Fréttablaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 4
4 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
BAKÚ, AP Lögreglan í Bakú, höfuð-
borg Aserbaídsjan, þurfti að hafa
hendur í hári fjölda mótmælenda
sem söfnuðust saman til að krefjast
þess að kosningar færu fram í land-
inu á ný.
Þetta var í fyrsta sinn síðan
kosningarnar fóru fram þann 6.
nóvember sem lögreglan þurfti að
beita mótmælendur valdi. Halda
þeir því fram að brögð hafi verið í
tafli við talningu atkvæðanna. - fb
Kosningar í Aserbaídsjan:
Lögreglan
beitti valdi
Drukknir ökumenn Fjórir stútar voru
við stýri í Hafnarfirði í nótt. Ökumenn-
irnir voru handteknir af lögreglunni í
Hafnarfirði og færðir til skýrslutöku.
Snemmbúin flugeldasýning Um
klukkan 12 á miðnætti á laugardags-
kvöld var kveikt í flugeldatertu við hús
í Kópavogi. Kvartanir bárust frá íbúum
nágrennisins vegna ónæðis. Lögreglan í
Kópavogi vill minna á að ekki er heimilt
að skjóta upp flugeldum nema á gaml-
ársdag og á þrettándanum.
Útafakstur í hálku Bíl var ekið út
af við Eyrarbakkaveg á Suðurlandi um
níuleytið í fyrrakvöld. Nokkur hálka var á
veginum. Engin slys urðu á fólki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KÓPAVOGUR Hátt í átta hundruð
umsóknir bárust Kópavogsbæ um
byggingarétt á
Kópavogstúninu
svonefnda en það
stendur uppi af
sjálfum Kópa-
voginum. Á því
eru meðal annars
byggingar gamla
Kópavogshælisins
sem Landspítal-
inn hefur nú til
umráða.
Ráðgert er að
reisa samtals 173
íbúðir á túninu,
jafnt einbýli sem fjölbýli.
Flosi Eiríksson, bæjarfull-
trúi Samfylkingarinnar, er meðal
umsækjenda um byggingarétt og
hefur hann sagt sig frá umfjöllun
og afgreiðslu umsókna í bæjarráði.
- bþs
Ásókn í lóðir á Kópavogstúni:
Flosi meðal
umsækjenda
Ný stjórn ungliðahreyfingar VG
Sveinn Rúnar Einarsson tekur við stöðu
formanns ungliðahreyfingar Vinstri
grænna í Kópavogi af Emil Hjörvari
Petersen. Þetta ákvað ungliðahreyfingin
á aðalfundi sem haldinn var að loknu
prófkjöri VG í Kópavogi á laugardag.
STJÓRNMÁL
FLOSI EIRÍKSSON
BÆJARFULLTRÚI
Er í hópi fjölda
umsækjenda um
lóðir á Kópavogs-
túni.
NETTENGINGAR Flutningsgjöld um
Farice-sæstrenginn eru allt að
ellefu til átján sinnum hærri en
flutningsgjöld í nágrannalöndum
Íslands. Guðmundur Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Farice, segir
þann samanburð þó ekki sann-
gjarnan miðað við stærð markað-
ar hér á landi. „Við erum hér ein
þjóð úti í hafi og erum ein að borga
undir þetta allt saman,“ segir Guð-
mundur. „London og New York eru
til dæmis milljónasamfélög sem
eru að nota sams konar þjónustu í
miklu meiri mæli.“
Farice er annar tveggja str-
engja sem liggja til Íslands. Hinn
strengurinn er CANTAT þrír. Sá
strengur er orðinn ellefu ára gam-
all og flutningsgeta hans er mun
minni en hjá Farice en Guðmundur
segir Farice ekki hafa séð sér fært
að bjóða jafn lágt verð og gert er
hjá CANTAT. „Verðskráin endur-
speglar kostnað við að reka streng-
inn og borga niður fjárfestinguna á
bakvið hann. Við erum ekki að taka
inn hagnað og hátt verð liggur alls
ekki í álagningu af okkar hálfu,“
segir Guðmundur.
Guðmundur segir ef eftirspurn
yrði eftir flutningsgetu ykist
myndi það leiða til verðlækkunar.
Að undanförnu hafa hátæknifyrir-
tæki flutt starfsemi sína úr landi.
Ástæður þess eru margvíslegar
en ein sú helsta er hátt gengi krón-
unnar. Viðskiptaumhverfi á Íslandi
er einnig óhagstætt að mörgu öðru
leyti, meðal annars vegna hás verðs
flutningskostnaðar, lítillar flutn-
ingsgetu sæstrengjanna og skorts
á öryggi þeirra þar sem samband
rofnar oftar en eðlilegt þykir.
