Fréttablaðið - 28.11.2005, Side 10
10 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
BARNAVERND Á fyrstu þremur
fjórðungum þessa árs bárust
Barnaverndarstofu alls 3.648
tilkynningar um brot gegn 3.576
börnum.
Af þeim bárust 71,9 prósent
tilkynninganna frá höfuðborg-
arsvæðinu og 28,1 prósent frá
landsbyggðinni. Ástæður til-
kynninga skiptast þannig að 46,7
prósent eru vegna áhættuhegð-
unar barna, 35,6 prósent vegna
vanrækslu, 17,3 prósent vegna
ofbeldis, og 0,4 prósent vegna
gruns um að heilsa eða líf ófædds
barns sé í hættu.
Barnaverndarstofa heldur utan
um fjölda tilkynninga sem berast
barnaverndarnefndum landsins,
en sískráning brota hófst í byrj-
un þessa árs. Síðan í febrúar árið
2004 hefur Neyðarlínan tekið við
tilkynningum um brot gegn börn-
um, en enn berast langflestar til-
kynningar beint til barnavernd-
arnefnda, um 95 prósent allra
tilkynninga. Langflestar tilkynn-
ingar sem berast Neyðarlínunni
eru vegna mála í Reykjavík.
Ef grunur leikur á að líf barns-
ins sé í hættu sendir Neyðarlínan
lögreglu og sjúkrabíl á svæðið.
Sé um annan forgang að ræða
sendir Neyðarlínan málið til
starfsmanns viðkomandi barna-
verndarnefndar, en alltaf er
starfsmaður á bakvakt, berist
tilkynningin utan venjubundins
vinnutíma. Að öðru leyti er málið
sent viðkomandi barnaverndar-
nefnd í býtið daginn eftir að til-
kynning berst.
Ef grunur leikur á að brotið sé
gegn barni ber fólki samkvæmt
lögum að tilkynna það.
„Sú skylda hvílir á hverjum og
einum að ef grunur vaknar um að
barn búi við slæman aðbúnað að
tilkynna það til barnaverndar,“
segir Þórhildur Líndal lögfræð-
ingur, sem starfaði í áratug sem
umboðsmaður barna. „Það er
mikil hagræðing í því að nú er
bara eitt númer sem hægt er að
hringja í til þess tilkynna grun
um brot, ég held það sé mikið til
hins góða og auðveldi fólki að til-
kynna.“
smk@frettabladid.is
Fundarstjóri verður Sigurður Brynjólfsson,
forseti Verkfræðideildar.
Allir velkomnir.
Stjórn VHÍ
Dagskrá:
16:00 Setning.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra.
16:10 Verkfræðileg nálgun við banka.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka Íslands.
16:30 Súrefnisrannsóknir og sprotafyrirtæki.
Samstarf verkfræðinga og lækna í lífverkfræði.
Einar Stefánsson, Landspítali – Háskólasjúkrahús.
16:50 Viðurkenning Verkfræðistofnunar fyrir
framúrskarandi rannsóknarframlag.
Magnús Þór Jónsson, formaður stjórnar VHÍ.
16:55 Viðurkenningar til bestu meistaranema í verkfræði.
Agnar Már Jónsson, forstjóri Opinna kerfa ehf.
17:00 Ársskýrsla Verkfræðistofnunar HÍ.
Magnús Þór Jónsson, formaður stjórnar VHÍ.
17:10 Léttar veitingar og spjall.
Ársfundur Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands
verður haldinn í Öskju, Sturlugötu 7, miðvikudaginn
30. nóvember, frá kl. 16:00–18:00.
ÁRSFUNDUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
3
7
0
ALÞINGI Lagafrumvarp um rann-
sóknarnefndir hefur verið lagt
fram á Alþingi.
Frumvarpinu er ætlað að bæta
úr þeirri staðreynd að í íslensk-
um lögum er ekki gert ráð fyrir
skipun almennra og óháðra rann-
sóknarnefnda, sem rannsakað
geta mál yfirvalda eða stjórn-
valdsathafnir er varða almanna-
hag. Slíkar nefndir og lög um þær
er að finna í mörgum nágranna-
ríkjanna.
Ágúst Ólafur Ágústsson, vara-
formaður Samfylkingarinnar,
er fyrsti flutningsmaður frum-
varpsins.
- smk
Rannsóknarnefndir:
Frumvarp á
Alþingi
RÉTTINDABARÁTTA Alþjóðleg sam-
tök launafólks í almannaþjónustu
(PSI) vilja að Almennt samkomu-
lag um verslun á sviði þjónustu
(GATS) verði stöðvað uns ríkis-
stjórnir þróuðu ríkjanna hafa gert
samkomulag við verkalýðshreyf-
inguna og samtök sem berjast
fyrir almannahag um Almennt
samkomulag um almannaþjón-
ustu (GAPS).
Ögmundur Jónasson, formað-
ur Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja og þingmaður Vinstri
grænna, á sæti í stjórn PSI en
stjórnarfundi samtakanna er
nýlokið. Á fundinum kom fram
að lítill vilji væri innan Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar til að
hægja á kröfunni um einkavæð-
ingu almannaþjónustu, hvað þá að
vinna að samkomulagi um GAPS.
