Tíminn - 31.10.1976, Qupperneq 13
Ýmsum hefur gengiö illa aö
skilja þaö, aö þaö er nauösynlegt
aö hafa öflugan iönaö, til þess aö
ekki þurfi aö taka allan fiskinn,
ofnýta miöin til þess aö sjá þjóö-
inni farboröa.
— Þetta hefur veriö þungur róö-
ur og þaö miðar hægt.
- — Fréttaflutningur og megin-
hluti umræöu snýst um fiskveiðar
og landbúnaö, og þótt þúsundir
manna hafi atvinnu sina af iön-
aöi, viröist hann ekki skipta jafn
miklu máli og aðrar atvinnu-
greinar i augum stjórnvalda.
— En nú er ekki allt jafn glæsi-
legt í iðnaöinum, þrátt fyrir allt.
Tildæmis gengur þörungavinnsl-
an illa, hefur tapaö 125 milljónum
á átta mánuöum. Hvaö segiröu
um þaö?
— Já það er rikiö. Rikiö getur
ekkertrekið, þaö er nú staðreynd.
Fyrir nokkrum áratugum voru
hér á landi mörg rikisbú, eða
rikisjarðir, þar sem rikissjóöur
stundaöi landbúnað. Þau voru 40-
50, þegar flest var, held ég. Þaö
var tap á þeim öllum, nema einu.
A sama tima liföu bændur og
tókst aö framfleyta sér. Sama er
aö segja, þegar rikiö fer út I iön-
að, það er ekki rétta formið. A
hinn bóginn getur rikiö stutt
iðnaöinn, og þarf aö gera, meö þvi
aö haga gjörðum þannig, aö allt
drepist ekki. Við erðum aö
tryggja framfarir.
Sjóður til að
verðlauna þá,
sem skara framúr
Nú stofnaöir þú sjóö á dögun-
um. Til hvers er hann?
— Jú, I tilefni af 35 ára afmæli
fyrirtækisins gáfum við hluta af
eigninni i Kópavogi i sérstakan
sjóð til aö verðlauna afrek I iön-
aði. Þessi eign er 10-15 milljón
króna viröi og afrakstri hennar
verðurvarið til þess aö verölauna
þá, sem skara framúr i iðnaöi,
t.d. uppfinningamenn, hönnuöi,
ogþá, sem sérstökum árangriná,
sem telja má til fyrirmyndar.
Sjóðurinn ber heitið Verðlauna-
sjóöur iönaðarins, og hefur stofn-
skrá um hann verið staöfest af
forseta íslands, en stjórnina
skipa tilnefndir menn úr samtök-
um iðnaðarinsog einn frá Últimu.
Sjóðurinn getur þó haldið áfram
aö starfa, þótt Última veröi lögö
niður.
Viö gerum ráö fyrir aö geta
veitt verölaun sem nema 6-800.000
krónum þegar á næsta ári (marz
1977), og vonandi kemur þetta aö
haldi, bæöi fjárhagslega og sem
uppörvun fyrir menn. Verðlaun-
um veröur úthlutaö árlega. Er
það von okkar, aö þetta hafi ein-
hver áhrif til dáða.
Nú hefur þessi sjóðsstofnun far-
iö fremur hljótt.
— Já, þaö má segja þaö, enda i
takt við stööu iðnaöarins gagn-
vart fjölmiðlum og umræðu.
Iönaöurinn nær aldrei langt nema
hann sé til umræöu daglega og
þyki fréttnæmur, svo að almenn-
ingur beri hag hans fyrir brjósti
og varöium hann, sagöi Kristján
Friöriksson aö lokum.
JG
tJr gluggatjaldadeildinni. A myndinnieru taliö frá vinstri: Gréta, Steinunn, Agústlna og Hólmfrföur, en
þær afgreiöa gardinur og tjöld og lir nógu er aö velja.
w r L» 1
I; ... r. js
11 . ' Ætj r* V, 'sJczSÉm
Séö yfir gluggat jaldadeildina f Cltimu. Þar er sannarlega úr nógu aö velja.
LÍTIÐ INN
SÍÐUMÚLA30 SÍMI: 86822
Eigum mikið úrval af
vönduðum húsgögnum
OG SKOÐIÐ ÍSLENZKA
FRAMLEIÐSLU
íslenzk húsgögn fyrir íslenzk heimili