Tíminn - 31.10.1976, Síða 40
t
Sunnudagur
31. október 1976
__________;____/
Auglýsingasími
Tímans er
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skóiavörðustig 10 - Simi 1-48-06
Fisher Price leikjóng
eru heimsjrag
Póstsendum
Brúðuhús
Skólar
Benzinstöðvar
Sumarhus
Flugstoðvar
Bilar
/>ALLAR TEGUNDIR-
FÆRIBANDAREIMA
FYRIR
Lárétta
fsrslu
Einnig: Færibandareimar úr
ryAfriu og galvaniseruAu stáli
ÁRNt ÓLAFSSON & CO.
___________ 40088 •s 40098----
— Veistu hvaö
óbyrgir þjóö-
féiagsþegnar gera
ntina?
— Nei, hvað?
— Leita aö svörum
viö spurningum
Gylfa.
Næg atvinna og
ágæt lífskjör
MÓ-Reykjavík — Ibúar
Blönduóss eru nú orðnir
810-820/ og fjölgar þar
stöðugt. Þar hefur um
fjölda ára verið næg
atvinna og lífskjör ágæt.
Atvinnan byggist á
þjónustu við sveitirnar í
kring og á síðustu árum
hefur þar einnig risið all-
nokkur iðnaður, sem sífellt
er unnið að þvi að ef la. Þá
er hugur í nokkrum
mönnum á Blönduósi að
auka útgerð/ og nú er þar
að hefjast bygging rækju-
verksmiðju.
Hitaveita á næsta leiti
Fyrir nokkrum árum keypti
Blönduós stóran hluta af hita-
veituréttindum aö Reykjum viö
Reykjabraut, og i sumar var þar
boraö fyrir heitu vatni. Þar komu
upp 50-60 litrar á sek, af 70 gráöu
heitu vatni, og er þaö vatnsmagn
meira en nægjanlegt til aö hita
þorpiö upp.
Nú er unniö aö þvi aö hanna
hitaveitu fyrir Blönduós, og er
þegar búiö aö ákveöa hvaöa leiö
Teiöslan veröur lögö frá Reykjum.
Nánar tiltekiö liggur hún rétt hjá
Meöalheimi og þaöan beint til
Blönduóss, og er leiðin alls um 13
km.
Aö sögn sveitarstjórans á
Blönduósi, Einars Þorlákssonar,
er nú unniö aö þvi aö ganga frá
hönnun verksins, og eru menn
væntanlegir til Blönduóss á næstu
dögum til aö kynna verkiö fyrir
heimamönnum. Einar sagöi aö
hitaveitan myndi hafa forgang af
verkefnum sveitarsjóös á næstu
árum og vonuðust menn til að
ekki yröi þess langt aö biöa, aö
hægt væri aö leiða þar heitt vatn i
hús.
Nær 50 íbúðir í smiðum
Einar sagöi aö nú væru um 30
einbýlishús i smiöum á Blönduósi
á ýmsum byggingarstigum, en á
undanförnum árum hefur mikiö -
veriö um byggingarfram-
kvæmdir i þorpinu. Þá er aö
veröa fokheld blokk, sem i veröa
14 íbúöir, en blokkin er byggö á
vegum sveitarfélagsins
samkvæmt lögum um byggingu
leiguibúöa á vegum sveitar-
félaga. Auk þessa er raöhús i
smiöum, en i þvi veröa þrjár
ibúöir.
Ráögert er aö blokkin meö
leiguibúöunum veröi tilbúin i
febr. 1978, en þessa dagana er
veriö aö ganga frá sperrum undir
þakiö. Þaö eru trésmiöafyrirtæk-
in Fróði og Stigandi á Blönduósi,
sem annast byggingu blokkar-
innar i sameiningu, og sagöi
sveitarstjórinn aö fyrirtækin
heföu fariö inn á nýja braut meö
þvi aö vinna svona saman aö
stærri verkefnum.
Tvö hundruð þúsund trefl-
ar
Nýlega geröi Pólarprjón á
Blönduósi samning um aö fram-
leiöa 200 þúsund trefla, sem selja
á til Rússlands. Þessi samningur
er hluti af stærri samningi, sem
Alafoss geröi, en alls mun
samningurinn hafa hljóöaö upp á
600 þúsund trefla.
