Tíminn - 13.10.1976, Page 13

Tíminn - 13.10.1976, Page 13
Miðvikudagur 13. október 1976 TÍMINN 13 leikur Sinfóniu nr. 1 i g-moll op. 13 eftir Tsjaikovský, Lorin Maazel stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Grænn varstu, dalur” eftir Richard Llewellyn Ólafur Jóh. Sigurðsson islenzkaði. Ósk- ar Halldórsson les (24). 15.00 Miðdegistónleikar Gér- ard Souzay syngur söngva eftir Henri Duparc, Dalton Baldwin leikur á pianó. Jacqueline Eymar, Gunter Kehr, Werner Neuhaus, Erich Sichermann og Bern- hard Braunholzt leika Pianókvintett i d-moll op. 89 eftir Gabriel Fauré. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónleikar 17.00 Lagið mitt Anne Marie Markan kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 17.30 Nói bátasmiðurErlingur Daviðsson ritstjóri á Akur- eyri les úr minningum hans (5). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Hrygningaratferli loðn- unnar Eyjólfur Friðgeirs- son fiskifræðingur flytur er- indi. 20.00 Pianósónötur Mozarts (V. hluti).Deszö Ránki leik- ur Sónötu i G-dúr (K283). (Hljóðritun frá ungverska útvarpinu). 20.20 Sumarvaka a. Þegar þýzka herflugvélin sökkti Fróða GIsli Helgason ræðir við Andées Gestsson fyrrum skipverja á Skaftfellingi, sem var staddur i námunda við árásarstaðinn. b. Kveðið i grini Valborg Bentsdóttir flytur enn stökur i léttum dúr. c. Af nykri og huldu- fólki Jón Gislason fræði- maður flytur frásögu. d. Hláturhefndin Rósa Gisla- dóttir les úr þjóðsagnasafni Sigfúsar Sigfússonar. e. Kórsöngur: Karlakórinn Fóstbræður syngur islenzk lög. Söngstjóri: Ragnar Björnsson. 21.30 tltvarpssagan: „Breysk- ar ástir” eftir Óskar Aðal- stein Erlingur Gislason leikari les (6). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Kvöidsag- an: Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Bala- skarði Indriði G. Þorsteins- son rithöfundur les (22). 22.40 Djassþátturi umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Miðvikudagur 13. október 18.00 Þúsunddyrahúsið. Norsk myndasaga i átta sjálfstæð- um þáttum. 1. þáttur. Húsið á hæðinni. í fyrsta þætti kynnumst við söguhetjun- um Hinrik og Pernillu. Þau fara i gönguferð, og margt ber fyrir augu. Þau verða þess vör, að kona er flutt i þúdunddyrahúsið á hæðinni. Þýðandi Gréta Sigfúsdóttir. Þulir Þórhallur Sigurðsson. (Nordvision-Norska sjón- varpið) 18.20 Skipbrotsmennirnir Nýr ástralskur myndaflokkur i 13 þáttum. 1. þáttur. Eyjan. Sagan gerist um miðja nitjándu öld. Skip ferst á leið til Astraliu og fáeinir skipbrotsmanna komast við illan leik til afskekktrar eyj- ar. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.45 Gluggar. Bresk fræðslu- myndasyrpa. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 19.10 Hlé 20.00 Fréttir og veður Sír Arthur Conan Doyle: Konungsgersemi ° dauða frú Harold gömlu, sem lét yður eftir Blymereign- irnar, sem þér reyndar misstuð bráðlega í fjárhættu- spili. — Þetta er marklaust rugl. — Hér er dálítið meira, greifi, t.d. æviágrip ungfrú Minnie Warrender. — Svei, það kemur yður að litlu haldi. — Af nógu er að taka, greifi. Hér er ránið í Riviera- lestinni, sem framið var 13. febrúar 1892. Og hér er fals- aða ávísunin á Lyonbankann sama ár. — Nei, þetta er rangt hjá yður. — Ég hef þá rétt að mæla í öllu hinu. Nú, greifi, þér eruð spilamaður æfður. Þegar andstæð- ingur yðar hefur öll trompin á hendinni, þá þýðir yður ekki annað en að gefa spilin upp. — í hverju sambandi er allt þetta tal um gimsteininn, sem þér nefnduð? — Verið bara rólegur greifi og hafið taumhald á skapsmunum yðar. Leyf ið mér að Ijúka við mína óþægi- legu rökfærslu. Ég hef f jölda sannana móti yður, og þó allra sterkastar að því er varðar kórónu-gersemina, um aðild yðar í þvi máli ásamt áflogaseggnum, sem fylgir yður f hvívetna. — Einmitt. Er því þannig háttað? — Fyrster nú vagnstjórinn, sem f lutti ykkur til White- hall, svo og vagnstjórinn, sem flutti ykkur þaðan aftur. Umboðsmenn mínir sáu ykkur á þessum vettvangi, Svo er Ikey Sanders, sem neitaði að hluta gimsteininn sundur fyrir ykkur. Ikey hefur slaðrað, svo að spilinu er lokið fyrir ykkur. Æðarnar þrútnuðu á enni greifans og hinar loðnu krumlur hans voru knýttar saman af áreynslunni að halda sér í skef jum. Hann reyndi að tala, en orðin köfn- uðu í hálsi hans fyrst í stað. — Þetta eru spilin, sem ég hef á hendinni, mælti Holmes, ég hef lagt þau öll hér á borðið. Aðeins eitt spil vantar mig ennþá. Þar er konungur allra gimsteina, — konungsgersemina. Ég veit ekki hvar hann er. — Ög skuluð aldrei fá að vita. — Ekki það? Verið nú dálítið sanngjarn, greifi og at- hugið, hvernig málum er háttað. Þér munuð verða lokað- ur inni, svona í tuttugu ár. Sömuleiðis Sam Merton. Hvaða gagn hafið þið þá af gimsteininum? Alls ekkert En ef þér viljið af henda mér hann, þá mun ég hilma yf ir glæpi. Ég kæri mig ekkert um að koma ykkur Sam í fangelsi. Við vijum aðeins fá gimsteininn. Látið hann af hendi, og þá mun ég stuðla að því, að þið fáið að ganga lausir, meðan framferði ykkar er ekki ámælisvert. En beri út af því, þá er öllu lokið fyrir ykkur. I þetta skipti hef ur mér verið f alið að ná í gimsteininn, ekki ykkur. — En ef ég neita að fallast á þetta? Nú, þá næ ég aðeins í ykkur, en ekki gimsteininn. Holmes hringdi og Billy kom í Ijós. Ég held, greifi, að réttast væri að hafa vin yðar, Sam Merton með á þessari ráðstefnu. Hann ætti að minnsta kosti að fá að láta sína skoðun í Ijós. Billy, þú munt sjá stóran og Ijótan mann nálægt útidyrunum hérna. Bið þú hann að koma hingað upp til okkar. — En ef hann vill ekki koma, herra? — Enga þvingun, Billy. Vertu ekki neitt ókurteis við hann. Ef þú segir honum, að Sylvius greifi vilji finna hann, mun hann eflaust koma. — Hvað hafið þér nú í hyggju? spurði greifinn, þegar Billy var farinn. — Vinur minn Watson var hérna fyrir skömmu. Ég sagði honum, að ég hefði bæði karfa og hákarl í neti mínu. Nú er ég að draga netið upp með þeim báðum í. Greif inn hafði nú staðið á fætur og þreifaði með hend? inni aftur fyrir bakið. Sjá mátti líka á einhvern hlut í hendi Holmes, er stóð að hálfu leyti upp úr vasanum á setkápu hans. — Þér munuð ekki deyja á sóttarsæng, Holmes. — Sama hefur mér oft dottið í hug. En gerir það nokkuð til? Hvað yður sjálfan snertir