Tíminn - 31.10.1976, Side 1
TÆNGIRf
Aætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug ,4
um allt land
Símar:
2-60-60 og 2-60-66
t3
jP
246. tölublað — Sunnudagur 31. október—60. árgangur.
raílagnir
í virkjanir — hús
verksmiðjur — skip
SAMVIRKIS’
Kópavogi ^ 1
In! Æ^. mÆ Æmsk mMMMm Ætm. mMm muem æru. 2 mrnrn Im Æm. mÆ mÆÆrnm Æm JL jC mÆm Æ^m ba æ
rorraoamenn opinoerra stotnana
eigendur verktakafyrirtaekja á
sviði opinberrar þjónustu þeirra
HV-Reykjavik. — Töluverð
brögð munu vera að þvi að
starfsmenn hins opinbera hér
á landi, hvort heldur er rikis-
eða sveitarfélaga, stundi,
jafnframt opinberum stöðum
sinum, önnur störf, eða at-
vinnurekstur af einhverju
tagi. 1 mörgum tilvikum er
þessum aukastörfum og/ eða
atvinnurekstri jafnvel þannig
háttað að milli þess og þeirrar
stofnunar sem viðkomandi
gegnir stöðu við eru sjáanleg
viðskiptatengsl, eða önnur
hagsmunatengsl. Til dæmis
mun það ekki óalgengt að
opinberir starfsmenn hafi með
höndum persónulega, umboð
fyrir vöru eða vörutegundir,
sem hið opinbera er kaupandi
að.
í Lögbirtingablaöinu frá 17.
september 1975 gat að lita
tilkynningu um stofnun fyrir-
tækis, sem ber heitiö Orku-
virki h.f., en það hefur heimili
sitt og varnarþing I Reykja-
vik.
1 tilkynningunni segir svo:
„Tilgangur félagsins er að
annast uppsetningu og teng-
ingu rafbúnaðar i raforkuver-
um, raforkudreifistöðvum,
stóriðjuframkvæmdum og
hliðstæðum framkvæmdum á
sviði háspennu, lágspennu og
smáspennu, svo og efnisút-
vegun til slikra verka”.
Þetta þýðir i raun að til-
gangur félagsins er að vera
verktaki sem er sérhæfður I
verkefni fyrir hiö opinbera,
það er á raforkusviðinu, svo
og verkefni fyrir þau einka-
fyrirtæki sem kunna að standa
að stóriöju hér á landi — fyrir-
tæki á borð við Isal, íslenzka
Alfélagið.
Það, sem athygli vekur I
stofnun þessa fyrirtækis er, að
nokkrir af stofnendum þess
eru opinberir starfsmenn, ým-
ist hjá rikinu eða Reykjavik-
urborg, og þeirra opinberi
starfsvettvangur eru þær
stofnanir sem Orkuvirki
liklega kemur til með að eiga
mest viöskipti við.
Þessir aðilar eru: Kristján
Jónsson, verkfræðingur, ný-
skipaður Rafmagnsveitustjóri
rikisins (eða æðsti starfsmað-
ur Rafmagnsveitna rikisins,
Bent Scheving Thorsteinsson,
innkaupastjóri Rafmagns-
veitna rikisins, Ivar Þor-
steinsson, nú deildarverk-
fræðingur hjá Rafmagnsveitu
Reykjavikur, Björn Haralds-
son, tæknifræðingur hjá Raf-
magnsveitu Reykjavlkur og
Valgarð Briem, formaður
stjórnar Innkaupastofnunar
Rey kj av Ikurborgar.
Auk áðurgreindra aðila eru
meðál stofnenda þessa raf-
verktakafyrirtækis þeir Ragn-
ar Halldórsson, forstjóri ís-
lenzka Alfélagsins og Hregg-
viður Þorgeirsson, tæknifræð-
ingur, sem er meö umboðs- og
heildverzlunina Iskraft, en
það fyrirtæki flytur inn raf-
kapla og annað efni til rafbUn-
aðar i iðnaö og orkuver.
Stjórnarformaður fyrirtæk-
isins er Tryggvi Þórhallsson,
rafverktaki.
Til þess aö mega stunda at-
vinnu eða rekstur jafnframt
þvi að gegna opinberri stöðu,
þarf heimild yfirvalds. 1 lög-
um um réttindi og skyldur
starfsmanna rikisins segir
svo: „Aður en starfsmaður
(rikisins) stofnar til atvinnu-
rekstrar, hyggst taka við
starfi i þjónustu annars aðila
en rikisins gegn varanlegu
kaupi eða ganga I stjórn at-
vinnufyrirtækis, ber honum að
skýra þvi stjórnvaldi, er veitti
stöðuna (þá stöðu sem hann
gegnirhjá rikinu) frá þvi. Inn-
an tveggja vikna skal starfs-
manni skýrt frá þvi, ef áður-
nefnd starfsemi telst ósam-
rýmanleg stöðu hans, og hon-
um bannað að hafa hana með
höndum. Bera má slikt bann
undir ráðherra.
