Tíminn - 19.10.1976, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Þriöjudagur 19. október 1976
Afli Vestfjarðabáta:
Orðinn tæp-
um 3000
lestum meiri
en í fyrra
Einstæð veðurbliða var allan septembermánuö og góður afli
hiátoebátum oesæmileeur aflihiáöðrum bátum. miðað við árs-
tima. Nokkrir bátar stunduðu veiðar með þorskanet i Djúpinu og
var afli þeirra mjög misjafn, segir í yfirliti skrifstofu Fiskifélags
tslands á tsafirði um sjósókn og aflabrögð i Vestfjörðum í
september.
I september stunduðu 125 (127) bátar bolfiskveiðar frá Vest-
fjörðum, 90 (79) með handfærum, 12 (22) réru með lfnu, 10 (10)
með botnvörpu, 9 (2)meö netog4(14) með dragnót.
Heildaraflinn i september var 4.198 lestir, en var 2.913 lestir i
september i fyrra. Er heildaraflinn á sumarvertiðinni þá oröinn
23.169 lestir, en var 20.211 lestir á siðustu sumarvertið. Er þessii
sumarvertið orðin ein sú bezta um árabil.
Aflinn i hverri verstöð:
PATREKSFJÖRÐUR:
Gylfi tv. 72,71estirf 3róörum
Maria Júfla ' 39,0 lestir í 10 róðrum
Brimnes dr. 26,6lestiri 9róðrum
Skúli Hjartarson dr. 15.0lestiri 13 róörum
12færabátar 52,01estir
TALKNAFJÖRÐUR:
Tungufell 118,0 lestir í 24 róörum
Sölvi Bjarnason BÍLDUDALUR: Eingöngu rækjuafli. 70,0 lestir 1 róðri
ÞINGEYRI:
Framnes I tv. 217,4 lestiri 4róðrum
Framnes 10,0lestirf 3róðrum
6handfærabátar 41,6 lestir
FLATEYRI:
Gyllir tv. 339,6 lestir i 3 róðrum
Asgeir Torfason n. 39,7 lestir i 24 róðrum
6færabátar 18,7lestir
SUDUREYRI:
Traustitv. 64,31estirilróöri
Ólafur Friðbertsson 46,0 lestir i 4 róðrum
Helgi Magnússon dr. 20,3 lestir i 7 róðrum
13færabátar 68,7 lestir
BOLUNGAVÍK:
Dagrún tv. 370,5 lestir í 3 róðrum
Guömundur Péturs 63,5 lestir i 2 róðrum
Hugrún 59,4 lestir 19 róðrum
3aðrir linubátar 83,6 lestir
17 færabátar 67,7 lestir
4netabátar 159,2 lestir
aflahæstur: Hrimnir 72,2 lestir i 26 róðrum
ÍSAFJÖRÐUR:
Guðbjörg tv. 412,9 lestir i 3 róörum
Guðbjartur tv. 318,0 lestir i 3 róðrum
Július Geirmundsson tv. 262,1 lest Í3róðrum
Páll Pálsson tv. 253,7 lestir i 3 róðrum
Tjaldur 29,3 lestir
28færabátar 318,4 lestir
aflahæstur: Engilráð 33,6 lestir
4netabátar 94,8 lestir
aflahæstur: Sólrún 37,2 lestir
SÚÐAVIK:
Bessitv. 352,3 lestir f 3 róðrum
HÓLMAVÍK:
12færabátar 94,7 lestir
aflahæstur: Asbjörg 21,8 lestir
Framanritaöar aflatölur eru miðaðar við slægðan fisk.
