Tíminn - 31.10.1976, Side 31
Sunnudagur 31. október 1976
TÍMINN
31
œvis
ci sin
nkenni
vonir þeirra i Englandi e6a
Bandarikjunum, þótt þeir
syngju á dönsku i sinu heima-
landi.
Þetta kom reyndar allt á dag-
inn, þvi i fyrra komust þeir á
samning hjá Epic hljómplötu-
fyrirtækinu i Bandarikjunum
(þeir höfðu reyndar verið á
samningi hjá útibúi Epic í Dan-
mörku frá 1971), og fyrsta plata
þeirra fyrir Bandarikjamarkað
kom siðan út s.l. sumar.
Plata þessi, sem heitir ein-
faldlega Gasolin, er hugsuð sem
nokkurs konar kynningarplata.
A henni eru ekki ný lög, heldur
valin lög af nokkrum fyrri plöt-
um hljómsveitarinnar. En þar
sem platan er ætluð fyrir
Ban da r ik ja m ar ka ð, var
textunum snúið yfir á ensku.
Þrátt fyrir það missir Gasolin
ekki sín dönsku einkenni, og
greinilegt er, aö þeir reyna að
láta sem mest á þvl bera, að
þeir eru Danir, en ekki
Englendingar eða Bandaríkja-
menn, þótt þeir syngi á ensku.
Til dæmis syngja þeir ensk-
una með dálitlum dönskum
hreim og furðulegt nokk, þaö
gefur plötunni vissan sjarma.
Einnig syngja þeir eitt lagið á
plötunni á dönsku og fjalla þar
að auki um Danmörku og Dani I
textum sinum. Af þessu öllu
gætu Islenzkar hljómsveitir
heilmikið lært, og greinilegt er,
að okkur vantar mann með
framtaksemi og skoðanir Kim
Larsens hér.
A plötunni eru 10 lög, sem öll
eru eftir hljómsveitarmeölimi
og nokkra aðra menn, sem ég
kann ekki skil á. Lögin skiptast
nokkuð jafnt i létt rokklög og ró-
leg lög, en það eru einkum ró-
legu lögin, sem vekja eftirtekt
hjá manni. Þarna eru gull-
fallegar melódiur, sem gætu
sómt sér á hvaða plötu sem er.
Eitt þessara laga er „instru-
mental”, og þar má vel heyra
hinn ágæta gitarleik Franz
Beckerlee, sem einnig má
reyndar heyra I fleiri lögum á
plötunni.
Eitt er það, sem vekur nokkra
furðu á plötunni, en þaö er, að
sama lagið er báðum megin á
henni. A fyrri hliö plötunnar
heitir það „What A Lemon” og
er sungið á ensku, en hinum
megin heitir þaö „Rabalder-
straede” og er sungið á dönsku.
Ekki væri þetta neitt grunsam-
legt, ef sömu menn væru skráðir
fyrirbáöum lögunum, en svo er
ekki. Fyrra lagið er skráö á
Gasolin, S. Malone, D. Back og
J. Bredstorf, en danska útgáfan
á Gasolin, Larsen, Jonsson og
Borgensen. Að visu er hægt að
hugsa sér, að lagið sé eftir
hljómsveitarmenn, en textarnir
eftir hina, en samt sem áður er
ótrúlegt, að þrjá menn hafi
þurft til þess að koma saman
texta I hvorri útgáfu.
Þrátt fyrir þennan galla, ef
galla skyldi kalla (þvi lagið er
ágætt), kemur Gasolin mjög vel
út frá þessari plötu, mun betur
en ég bjóst við, er ég heyrði
hana fyrst. Hún hefur á sér dá-
lítið annað yfirbragð, en það er
einmittþetta danska yfirbragð,
sem gerir hana sjarmerandi.
Beztu lög:
Sad Song Of The Blue Bird
Lots Of Success
The Las Jim
Lady Oh Lady
SÞS
Þetta er leðurmiöi, sem einungis finnst á gallabuxum sem heita
Levi’s og eru framleiddar úr bezta fáanlega denim efni í heimin-
um. Og sniðiö er enn hinn upphaflegi ameríski orginal frá1850.
Líttu inn, fáðu að máta, og ef þú kaupir geturöu veriö viss um
að þú gerðir reyfarakaup.
EITT ORÐ
um Levis áöur en þú leitar lengra
laugavegi 89
laugavegi 37
13008 10535
Hagkvœmt er
heimanám
Helstu kennslugreinareru:
Bókfærsla I. 2 bréf. Færslubækur og eyðublöð fylgja.
Nlámsgjald 5.700,00.
Bókfærsla II. 2 bréf. Færslur og eyðublöð fylgja.
Reikningur. 10 bréf. Má skipta i tvö námskeið 2.900,00.
Ensk verslunarbréf. 8 bréf. Nokkur enskukunnátta nauðsynleg.
Námsgjald 2.900,00.
Danska. 7 bréf + lesbók Bkr. 4.500,00.
Enska I. 7 bréf og ensk lesbók. Námsgjald 2.900,00 + bækur 200,-.