— Þessi framleiösla bætist viö
aöra framleiðslu, sem i gangi
hefur verið hjá Pólarprjóni, sagöi
Zophanias Zophaniasson á
Blönduósi i viötali viö Tlmann.
Viö veröum þvi aö kaupa 5 nýjar
prjónavélar til aö geta annaö
þessu, en verkefninu á aö vera
lokiö á næsta ári. Þessar vélar
veröa allar komnar i notkun fyrir
áramót.
Nú eru 9 prjónavélar I eigu
Pólarprjóns og framleiða þær um
400 kg af prjónuöu efni á sólar-
hring. Þetta efni er siöan bæöi
unniö i saumastofu fyrirtækisins,
eöa selt til annarra saumastofa
viös vegar um land.
Zophanias sagöi, aö nú ynnu um
40manns hjá Pólarprjoni en þetta
nýja verkefni þýddi það, aö fjölga
yrði starfsliöi um 10 manns auk
þess sem 15 til 18 konur fengju
heimaverkefni viö aö ganga frá
treflunum.
Eigið húsnæöi fyrirtækisins er
nú um 300 m2, en auk þess hefur
fyrirtækið 200 m2 leiguhúsnæöi,
og fær 120 m2 til viöbótar til aö
geta sinnt þessu nýja verkefni.
Sala á framleiöslunni hefur
gengiö vel, aö sögn Zophoniasar,
og fer eftirspurnin sifellt vaxandi.
Hann sagöi, að nokkuö gott verö
fengist fyrir framleiösluna i
Bandarikjunum og Vestur-
Evrópu. Veröiö i Rússlandi væri
nokkuö lægra, en þar væri hins
vegar hægt aö selja meira magn i
einu, og gæti því oft veriö eins
hagkvæmt aö selja þangaö. T.d.
væri óvanalegt aö fá jafnstóran
samning og þennan treflasamn-
ing, sem nú er nýgeröur. — En
þaö sem mest stendur okkur fyrir
þrifum, sagöi Zophonias er, aö
þaö er erfitt aö fá nægiiega mikið
af fólki i vinnu, og þvi treystum
viö okkur ekki til aö taka stærri
hluta af þessum treflasamningi,
en við geröum.
Mikil samstaða og vilji
heimamanna
Tvö fyrirtæki hafa veriö á
Blönduósi, sem unniö hafa vörur
úr plasti. Starfsemi þeirra hefur
gengiö misjafnlega, en nú er ein-
hver skriður aö komast á aö fyrir-
tækiö Osplast veröi endurskipu-
lagt frá grunni.
Þorsteinn Húnfjörð nýráðinn
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
sagöi i viötali við Timann, aö
Kaupfélag Húnvetninga, Blöndu-
óshreppur og Trésmiðjan Fróöi
hefðu ásamt um 100 einstakl-
ingum sem hlut eiga i fyrirtæk-
inu, samþykkt, að leggja fram
um 20 millj. kr. i hlutafé meö þaö
fyrir augum aö reksturinn veröi
endurskipulagður og fjármagn
tryggt til aö hægt verði aö auka
vélakost fyrirtækisins verulega.
Blönduóshreppur á 4000 m2
húsnæöi, sem hreppurinn keypti
fyrir nokkrum árum og ætlar aö
leigja það iönfyrirtækjum. Búiö
er aö úthluta ósplasti hluta af
þessu húsnæöi og aöallega er
áformaö aö framleiddar verði
plastvörur fyrir byggingariönaö-
inn.
Þorsteinn Húnfjörð sagði, aö
þessa dagana væri hann að
þeytast milli þeirra aðila, sem
opinberri fyrirgreiöslu ráöa.
Vissulega væri slikt starf mikil
pislarganga. En þaö er allt i lagi
að leggja mikiö á sig, sagöi Þor-
steinn, með tilliti til eindregins
vilja og góðrar samstööu heima-
manna um að efla þennan iönað
og þetta fyrirtæki.
Byggt yfir rækjuverk-
smiðju.
Nýlega hófst fyrirtækið Særún
h.f. handa um aö byggja húsnæöi
yfir starfsemi sina. Þetta veröur
450 m2 hús, sem áformaö er aö til-
búiö verði til notkunar næsta
haust. Áætlaöur byggingarkostn-
aöur er 22-23 millj. kr.
Kári Snorrason stjórnarfor-
maöur Særúnar sagöi I viötali viö
Framhald á bls 37
PALLI OG PESI