Tíminn - 31.10.1976, Síða 26

Tíminn - 31.10.1976, Síða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 31. október 1976 KVIKMYNDIR — KVIKAAYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — Nanook norðursins Þriðjudaginn i þeirri viku, sem nú er að hefjast, það er þriðjudaginn 2. nóvember, tekur Menningarstofnun Bandarikjanna aö Neshaga 16 i Reykjavik, til sýninga kvik- myndina Nanook of the north, eöa Nanook noröursins. Kvikmynd þessi er gerð af Robert Flaherty, árið 1922, og þykir hin merkilegasta. Hím er talin fyrsta heimildakvikmynd- in, sem gerð var i fullri lengd, og jafnframt þvi er hún af mörgum álitin bezta mynd sinnar tegundar, sem nokkru sinni hefur verið gerð. 1 kvikmynd þessari fjallar Flaherty um lif eskimóa, baráttu þeirra fyrir afkomu sinni og ýmsar venjur þeirra og siði. Aðallega fjallar myndin um Nanook, þann eskimóann, sem mestum og beztum hæfi- leikum var búinn. Þess má geta, aö kvikmynd þessi, þótt hún sé gerö sem heimildamynd, vakti á sinum tlma mikla athygli fyrir almennt kvikmyndalegt gildi sitt. Inn I þráð hennar er ofin spenna, sem gerði það að verk- um, að jöfrarnir i Hollywood á þeim tima, þóttust heldur hafa komizti feitt, þar sem Flaherty var, og rausnuðust meira að segja til að kosta næsta könnunarleiðangur hans að miklu leyti. Þegar i ljós kom, að hug- myndir þeirra um kvikmyndir féllu illa að hans vilja, slitnaði upp Ur þvi samstarfi. En i öllu falli, nú gefst færi á að sjá litt af meistaraverkum hans. Sýningar eru klukkan 17.30 og 20.30 á þriðjudagskvöld. Bið á, að Gauks hreiðrið birtist En vonandi verður hún ekki mjög iöng B rey ti Héöan i frá verður nokkur breyting á fyrirkomulagi kvikmyndasiðunnar. A sunnu- dögum veröur framvegis fjallað einkum um það, sem væntanlegt er i kvikmynda- húsin hér.svo og, að einhverju leyti það, sem er að ske úti i hinum stóra heimi. Vilji fólk hins vegar iesa gagnrýni um þær kvikmyndir, sem verið er að sýna i þaö og það skiptið, verður hennar aö ngar leita i blaðinu á virkum dög- um, rétt eftir hendinni hverju sinni. Með þessu vinnst einkum þrennt: Vinnsla sunnudags- blaðs ætti að veröa auðveldari i prentsmiöjunni, þjónusta við lesendur ætti aö verða meiri og betri og undirritaður fær að láta ljós sitt skina meira en hingað tii (að minnsta kosti oftar). Svo er nú þaö. beztu, sem gerðar hafa verið (undirritaður svindlaði og sá hana erlendis fyrir nokkru) og Jack Nicholson, sem þó hefur gert frábæra hluti i öörum myndum, hefur ekki'. i aöra tið sýpt á sér betri hlið. Einn af meginkostum þessar- ar kvikmyndar er sá, að leik- stjóri hennar, Milos Forman, og höfundar kvikmyndahandrits- ins, Lawrence Hauben og Bo Goldman, hafa greinilega getað losaðsig við þann sjúkdóm, sem algengastur er meðal slikra manna: Þeir virðast engar hvatir hafa fundið til þess að eyðileggja verkið með breyting- um á upphaflegum söguþræði, eins og hann kemur fyrir i bók Ken Kesby. Það, sem vantar i kvikmynd- ina úr bókinni, er að visu veiga- miklir þættir hennar (það er bókarinnar), en’ eru þess eðlis, aö erfitt, eða ómögulegt, er að koma þeim yfir I kvikmyndar- form, svo að sæmilega vel fari. Louise Fletcher kemur einnig vel frá hlutverki sinu i myndinni (yfirhjúkrunarkona deildarinn- ar), svo og flestir eða allir þeir, sem fara með hlutverk sjúkl- inga. 1 heildina tekið er þarna á ferðinni ákaflega áhrifamikil og verulega vel gerð kvikmynd. Vonandi tekst forráðamijnnum Tónabiós að fá hana hingað, áð- ur en mjög langt um liður. Það væri súrt að þurfa að biða þar til siðari hluta næsta árs, þvi undirritaður hlakkar verulega til þess að sjá hana aftur og kannske enn aftur. Þvi miður þurfum viö enn aö bíða nokkuð eftir þvi að fá að berja augum Gaukshreiðrið, kvikmyndina sem i ár rakaði að sér óskarsverðlaununum. Eftir þeim upplýsingum, sem nýlega fengust hjá forráöamönnum Tónabiós, gengur fremur treg- lega að fá eintak af myndinni hingað noröur á útkjálka ver- aldarinnar, enda mikil eftir- spurn eftir henni hvarvetna og langir biðlistar fyrir hendi, sem þurfa að styttast töluvert, áður en vonarglæta veröur fyrir okk- ur. Þetta er mikil synd, þar sem kvikmynd þessi er meðal þeirra KVIKMYNDA HORNIÐ Umsjónarmaður Halldór ’i Valdimarsson KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.