Enska II. 7 bréf og ensk lesbók II., orðabók og málfræði.
Námsgjald 2.900,00 + bækur 800,00.
Þýzka. 5 bréf. Námsgjald 2.900,00.
Franska. 10 bréf. Námsgjald 2.900,00.
Spænska. 10 bréf. Námsgjald 2.900,00.
Sálar- og uppeldisfræði. 4. bréf. Námsgjald 1.800,00.
Póstið úrklippuna vel útfyllta — eða komið, hringið,
skrifið — og skólinn sendir yður allar nánari upplýs-
ingar.
Undirritaður óskar að gerast nemandi i eftirt. námsgr:
□ Vinsaml. sendið gegn póstkröfu.
□ Greiðsla hjálögð kr.............
□ Vinsaml. sendið ókeypis
kynningarbækling.
(Nafn)
(Heimilisfang)
Klippiö auglýsingunaúr blaðinu
og geymið!
Bréfaskólinn
SUÐURLANDSBRAUT32 REYKJAVÍK SÍMI 81255
sinni tónlistarsköpun. Tónlist
þeirra er persónuleg og oft á-
hrifamikil, einkum á B-hliðinni.
Tónlist er af þjóðlagaættinni, en
þó er það alls ekki einhlltt, þvi
þeir bregða fyrir sig bæði léttu
rokki og skemmtilegum djass-
sveiflum.
Ekkert eitt lag sker sig úr á
þessari plötu. Lögin eru jöfn, og
það er sterkur heildarsvipur á
plötunni, tónlistarlega. Að mfn-
um dómihefurÞokkabótþó gert
betur I tónlist, hvað einstökum
lögum viðvikur, þótt heildin hafi
aldrei verið jafn góð, og á ég þá
við lögin á Kreppu-plötunni,
Hagvaxtartimburmenn og
Þambara Vambara, sem eru
tvö beztu lög Þokkabótar.
Á sama tima og flestir Is-
lenzkir popphljómlistarmenn
sniða plötur sinar eftir vin-
sældasjónarmiðum og reyna áð
gera þær á allan hátt að sem
mestum söluvarningi, fetar
Þokkabót aðrar leiðir, og að
mlnum dómibetrileiöir. Þaö er
alltof sjaldgæft, að popphljóm-
listarmenn hafi eitthvað aö
segja á plötum sinum, og þvi er
ánægjulegt aö vita til þess,
að einhverjir tónlistarmenn eru
reiðubúnir til þess að tjá hug
sinn um málefni, sem skiptar
skoðanir eru um — og þar með
taka þá áhættu, aö skoöanir
þeirra verði til þess, að einhver
hópur manna sniögengur plöt-
una. Hér á Mál og menning, sem
gefur plötuna út, að sjálfsögðu
hlut að máli, en þess ber aö geta
að Þokkabót var ekki falið aö
semja tónverk um hersetuna.
Vonandi fáum viö meira aö
heyra frá Þokkabót um herinn
og hersetuna á næstu plötu, þvi
enn hafa þeir aðeins gert þessu
lauslega skil. Þá fáum við von
andi tónverk, sem bæði spannar
A-hlið og B-hlið, því óneitanlega
er það galli þessarar plötu,
hversu tviskipt hún er.
G.S.
Meistaraiuim.
Bob Dylan — Hard Rain
Columbia/FACO
Einn merkasti tónlistarviðburð-
ur Bandarikjanna á þessu ári er
hljómleikaferðalag Bob Dylans
með flokknum Rolling Thunder
Revue um þver og endilöng
Bandarikin.
Dylan safnaði i kringum sig
hóp tónlistarmanna, og voru
flestir þeirra vinir Dylans. Má
nefna þá þekktustu, eins og
Joan Baez, Roger McGuinn og
Jack Elliot.
Nú hefur Dylan sent frá sér
plötuúr ferðalaginu, Hard Rain,
sem þvi miður inniheldur ekki
þau nöfn, sem áður greindi, með
Dylan, heldur rokkhluta Dyl-
ans, sem gefur litla mynd af
þessu merkilega feröalagi.
Meðal undirleikara má nefna T-
Bone Burnette, David Mans-
field, Howard Wyett, Rob
Stoner, Scarlet Rivera og Mick
Ronson, allt góöir hljóðfæra-
leikarar.
Hann hefur tekið þann kostinn
að hrófla sem minnst við upp-
tökunum, sem oft eru ekki nógu
góðar, þannig aö „sándiö” er
ekki upp á það bezta i sumum
lögunum, og öllmistök koma vel
fram, þegar þvi er að skipta.
Lögin eru öll af eldri plötum
hans, og það yngsta er „Oh Sis-
ster of Desire”. Útsetningum
laganna hefur hann breytt,
„rokkað þau upp”.
Sumar breytingar takast vel,
eins og „Maggie’s Farm”, aðr-
ar illa, eins og „Lay Lady,
Lay”, sem er klúður. Hard Rain
er engin Desire, og hún hefði
getað orðið miklu betri með
meiri vinnu og betra starfi upp-
tökumanna.
G.G.
I