„Ljóst er að til þess að ýmiss
konar viðskipti geti dafnað hér
á landi og hingað komi viðskipta-
félög með nýja starfsemi verður
eitthvað að gerast í þessari verð-
lagningu og auknu öryggi,“ segir
Guðmundur og tekur undir að
ákveðin pattstaða ríki í þessum
málum. Farice hafi ekki möguleika
á að lækka flutningsgjöldin nema
fá fleiri fyrirtæki í viðskipti við sig
en fyrirtækjum þyki verðlagning
há. „Svo eru hátæknifyrirtækin
farin að flýja land vegna hás geng-
is krónunnar og það er mjög vond
staða,“ segir Guðmundur. „Síðast-
liðin tvö ár hafa erlend fyrirtæki
sýnt áhuga á því að koma hingað
með nýja starfsemi en það sem
fælir þau frá er há flutningsgjöld
og að öryggi Farice hefur ekki
verið nóg. Það ætti að vera hægt að
laga þetta. Ríkið hefur stutt ágæt-
lega við þetta dæmi hingað til og
það verður engin breyting til batn-
aðar nema með samstarfi ríkis og
atvinnulífsins.“
johannas@frettabladid.is
Dýrari og ótraustari
nettenging Farice
Flutningsgjöld um Farice eru dýrari en í nágrannalöndunum. Verðlækkanir
verða ekki nema með auknum viðskiptum. Óhagstætt viðskiptaumhverfi skap-
ar pattstöðu sem ekki verður leyst nema með samstarfi ríkis og atvinnulífs.
GUÐMUNDUR GUNNARSSON, FRAM-
KVÆMDASTJÓRI FARICE Pattstaða ríkir á
íslenskum viðskiptamarkaði meðal annars
vegna hárra flutningsgjalda um sæstrengi
og skorti á öryggi þeirra.
ÓTRAUST OG DÝR TENGING Farice-sæstrengurinn liggur frá Skotlandi til Íslands. Öryggi hans
hefur verið ábótavant og flutningsgjöld eru dýr. Farice hefur ekki kost á að lækka gjöldin
fyrr en viðskiptaumhverfið verður hagstæðara.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 25.11.2005
Gengisvísitala krónunnar
63,06 63,36
108,43 108,95
9,929 9,987
7,794 7,84
9,405 9,461
0,5282 0,5312
89,67 90,21
74,08 74,5
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
104,5603
SPÁNN, AP Búist er við miklu hvass-
viðri af völdum hitabeltisstorms-
ins Delta á Kanaríeyjum í dag.
Delta var yfir miðju Atlants-
hafi í gær og var vindhraði hans
síðdegis um 65 km/klst. og fór í 80
km/klst. í mestu byljunum.
Veðurfræðingar eiga von á því
að stormurinn nái yfir eyjarnar
í dag. Ekki er hægt að spá fyrir
um hvaða óskunda hann veldur
því búist er við að heldur dragi
úr krafti hans þegar hann nálgast
eyjarnar.
Delta er tuttugasti og fimmti
stormurinn á Atlantshafi í ár, en
stormar yfir hafinu hafa aldrei
mælst fleiri. ■
Kanaríeyjar:
Búist við miklu
hvassviðri
EVRÓPA, AP Mikil vetrarveður
herjuðu á stóran hluta Evrópu
um helgina. Rafmagn hefur sums
staðar farið af, flugi verið aflýst
og umferðaröngþveiti myndast á
hálum þjóðvegum.
Miklar rigningar skemmdu
uppskeru á Ítalíu og ollu flóðum
víðs vegar um landið. Var fólk
sums staðar beðið um að yfir-
gefa heimili sín á meðan ástandið
varir.
Austurríkismenn vöruðu við
hættu á snjóflóðum í Alpafjöllum
í gær og vöruðu yfirvöld skíða-
fólk við því að fara af merktum
skíðaleiðum. Í Belgíu fór rafmagn
af stórum hluta landsins vegna
veðurs. Belgískur útigöngumað-
ur lést úr kulda en tveir félag-
ar hans voru fluttir á sjúkrahús
vegna ofkælingar. Þremenning-
arnir fundust í anddyri kirkju í
Brussel.
Hundruð breskra vegfarenda
sem urðu strandaglópar vegna
veðurs og ófærðar komust loks
til síns heima á laugardag með
aðstoð breska hersins. ■
Vetrarveður veldur vandræðum í Evrópu:
Miklir kuldar og snjóar
VETRARVEÐUR Vetrarhörkur hafa eyðilagt
uppskeru í Ítalíu síðustu dagana. Þessi
mynd var tekin í Mílanó í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EGYPTALAND, AP Egypski stjórn-
málaflokkurinn Bræðralag mús-
lima, sem bannaður var fyrir 51 ári
síðan, tilkynnti í gær að hann væri
búinn að vinna 76 af 454 sætum
í egypska þinginu. Annar áfangi
egypsku þingkosninganna af þrem-
ur fór fram á laugardag og í þeim
vann flokkurinn 29 sæti til viðbótar
þeim sem hann hefur þegar unnið.
Þriðji áfangi kosninganna mun eiga
sér stað 1. desember.
Þó Bræðralag múslima sé opin-
berlega bannað er flokkurinn
viðurkenndur sem mikið áhrifavald
á bak við tjöldin í egypskum stjórn-
málum. Flokkurinn er stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn á
egypska þinginu. ■
Þingkosningar í Egyptalandi:
Kjósa bannaða
KJÓSANDI HANDTEKINN Egypskir lögreglu-
menn handtaka mann fyrir utan kjörstað á
laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP