Tíminn - 13.08.1976, Page 20
1a>
Föstudagur 13. ágúst 1976
kFk
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UAA LAND ALLT
fyrir gæði
Guöbjörn
Guöjónsson
Heildverzlun Siðumúla 22
Símar 85694 & 85295
Auglýsingasími
Tímans er
/*ALLAR TEGUNDIR-
FÆRIBANDAREIMA
Lárétta
færslu
Tel al-Zaatar:
Flóttamannabúðirnar fallnar
— þúsundir flóttamanna fluttar úr rústum búðanna
Einnig: Færibandareimar ur rSl°
ryðfriu og galvaniseruðu stáli
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
40088 a* 40098 —. /
Reuter Beirut — Sjö vikna um-
sátri kristinna manna um flótta-
mannabú&irnar Tel al-Zaater
lauk í gær. Siöustu Ibúar bú&anna
voru i gær fluttir til Beirut, þar
sem þeim var öllum safnaö
saman. Fréttaskýrendur i Beirut
telja, að faU flóttamannabú&anna
muni ver&a tii þess, aö loksins
sjái fyrir endann á borgara-
styrjöldinni i Libanon, sem nú
hefurstaöiö I 16 mánuöi. Einn af
flóttamönnunum frá Tel
al-Zaater, sag&i viö komuna til
Beirut i gær, aö aö minnsta kosti
einn eöa tveir úr hverri fjöl-
skyldu, sem hef&u verið i búö-
unum, væri Iátinn. Lýsingar ann-
arra flóttamanna á ástandinu i
flóttamannabúöunum undanfarn-
ar vUíur voru hörmuiegar. öllum
karlmönnum var safnaö saman á
einn staö I búöunum, og yngri
mennirnir fluttir á brott, — aö þvi
er flóttamennirnir álitu — tii af-
töku. Hins vegar, eftir þvi sem
næst var komizt, munu flótta-
mennirnir sem af komust, ekki
sjálfir hafa séð neinar aftökur.
Flóttafólkiö frá Tel al-Zaatar
var flutt á stórum flutningabilum
til skólabyggingar nokkurrar i
suðvestur Beirút. Þar var gamalt
fólk, börn og konur á öllum aldri,
margir grátandi af hræ&slu og
Istanbul:
Misheppnað flugrán
kostaði 4 lífíð
Reuter Istanbul — Tyrkneska
lögreglan og öryggisveröir hand-
tóku I gær tvo palestínuskæru-
liða, sem gengu berserksgang á
flugvellinum i Istanbul, eftir aö
tilraun þeirra til flugráns haf&i
mistekizt. Skæruliöarnir voru
bæöi vopnaöir sprengjum og
byssum, en fjórir létu lifið og yfir
þrjátiu særöust, þegar þeir skutu
á allt sem fyrir varö og sprengdu
sprengjur. Taliö er, aö dauöa-
dóms veröi krafizt yfir skæru-
liðunum tveim.
Tilraun þessi til flugráns, er
álitin hafa veriö gerö i hefndar-
skyni fyrir árás tsraela á En-
tebbe-flugvöll i Uganda nýlega,
sem frægterorðið. Mjög strangar
varúðarráöstafanir eru alltaf
hafðar þegar flugvélar frá is-
raelska flugfélaginu El-Al eru i
Istanbul, en i ljós kom, að skæru-
liðarnir tveir, sem jafnvel eru
álitnir hafa haft einn aðstoðar-
mann, áttu ekki pantaö far meö
israelsku flugvélinni, heldur leit
út fyrir að þeir væru aðeins aö
biöa á flugvellinum eftir flugvél
til Bagdad. Meö þessu móti ætl-
uðu þeir aö komast hjá hinni
vandlegu leit öryggisvarða á
flugvellinum, en þeir leita ekki
aðeins i farangri farþega, heldur
og á þeim sjálfum.
Þegar það kom I ljós, að þeir
myndu ekki sleppa við þessa leit,
hafa þeir greinUega ákveðið að
láta tU skarar skriða þegar istað.
Þvi hefur verið neitað að skæru-
liðarnir hafi reynt að taka gisla
áður en þeir sprengdu fyrstu
sprengjuna. Þrir af þeim sem létu
lifið á flugveUinum, voru farþeg-
ar sem biðu eftir flugvélum. Lik
hins fjóröa var svo Ula farið, að
ekki var unnt að bera kennsl á
þaö, en var jafnvel taliö i Istanbul
i gær, að þarna væri um þriöja
skæruliðann að ræða.
