Tíminn - 31.10.1976, Qupperneq 9
Sunnudagur 31. október 1976
TÍMINN
9
Vaka eða víma
Hvers vegna
Félög sjálfstæðiskvenna
höfðu nýlega ráðstefnu um
áfengismál og fikniefni, og var
hún að sjálfsögðu öllum opin.
Þar voru framsögumenn með
menntun og starfsreynslu varð-
andi þessi viðfangsefni. Svo var
mönnum gefinn kostur á að
spyrja fólk, sem valið var til að
sitja fyrir svörum um þessi efni.
Margt fróðlegt og um-
hugsunarvert kom fram á ráð-
stefnunni og verður fæst nefnt
hér. En það eru viss atriði úr
starfsreynslu þeirra sira Hall-
dórs Gröndals og Jóhánnesar
Bergsveinssonar læknis, sem
hér verður einkum vitnað til.
Báðir hafa þeir reynslu af þvi,
að fólk leitar hjálpar i neyð.
Þeir hafa báðir þá sögu að
segja, að hjálparinnar sé ekki
leitað fyrr en i ótima. Báðir hafa
þeir reynslu af þvi, að þá er örð-
ugt við að eiga og misjafnt um
árangur.
Hérereinkum um þá að ræða,
sem kallaðir eru áfengissjúkl-
ingar. Þar er ekki fylgt þeirri
reglu að leita sér hjálpar og
lækningar áður en krankleikinn
er kominn á hátt stig. Þar eru
brotnar allar þær reglur, sem
mönnum eru kenndar i sam-
bandi við aðrar veilur.
Þetta stafar af þvi, að menn
vilja býsna almennt ganga með
snert af þessari veiki, áfengis-
sýkinni. Þeir vilja ganga með
drykkjuhneigð og drykkjugleði.
Það telja þeir tilheyra eðlilegu
lifi, þó að áfengisáhrifin séu
raunar ónáttúrleg. En áfengis-
sýkin er ekkert annað en þessi
sama drykkjufýsn. Þá er hún
bara komin á það stig, að hún
ræður yfir manninum.
Vegna þess að hún kemst
aldrei á það stig hjá sumum,
finnst hinum skömm að þvi að
missa vald yfir ástriðunni. Þeir
neita að trúa þvi, að svo sé kom-
ið, og blekkja bæði sjálfa sig og
aðra af furðulegri snilli. Svo
segja þeir loks, að þetta sé
veiki, og það finnst þeim vera
afsökun.
Ameriski prófessorinn, sem
kom hér i sjónvarpið i vor,
sagði, að hver sem væri gæti
orðið áfengissjúklingur. Þetta
er rugl. Við, sem erum bind-
indismenn, getum alls ekki orð-
ið áfengissjúklingar meðan svo
er. Þess vegna erum við bind-
indismenn.
Það er þó ekki eina ástæðan til
þess að við erum bindindis-
menn. Onnur er sú, að við vilj-
um gjarnan verða að liði i þvi
hjálparstarfi, sem unnið er fyrir
drykkfellda menn. Við vitum,
að áfengislaust umhverfi er
þeim höfuðnauðsyn, og það vilj-
um við veita þeim og gerum
það, eftir þvi sem við fáum að
ráða. Við vitum lika, að ef við
höfum áfengi um hönd, þá eru
allar likur til þess, að það eigi
sinn þátt i þvi, að einhver bætist
i hóp ógæfumannanna. Það vilj-
um við ekki.
Enn er það ástæða, sem herð-
ir mörg okkar i þeim ásetningi
Komið og spilið
Breiöfirðingafélagið hvetur ykkur til að spila
félagsvist í Lindarbæ, mánudagskvöld 1.
nóvember 1976 kl. 20,30. Hvað gerist kl. 23.
Allir velkomnir.
Skemmtinefndin.
Vélstjóri
Hraðfrystihúsið á Vopnafirði vantar vél-
stjóra, eða mann vanan vélgæzlu i frysti-
húsi sem fyrst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf sendist Halldóri Halldórssyni, kaup-
félagsstjóra á Vopnafirði eða starfs-
mannastjóra Sambandsins fyrir 10. nóv.
n.k.
Kaupfélag Vopnfirðinga.
bindindismenn ?
að verða alltaf bindindismenn,
að við höfum algáð og ódrukkin
séð vini okkar drekka og vitum
hvernig vingleðin er. Ég hef
aldrei fundið ástæðu til að
öfunda mann af áfengisdrykkju.
Hins vegar margoft til að
aumkva.
Það er heldur ekkert smá-
atriði i þvi mati, sem liggur til
grundvallar þeirri lifsstefnu að
vera bindindismaður, að við vit-
um af þeirri áhættu, sem ölvun
fylgir, þó ekki sé um sjúklinga
að ræða. Margt leiðinlegt hefur
hentdrukkna menn, sem enginn
kallaði ofdrykkjumenn eða
áfengissjúklinga, — sumt
óbætanlegt.
Við vitum, að áfengi er óþarfi,
hættulegur óþarfi. Það er sá
óþarfi, sem nú veldur mestu
tjóni og mestum hörmungum á
tslandi.
Ummæli prófesorsins, aö
hver sem er geti orðið áfengis-
sjúklingur, eru rétt að þvi leyti,
að enginn veit fyrir fram
hvernig hver og einn ber
drykkjufýsn sina ef hún er vak-
in. Hann vissi, að fyrir áfengis-
sjúklinginn er ekki nema um
eitt að ræða: Bindindi.
Er þá ekki rétt að láta óþarf-
ann vera og hafa það aö al-
mennri reglu að ala ekki með
sér áfengissýkina á frumstigi?
Þvi ekki?
H.KR.
Heimsþekktar verðlaunavörur frd Finnlandi. Einstakar glervörur, hannaðar af
færustu listamönnum Finnlands. Útlit og gæði littala eru í algerum
— Komið og skoðið úrvalið.
HIJSGAGNAVERZLUN
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13 Kcykjavik simi 25870
sérflokki.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Akureyri:
Akranes:
Bolungarvík:
Borgarnes:
Egllsstaðir:
Hornafjörður:
Húsavík:
Keflavík:
Blómabúðin Laufás
Verzl. Valfell
Verzl. Virkinn
Verzl. Stjarnan
Gjafa- og blómabúðin Stráið
Kaupfélag A-Skaftfellinga
Hlynur s.f.
Stapafell h.f.
Ólafsvík:
Ólafsfjörður:
Sauðárkrókur:
Selfoss:
Siglufjörður:
Vestmannaeyjar:
Reykjavík:
Verzl. Kassinn
Verzl. Valberg h.f.
Bóka- og gjafabúðin
Kjörhúsgögn
Bólsturgerðin
Kaupfélag Vestmannaeyja
Kristján Siggeirsson h.f.
Tilkynning:
Flugfrakt frá London
Við höfum skipt um þjónustuaðila í London, og bjóðum nú
betri þjónustu á flugfrakt þaðan en áður.
Farmsöludeild okkar veitir allar nánari upplýsingar
í síma 8 48 22.
FLUCFÉLAC
ÍSLAJVDS
LOFTLEIDIR
■utagjfrakt
Félög sem leggja öherslu a hraöa og hagkvœma þjónustu