Af hálfu launþegasamtakanna
snýst hugmyndin um GAPS um að
skilgreina mannleg, félagsleg og
efnahagsleg réttindi, skylda ríkis-
stjórnir til að tryggja réttindin
og fjalla um leiðir til að ná skil-
greindum markmiðum.
- bþs
Heimssamtök launþega vilja stöðva GATS-samningana og treysta réttindi fólks:
Mannleg réttindi verði skýrð
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Situr í stjórn PSI.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ALMANNATRYGGINGAR Forsvars-
menn Félags eldri borgara í
Reykjavík gengu á fund umboðs-
manns Alþingis í síðustu viku í
leit að svörum um hvort breyt-
ingar í reglugerðum Heilbrigð-
isráðuneytisins gengu þvert
á lög um almannatryggingar.
Breytingar þessar hafa stöðvað
greiðslur Tryggingastofnunar
til fjölmargra ellilífeyrisþega.
Umboðsmaður hefur því farið
fram á að heilbrigðisráðuneytið
rökstyðji á hvaða lagagrund-
velli breytingarnar voru gerð-
ar og ber ráðuneytinu að svara
ekki síðar en 1. desember.
„Við vonumst auðvitað til að
reglugerðin verði einfaldlega
dregin til baka,“ segir Mar-
grét Margeirsdóttir, formaður
félagsins.
- smk
Umboðsmaður Alþingis:
Vill útskýringu
ráðuneytisins
FUGLAFLENSUÆFING Læknar í Hanoi í Víet-
nam þykjast sinna sjúklingi, en fuglaflensu-
æfing var haldin í borginni í gær. Um 900
manns tóku þátt í æfingunni, sem haldin
var svo heilbrigðisyfirvöld í landinu gætu
verið sem best undirbúin ef fuglaflensufar-
aldur brýst út. Yfir fjörutíu manns hafa látist
úr fuglaflensu í Víetnam síðan árið 2003.
MYND/AP
FJARSKIPTI Á laugardaginn var
settur upp fjarskiptaendurvarpi
á Hjörleifshöfða. TF-LÍF, þyrla
Landhelgisgæslunnar, flutti bún-
aðinn og rafgeyma á staðinn og
sáu meðlimir björgunarsveitar-
innar Víkverja
ásamt Sigurði
H a r ð a r s y n i
rafendavirkja
um uppsetn-
inguna.
Endurvarp-
anum er ætlað
það hlutverk
að auka sam-
sk iptaör yggi
ef kemur til
e ld su mbr ot a
í Kötlu. Fyrir eru endurvarpar á
Háfelli og í fjallinu Höttu en hugs-
anlegt er að eldgos gæti haft áhrif
á virkni þeirra. - saj
Endurvarpi á Hjörleifshöfða:
TF-LÍF flytur
búnað á fjall
NEYÐARLÍNAN Neyðarlínunni 112 berast
aðeins um fimm prósent allra tilkynninga
um brot gegn börnum.
Langflest brot á höf-
uðborgarsvæðinu
Langflestar tilkynningar um brot gegn börnum berast frá höfuðborgarsvæðinu,
rúm sjötíu prósent. Af öllum tilkynningum um brot gegn börnum berast 95
prósent tilkynninganna beint til barnaverndarnefnda.
TIL BÓTA Þórhildur Líndal var umboðsmaður barna í áratug. Hún segir það vera mikið til
bóta að nú sé hægt að tilkynna grun um brot gegn börnum til Neyðarlínunnar.
VERÐLAUN Þróunarfélag mið-
borgarinnar afhenti síðastlið-
inn föstudag Hótel Reykjavík
Centrum viðurkenningu fyrir að
„hafa með framúrskarandi hætti
stuðlað að þróun og uppbyggingu
í miðborg Reykjavíkur,“ eins og
segir í tilkynningu. Við sama
tækifæri var Frank Michael-
sen úrsmíðameistara afhentur
Njarðarskjöldurinn. Skjöldur-
inn er veittur sem viðurkenning
til þeirra sem þykja hafa rekið
ferðamannaverslun ársins.
Bygging hótelsins við Aðal-
stræti á sér nokkuð sérstæða sögu
þar sem skálarústir frá landnáms-
öld komu í ljós þegar hafist var
handa við gröft. Á næsta ári verð-
ur opnuð sýningaraðstaða undir
hótelinu þar sem hægt verður
að virða fyrir sér rústirnar. Sér-
stakt lof fær hótelbyggingin sjálf
þar sem gamli timburhúsastíllinn
hefur verið endurlífgaður.
Úrsmíðaverkstæði Franks
Michaelsen á rætur sínar að rekja
til ársins 1909 er Frank opnaði
sína fyrstu verslun á Sauðárkróki.
Í dag er úrsmíðaverkstæðið rekið
af Frank Michaelsen hinum þriðja
ásamt Róbert Michalsen syni
hans. - saj
Hótel Reykjavík Centrum og Frank Michaelsen fá viðurkenningar:
Þróunarverðlaun miðborgar
NJARÐARSKJÖLDURINN AFHENTUR Stefán Jón Hafstein afhendir Frank Michaelsen Njarðar-
skjöldinn á föstudag.
UNNIÐ VIÐ UPP-
SETNINGU Björg-
unarsveitin Víkverji
sá um uppsetningu
endurvarpans.