Tíminn - 19.10.1976, Page 11
Þriðjudagur 19. október 1976
TÍMINN
11
1 velferðarþjóðfélögum verða
sifelldar endurbætur á sviði
tækni, sem miða aö þvi að létta
okkur daglegu störfin. Alls konar
rafmagnstæki þykja nú orðin
ómissandi á hverju heimili, og
kröfurnar um bætt vinnuskilyrði
og aukin þægindi vaxa i réttu
hlutfalli við velmegunina. Sam-
fara tækniþróuninni eykst lika
slysahættan.
Sérstaklega á þetta við um
börn, sem ekki hafa nægum
þroska yfir að ráða til að gera sér
ljósa hættuna. í yfirlýsingunni
um rétt barnsins, samþykktri af
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna, stendur m.a. Að barnið,
vegna sins likamlega og andlega
vanþroska, þurfi sérstaka vernd
og sérstakar verndaraðgerðir.
Ein hinna tiu greina sem kveða á
um grundvallarréttindi barna
segir að „Mannkynið sé skyldugt
til að veita barninu þa^besta,
sem hægt er að bjóða þvi upp á”.
Vissulega vildum við öll skrifa
undirþessa yfirlýsingu. Hún á við
á hverjum einasta degi i tækni-
væddum samfélögum, engu siður
en i þróunarlöndunum. En höfum
við réttbarnsins ihuga.þegar við
skipuleggjum hið ört vaxandi þétt
býli og umhverfi barna, eða þjóð-
félagsþróunina yfirleitt? Hefu*
okkur ekki yfirsézt takmarkanir
barnsins til að skilja og aðlagast
tækniþróuninni og hraðanum?
Höfum við ekki skotið allri
ábyrgð yfir á foreldra barnanna?
Þessar spurningar leita á, þegar
athugaðar eru skýrslur um fjölda
slysa, er verða á börnum.
Það kemur i ljós, að árið 1974,
var komið með samtals 6154 börn
á aldrinum 0-10 ára, á slysavarð-
stofu Borgarspitalans. Það er að
segja u.þ.b. 17 börn á dag að
meðaltali. Þetta er óhugnanlega
há tala og mörg harmsagan að
baki hennar. Þessi háa tala segir
okkur lika, að það getur ekki ver-
ið, að nægilegt tillit sé tekið til
barna i umhverfi okkar. Þarf það
i rauninni að vera svona hættu-
legt að vera barn i nútimaþjóðfé-
lagi?
Hvaðer hægt aö gera til úrbóta,
hvernig má fækka slysum á börn-
um? Við athugun á umferðarslys-
um kemur i ljós sú gleðilega staö-
reynd, að slysum á bömum i
umferðinni hefur fækkað. Skýr-
inga á þvi er e.t.v. aö leita í auk-
inni fræðslustarfsemi á vegum
Umferðarráðs og skólanna.
Einmitt sú staöreynd aö sýnt er,
að hægt er að snúa þróuninni við
og minnka slysatiðnina, varö
L.í .B. hvatning til að leggja sitt af
mörkum, tilað beina athygli fólks
að slysahættum i daglegu lifi
barnsins.
Verndum
börnin
En hvernie verður bezt unnið
að sliku? Bezta vörnin er auðvit-
að að byrgja brunninn áður en
barnið er dottið ofan i hann. Til að
geta unnið fyrirbyggjandi starf
þarf vitneskju um, hverjar séu
algengustu orsakir barnaslysa og
hvar slysin verða.
Hér á landi er enginn einn aðili,
sem fjallar um öll þau slys er
verða á börnum. í nágrannalönd-
um okkar eru starfandi ráð, er
vinna allt árið um kring að
upplýsingasöfnun um slysahættu
og koma þeim upplýsingum siðan
á framfæri við rétta aðila. Slysa-
varðstofa Borgarspitalans skráir
öll slysatilfelli, sem þangað
koma, og þá um leið orsakir
þeirra.Hún er lika einasti aðilinn
hér, sem hefur nákvæmar upp-
lýsingar um barnaslys.
Hins vegar hefur starfsliðið
þar, eins og marg oft hefur komið
fram i fjölmiðlum, afar erfiða
BYRGJUM BfíUfíUVIfíini
LANOSSAMBAND ÍSLENSKRA BARNA VERNDARFÉL AGA
Undanfarna mánuði hefur starfs-
hópur á vegum Landssambands
islenzkra barnaverndarfélaga
unnið að öflun og greiningu við-
tækra upplýsinga um slys á börn-
um til 10 ára aldurs hér á landi.
M.a. hefur verið stuðzt við skýrsl-
ur slysadeildar Borgarspitalans
um þessi mál og úttekt gerð á
þeim með aðstoð tölvu.
Landssamband isl. barna-
verndarfélaga, sem nú mun taka
upp heitið og kjörorðið „BYRGJ-
UM BRUNNINN” fyrir starfsemi
sina, vonar að þær upplýsingar
sem birtast munu i dagblöðunum
á næstunni um slys á börnum,
muni vekja almenning tilvaxandi
skilnings á nauðsyn þess aö
„byrgja brunninn” i þessu efni
sem öðru, þar sem börn eiga í
hlut.
Fyrrnefndur starfshópur hefur
þar með skilað fyrsta áfanga
verkefnisins, en i framhaldi af
honum mun verða leitazt við að
fylgja málinu eftir á ýmsan hátt,
þ.á.m. með athugun á löggjöf um
öryggismál og framkvæmd henn-
ar.
Starfshóp L.l.B. um slys á
börnum skipa Eirikur Ragnars-
son, félagsráðgjafi, Regina
Höskuldsdóttir, sérkennari og
Margrét Sæmundsdóttir, fóstra
og hafa þau unnið að þessari
könnun ásamt Jóni Björnssyni,
sálfræðingi, sem sa æmt hefur
og undirbúið verkið .h. Lands-
sambands isl. barnaverndarfé-
laga.
Kenning og fram-
kvæmdíKína
í Kina kemst enginn i háskóla
nema hann hafi unnið að
minnsta kosti tvö ár i verk-
smiðju eða i sveit. A háskólaár-
unum verða stúdentarnir að
vinna likamlega vinnu annað
veifið, svo að ekki rofni sam-
bandið á milli þeirra og hins
vinnandi fólks.
En Kinverjar ganga lengra: A
fjölmennum vinnustöðum viðs
vegar um landið hefur verið
komið upp skólakerfi, svoköll-
uðum verkamannaháskólum.
Þar getur starfsfólk lagt stund á
eina eða tvær námsgreinar, er
það kýs sér samhliöa vinnunni.
Annað kinverskt fyrirbæri eru
vinnuskólarnir. Allir þeir, sem
ekki stunda likamlega vinnu,
svo fremi sem þeir eru heilir
heilsu og innan við sextugt,
verða að fara i þessa þjálfun.
Stofnanir þessar eru után borg-
anna viös vegar um landið og
þeir, sem þær sækja, stunda
jarðrækt, smiöar, bygginga-
vinnu og margt fleira, eftir þvi
sem hverjum er talið bezt
henta. Þessu verður skrifstofu-
fólk, kennarar, embættismenn
og kaupsýslumenn að sæta, en
þó aldrei lengur en sex mánuði á
vissu árabili.
Þetta er einnig gert til þess,
að glæða skilning ólikra stétta
innbyrðis og sporna gegn skiln-
ingsleysi embættismanna,
menntamanna og kaupsýslu-
manna .& högum alþýðunnar.
h- l ■
vinnuaðstöðu og alls enga mögu-
leika á að vinna fyrirbyggjandi
starf. Okkur var mjög vel tekiö á
slysavarðstofunni og fúslega
veíttur aögangur þar aö töluleg-.
um upplýsingum fyrir sl. ár, og'
fara helztu niðurstöður hér á eft-
ir. Algengustu slysstaöir og
slysavaldar:
Slysstaöur:
í heimahúsum urðu 2638 slys á
börnum.
1 skólum eða á barnaheimilum
urðu 361 slys á börnum.
Oti uröu 3533 slys á börnum.
Slysavaldur:
Af völdum falls eða hrösunar
urðu 3071 slys á börnum.
Af völdum eitrunar urðu 412 slys
amr á börnum.
Af völdum bruna, hita, kulda urðu
164 slys á börnum.
1 umferð slösuðust 263 börn.
Þessar tölur eru frá árinu 1975
og miðast við börn á aldrinum 0-
10 ára. Ekki ber að lita á þessar
niðurstöður sem endanlegar,
nánari úrvinnslu er væntanlega
þörf.
A komandi dögum, munu birt-
ast í dagblöðunum nokkrar grein-
ar, er fjalla munu nánar um þá
slysaflokka, sem algengastir eru.
Jafnframt verður reynt að benda
á einfaldar leiðir til úrbóta. Von-
um við að þessar upplýsingar
veki fólk til umhugsunar um
stöðu barnsins i þjóðfélaginu.
Munið að gott fordæmi hinna full-
orðnu er áhrifameira en ótal
umvandanir. Sýnum öll fyrir-
hyggju og búum umhverfi okkar
þannig úr garði að allir, á hvaða
aldri sem þeir eru, fái notið
öryggis þar.
Eigum mikið úrval af hvers konar
KERAMIK-FLÍSUM
hvort sem þér þurfið á gólf eða
veggi — innanhúss eða utan
FJÖLMARGIR LITIR OG MYNSTUR!
SAMBANDIÐ
BYGGINGAVÖRUR
Suðurlandsbraut 32 simi 21599