Tíminn - 08.10.1976, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Föstudagur 8. október 1976
Umsjónarmenn:Pétur Einarsson
r
Omar Kristjónsson
Hermann Sveinbjörnsson
Stefna SUF í skattamálum
Árlega verða miklar umræður um ranglæti i
skattaálagningu. Þær umræður hefjast við út-
komu skattskrár. Margir þykjast þar sjá ná-
granna sinn með mjög lága skatta og útsvar, en
hins vegar berist nágranninn svo mikið á, að i
engu samræmi er við opinberu gjöldin. Svo
rammt kveður að þessu, að sterkrikir menn eru
nánast skattleysingjar, en aðrir, sem vinna lang-
an vinnudag og nánast lepja dauðann úr skel,
bera tvöfaldar eða meir, álögur hins, sem vel-
stæður er. Allir sjá, að þetta fær.ekki staðizt. Það
þarf miklar tekjur til þess að viðhalda stórum
eignum, lifa kostnaðarsömu lifi og hafa mikil
umsvif. Aldrei hefur sú spurning heyrzt hvað
valdi þvi, að menn draga undan skatti. Ef menn
ætla að komast fyrir vandann, er nauðsynlegt að
gera sér grein fyrir þvi, hvar skattsvikin við-
gangast og af hverju. í löngum og leiðinlegum
sjónvarpsþætti ekki alls fyrir löngu, þar sem
saman voru komnir allir helztu vitringar þjóðar-
innar i skattamálum, hefði mátt búast við, að
þessum spurningum yrði svarað. Það var öðru
nær, enginn þátttakenda virtist hafa sett sig það
ýtarlega inn i málið að hann hefði myndað
sér skoðun á þessu, Fólk, sem heima sat og fylgd-
ist með, gat ekki betur séð en allt væri i lagi i
þessum málum, annað væri mesti misskilningur.
Fjármálaráðherra átti þó metið i þessum þætti
og talaði um flest annað en skattamál. Hann lýsti
þvi þó yfir, að unnið hefði verið stöðugt að gerð
nýrra skattalaga, og yrði frumvarp lagt fram nú i
haust. Ekkert hefur enn frétzt af þessari griðar-
legu vinnu, en þær sögur ganga, að ekkert hafi
verið unnið að þessum málum af hálfu fjármála-
ráðherra siðastliðið haust. Mjög athyglis
vert verður að staðreyna sannleiksgildi orðróms-
ins.
Samband ungra Framsóknarmanna ályktaði á
þingi sinu á Laugarvatni i september sl. eftirfar-
andi um skattamál:
Skipulag og framkvæmd skattamála er aug-
ljóslega fyrir neðan allar hellur hér á landi. Um-
bætur þola ekki lengri bið. Framsóknarflokkur-
.. ...
Beizkur kaleikur?
Nokkur orð um
skattamál
UM skattamálin hefur mikiö
verið rætt og ritað að undan-
förnu, eins og vant er fyrst eftir
að skattskrár hafa komið út. Þó
hefur meira verið rætt um það
nú en oft áður, hve skattheimta
rikisins komi ójafnt niður á
þegnunum. Nú nýverið birtist 1
dagblöðunum, heldur óvægin á-
sökun á hendur Skattstofunni i
Vestfjarðaumdæmi, um að þau
vinnubrögð, sem hún viðhefði,
þekktust ekki annars staðar.
Þessar ásakanir hafa oft heyrzt
áður manna i milli nokkur und-
anfarin ár, en ekki veit ég til, að
eins fast hafi verið kveðið að i
fjölmiðlum áður, og i þeirri á-
lyktun, sem Búnaðarsamband
Strandamanna sendi frá sér á
dögunum.
Ekki treysti ég mér til að
dæma um það, hvort þær á-
sakanir, sem á Skattstofuna i
Vestfjarðaumdæmi eru bornár,
eru réttmætar eða ekki, en hitt
má öllum ljóst vera, að úr þvi
verður að fást skorið sem fyrst.
