Tíminn - 27.10.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.10.1976, Blaðsíða 1
AAorð og 24 önnur afbrot sjá bls. f TÆNGIRF Áætlunarstaöir: Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður Sjúkra- og ieiguflug um allt land Símar: 2-60-60 og 2-60-66 242. tölubiað — Miðvikudagur 27. október—60. árgangur. j raHagnir í virkjanir — hús verksmiðjur — skip SAMVIRKIS' KöGpT.oSiG9i Álver í Eyjafirði ekki einu sinni á frumstigi HV-Reykjavik. — i gær svaraöi Gunnar Thorodd- s e n, iönaöarráðherra, fyrirspurnum frá Ingvari Gislasyni, alþingismanni, varöandi ráöageröir um ál- ver viö Eyjafjörö. i svörum iðnaöarráö- herra kom fram aö aöeins hal'i fariö lram kö^j unar- viöræður i máli þessu. Kngin ákvöröun liafi ver- iö tekin, önnur en sú aö tilteknum mönnum hefur veriö faliö aö gera tillögur um þaö hvernig umhverfis- rannsöknum veröur hagað. ef til þeirra kemur i Eyja- firöi vegna bvggingar ál- vers. N'áuar veröur sagt frá umræöum uni mál þetta siöa r. Vilmundur setti skilyrði FJ-Reykjavik. — Nk. sunnu- dag efnir FUF 1 Reykjavik til almenns umræöufundar aft Hótel Sögu. Fundarefnið er „Réttarrfki — Gróusögur”. Þátttakendur i umræöunum verða jæir Guömundur G. bórarinsson, Jón Sigurösson, Sighvatur Björgvinsson og Vilmundur Gylfason, Um- ræðustjóri verður Magnús Bjarnfreösson. Stjórn FUF ákvaö upphaf- iega, aö Alfreö Þorsteinsson yrði þátttakandi i umræðun- um ásamt Guömundi G. Þór- arinssyni, en Vilmundur Gylfason geröi það að skilyröi fyrir þátttöku sinni i umræö- unum, að Alfreð yröi ekki meö. Timinnbar þetta atriði und- ir Alfreð i gær, og sagöi hann þaö rétt vera, að FUF heföi beöið sig um að tala á þessum fundi. Skilaboð hefðu hins veg- ar borizt frá Vilmundi, þar sem hann setti þessi ákveðnu skilyrði. „6g taldi rétt, fyrir FUF að ganga að þessum skilyrðum til þess, að fundurinn gæti farið fram með þátttöku Vilmund- ar,” sagði Alfreö. Menn verða að draga sínar ályktanir af þvi, hvers vegna Vilmundur setti þessi skilyröi. Reykjavík: Bakteríur í skolpi, sem valda matareitrun og taugaveikibróður r — Islendingar bera fleira heim frá sólarlöndum en gott þykir . HV-Reykjavik. — Kannsóknir á skólpi í frárennsliskerfi Reykja- víkur og sjónum viö borgina hafa leittí ljós, að mun meira er um bakterfur af Salmonella-stofni hér, en álitiö var. Bakteriur af þessum stofni eru flokkaöar I margar tegundir og eru mismun- andi hættulegar, allt frá þvi aö valda matareitrun til þess aö valda taugaveiki og taugaveikibróöur. Þær tegundir, sem hér hafa fundizt, eru aö mestu leyti matareitrunarvaldar, en þó hefur aö minnsta kosti tvisvar fundizt bakterfa, sem veldur taugaveikibróöur. Rannsökuð hafa verið sýni tekin úr sjónum hér við borg, auk sýna, sem tekin hafa verið úr frárennslum hótela og i Ibúðarhverfum. Hafa Salmon- ella-bakteriur fundizt á öllum stöðunum,einkum þó i sjónum og við hótelin, en einnig i rik- ari mæli en ætlað var, i frá- rennsli frá ibúðarhverfum. Bakterfurnar I frárennslum hótela eru taldar komnar frá útlendingum, sem þar dvelj- ast, að miklu leyti, en þaö, aö þær finnast einnig i frárennsl- um Ibúðarhverfa, þykir benda til þess, að einnig séu nokkuð um að Islendingar hafi borið bakteriuna heim frá öðrum löndum — aðallega þá sólar- löndum og Miðjarðarhafs- löndum — og séu smitberar. Hjá borgarlækni fengust i gær þær upplýsingar, aö end- Unnið viö töku sýna úr hol- ræsi viö Hótel Sögu nú i vikunni. Um sýnatökuna sér fólk úr Háskólanum, meö aöstoö manna frá Reykjavikurborg. anleg niöurstaöa þessara rannsókna lægi ekki fyrir enn, en þó væri ljóst, að mun meira væri af þessum bakterium hér en álitið hefði verið. Kvaö hann bakteriurnar berast með saur og þvi væri smithætta hverfandi við þær hreinlætis- kröfur, sem hér eru gerðar. Kvað hann þó áherzlu á það leggjandi, aö fólk þvægi sér um hendur eftir saurlát, og gætti fyllsta hreinlætis i með- ferð matvæla til þess að tryggja þaö, aö smit ætti sér ekki staö. Borgarlæknir skýröi enn- fremur frá þvi að taka þyrfti til athugunar, hvort ástæða væri til þess að rannsaka smit i fólki, sem vinnur við mat- vælaiönaö, i eldhúsum hótela og annars staðar. Benti hann á að I Sviþjóö hefðu verið settar reglur um þaö, aö hver sá starfsmaöur i matvælaiðnaöi, sem ferðast til þeirra landa, sem talin eru gera of litlar hreinlætiskröfur, verður aö sanna það með saursýni, þeg- ar hann hefur störf aö nýju, að hann beri ekki smit af þessu tagi með sér. Æskileq* qft Hrauneyjar- fossvirkjun komi í beinu framhaldi af SiqSldu — segir Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra Gsal-Reykjavík. — Að sögn Gunnars Thorodd- sen, iðnaðarráðherra, hefur útboð vegna Hrauneyjarfossvirkjun- ar verið til umræðu hjá ríkisstjórninni að und- anförnu, en eins og kunnugt er, hefur ný- lega verið skýrt frá því, að virkjunin væri tilbúin til útboðs og ætti aðeins eftir að taka ákvörðun um það, hvenærhún yrði boðin út. Iðnaðarráðherra kvaðst ekki geta tíma- sett það nákvæmlega, hvenær ákvörðun um það yrði tekin, en sagði að það yrði gert áður en langt um liði. Ráðherra sagði, að æskilegt væri að fram- kvæmdir við Hraun- eyjarfossvirkjun gætu farið af stað í beinu framhaldi af virkjun Sigöldu, en eins og kunn- ugt er, hef ur orðið nokk- ur seinkun á fram- kvæmdum við Sigöldu, og því má búast við því, að framkvæmdir við Hrauneyjarfossvirkjun geti dregizt sem þvi nemur. • Byggða- og framleiðslustefna — sjá bls. 8

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.