Tíminn - 19.10.1976, Blaðsíða 16

Tíminn - 19.10.1976, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriðjudagur 19. október 1976 „Boro" féll á St. Andrews — þar sem Birmingham vann auðveldan sigur (3:1) yfir „Boro", sem sýndi á sér tvær hliðar CHARLIE GEORGE...sést hér fagna marki. Fyrir þennan ieik Birmingham og Middiesbrough var „Boro" á toppi 1. deildar og komu þeir til Birmingham með sama hugarfari og venju- lega# þ.e. að ná jafntefli á útivelli. En eftir aðeins átta mínútna leik hafði Birmingham náð forystunni, er Joe Gallagher skallaði inn horn- spyrnu frá John Connolly. Og nú varð Middlesbrough að sækja. Og viti menn, þeir kunna lika að spila sóknarfótbolta, og gera það bara anzi vel. A.m.k. nógu vel til að jafna metin á 25. minútu, er Boersma lék á hvern varnarmann Birmingham á fæt- ur öðrum og skoraði siðan með góðu skoti — fyrsta mark „Boro” á útivelli varð staðreynd. Og það sem eftir var hálfleiksins skall hurð oft nærri hælum við mark Birmingham, en inn vildi knötturinn ekki og staðan i hálf- leik var 1-1. En i seinni hálfleik breytti Middlesbrough aftur yfir i gömlu neikvæðu taktikina, varnarleik. Nú fóru sóknarmenn Birming- ham að láta meira kveða aö sér, og náöi Birmingham forystunni á 70. minútu, er Burns skallaöi inn hornspyrnu frá Connolly. Trevor Francis innsiglaði siðan sigur Birmingham, en hann skoraði gott mark, er aðeins þrjár minút- ur voru til leiksloka. Liðin voru þannig skipuð: Birmingham: Latchford, Page, Styles, Calderwood, Gallagher, Want, Jones, Francis, Burns, Hibbitt, Connolly. Middlesbrough: Platt, Craggs, Cooper, Souness, Boam, Maddren, McAndrew, Mills, Brine, Boersma, Armstrong. Ó.O. MARK WALLING- TON...markvörður Leicester, sést hér góma sendir.gu frá Tom Ritchie (Bris- tol City) á laugar- daginn. Keegan sá um sigur Liverpool Celtic sigraði I Skotlandi unnu bæði Cel- tic og Rangers sina leiki.Cel- tic vann Ayr 2-0 á útivelli meö mörkum Glavin og Craig, en Rangers vann Aberdeen á Ibrox 1-0 með marki McDonalds. Dundee United hefur ennþá tveggja stiga forystu I skozku úrvals- deildinni þrátt fyrir það, aö leik þeirra á móti Kilmar- nock á laugardaginn hafi veriö frestað. Aðrir leikir fóru þannig, að Hibernian og Partick gerðu jafntefli 0-0 og Mortherwellog Hearts geröu einnig jafntefli, 1-1. Ó.O. — gegn Everton á Anfield Road, þar sem Everton skoraði sitt fyrsta mark í 6 ár Mesti áhorfendafjöldi dagsins var á Anfield I Liverpool, þar sem 55.141 manns sáu innbyröisviðureign Liverpooi liðanna, Liverpool og Ever- ton. úrslit leiksins voru afráðin strax i fyrri hálfieik, en þá átti Kevin „the mighty mouse’’ Keegan mjög góöan ieik og lagði hann grundvöll- inn að þriggja marka forystu Liverpool f hálfleik. Fyrsta markiö skor- aði Heiighway eftir 6 minútur er hann hafði fengið góða sendingu frá Keegan. A 12. minútu var dæmd vftaspyrna á Everton, sem Neal skor- aði örugglega úr, og á 30. minútu skoraði Toshack, auðvitað eftir send- ingu frá Keegan. Staðan var þannig 3-0 i hálfleik, en hefði svo hæglega getað veriö 6 eða 7-0. i fyrstu minútu I seinni hálfleik skoraði slðan Martin Dobson fyrir Everton og minnkaði muninn I 3-1, og er þetta fyrsta markið, sem Everton skorar á Anfield I 6 ár. En þar við sat, og mörkin urðu ekki fleiri og öruggur sigur Liverpool, 3-1, var staðreynd. Mesti áhorfendafjöldi i langan tima, 38,037, komu á The Hawt- horns I West Bromwich til að sjá heimaliðið leika við Manchester United.eða réttara sagt leika sér að Manchester United. Eftir aö- eins 7 minútna leik haföi fyrrum leikmaður Manchester United og Leeds, Johnny Giles, skorað fyrir WBA með lúmsku langskoti, og þar meö hafði þessi frábæri leik- maöur gefið félögum sinum I WBA liðinu tóninn. Að vlsu var eins og Manchester liðið væri að komast meira inn I leikinn, og eftir 20 minútna leik fékk liðiö dæmda vltaspyrnu. Gerry Daly hafði ekki brugðizt i 13 vltaspyrn- um fyrir United I röð (eða ekki misnotaö vltaspyrnu I 3 ár), en John Osborne gerði sér litið fyrir og varði þessa. Og þar meö var eins og lið Manchester United brotnaði, leikmenn náðu alls ekki saman, meðan hins vegar lið WBA blómstraði. Willie