greifi, eru meiri likur til að þér hangið en liggið, þegar yðar tími kemur. En öll heilabrot um þau efni eru þýðingarlaus. Hvi skyldum við ekki njóta þess að vera lifandi, meðan þess er kostur? Skyndilegur reiðiblossi sást í augum glæpaforingjans. Svo virtist sem Holmes rétti úr sér og hækkaði, er hann bjóst við árás greifans. — Gagnslaust að handleika skammbyssuna, kunningi, sagði hann rólega. Þér vitið vel að þér dirfist ekki að beita henni hér, jafnvel þótt ég gæf i yður tima til þess að spenna hana. Öþægilega hávaðasöm verkfæri, þessar skammbyssur, greif i. Þá eru loftbyssurnar þægilegri. Ö, þarna held ég að heyrist yndislegt fótatak hins virðulega f élaga yðar. Góöa.n dag, hr. Merton. Fremur dauf legt ðö bíða á strætinu, er ekki svo? Hnefaleikameistarinn var ungur maöur, stór vexti og klunnalega byggður, með einfeldnislegan þráasvip á andlitinu. Hann stóð vandræðalegur frammi við dyrnar og litaðist forvitnislega í kringum sig. Vingjarnlegt útlit Holmes virtist koma honum á óvart, og þótt hann vissi, að þetta var andstæðingur, þá var hann óráðinn í því, á hvern hátt hann skyldi fram fara. Hann sneri sér því til félaga síns og mælti hikandi: — Hvað er nú í ef ni, greif i? Hvað vill þessi náungi okk- ur? Rödd mannsins var djúp og rám. Greifinn yppti öxlum, og það var Holmes, er fyrir svörum varð: — Ef ég má vera stuttorður, herra Merton, þá get ég sagt yður, að þið eruð i slæmri klípu. Hnefaleikamaðurinn beindi enn orðum til félaga síns: — Er þessi leppalúði að reyna að vera fyndinn, eða hvað? Ég er ekki i skapi f yrir neina glettni. — Nei, ég býst varla við því, svaraði Holmes enn. Ég get meira að segja lofað yður því, að meiri alvöru er að vænta áður'en kvölda tekur. Sjáið nú til, Sylvius greifi. Ég á annríkt og má ekki eyða tímanum að óþörf u. Nú f er ég hérna inn í svef nherbergið. Þið skuluð vera hér alveg eins og þið væruð heima hjá ykkur. Þér getið skýrt málið fyrir vini yðar, án þess að ég sé ykkur til óþæginda. Ég ætla að æfa betur róðrarsöng eftir Hoffmann á fiðluna mína. Eftir f imm mínútur kem ég svo fram til að heyra ákvörðun ykkar. Þið skiljið að f ullu þá kosti, sem um er að velja: Annað hvort seljið þið mér í hendur geimstein- inn, eða sjálfa ykkur i hendur réttvísinnar. Holmes tók fiðlu sína með sér og gekk inn í svefnher- bergið. Eftir nokkur andartök heyrðustu iangdregnir, mjúkir fiðlutónar er hljómuðu gegnum lokaðar dyr svef nherbergisins. — Hvað er annars um að vera? spurði Merton áhyggju- f ullur, þá er félagi hans sneri sér að honum. — Veit hann nokkuð um steininn? — Hann veit því miður alltof mikið um hann. Segja mætti mér, að hann vissi allt, sem máli skiptir. — Hver þremillinn. Hnefaleikameistarinn fölnaði sýnilega. — Ikey Sanders hefur svikið okkur. — Hef ur hann vogað sér það? Ég skal lumbra á honum við tækifæri. — Það stoðar okkur lítið. Við verðum að gera upp við okkur, hvað helzt er til ráða. — Höf um hljótt um okkur, mælti hnef aleikameistarinn „Einhvern stæltan náunga þarna fyrir handan langaði til aö hitta þig, en ég réði honum frá þvi.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.