Tíminn - 31.10.1976, Síða 15
Sunnudagur 31. október 1976
TÍMINN
15
Myndir og texti Magnús Ólafsson
Þorsteinn Einarsson iþróttafulltrúi rlkisins kom á sambandsráösfund A Dalvik er sameiginlegur skóli fyrir nokkur sveitarfélög. Nemendur úr nágrannabyggöalögunum
UMFt, sem haldinn var á Dalvik nýlega. Hér lýsir hann og Valdimar dvelja i þessari heimavist um skólatimann.
Bragason bæjarstjóri væntanlegum íþróttamannvirkjum á staönum.
örgum stórverkefnum
tryggði viðkomandi aðgang að
heimilinu. Vildu sveitarstjórn-
irnarekki fara þessa leið, vegna
þess að það ætti ekki að vera
forréttindi þeirra, sem ættu
peninga, að fá aðgang að slikum
stofnunum.
Þrátt fyrir
fögur orð er
fyrirgreiðslan
lítil '
Nú er i byggingu þjónustu-
miðstöð á Dalvik og verður sú
bygging á tveimur hæðum. Auk
þess verður inndregin þriðja
hæð, og undir húsinu er kjallari.
Grunnflötur er 600 ferm. Fram-
kvæmdir hófust i fyrravor og nú
i haust er ráðgert að ljúka við að
steypa kjallara og fyrstu hæð.
Kostnaður verður þá orðinn
rúmar 30 millj. kr. Ekki er enn
ljóst hvenær- hægt verður að
taka húsnæðið i notkun og ræðst
það af þvi fjármagni, sem fæst
til framkvæmdanna.
i þjónustumiðstöðinni er áætl-
að að verði skrifstofur fyrir
hvers konar opinbera þjónustu,
og einnig er áætlað, að þar geti
einkaaðilar fengið skrifstofuað-
stöðu.
Sveitarsjóður Dalvikur bygg-
ir húsið með fyrirgreiðslu frá
Sparisjóði Svarfdæla, og er ráð-
gert, að framlag sparisjóðsins
verði siðan eignarhlutur hans i
byggingunni. Þá er einnig ráð-
gert, að inn i þjónustumiðstöð-
ina komi skrifstofur bæjar-
fógeta, en eins og stendur leigir
bæjarfógetaemba&ttið skrif-
stofuaðstöðu i ibúðarhúsnæði.
Engin fjárframlög hafa þó
fengizt til þessara framkvæmda
frá rikissjóði, og að sögn bæjar-
stjórans hefur ekki einu sinni
fengizt opinber lánafyrir-
greiðsla vegna byggingarinnar,
þrátt fyrir fögur orð um, að
nauðsyn sé að koma slikum
þjónustumiðstöðvum á fót viðs
vegar um land.
AAiklar íbúðar-
húsabyggingar
Mikið hefur verið um bygg-
ingar ibúðarhúsa á Dalvik und-
anfarin ár, og nú eru margar
Læknamiöstööin fyrir Dalvfkurlæknishéraö er f smiöum og þar er ráögert aö starfi tveir iæknar auk
tannlæknis.
ibúðir þar á byggingarstigi. Á
þessuárihefur veriðbyrjað á 11
ibúðum, en einnig eru margar
ibúðir i smiðum, sem grunnur
var tekinn að sl. haust.
Valdimar Bragason sagði, að
sveitarstjórnin fengi margar
upphringingar frá fólki, sem
hug hefði á að setjast þar að, en
skortur á ibúðarhúsnæði aftraði
þvi að koma til staðarins. Til aö
reyna að leysa eitthvað úr vand-
ræðum þessa fólks hefði verið á-
kveðið að byggja leiguíbúðir á
vegum sveitarfélagsins, og
hefði Dalvik fengiö úthlutað 15
ibúðum af 1000 ibúðunum, sem
byggja áttiá grundvelli laga um
byggingu leiguibúða á vegum
sveitarfélaga. Hins vegar hefði
ekki fengizt leyfi til að hefja
framkvæmdir við nema eina af
þessum 15 ibúðum og stendur
enn allt fast i þeim málum.
Valdimar sagði, að aðallega
væri það ungt fólk, sem væri að
byggja á Dalvik og væri þar
bæði um heimafólk og aðkomu-
fólk að ræða.
Lífið er fleira en
hafnir og vegir
Mikill ahugi hefur verið á þvi
á Dalvik um fjölda ára að fá
þangað landsmót Ungmennafé-
lags Islands. Nú hefur verið
samþykkt, að næsta landsmót
verði haldið á Dalvik, en það
mót stendur til að haída 1978.
Bæjarstjórn Dalvikur hafði
hugsað sér, að framkvæmdir
við iþróttavöll hæfust á liðnu
sumri til þess að völlurinn gæti
orðið tilbúinn fyrir landsmót,
enda er það forsenda þess, að
hægt sé að halda landsmót að
gera fullkominn grasvöll i bæn-
um.
Hilmar Danielsson forseti
bæjarstjórnar Dalvikur sagði i
viðtali við Timann, að gerð hefði
verið áætlun um uppbyggingu
vallarins, en siöan heföi verið
farið á fund fjárveitingarnefnd-
ar Alþingis.
En viðtökurnar þar kvað
Hilmar hafa verið kuldalegar og
mjög isamræmi við þá fjárveit-
ingu, sem nefndin hefði veitt til
framkvæmda við iþróttavöllinn,
en sú upphæð var 180 þúsund
krónur. Hins vegar gerði áætlun
um kostnað við fyrirhuguð
iþróttamannvirki ráð fyrir, að
þau kostuðu alls 62 millj. kr.
Það er þvi ljóst, að ekki væri
unnt að hef jast handa um fram-
kvæmdir nema meira fjármagn
fengist, sagði Hilmar.
NU i haust kom fjárveitinga-
nefnd Alþingis I heimsókn til
Dalvikur og skoðaði aðstæður
þar sem fyrirhuguð iþrótta-
mannvirki eiga að koma. Einnig
ræddu nefndarmenn við bæjar-
stjórn Dalvikur, og voru nú
undirtektir nefndarmanna mun
betri en i fyrra. Þó vitum viö
enn ekkert hver verður niður-
staðan varðandi umsókn okkar,
en við vonum það bezta, sagði
Hilmar Danielsson.
Hins vegar er ljóst, að þótt fé
fáist á fjárlögum næsta árs, er
ófært að ljúka framkvæmdum
fyrr en 1979, og þvi höfum viö
sótt um að landsmóti U.M.F.I..
verði frestað þangað til, i von
um að fé fáist á fjárlögum.
Einnig má benda á það, sagöi
Hilmar, að samkvæmt lögum er
gert ráð fyrir, að fjárveitinga-
valdið ljúki við að greiða sinn
hluta af byggingarkostnaði á
fjórum árum eftir að bygging
iþróttamannvirkis hefur verið
samþyKkt. Og meö þvi að veita
180 þúsundin á siöustu fjárlög-
um hefur fjárveitingavaldið i
raun samþykkt framkvæmdina.
Við i bæjarstjórn erum óragir
við að leggja mikið á okkur til
þess að unnt veröi að halda hér
landsmót og munum útvega
fjármagn, til þess að unnt verði
að ljúka framkvæmdum fyrir
landsmót, ef áður hefur verið
tryggt, að framlag rikisins ber-
ist innan eðlilegs tima.
A7:ynrrrtr\vq
Nú er unnið af kappi viöaö byggja stjórnsýslustööá Dalvlk.
Fullkomnar vélar eru I rækjuvinnslu Söltunarfélags Dalvikur.