Johnson lék þarna sinn slðasta leik áður en hann fer I 5 leikja bann og gerði hann Jimmy Nicholl oft lífiö leitt. Það var einmitt eftir sendingu frá honum, aö Alistair Brown skor- aði annað mark WBA rétt fyrir hlé. Cantello bætti siðan þriöja markinu við, er fimm mlnútur voru af seinni hálfleik, og fjórða markið kom, er um 10 mínútur voru til leiksloka, þegar Treacy ýtti knettinum I markið eftir vel Ólafur Orrason ENSKA KNATT- , SPYRNAN uppbyggöa sóknarlotu WBA. Maðurinn á bak við sigur WBA var tvlmælalaust Giles, frábærar sendingar hans splundruðu oft vörn United, og aðeins einu sinni I öllum leiknum gaf hann ranga sendingu. Coventry og Newcastle léku leiðinlegan leik á Highfield Road I Coventry. Powell skoraði fyrir Coventry I seinni hálfleik, en eftir það lifnaði nokkuð yfir leiknum, og Gowling jafnaöi metin fyrir Newcastle, er hann náði knettin- um eftir að Cassidy hafði skorað- beint úr frísparki þrumuskoti I slána. Annars geta menn dæmt um gæði leiksins sjálfir, þvi á Framhald á bls. 19. Leikmenn Derby skoruðu átta sinnum á móti Tottenham og fyrsti sigur (8:2) liðsins Framkvæmdastjóri Derby, Dave Mackay, sagði i siðustu viku, að hann vorkenndi þvi liöi, sem léki viö Derby, þegar fyrsti sigur liðsins ynnist, þvi það myndi verða rótburst. Og hann reyndist sannspár. Það var hans gamla félag, Tottenham, sem reyndist verða fórnarlambið, og einn af hans gömlu félögum, Pat Jennings, varð að hirða knöttinn átta sinnum úr netinu, nokkuð, sem aldrei hefur komið fyrir þennan frábæra knattspyrnu- mann áður. Þær breytingar voru geröar á liði Derby fyrir þennan leik, að Hector var tekinn út, Rioch færður framar og Powell settur á miðjuna. Og þetta hreif svona vel, Eftir fimm minútna leik hafði Derby skorað tvlvegis. Eftir 4 minúturgafLeighton James góöa sendingu beint á höfuð Charlie George, sem átti auövelt með að skalla knöttinn inn. Og aðeins mlnútu siðar skoraði Rioch með þrumuskoti. Londonarliðiö minnkaði siðan muninn á 25. minútu, er Perryman skoraði með þrumuskoti af 25 metra færi. 5 mínútum siðar tók McFarland frispark beint á höfuð Charlie George, sem skallaði knöttinn fyrir fætur Rioch. Hann þurfti að- eins að ýta boltanum yfir mark- linuna. 3-1. En vonir áhangenda Spurs glæddust, er Macken brá Naylor innan vitateigs og Osgood skoraði örugglega úr vltinu. Þannig var staðan 3-2 i hálfleik, markatala, sem gefur ranga mynd af gangi leiksins I fyrri hálfleik, fimm marka munur hefði verið nær sanni. Og Derby lagfærði það I seinni hálfleik. Á fimmtán minútna kafla komu fimm mörk, og leik- menn Tottenham voru sem „statistar” á vellinum. A 59. minútu skoraöi Rod Thomas sitt TREVOR FRANCIS.-.skoraöi stórglæsilegt mark fyrir Birmingham. 1. DEILD ARSENAL (1) 2 ST0KE (0) O Rice, Macdonald 28,507 BIRMINGHAM (1) 3 MIDDLESBRO (1) 1 Gallagher. Burns, Boersma Francis (pen) 27.740 BRIST0L C 10) ...O LEICESTER (0) ...t 20,102 Worthington COVENTRTr (0) 1 NEWCASTLE (0) 1 Povvell Gowling—18,083 DERBY» (3) 8 T0TTENHAM (2) 2 Gcorge 2 (1 pen), Perryman, Rioch 4, Thomas. Osgood (pen) Todd 24.216 LlVERP00L (3) ...3 EVERT0N (0) ...1 Heighway, Dobson Hcal (pen) Toshack 55,141 MAN CITY (0) O O.P.R. (0) O 40.751 N0RWICH (0) ...t LEEDS (0) 2 Gibbons Gray F, 25.271 Gray E SUN0ERLN0 (0) O AST0N VILLA (0) 1 31.578 Croclcy WEST BR0M (2) 4 MAN UUTÐ (0) -.0 Gílcs, A Brown, Cantello. Trcacy 38,037 WEST HAM (0) O IPSVVICH (1) 2 24.535 Woods 2 2. DEILD BLACKP00L (0) 1 Walsh N0TTM F0R (0) -17.089 o B0LT0N (0) t Jones P (pen) BRIST0L R0V (0) O -2.771 BURNLEY (1) ...4 Smith. Nohle, CHARLT0N (2) .. Curtis (pen). 4 Fletcher, Cochrane -10,601 Flanagan, Hales 2 CARLISLE (1) ...1 Rafferty LUT0N (1) Husband—6.972 1 CHELSEA (4) ... 4 Stvain, Bell o.g., Wicks, Finnieston 0LDHAM (2) Robins. Young, Shaw—25,825 3 HULL (0) 2 Hawley 2 W0LVES (0) -12,015 O MILLWALL (0) ...O 9.117 BLACKBURN (0) Svarc 1 N0TTS C0 (0) ...O 8,129 0RIENT (0) Roffey t PLYM0UTH (1) 2 Mariner, Hall (pen) CARDIFF (1) Eans, Dwyer 14.198 .2 SHEFF UT0 (1) 1 Woodward FULHAM (0| .. .. Mitchell—28.792 1 S0UTHMPTN (1) 1 Holmes. HEREF0RD (0) . 24.910 O

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.