Fréttablaðið - 28.11.2005, Page 20

Fréttablaðið - 28.11.2005, Page 20
 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR20 Stuðningur sem þú treystir, þægindi sem þú elskar ���������� Við uppeldi barna telst það án efa mikilvægt að lagðar séu skýrar og einfaldar línur um það sem má og það sem má ekki. Það er mikilvægt að ekki séu send misvísandi skila- boð þannig að til verði stórt grátt svæði sem getur verið freistandi að fara inn á og yfir. Þetta á ekki hvað síst við um hegðun okkar í umferðinni þar sem 24 einstaklingar látast að meðaltali á hverju ári. Hvaða skilaboð send- um við ökumönnum framtíðarinnar - börnunum okkar? Getur verið að unglingur, nýkominn með bílpróf og nýbúinn að missa ökuréttindin vegna hraðaksturs, geti rifjað það upp að faðir hans eða móðir hafi stært sig af því að hafa komist milli Akureyrar og Reykjavíkur á innan við 4 klukkustundum. Getur verið að hann rifji þetta upp um leið og hann hlustar á skammir foreldr- anna yfir því að hann hafi ekið sjálf- ur of hratt. Getur verið að hann hafi heyrt annað þeirra stæra sig af því að hafa einu sinni ekið á meira en 170 km hraða að nóttu til að því að þar var engin lögregla þar á ferð? Sitjandi undir skömmunum liggur beinast við að unglingurinn spyrji, „En þú?“ Það koma óneitan- lega fram misvísandi og ruglandi skilaboð til hvolpsins ef eigandinn leyfir honum og jafnvel hvetur hann til að flaðra upp um sig þegar hann er í vinnugallanum en bannar honum það hinsvegar þegar hann er í sparifötunum. Dýrið áttar sig ekki á muninum á Ralph Lauren jakka- fötum og vinnuslopp. Hvernig á dýrið að skilja það að stundum má og stundum ekki. Þarf barnið þitt að velta því fyrir sér af hverju þú mátt gera eitthvað sem aðrir mega ekki? Barn eða unglingur sem verður vitni að því að foreldri þess ekur eftir að hafa dreypt á áfengi upplif- ir óneitanlega undarlega þversögn í því að verða sjálft á unglingsaldri skammað af sama foreldri fyrir það að aka undir áhrifum áfengis. Með þessu er ekki verið að segja að engir þeirra foreldra sem með einum eða öðrum hætti hafa gert mistök eða sýnt dómgreindarleysi í umferð- inni hafi leyfi til að leggja börnum sínum línurnar. Þeim ber skylda til þess. Það er aðeins verið að benda á það að við þurfum að vera meðvituð um það hvaða skilaboð við sendum börnunum. Ef þú ert foreldri þá mundu að það er fylgst með þér. Það er jafnvel verið að afrita hegð- un þína og afstöðu. Ekki viltu vita af barninu þínu akandi undir áhrifum áfengis eða á ofsahraða? Ef þér verður á að gera mistök þá er einfaldast og best að viðurkenna mistökin fyrir barninu. „Æ - þetta hefði ég ekki átt að gera.“ Játaðu glæpinn fyrir ökumanni framtíðarinnar og þú ert líklega að forða barninu þínu frá því að apa hann eftir þér með ófyrirsjáanleg- um afleiðingum. Höfundur er upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Ertu góð fyrirmynd? Barn eða unglingur sem verður vitni að því að foreldri þess ekur eftir að hafa dreypt á áf- engi upplifir óneitanlega und- arlega þversögn í því að verða sjálft á unglingsaldri skammað af sama foreldri fyrir það að aka undir áhrifum áfengis. Súsanna Svavarsdóttir skrifar um heilbrigt líferni í Bakþönkum síð- astliðinn föstudag, á þeim nótum að stundum sé betra að stilla heil- brigðinni í hóf, og láta eftir sér eitt og annað. Hún endar greinina síðan á því að færa reykingafólki góðar fréttir: Það séu tíu öftustu árin sem þeir missi af vegna reyk- inganna. Líklega hefur Súsanna hugs- að þetta sem kaldhæðni, en þetta gæti leitt til misskilnings og þarfnast leiðréttingar. Niðurstöð- um úr könnunum á mismun ævi- lengdar reyklausra og reykjenda hefur verið hampað talsvert til að vara fólk við óhollustu tóbaks. Gróft séð styttist ævilengdin að meðaltali um rúmlega þrettán ár. Þetta þýðir auðvitað ekki að þeir sem reyki gefi almennt upp önd- ina þrettán árum fyrr, eða sleppi við öldrunarsjúkdóma og mögu- legar stofnanainnlagnir sem þeim gætu fylgt. Sumt reykingafólk verður langlíft. Þessi þrettán ár eru hinsveg- ar meðaltalstala, og af því sumir lifa lengi, látast aðrir fyrir aldur fram, jafnvel fólk undir fertugu, úr reykingum. Lífslengdarstytt- ing, hver sem hún verður, er held- ur ekki eini ókostur reykinga. Reykingar valda mörgum kvillum t.d. þolleysi, og geta valdið sjúk- dómum, eins og lungnaþembu, sem draga þann sem reykti ekki endilega til dauða, en skerða lífs- gæði hans, kannski mun meira en öldrunartengdir sjúkdómar kynnu að gera síðar meir. Sem leiðir mig að hinum misskilningnum í nið- urlagi Súsönnu, þetta eru ekki tíu öftustu árin. Höfundur er nemi við HÍ og hefur starfað við umönnun aldr- aðra. Bakþankar Súsönnu UMRÆÐAN HRAÐAKSTUR EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON STEFÁN SIGURKARLSSON SKRIFAR UM REYKINGAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.