Það er hvorki hægt fyrir skatt-
stjóra og hans starfsfólk að
liggja undir þvi að vera beizkur
L—
kaleikur allra Vestfirðinga að ó-
sekju, né geta Vestfirðingar un-
að þvit að þola harðari skatt-
heimtu en aðrir þegnar þessa
lands, ef ásakanirnar reynast
sannar. Bágt á ég með að trúa
þvi, að starfsfólk Skattstofunn-
ar i Vestfjarðaumdæmi fari
ekki að lögum, en hitt er svo
annað mál, að vandsett eru þau
lög, sem engrar túlkunar þurfa
við. Þess vegna er ekki ósenni-
legt, að skattalögin séu ekki
túlkuð á sama hátt i öllum
skattumdæmum. Ég tel þvi
nauðsyn bera til, að könnun fari
fram á þvi, hvernig framkvæmd
laganna er i hverju umdæmi og
samræming eigi sér stað.
Ég hef hlerað, að þingmenn
Framsóknarflokksins i Vest-
fjarðakjördæmi ætli að vinna að
þvi, að sllk könnun fari fram i
öllum skattumdæmum landsins
með samræmingu i huga, og
fagna ég þvi.
Það hefur verið haft á orði
undanfarin ár, að tekjuskattur
sé i raun aðeins orðinn laun-
þegaskattur, en þeir, sem stundi
atvinnurekstur, eða einhver
umsvif, sleppi að mestu viö að
greiða hann. Margt fleira hefur
verið raétt og ritað um skatta-
málin og hefur sitt sýnzt hverj-
um. Þaðer þó ljóst, að almennr-
ar óánægju gætir með ýmis á-
kvæði skattalaganna, m.a. fyrn-
ingarregglurnar, svo eitthvað
sé nefnt.
Nú hefur Framsóknarflokk-
urinn ákveðið að láta fara fram
endurskoðun á skattalögunum
og skipað sérstaka nefnd til að
vinna það verk. Ennfremur er I
undirbúningi, að vinnuhópar
viðs vegar um land vinni að
endurskoðun laganna og skili á-
liti til þeirrar nefndar, sem
skipuð hefur verið.
Full ástæða er til að ætla, að
nú þegar Framsóknarflokkur-
inn er I rikisstjórn, komi hann
fram þeim breytingum, sem út
úr þessari endurskoðun munu
koma.
Ég tel þvi ekki ástæðu til ann-
ars en að vera bjartsýnn á, að
innan tiðar, að lokinni endur-
skoðun skattalaganna og sam-
ræmingu i framkvæmd, muni
hinn almenni skattgreiðandi
geta búið við það hlutskipti, sem
hann sættir sig nokkurn veginn
við.
Isafirði 26. sept. ’76
Eirikur Sigurðsson.
inn verður að taka frumkvæðið. 16. þing SUF
leggur þvi áherzlu á þessi atriði:
1. Skattkerfið verði einfalt og skiljanlegt skatt-
greiðendum.
2. Söluhagnaður verði skattskyldur.
3. Ekki verði ýtt undir óhóflega skuldasöfnun
með takmarkalitlum frádráttarákvæðum.
4. Skattar miðist við neyzlu og eyðslu frekar en
nú er, en skattbyrðinni ekki allri velt yfir á lág-
tekjufólk.
5. Menn komist ekki lengur upp með að telja
fram hungurlaun, þegar lifnaðarhættir og
neyzla sanna annað.
6. Upp verði tekin sérsköttun hjóna.
7. Stefnt verði að staðgreiðslukerfi.
Áherzlu ber að leggja á, að unnið verði ýtarlega
og ákveðið að nýjum skattalögum. Flestar breyt-
ingar, sem gerðar hafa verið hingað til á skatta-
lögum, hafa verið gerðar i miklu hasti og hafa oft
gert meira ógagn en gagn. Fáir lagabálkar eru
eins ruglingslegir og skattalögin, vegna sifelldra
og ósamstæðra breytinga.