Rétt er aö banna starfs-
manni slika starfsemi, ef þaö
er siðar leitt i ljós að hUn megi
ekki saman fara starfi hans I
þjónustu rikisins”.
Flugmólastjóri og loftferða-
eftirlitið eru að lóta sína
vanrækslu bitna ó Vængj*
um og landsbyggðinni
— segir Guðjón Styrkdrsson,
stjórnarformaður Vængja
A þessu svæði hyggst Skipaút-
gerð rikisins byggja stórt og
veglegt hús fyrir slna starf-
semi. Þar eiga að vera vöru-
skemmur féiagsins I norður-
rt
enda, en skrifstofur, verk-
stæði, mötuneyti og fleira i
suðurhlutanum, sem veröur á
tveimur hæðum. Nú er verið
að vinna að uppfyllingu á
þessu svæði og ættu bygginga-
framkvæmdir að gefa hafist
nokkru eftir að þvi verki iýk-
ur.
Timamynd: Gunnar
FJ-Reykjavik. — Ég tel þessa
umsögn hreint tilræði við starf-
semiVængja og landsbyggðina og
það sem þarna er að gerast er það
að flugmálastjóri og loftferða-
eftirlitið eru að reyna að koma
sinum vanrækslusyndum yfir á
Vængi, sagði Guðjón Styrkársson,
stjórnarformaður Vængja, i við-
tali við Timann i gær, en sam-
gönguráðuneytinu hefur nú borizt
neikvæð umsögn flugráös um
framlengingarbeiðni Vængja til
flugreksturs. — Það iá við stór-
óhöppum i tið fyrrverandi yfir-
fiugvirkja okkar, sagði Guðjón,
en loftferðaeftirlitið og flugmáia-
stjóri virðast hafa reynt að hylma
yfir hans hlut og nú á þessi van-
ræksla þeirra að verða þeirra
aðalvopn i aðförinni að Vængjum.
Flugrekstrarleyfi Vængja
rennurútá sunnudagskvöid. — Ef
við fáum neitun nú, munum við
ekki sækja um aftur, heldur selja
flugvélakostinn úr landi, sagöi
Guðjón Styrkársson.
— Það er ekkert skilyröi fyrir
flugrekstrarleyfi að hafa yfirflug-
virkja, sagði Guðjón. Við höfum
flugvirkja og eina flugvél i full-
komnu lagi og þess vegna er eng-
in ástæða til að svipta okkur flug-
rekstrarleyfinu nU. Það er óvild
flugmálastjóra I garð Vængja og
Framhald á bls. 7
r
I
unum sem
II — sagÓi Jón Jónsson, forstöðumaður Hafrannsóknastofunar
um skýrslu eftirlitsmanna sjóvarútvegsróðuneytisins
gébé Rvík — Farið
hefur verið yfir
skýrslur og gögn
eftirlitsmannanna,
og hefur hvergi neitt
komið fram í þeim,
sem gefur tilefni til
að loka veiðisvæð-
um, sagði Jón Jóns-
son, forstöðumaður
Háfrannsóknastofn-
unar í gær.
Jón sagði ennfremur,
að þegar eftirlitsmenn-
irnir álitu, að aðgerða
væri þörf, hefðu þeir
strax samband við stofn-
unina frá skipi þvi, sem
þeir eru um borð i og létu
þegar vita um aðstæður,
en biðu ekki með að senda
skýrslur. — Þetta er fljót-
virk aðferð, en það er
okkar hér á Hafrann-
sóknastofnuninni að meta
aðstæður hverju sinni eft-
ir upplýsingum frá eftir-
litsmönnunum, sagði Jón.
Eftjrlitsmennirnir gefa
siðan skýrslur um hverja
veiðiferð, sem þeir fara I,
og senda stofnuninni.
- — Þetta er nýtt fyrir-
komulag, að hafa eftir-
litsmenn um borð I
togurunum, en sem kunn-
ugt er réð sjávarútvegs-
ráðuneytið fimm menn til
þessara starfa. Það er að
byrja að komast reynsla
á þetta, og virðist hún
ætla að verða góð. Þaö er
einnig mikið aðhald fyrir
fiskimennina aö hafa
eftirlitsmenn um borð,
þvi þeir hætta að veiða á
svæði, þar sem mikiö er
um smáfisk, og flytja sig
á önnur vænlegri, sagði
Jón.