Tíminn - 13.08.1976, Qupperneq 6

Tíminn - 13.08.1976, Qupperneq 6
6' TÍMINN Föstudagur 13. ágúst 1976 SUF síðan Samvinnuhreyfíngin og Framsóknarflokkurínn Meginþáttur stefnu Framsóknarflokksins, er samvinnustefnan. Sterk og náin bönd hafa alltaf verið á milli Framsóknarflokksins og samvinnu- hreyfingarinnar á Islandi og með sanni má segja að Framsóknarflokkurinn sé pólitiskt afl sam- vinnuhreyfingarinnar. Viðgangur og afl sam- vinnuhreyfingarinnar hefur aukizt griðarlega til hagsbóta fyrir almenning og atvinnulif i landinu. Með eflingu og framför samvinnuhreyfingarinn- ar sjá framsóknarmenn eina stærstu hugsjón sina vera að rætast. Samvinnuhreyfingin telst og er skipulagslega hreyfing almennings. Þar á lýðræðið að ráða rikjum og stjórnendur hreyfingarinnar valdir af alþýðu manna, sem eru þátttakendur I starfi samvinnuhreyfingarinnar. Með fræðslustarfi og félagsstarfi siðustu ár, hefur verið reynt að auka þátttöku hins almenna félagsmanns samvinnu- hreyfingarinnar. Áhrif þess virðast mjög litið koma i ljós enda er mjög litil hreyfing á mönnum i æðstu stjórn samvinnuhreyfingarinnar. Skipu- lag samvinnuhreyfingarinnar er dæmigert lýð- ræðisskipulag með pýramidalagi, sem gefur ráðamönnum á hverjum tima gott svigrúm til þess að ráða hverjir komast i efstu þrepin. Þetta hefur ekki komið að sök og gerir ekki meðan stjórnendur hafa hagsmuni félagsmanns sins og neytenda sem markmið. Það hefur verið farið með fjárstuðning SÍS við Framsóknarflokkinn eins og laumuspil fram til þessa. Andstæðingar Framsóknarflokksins og samvinnuhreyfingarinnar hafa lagzt á eitt með að gera tengsl flokksins og samvinnuhreyfingar- innar tortryggileg og gefið fyllilega i skyn, að þar eigi sér stað undarleg viðskipti. Framsóknar- flokkurinn og samvinnuhreyfingin hafa gefið á sér höggstað i þessu máli með þvi að viðurkenna ekki, að fjárstuðningur samvinnuhreyfingarinn- ar við Framsóknarflokkinn er bæði sjálfsagður og nauðsynlegur. Hann er sjálfsagður vegna þess að samvinnuhreyfingin og Framsóknarflokkur- inn eru tengd óslitanlegum hugsjónaböndum við starfið fyrir eflingu samvinnuhreyfingarinnar. Hann er nauðsynlegur vegna þess að Fram- sóknarflokkurinn er pólitiskt afl samvinnu- hreyfingarinnar og eftir styrk hans fer afl sam- vinnuhreyfingarinnar. Refsigleði ungra Framsóknarmanna I grein á siðunni fyrir stuttu siðan var varpað fram þeirri spumingu hvort refsingar hér á landi væru of vægar. Þjóðviljinn henti þetta á lofti með sinu lagi og sagði með hneykslistón að ungir framsóknarmenn vildu þyngri refsingar. Það væri þeirra lausn á óreiðunni i dómsmálakerfinu. Það sem þeir skildu ekki á Þjóðviljanum, að hér á siðunni var verið að benda á, að það er i hendi hinna óháðu dómstóla að beita harðari stefnu i refsimálum, eða hvað er Þjóðviljinn annars að biðja um með sífelldum reiðilestri sinum um meinta skattsvikara? Auðvitað er verið að krefj- ast þess að tekið sé harðar á skattsvikum. Allir hljóta að vera sammála þvi, að eina leiðin til þess að koma i veg fyrir skattsvik er að herða eftirlit og þyngja refsingar, en á það ekki við um önnur afbrot svo sem stóraukin f jársvik og önnur auðgunarbrot? Baráttan fyrir heiðarlegra þjóð- félagi verður ekki rekin eingöngu með þyngri refsipólitik eða lagasetningu, ef til vill vegur þar þyngst framlag fjölmiðla og þáttur þeirra i mót- un almenningsálits. 16. ÞING SAMBANDS UNGRA FRAMSOKNARMANNA 4-16. þing Sambands Ungra Framsóknarmanna verður haldið að Laugar- vatni dagana 27.-29. ágúst næstkomandi. Formaður SUF, Magnús Ölafsson, setur þingið kl. 19 föstudaginn 27. ágúst. Eftir kosningu forseta og annarra starfsmanna þingsins verður skýrsla stjórnar flutt og rædd. Um kvöldið verða umræður um f lokksstarfið og stjórnmálaviðhorfin. Á laugardeginum munu umræðuhópar starfa að ályktunum þingsins og ræða þau margvíslegu viðfangsefni sem fyrir liggja í starfsemi SUF og í þjóðmálunum. if. Á laugardagskvöld verður gengizt fyrir dansleik að Borg í Grímsnesi. Verður þar ferðahappdrætti auk annarrar skemmtunar. 4" Þinginu lýkur sunnudaginn 29. ágúst. Verður þá lokið afgreiðslu mála og gengið til kosninga um framkvæmdastjórn, miðstjórn og aðra trúnaðar- menn SUF. 4- Að undanförnu hefur verið haft samband við FUF-félögin víðs vegar um landið vegna undirbúnings þingsins. Eru FUF-félögin eindregið hvött til að láta erindreka SUF, Gest Kristinsson, á skrifstofu Framsóknarf lokks- ins vita sem allra fyrst um kjör fulltrúa á þingið. Skrifstofan lætur í té allar nauðsynlegar upplýsingar um ferðir og gistingu í sambandi við þing- haldið. Samband Ungra Framsóknarmanna var stofnað að Laugarvatni 1938. Ungir Framsóknarmenn munu enn f jölmenna þangaðtil að ræða málefni sin. Framkvæmdastjórn SUF er boðuð til f undar að Laugarvatni setningardag þingsins kl. 14 til að leggja síðustu hönd á undirbúninginn. Umsjónarmaður: Pétur Einarsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.