Heildaraflinn I hverri verstöð i september. 1976: 1975:
Patreksfjörður 2191estir 8 205lestir)
Tálknafjörður 173lestir ( 154 lestir)
Bildudalur Olestir ( 55lestir)
Þingeyri 192lestir ( 48lestir)
Flateyri 398lestir (154 lestir)
Suöureyri 199lestir ( 393lestir)
Bolungavik 804lestir ( 5341estir)
Isafjörður 1.768 lestir (1.111 lestir)
Súðavik 3521estir ( 21llestir)
Hólmavik 95 lestir ( 321estir)
Drangsnes Olestir ( 161estir) 4.198 lestir (2.913 lestir)
Mai/ágúst 18.971 lestir (17.298 lestir)
Rækjuveiðar: 23.169 lestir (20.211 lestir)
Rækjuvertlð var hvergi byrjuö, nema á Bildudal, og óvist hve-
nær rækjuveiðar byrja I Isafjarðardjúpi og Húnaflóa. 3 bátar
lönduöu rækjuafla á Bildudal, alls 39,4 lestum. Aflahæstur var
Vfsir með 20,7 lestir I 6 róðrum.
Björn Steenstrup.
Áhugi
Svía
á
íslandsferðum
eykst stöðugt
— segir Björn Steenstrup, ræðismaður
A mánudag og þriðjudag sl.
sátu fulltrúar Flugleiða hf. frá
Bretlandi og Norðurlöndum
fund i Reykjavik. Þar var fjall-
að um áætlanagerð fyrir næsta
ár og farið yfir það, sem áunn-
izt hefur á liðnum tima. Meðal
fundarmanna var Björn Steen-
strup skrifstofustjóri Flugleiða i
Gautaborg og sölusvæðisstjóri i
Sviþjóð og Finnlandi. Björn
Steenstrúp er, sem kunnugt er,
ræðismaöur Islands I Sviþjóð og
náði Timinn tali af honum i
fundarlok.
Björn sagði að áhugi Svia á
Islandsferðum ykist stöðugt.
Aukning frá ári til árs væri
veruleg og i ár hefðu um 4 þús.
Sviar komið til Islands fyrstu
átta mánuði ársins. Margt ber
til, að áhugi Svia á íslandsferð-
um eykst, sagði Björn. Meðal
annars fréttir af eldgosum og
ýmsu öðru fréttnæmu og ekki
dró barátta Islendinga við Breta
um þorskinn úr þessum áhuga.
Þá hafa íslandsferðir verið aug-
lýstar i Sviþjóð i útvarpi og
sjónvarpi og blöðum siðastliðin
5-10 ár, og hafa þar verið að
verki islenzku flugfélögin og
sænskar ferðaskrifstofur i sam-
ráði við þau. Hvort margir Svi-
ar fljúgi með Loftleiðum og
Flugfélagi Islands þvert yfir
Atlantshafið? Þvi miður hefur
dregið úr þeim flutningum,
sagði Björn, og það á sér aug-
ljósar orsakir. Aður flugu Loft-
leiðir til Gautaborgar árið um
kring i 17 ár samfellt, og þá
fluttum við mjög marga Svia til
Ameriku og sænskættaða
Amerikana til Sviþjóðar. Þegar
þotur voru teknar i notkun hjá
Loftleiðum, árið 1970, var hætt
að fljúga til Gautaborgar, en
flogið til Stokkhólms i staðinn.
Við þetta breyttust viðhorfin.
Takmark mitt er að Flugleiðir
fljúgi bæði til Stokkhólms og
Gautaborgar allt árið. Gauta-
borg er miðpunktur þess svæðis,
þar sem um helmingur Svia býr
og ef flug væri hafið þangað aft-
ur, þá myndi eftirspurn eftir Is-
lands- og Amerikuferðum Flug-
leiða vafalaust stóraukast. I
október 1977 verður opnaður i
Gautaborg einn af stærstu flug-
völlum á Norðurlöndum og ég
vona svo sannarlega, að Flug-
leiðir hefji þangað flug aftur og
þá árið um kring. Yrði það gert,
sé ég enga erfiðleika á að tvö-
falda þá tölu Svia sem heimsæk-
ir Island, sagði Björn.
— Er mikill áhugi i Finnlandi
á Islandsferðum?
— Það er viss áhugi á tslands-
ferðum i Finnlandi og þaðan
koma árlega um 1500 farþegar
til Islands. Hins vegar verður að
hafa i huga að þjóðin er mun fá-
mennari en sú sænska. Sviar
eru flestir Norðurlandabúa, eins
og allir vita, eitthvað um
8.200.000. 1 Finnlandi er heldur
ekki eins gott efnahagsástand
og i Sviþjóð. Þeir hafa átt við
efnahagsörðugleika að striða að
undanförnu og það torveldar að
sjálfsögðu ferðalög til útlanda.
