Tíminn - 13.10.1976, Blaðsíða 1
fÆNGIRP
Aætlunarstaðir:
BNdudalur-Blönduós-Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
Símar: j *
2-60-60 og 2-60-66
230. tölublað — Miðvikudagur 13. október—60. árgangur j
í virkjanir — hús
verksmiðjur — skip
SAMVIRKIS’
KöePr sr9i 3W&eeI
Allt starfsfólk
komið að Kröflu
og tilbúið til starfa
gébé Rvik. — Já, það er
allt starfsfólk komið
hingað i Kröflu, alit er
meö kyrrum kjörum og
vonandi fara allir róleg-
ir að sofa, sagði starfs-
stúlka við Kröfiuvirkjun
þegar Timinn hringdi
þangað seint í gær-
kvöldi. Gosið í hvernum
er mjög í rénun en er þó
eitthvaö ennþá, sagði
hún. Það var aöeins um
helmingur starfsfólks
Kröfluvirkjunar þar I
gærmorgun þegar leir-
gosiö hófst i hvernum,
þar sem fólk var ekki
komið úr helgarfrli og
það var einnig ástæðan
til þess að ekki tókst að
ná i Kröflubúðirnar f
sima I gærmorgun þeg-
ar lætin byrjuðu. Nú er
hins vegar simavakt
þar allan sólarhringinn
og verður þangað til
sirenukerfið er komið í
notkun.
Almannavarnaráð
rikisins, taldi i gær, að
fresta ætti öllum fram-
kvæmdum á Kröflu-
svæðinu ibili, eða þar til
gleggri mynd fæst af
þeirri þróun, sem nú á
sér stað á svæðinu.
Orkumálastofnun telur
hins vegar að óhætt sé
að halda framkvæmd-
um áfram, nema við
borinn Jötunn, sem allir
aöilar eru samþykkir
um að láta flytja hið
Þessa mynd tók Matthf-
as Gestsson af Kröflu-
svæðinu I gær. Lengst til
hægri á henni umvefur
gufumökkurinn úr nýja
hvernum Jötun, og rétt
fyrir neðan leggur gufu
úr holu þrjú. Fyrir
miðri mynd trónar bor-
inn Dofri, en til vinstri
eru fyrst kæliturnar og
svo stöðvarhúsið sjálft.
Gossprungan er bak
við fellið lengst til
vinstri á myndinni.
skjótasta á brott frá
goshvernum, sem er að-
eins I um 50 metra fjar-
lægð frá bornum. Eins
og kunnugt er, hafa
jarðvisindamenn Orku-
stofnunar veriö ráðgjaf-
andi aðilar iðnaðarráð-
herra f þvi hvort halda
skuli framkvæmdum á-
fram, svo af þessu má
draga þá ályktun aö svo
verði gert nú, sérstak-
lega þar sem allt starfs-
fóik virkjunarinnar er á
ný komiö á svæðið.
Þrátt fyrir ftrekaðar
tilraunir tókst ekki að
ná I Gunnar Thorodd-
sen, iðnaðarráðherra, f
gærkvöldi, og
Jón,, Sólnes, formaður
Kröflunefndar, sagðist
ekki vera tilbúinn til að
tjá sig um hvort fram-
kvæmdum yrði haldið
áfram i dag.
Sjá nánari fréttir af
atburöunum við Kröflu
á bls. 3.
Allsnarpir jarð-
skjálftar mælast
undir Eyjafjöllum
hafa aukizt síðustu daga
Gsal-Reykjavik. — Allt
frá þvf i ágústmánuði
hafa jarðhræringar
mælzt á skjáiftamælum I
Mýrdal og vlðar undir
Eyjaf jallajökli, en frá þvf
um siðustu mánaðamóti
hcfur skjálftunum fjölgaö
og þeir orðið snarpari. Að
sögn Einars H. Einars-
sonar á Skammadalshóli f
Mýrdal hafa stærstu
skjálftarnir mælzt um 3,4
stig á Richter-kvarða.
A Skammadalshóli er
skjálftamælir og hefur
Einar haft umsjón með
honum, en hann er mikill
áhugamaður um jarð-
fræði. — Þetta eru yfir-
leitt smáir skjálftar,
sagði Einar, og þeir eru
ekki margir á hverjum
sólarhring. Flestir hafa
þeir orðið fimm á sólar-
hring, en það er áberandi
aukning 'á skjálftum f
þessum mánuði.
Um upptök skjálftanna
sagði Einar, að þau virt-
ust vera nokkuö vestan
við hábungu Eyjafjalla-
jökuls. — Þetta er æði
langt frá Kötlu, eða þeim
stað, er gaus siðast, sagði
Einar, og bætti viö, að
þessar jarðhræringar
bentu ekki til þess, að eld-
gos væri á næsta leiti.
í þvi sambandi benti
hann á það, að nokkrum
sinnum áður að haustlagi
hefði orðiö vart jarðhrær-
inga á þessu svæði.
— Ég reikna með þvi,
að upptök þessara
skjálfta séu á svipuðum
slóðum og skjálftahrinu,
Dofri
Stöðvarhúsið
Kæliturnar
' M.
-;V
■ 1
sem kom hér árið 1967,
sagöi Einar. — Þá voru
snarpari skjálftar en nú
og fundust i byggð, en
þessir hafa ekki fundizt.
Einar sagði, að mikil
hreyfing væri á jöklinum
um þessar mundir, þvi
hann væri alls staðar að
ganga fram, og það væri
ekki ósennilegt að smærri
skjálftarnir stæðu í ein-
hverju sambandi við það.
Hins vegar gæti það ekki
gilt um þá stærri.
Fjórir skjálftar mæld-
ust i fyrrinótt á þessum
slóðum, og voru þeir allir
smáir.
Jötunn
h' ■
Alþýðuflokkurinn í Reykjavík:
Björgvin og Eggert G. urðu efstir, þrátt
fyrir andstöðu flokksforystunnar
AÞ-Reykjavík. —
Um siðustu helgi
voru kosnir fulltrú-
ar frá Alþýðu-
f lokksfélagi
Reyk javíkur á
flokksþing Alþýðu-
flokksins, sem hald-
ið verður síðar í
þessum mánuði.
Það vekur athygli í
sambandi við úrslit
þessarar kosningar,
að Björgvin Guð-
mundsson borgar-
f ulltrúi og Eggert G.
Þorsteinsson al-
þingismaður urðu
atkvæðahæstir,
þrátt fyrir, að nú-
verandi flokksfor-
ysta Alþýðuf lokks-
ins hafi beitt sér
gegn þeim.
Hlaut Björgvin 138
atkvæði og Eggert
134 atkvæði. I þriðja
sæti varð Sigurður
E. Guðmundsson
skrifstof ustjóri.
Alls voru kosnir 34 full-
trúar úr Reykjavík á
þingið. 1 framboöi voru
milli 80-90 Alþýðuflokks-
menn.
Þess skal getið, að
Benedikt Gröndal og
Gylfi Þ. Gíslason beittu
sér fyrir þeim breyting-
um á flokkslögum á sið-
asta flokksþingi, aö al-
þingismenn væru sjálf-
kjörnir á flokksþing. Þar
af leiðandi voru þeir ekki
i kjöri nú. Eggert G. Þor-
steinsson kaus samt að
vera á framboðslistanum
og fékk næstflest atkvæði,
eins og fyrr segir.
BJÖRGVIN