Lögreglan sagði i Istanbul, að
eftir að skæruliðarnir hefðu
sprengt sprengjur sinar, hefðu
jjeir leitað hælis i snyrtiklefum
kvenna I flugstöðinni og skipzt á
skotum við öryggisverðina i hálfa
klukkustund, en þá gáfust þeir
upp.
Blóðug átök
halda áfram
Reuter Cape Town. — Lögreglan
hóf skothriö á um eitt þúsund
blakka afrikumenn I gær I upp-
þoti, sem aö minnsta kosti 27
manns iétu lifið i hverfi blakkra i
Höföaborg I gær. Gert Prinsloo,
yfirmaöur lögreglunnar, sagöi aö
ekki væri vitaö, hve margir af
hinum föllnu heföu látiö lifiö fyr-
ir kúlum lögreglunnar. Uppþotin
breiöast óöum út og sagt er aö til
árekstra hafi komiö i austurhluta
landsins. óeiröirnar hófust i
fyrrinótt I Nyanga, Langa og
Guguieto, sem eru hverfi blökku-
manna, þegar lögreglan haföi
veriö aö reyna aö hindra íkveikj-
ur skóla, og þjófnaöarherferöir
blökkumannanna. Talsmaöur
lögregiunnar sag&i aö um 70
blökkumenn væru alvarlega
særöir eftir þessi siöustu átök.
Nálægt blökkumannahverfinu
Langa, slógust fullorðnir ihóp 300
nemenda, sem gengu til lögreglu-
stöðvarinnar, syngjandi sálma og
veifandi spjöldum með áletrun-
um eins og: Við berjumst ekki —
Ekki skjóta — Leysið aðeins aðra
nemendur úr haldi.
Um þrjátiu unglingar voru
handteknir I uppþotum I Soweto i
júní s.l., og var fyrrnefnd kröfu-
ganga farin til þess að krefjast
lausnar þeirra úr fangelsum.
Lögreglan skaut táragassprengj-
um á hópinn til að reyna að dreifa
honum, en unglingarnir héldu
ótrauðir áfram. Einn af leiðtog-
um þeirrafékkþá leyfi tilað ræða
við yfirmann lögreglunnar á
staðnum.
Geysilegar skemmdir hafa orð-
ið á ýmsum opinberum bygging-
um, verzlunum og fleiru á fyrr-
nefndum stöðum I þessum upp-
þötum.
Glasgow:
Verksmiðja
sprakk í
loft upp
Reuter Glasgow — Tuttugu og
tveir verkamenn slösuðust I gær,
þegar mikil sprenging varð i
verksmiðju i austurhluta Glas-
gowborgar. 1 verksmiðju þessari
eru framleidd ýmis úöaefni i svo-
kölluðum „sprey” brúsum. Nær-
liggjandi götur voru þaktar brús-
,um, en við sprenginguna fauk
þakið af verksmiðjunni og
brúsunum rigndi niöur. Af þeim
22 verkamönnum sem slösuöust,
voruátta mjög alvarlega brennd-
ir, en það kviknaði i verksmiðj-
unni viö sprenginguna.
Belfast:
Konur taka til
sinna ráða
Reuter Belfast — Hópur hús-
mæöra I Belfast, eltu og ráku
vopnaöa unglinga á strætum
borgarinnar, eftir aö mikil reiöi
haföi gripiö um sig vegna þess a&
þrjú börn létu lffiö, þegar bifreiö
skæruliöa ók á þau. Sjónarvottar
sögöu, aö konurnar heföu fiæmt
unglingana á brott, er þeir ætluöu
aö halda áfram viö sina fyrri iöju,
að brenna bifreiöir eöa stela
þeim, en þeim hætti hafa þeir
lialdiö i heila viku. Talsmaður
lögreglunnar sagöi I gær, aö lög-
reglunni heföi ekki borizt ein ein-
asta tilkynning um a&bilum heföi
veriö stoliö, og sagöi að þeir væru
mjög ánægöir yfir framlagi
kvennanna, þvi aö þær sýndu
mikiö h ugrekki meö þvl aö standa
upp i hárinu á hinum vopnuöu
unglingum.
