Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 21

Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 21
MÁNUDAGUR 28. nóvember 2005 21 AF NETINU Glæsileg sýning á dýrmætum minjagripum umdeildrar keisar- aættar Rússlands, Rómanovanna, stendur nú yfir í Listasafni Kópa- vogs. Sýningin er athyglisverð bæði fyrir fallega uppsetningu og þá sýn sem hún gefur á ytra borð keisarahirðarinnar frá valdatöku Péturs I Alekseievitch árið 1682 og fram að októberbyltingunni 1917. Þegar herlegheit hirðlífsins ber beint fyrir augu rifjast ýmis- legt upp sem enginn tími er til að lýsa nánar á slíkum yfirlitssýn- ingum. Til dæmis gerist áleitin spurningin um hvaða aðferðum keisararnir beittu til að ná völd- unum og halda þeim. Eitt skelfi- legt dæmi um afleiðingar slíkrar valdabaráttu er sagan af Ivani VI Antonovitch. Hann var sonur Antons Brunswick-Wolfenbüttel, þýsks hertoga. Ivan var krýnd- ur til keisara árið 1740 tveggja ára gamall, tilnefndur af Önnu Ivanovu sem hafði tekið við keis- aratign af Pétri II Alekseievitch. Anna Ivanova var dóttir Ivans V en frænka Péturs I. Hún og Anna Leopoldovna, móðir Ivans VI, voru náskyldar. Ivan VI og Anna Leopoldovna, móðir hans, héldu völdunum aðeins í tæp tvö ár. Þá tókst Elísa- betu I dóttur Péturs I að hrekja mæðginin frá völdum og setjast sjálf í keisarastólinn. En hvað varð þá um Ivan VI? Hefði hann samt sem áður ekki getað notið fríðinda við hirðina að minnsta kosti á við kjölturakkana þar, sem höfðu það bærilegt, eða leitað til þýskra ættingja sinna? Nei, ekki vildi Elísabet I hætta á að það gerðist, því að Ivan átti stuðningshópa í Rússlandi, sem ekki vildu Elísabetu á valdastól. Ivan var því lokaður inni í Cholm- ogori-fangelsinu og fékk að dúsa þar öll sín æskuár, jafnvel án þess að komast út undir bert loft. Á meðan sprangaði Elísabet iðulega um með hunda sína í víðfeðmum hallargörðum. Ekki hafði hún þó sálarró, að því er sagt er. Um síðir komst á allra vit- orð hvar Ivan var geymdur. En Elísabet lét þá flytja hann á laun í Schlüsselburgarfangelsið, sem fanga númer eitt. Enginn mátti þar vita hver hann í rauninni var, nema tveir sérlega útvaldir fanga- verðir hans. Aldrei lét þó Elísa- bet drepa Ivan. Þegar Elísabet I féll frá árið 1762 komst Katrín II til valda, eftir að elskhugi hennar Orlov hafði myrt Pétur (Ulrich) III sem var kvæntur Katrínu. Hún var af þýskum ættum. Upp úr þessu var gefin stjórnskipun (frá Panin) um að Ivan skyldi drepinn, ef reynt yrði að frelsa hann úr fangelsinu. Óánægjuöld- ur risu nú í Rússlandi, og kröfur um að Ivan kæmi aftur til valda. Ekki leið því á löngu áður en Ivan var myrtur í fangelsinu. Gerðist það, þegar eignalaus aðalsmaður að nafni Mirovitch freistaði þess að ná Ivani þaðan út, en kom þá að honum í blóði sínu. Utan Rússlands var talið víst, að Katrín I og valdaklíkan í kringum hana hefðu notað Mir- ovitch til þess að blása upp þetta samsæri og til að að geta klínt ódæðinu á hann. Eftir þetta var Mirovitch dæmdur til dauða, en ekki náðaður, eins og oft var gert í slíkum tilvikum. Borið hafði verið gull á fangaverði Ivans. Eftir að Mirovitch var allur fannst ekkert vitni, sem hefði þorað að segja frá íhlutun Katrínar og hennar fylgifiska í málið. ■ Af örlögum Ivans VI LÍNEY SKÚLADÓTTIR OG SKÚLI SKÚLASON SKRIFA UM SÝNINGU UM RÓMANOVANA Hreppapólitík Þingmenn Suðurkjördæmis eru hins vegar ekki ánægðir. Að sögn er almenn samstaða meðal þeirra um að krefjast nú tvöföldun Suðurlandsvegar að Sel- fossi. Fyrirmyndin er tvöföldun Reykja- nesbrautar, en ein ástæðan fyrir því að farið var í þá framkvæmd var m.a. tíð slys á þeim vegi.