar eru
til manneldis. Það þykir hins veg-
ar prýðisgott i kjötkraft og þ.h.
Oskar Halldórsson hefur leyfi
til hrefnuveiða i þrjár vikur, og
taldi ólafur óliklegt að ekki feng-
ist framlenging á leyfinu, enda
væri þegar búið að leggja i nokk-
urn kostnað vegna breytinga á
bátunum. Á óskari er átta manna
áhöfn, þar af eru fjórir bátsverjar
frá Noregi, en eins og greint hefur
verið frá I Timanum, þá hafa
Norðmönnum verið bannaðar
hrefnuveiðar hér við land.
Seint er að byrgja
brunninn þá barnið er
dottið ofan í
—hs-Rvik. Þessi mynd sýnir
húsgrunn við Hólmgarö i
Reykjavik, fullan af vatni eftir
rigningar undanfarinna daga. Á
„tjarnar”-bakkanum gengur
litil stúlka og ýtir á undan sér
barnakerru. Grunnurinn er al-
gjörlega óafgirtur og lítib má út
af bera, svo að börn steypist
ekki ofan i gruggugt vatnið með
moldarleðjuna á botninum, þar
sem erfitt er að ná fótfestu.
Öryggiseftiriit rikisins leitar
ekki uppi slik hættusvæði, en
bregzt að sjálfsögðu viö, ef þeim
er á þaö bent, sem hér með er
gert. A vegum borgarinnar
munu enn fremur vera starf-
andi eftirlitsmenn með öryggi á
vinnustöðum. Má vera að þeir
hafi skoðað þennan grunn og
fundizt allt vera i lagi með hann,
en þá hlýtur það aö hafa verið
fyrir rigningardagana miktu að
undanförnu.
Viðkomandi húsbyggjanda er
hér með bent á það, svo og öðr-
um, sem I húsbyggingum
standa, að þeirra er skyldan að
sjá um að öryggi fólks sé ekki i
hættu stefnt með ófuilnægjandi
búnaöi á vinnustað. Ábyrgðin er
einnig þeirra og hver vill taka
þá áhættu, að þurfa að axla
ábyrgðina á dauða litils barns?
Timamynd: Gunnar.
Minkaskinn haekka í verði
— lítið af íslenzkum skinnum til
nú eftir mjög góðar sölur í vor
ASK-Reykjavik — Viö erum
mjög bjartsýnir á að verö ,á
minnkaskinnum hækki á næst-
unni, sagði Skúli Skúlason
verzlunarmaður og umboðs-
maður Hudson’s Bay & Annings
Ud. — Verðið er um 10 sterlings-
pund hvert skinn, en vonir eru
til þcss, að þau hækki allt upp i
13 eða 15 sterlingspund.
— Þá sagði Skúli, að lítið væri
til af skinnum til að senda á
uppboö, sem haldið verður í
London i næsta mánuöi, einung-
is 1200 skinn fara héðan á það.
Þetta cru skinn sem gengu ekki
út i vor, en þá seldust íslenzku
skinnin mjög vel.
— Núna er verið aðala upp og
rækta minka til að selja af skinn
á uppboðinu, sem haldið verður
iupphafi næsta árs, sagöi Skúli,
en þá fara héðan nálægt 30 þús-
und skinn Söluverömæti
getur verið frá 300 þúsund sterl-
ingspund til 400 þúsund sterl-
ingspund.
Aðspurður um hag islenzkra
minkabúa, sagði Skúli, að búin
fyrir norðan hefðu heldur betri
fjárhagsgrundvöll, en á ýmsu
hefði gengiö með búin á Suður-
landi.
— Þetta eru yfirleitt of litlar
einingar til að geta boriö sig vel.
Það er talið að bú þurfi jafnvel
að verameð 4-5 þúsund læður ef
það á aö geta borið sig. Hérna
eru um 100 læöna bú, þannig að
fjármagnið nýtist ekki nægjan-
lega vel. Það er ýmis tastur
kostnaður. sem er jafnmikill
hvort sem búið er stórteða lítið.
sagði Skúli að lokum.