Þetta voru viðbrögð kvennanna
við þvi slysi, sem vopnaðir
skæruliðar IRA ollu, þegar bifreið
þeirra ók á saklausa vegfarend-
ur, sem reyndust vera fjölskylda i
gönguferð, meö þeim afleiðingum
að þrjú litil börn létu lifiðog móð-
ir þeirra slasaðist alvarlega.
Skæruliðarnir voru að flýja
brezka hermenn, þegar fyrrnefnt
atvik átti sér stað.
Faðir barnanna sem létust
sagði, að það hefðu veriö skæru-
liðar hins róttæka arms IRA, sem
þarna hefðu verið að verki. Kon-
ur, sem eru á móti IRA, söfnuðu
fimm þúsund undirskriftum á
bænaskjal i Belfast til þess að
reka á eftir hinum róttæka armi
IRA að hverfa burt úr borginni.
Skæruliðar róttæka armsins hafa
alltaf treyst á stuðning kaþólikka
til að skjóta yfir þá skjólshúsi
þegar þeir flýja brezku hermenn-
sorgyfir missi eiginmanna, sona,
feðra og bræðra, sem höfðu látiö
lifiö i umsátrinu, eða verið teknir
til fanga af vopnuðum hægrisinn-
um.
Hjálparmenn útdeildu matar-
pökkum meðal glorhungraðra
barnanna, sem þá gátu snætt sina
fyrstu máltið I langan tima.
Hver nýr hópur flóttamanna,
sem kom til skólans i Beirút frá
flóttamannabúðunum, hafði
sömu sögu að segja. A meðan
fólkið undirbjó brottför sina úr
búðunum, eftir að þær höfðu fallið
i hendur kristinna manna
snemma i gær, haföi öllum karl-
mönnum verið smalað saman,
nema þeim elztu, og færðir á brott
af hægrisinnum. Enginn flótta-
mannanna bjóst við að sjá þá
aftur.
Dagurinn i gær markaði tima-
mót I lifi þeirra þúsunda flótta-
manna sem komu til Beirút i gær,
þar sem þá var lokið sjö vikna
blóðugum árásum á heimili
þeirra, sem nú eru öll I rústum,
En vafalaust mun bæði
Palestinumönnum og Libanon-
mönnum reynast erfitt aö gleyma
nokkru sinni hinu blóðuga
umsátri um Tel al-Zaatar.
Hótelbruninn í París:
Var um
íkveikju
að ræða?
Reuter.Paris,—Grunur leikur á,
að um ikveikju hafi verið aö ræöa
þegar hótel i Paris brann nýlega,
með þeim afleiðingum að
12 manns létust. Leitað var mjög
vandlega i rústum hótelsins i gær,
en grunur um Ikveikju vaknaöi,
þegar gasleiðslur fundust i rúst-
unum, svo og vegna þess hve
eldurinn breiddist skjótt út i
byggingunni. Niu manns slösuð-
ust alvarlega i brunanum.
Þetta er þriðji hótelbruninn i
Paris á aðeins tveim vikum. Ekki
hefur verið komizt að orsökum
hinna tveggja brunanna, en i
þeim létust sjö manns.
Spinola
laus úr
fangelsi
#■
i
Portúgal
Reuter.Lissabon. — Antonio
de Spinola, fyrrum forseti
Portúgals hefur verið látinn
laus úr fangelsi i Lissabon,
en þar hefur hann setiö og
verið i yfirheyrslum siðan
hann kom tii landsins s.l.
þriöjudag og var handtekinn
við komuna. Að sögn her-
stjórnarinnar munu engar
sannanir liggja fyrir þvi, aö
hann heföi átt aðild aö upp-
reisnartilraun hægrimanna,
sem gerð var i marz á s.l.
ári, og þvi engin Iagaleg
ástæöa til þess að halda
honum I fangelsi.
Eftir uppreisnartUraunina
i fyrra, flúði Spinola til
Spánar og leitaði siðar hælis
i Brasiliu, en hann áleit að
hin vinstri sinnaða herstjórn
i Portúgal myndi ásaka hann
um að hafa tekið þátt i til-
rauninni. Herstjórnin gaf i
fyrra út handtökuheimild á
hinn fyrrum forseta, og var
það ástæðan fyrir þvi aö
hann var handtekinn, þegar
hann kom tU landsins i
vikunni.
yfgk'iV 'X1
•» . 1
bítiiop
Sf H
BraziliukatTi — liúilskiilfi