Þótt mjög sé nauðsynlegt að breyta skattalög-
unum, má það alls ekki gerast þannig, að breyt-
ingum sé þröngvað með flýti gegnum alþingi rétt
fyrir útkomu skattskrár og með afturvirk áhrif.
Með þannig vinnubrögðum læðist að manni sá
grunur, að stjórnvöld séu að gera breytingar
breytinganna vegna, og til þess að kaupa sér frið
um stundarsakir. PE.
Lagabreyt-
ingar og
nýbreytni
A SÍÐASTA SUF þingi voru gerð-
ar lagabreytingar, þannig að nú
eiga framkvæmdastjórnarmenn
Framsóknarflokksins og þing-
menn, sem eru á SUF-aldri, sjálf-
krafa seturétt I SUF stjórninni.
Þau, sem þannig hljóta sjálfkrafa
setu, eru Gerður Steinþórsdóttir,
sem framkvæmdaátjórnarmað-
ur, og Halldór Ásgrimsson þing-
maður Austurlands.
Sú nýbreytni var gerð fyrir
tveim árum, að ritari Framsókn-
arflokksins á einnig seturétt á
fundum SUF. Formaður SUF
hefur seturétt á fundum þing-
flokks Framsóknarflokksins.
Þessi nýlunda hefur gefizt vel og
gert það að verkum, að ungir
Framsóknarmenn geta nú fylgzt
betur með störfum alþingis og
betra samband er milli yngri og
eldri flokksmanna.
Framkvæmdastjórn ungra
Framsóknarmanna er nú valin
vfðsvegar að af landinu og er I
raun kosið i hana eftir búsetu i
kjördæmum.
Stjórnarfundum hefur óhjá-
kvæmilega fækkað af þessum
sökum, en hins vegar hafa
tengslin við unga Framsóknar-
menn um allt land eflzt að mun,
og reynslan af þessu fyrirkomu-
lagi er mjög mjög góð, það sem af
er.
OPNUN
Nýr og betri veitingastaður
GÖMLU OG NÝJU DANSARNIR
á tveimur hæðum — Opið kl. 19-01
ALDURSTAKMARK 20 ÁR - SPARIKLÆÐNAÐUR
Fjölbreyttur matseðill
Borðpantanir hjá yfirþjóni í símum
2-33-33 og 2-33-35
30 NÁMSKEIÐ
Á VEGUM STJÓRN-
UNARFÉLAGSINS
Stjórnunarfélagið mun gangast
fyrir 30 námskeiðum i vetur um
27 mismunandi efni á sviði
stjórnunar og reksturs. Af nýjum
námskeiðum má nefna: Skjala-
vistun.sem Þorsteinn Magnússon
viðskiptafræðingur kennir, Skatt-
skil einstaklinga með atvinnu-
rekstur, sem Atli Hauksson lög-
giltur endurskoðandi kennir,
námskeið i stjórnun og markaðs-
sókn fyrirtækja, þar sem leið-
beinandi er John Winkler, en
hann hefur skrifað bókina
„Company Survial during In-
flation”, sem er talin með al
merkustu stjórnunarbóka i
Evrópu i dag, segir i frétt frá fé-
laginu. Þá stendur Stjórnunar-
félagið fyrir tveimur
námskeiðum ásamt Félagi is-
lenzkra iðnekenda um arðsemis-
áætlanir og arðsemisstjórnun
markaðsmála en leiðbeinendur á
þeim námskeiðum eru René
Mortensen og Vagn Thorsgaard
Jacobsen.
Fræðslustjóri Stjórnunar-
félagsins er Asmundur Stefáns-
son hagfræðingur og fram-
kvæmdastjóri er Friðrik Sophus-
son lögfræðingur en formaður
þess er Ragnar S. Halldórsson
forstjóri.