[...] En það er eins og hjarta þingmanna Suðurkjördæmis sé bara á Selfossi, ekki í Grindavík eða á Þorlákshöfn. At þeirra fyrir breikkun Suðurlandsvegar hefur ekkert með skynsamlega forgangsröðun í vegamál- um að gera; það er hreinræktuð hreppa- pólitík. Sverrir Jakobsson á murinn.is Gissur eða James Earl Jones? Ég verð að segja, að mér finnst NFS, Nýja fréttastöðin fara frábærlega af stað. Ég er ansi hræddur um að það komist fljótt upp í vana að fá fréttirnar beint í æð um leið og þær gerast. Eitt helsta aðalsmerki alþjóðlegu frétta- stöðvarinnar CNN er dimm og skugga- leg rödd stórleikarans James Earl Jones sem tilkynnir hátíðlega: This is CNN. Við Íslendingar eigum að sjálfsögðu svar við því. Gissur Sigurðsson, sem hokinn er af reynslu úr áratuga fréttamennsku, er fenginn til að segja áhorfendum að þeir séu að horfa á NFS. Og hvor skyldi vera betri, Gissur eða Earl Jones? Ég held að okkar maður taki þetta... Björn Ingi Hrafnsson á bjorningi.is Riddarasveit í Skagafjörð Annars hugsaði ég til þess eftir fyrir- spurnatímann að það væri eins gott að ég spurði Björn ekki í einhverjum hálfkæringi út í það hvort það ætti að stofna sérstaka riddarasveit í Skagafirði í ljósi þess að það er landsmót þar næsta sumar. Það er aldrei að vita nema Björn hefði gripið þessa hugmynd á lofti. Það væri í anda þess að dómsmálaráðherra vill hafa víkingasveit í hverjum lands- fjórðungi. Sigurjón Þórðarson á sigurjon.is Útlit frétta Nýtt Kastljós með nýrri sviðsmynd og nýju setti leit svo dagsins ljós og áður en langt var um liðið gerðist slíkt hið sama í Ísland í dag; þar var starfsmönnum fjölgað og þættinum breytt. Nokkrum vikum síðar opnaði svo Nýja fréttastöð- in; sem sendir út fréttir og viðtalsþætti allan sólarhringinn, þótt það virðist vera heldur þröngt um þulina í nýja stúdíó- inu. [...] Þó þetta sé allt saman hluti af heilbrigðri samkeppni og hið besta mál þá virðist samkeppnin ekki ná mikið lengra en til útlits fréttasettanna. Frétta- flutningurinn er yfirleitt merkilega líkur og svo virðist sem öll nýju settin og nýja fólkið hafi ekki haft þau áhrif að fréttirn- ar séu betri eða ferskari en áður. Árni Helgason á djoflaeyjan.com Brennt barn... Alfreð [Þorsteinsson] hefur verið hús- ráðandi í Orkuveituhöllinni um langt skeið og loks er farið að sjá fyrir endann á vafasömum ferli hans sem stjórnar- formaður. Alfreð er lifandi sönnun þess að stjórnmálamenn eiga ekki að sinna rekstri opinberra fyrirtækja. Í hans tíð hefur fyrirtækið ráðist í óskynsamlegar fjárfestingar sem hafa kostað Reykvík- inga stórfé. [...] En Alfreð er síður en svo hættur störfum, hann er kominn í draumadjobbið. Hann hefur tekið að sér að leiða nefnd á vegum Heil- brigðisráðuneytisins sem á að sjá um uppbyggingu hátæknisjúkrahúss á lóð gömlu Hringbrautarinnar. Alfreð fær núna að sýsla með opinbert fé óáreitt- ur. Ég sem hélt að brennt barn myndi forðast eldinn. Birgir Örn Brynjólfsson á frelsi.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.