Tíminn - 08.10.1976, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 8. október 1976
erlendar fréttir
• Kona utan-
ríkisráðherra
í Svíþjóð
....Formaöur sænska miö-
(lokksins, Falldin, var form-
lega kjörínn næsti forsætis-
ráöherra Sviþjóöar I sænska
þinginu i gær. Falldin mun
leggja fram ráöherralista sinn
i dag, svo og stefnuskrá *
stjórnar sinnar. Staöfcst hefur
veriö i Stokkhólmi, aö I fyrsta
skipti i sögu Sviþjóöar, muni
kona verða utanrikisráöherra,
cr hún varaformaöur miö-
flokksins.
• Baader-
AAeinhof
réttarhöldunum
lokið
Reuter Stuttgart — Eftir
meira en sextán mánaöa
réttarhöld og yfirheyrslur,
hafa þrir af meðlimum hins
illræmda Baader Meinhof
skæruliöahóps, veriö dæmdír i
ævilangt fangelsi i Stuttgart.
Þetta voru þau Andreas Baad-
er, Gudrun Ensslin og Jan-
Carl Raspe, sem öll voru
ákærö fyrir aö hafa myrt fjór-
ar manneskjur og gcrt til-
raunir til aö drepa a .m .k. 45 til
viðhótar i mörgum skotárás-
um og sprengjutilræöum I
Vestur-Þýzkalandi áriö 1972.
Aldrei hafa nokkur réttarhöid
vakiö jafn mikla eftirtckt og
valdið eins mikium úlfaþvt og
þessi réttarhöld.
Mörgum mun I fersku
minni, aö annar leiötoga
skæruliöahópsíns, Ulrike
Meinhof, er talin hafa hengt
sig i fangaklefa sinum. Annar
meölimur liópsins, Ilolger
Meíns, fór i hungurverkfall i
langelsinu og lézt þar áriö
1974.
V
• Allsherjar-
verkfall í París
Reuter Paris — Milljónir
Frakka lögöu niöur vinnu í
gær til nö inótmæia aðgeröum
rlkisstjórnarinnar tíl aö reyna
aö stemma stigu víð veröbólg-
unni i landinu. Þaö voru
vinstrisinnuöu verkalýösfé-
lögin i Frakklandi, sem boö-
uöu til allsherjarverkfalls i
landinu tii aö mótmæla ráö-
stöfunum stjórnarinnar, og á
annaö hundraö þúsund verka-
manna fór i mótmælagöngu I
Paris i gær. Verkfalliö haföi
margvtslegar og viötækar af-
leiöingar, t.d. gengu lestir og
áætlunarvagnar aöcins aö
mjög takmörkuöu lcyti, og svo
til öll flugáætlunarstarfsemi
féll niöur. Engin blöö komu út
i Paris, skermurinn á ríkis-
sjónvarpinu var kolsvartur
allan daginn, póstútburöur
var enginn og lokaö var fyrir
gas og rafmagn á fjölmörgum
stööum i höfuöborginni.
Þetta er álitin ein viöamesta
mótmæiaherferö I Frakk-
landi, siöan 1968, þegar stú-
dentaóeiröirnar voru i há-
markí.
• í fáum
orðum
.... Franskur leyniiögreglu-
maöur hcfur upplýst þjófnaö á
118 stolnum Picasso máiverk-
um, en verömæti þeirra er um
2,2 milljónir sterlingspunda.
Sjö manna hópur stal þessum
málverkum frá Avignon-höll í
janúar s.l. Mennirnir liafa all-
ir veriö handteknir og yfír-
heyröir, en i gær fannst einn
þeirra látinn i fangaktefa sin-
um, og aö sögn lögreglu er tal-
iö vist, aö hann hafi lálizt af
hjartaslagi.