En Finnar hafa áhuga á Is-
landsferðum, um það er engum
blöðum að fletta. Spurt var,
hvort Finnar tækju sér far yfir
Atlantshafið með Flugleiðavél-
um. Björn sagði að mjög erfitt
væri að selja slikar ferðir.
Finnska flugfélagið Finnair
heldur uppi ferðum milli Finn-
lands og Bandarikjanna og nota
Finnar að sjáltsögðu þá þjón-
ustu. I öðru lagi fljúga hvorki
Loftleiðir né Flugfélagíð til
Finnlands en væru þangað flug-
ferðir, væri viðhorfið annað,
sagði Björn. Þá mætti ná i all-
marga farþega frá Finnlandi,
sem færu til Ameriku og hefðu
viðdvöl á íslandi.
Talið barst að Air Bahama og
hvort Sviar tækju sér far með
þvi til Karabiska hafsins. Slikar
ferðir eru til sölu hjá okkur,
sagði Björn, en þvi miður eru
ýmsar hindranir i veginum.
Þyngst á metunum er þó ferðin
frá Sviþjóð til Luxemborgar,
þvi i Luxemborg er endastöð
International Air Bahama i
Evrópu. En áhugi er þó á ferða-
lögum til Karabiska hafsins og
hafa verður i huga að 8-900.000
Sviar fara til útlanda á ári
hverju og þar af fjöldamargir
til fjarlægra staða, svo sem til
Ceylon, til Suður-Afriku o. s.
frv. Það væri þvi ekki fjar-
lægðarinnar vegna sem Sviar
ferðuðust ekki til Karabiska
hafsins með Air Bahama, held-
ur vegna þess, hve erfitt væri að
komast frá Svlþjóð til Luxem-
borgar og það væri lika kostnað-
arsamt. Kæmi Air Bahama t.d.
við I Kaupmannahöfn eða Svi
þjóð væri viðhorfið allt annað.
Björn sagði ennfremur að
efnahagsástand i Sviþjóð væri
gott og samkvæmt spám færi
það batnándi á næstu árum. Það
væri þvi ósk sin og von, að Flug-
leiðir legðu vaxandi áherzlu á
flug til Sviþjóðar, bæði til Stokk-
hólms og Gautaborgar og flygi
þangað allt árið. Markaðurinn
er fyrir hendi, bæði hvað snertir
farþega og vöruflutninga. vs__
Geðflækja
BRYNJÓLFUR Ingvarsson,
læknir á Akureyri, hefur gefið út
ljóðabók, sem nefnist Geðflækja,
enda höfundurinn geðlæknir.
Myndskreytt er bókin af Aðal-
björgu Jónsdóttur, er starfar á
geödeild fjórðungssjúkrahússins.
Bókin er rúmar sextlu siður og
kvæðin viðlika mörg. I mörgum
þeirra er háð og ádeila, en önnur
fjalla um strið og vanda, sem
mennirnir eru ofurseldir. Þar sér
oft inn i hugskot læknis.
Ein fyrsta visan er á þessa leið:
Krumminn á skjánum,
kallar hann inn:
— Ijóðabók
eftir geðlækni
Sittu kyrr við sóffaborðið,
sjónvarpsþrællinn minn.
Aftan til við miðja bók má fletta
upp á þessari visu, tengdri minn-
ingu frá námsárum:
Röggsamur háskóli ræður,
en rökstyður ekki sitt mál.
Svo eflist að þekkingu og
þroska
hin þröngsýna menntasál.
Undir lokin er visa, sem vafa-
laust á rætur sinar aö rekja til
læknisreynslunnar:
Timinn læknar. Timinn græðir.
Tár i kyrrþey mýkja lund.
Lifsins innstu leyniþræðir
leiða huggun á þinn fund.
röK|
■EKKll
ÍJTANVEGAl
LANDVERND