Aðeins 2 síðutogarar enn gerðir út
Þormóður
og Maí
Goði
gébé-Rvik — Hinum góðu og gömlu siðutogurum fer
ört fækkandi á landinu, og eru aðeins tveir gerðir út
i dag, Þormóður goði frá Reykjavik og Mai frá
Hafnarfirði, en nú stendur tii að selja Mai, eins og
skýrt var frá i Timanum nýlega. Tveir aðrir siðu-
togarar hafa lengi legið bundnir við bryggjur, þeir
Harðbakur á Akureyri og Júpiter i Reykjavik. Ný-
búið er að selja Neptúnus i brotajárn.
Tfminn ræddi viö Martein
Jónasson, framkvæmdastjóra
Bæjarútgeröar Reykjavikur, til
aö grennslast um, hvort halda
ætti áfram aö gera Þormóö goöa
út, eöa selja hann. — Þaö fer aö
styttast í þaö, aö hægt sé aö gera
hann út, en engin ákvöröun hefur
enn verið tekin, hvenær þvi
verður hætt, eöa hvort hann
verður seldur, sagöi Marteinn, og
bætti viö, aö skipinu heföi gengiö
vei aö afla aö undanförnu. —
Menn vilja sföur fara á þessi
gömlu skip, en viö höfum þó alltaf
fengiö mannskap á Þormóö goöa,
sagöi Marteinn.
ÞORMÓÐI GOÐA...hefur
gengiö vel aö afla aö
undanförnu.
ASK-Reykjavík. — Al-
mennar Tryggingar gerðu
félaginu tilboð um trygg-
ingar, sem var nokkru
hagstæðara en það sem við
höfðum, sagði Guðjón
Styrkársson stjórnarfor-
maður Vængja í samtali
við blaðið i gærkveldi. —
Allt f lug á vegum félagsins
verður því með eðlilegum
hætti eftir sem áður.
Eins og Timinn greindi frá fyrir
skömmu, þá risu upp deilur á
milli Vængja og Tryggingar h/f,
varöandi uppgjör á tjóni og skuld
Vængja við tryggingarfélagið.
Hafði Trygging h/f sagt Vængjum
upp tryggingum frá og með
deginum i dag, en Guðjón sagöi,
að bótakrafa Vængja væri mjög
áþekk skuldinni og vafamál hver
skuldaði hverjum.
Vængir hafa fengið heimild til
að taka lán vegna flugvélakaupa,
en Guðjón sagöi, að vonazt væri
til að af kaupum á vél gæti orðið
með vorinu.
Tryggingar Vængja
fluttar yfir til
Almennra trygginga
* '
Könnun
á þjón-
ustu
strætis-
vagn-
anna
A fundi borgarráðs þ. 28. sept.
s.l. var samþykkt að gera
skyldi könnun á almennings-
vagnaþjónustu. Nær könnun
þessi til alls höfuöborgarsvæö-
isins og er gerö af Þróunar-
stofnun Reykjavikurborgar i
samráöi viö S.V.R., S.V.K. og
Landieiöir.
Tilgangur könnunarinnar er
að safna upplýsingum um
ferðir almennings með al-
menningsvögnum: hversu
margir fara með hverri leið, á
hvaða timum dags, hvaðan og
hvert og í hvaða tilgangi, segir
i frétt frá Þróunarstofnuninni.
1 þessu skyni hafa veriö
valdir tveir könnunardagar,
19. og 20. okt. n.k., og þá daga
verður farþegum afhent
bréfspjald með spurningum,
sem þeir eru vinsamlegast
beðnir að svara eftir beztu
getu og skila aftur i vögn-
unum, þegar farið er út.
i /
í vetur skín sól á Kanaríeyjum.
Samvinnuferðir bjóða sjö hótel
á suðurströnd Gran-Canaría.
Fyrsta ferðin hefst í október.
Dvalartimi 2-3 vikur.
Brottfarardagar:
Sérstök Jólaferðþ
16.0KTÓBER 8. JANÚAR 12.MARS
6.NÓVEMBER 15.— 19. —
27.— 29.— 2. APRlL
11.DESEMBER 5. FEBRÚAR 6. —
18.— 19.— 17. —
27.— 26.— 23. —
TSamvinnU'
ferðir
Ferðaskrifstofa-Austurstræti 12 sími 27077