Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 23

Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 23
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 02 61 11 /2 00 5 Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is 410 4000 | landsbanki.is Fasteignalán Við hjálpum þér að eignast draumaheimilið Fasteignasalan Foss hefur til sölu mikið endurnýjaða 156 fermetra sérhæð og ris í virðulegu tvíbýlishúsi á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Með fylgir einnig tæplega þrjátíu fermetra bílskúr. Grunnfermetra- flötur íbúðarinnar er um 180 fermetrar. Húsið er steinhús, byggt árið 1929. Úr forstofunni er gengið upp breiðan stiga á aðalhæð sem skiptist í hol, tvær rúmgóðar og bjartar stofur, stórt nýtt eld- hús og rúmgott flísalagt og nýlegt baðher- bergi og þvottahús. Þar er einnig geymsla. Á efri hæðinni eru þrjú ný herbergi, þar af eru nýir fataskápar í tveimur þeirra, endurnýjað baðherbergi með upphengdu klósetti og góð geymsla. Bílskúrinn var nýlega einangraður og klæddur með gifs- plötum, málaður og skipt var um gler og allt rafmagn. Þá var gólfið líka flotað og seljandi er að láta tengja nýjar hita-og vatnslagnir. Hæðin hefur verið töluvert endurnýjuð á þessu ári, meðal annars hefur verið skipt um rafmagnslagnir, ljós, dyrasíma, sjónvarpsloftnet, gólfefni, ofna og pípulagnir. Einnig var skipt um eld- húsinnréttingu og fataskápa auk þess sem íbúðin er nýmáluð og yfirfarin. Húsið var málað og þakið og gert við múrhúð á suður- og austurhlið. Verið er að setja upp nýjar rennur þar sem þess er þörf, skipta um skólplagnir og tengja nýja hitagrind og mun seljandi bera þann kostnað. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Virðulegt hús í Vesturbænum Bárugata 10 er fallegt og mikið uppgert hús á besta stað í bænum. Góðan dag! Í dag er mánudagur 28. nóvember, 332. dagur ársins 2005 Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 10.37 13.16 15.54 Akureyri 10.43 13.00 15.17 Heimild: Almanak Háskólans Fjórtán lóðir undir hest- hús hafa verið auglýstar við Kaplaskeið í Hafnarfirði. Þær skiptast í átta lóðir fyrir 30 hesta hús, fimm lóðir fyrir 45 hesta hús og eina lóð fyrir 55 hesta hús. Það er Hafn- arfjarðarbær sem útdeilir umsóknareyðublöðum og upplýsingum. Hörðuvallaskóli skal hann heita nýi grunnskólinn í Kórahverfinu í Kópavogi sem fyrstu skóflustungur voru teknar að nýlega og á að hefja starfsemi næsta haust. Skólanefnd bæjarins fór þá leið að velja nafnið fyrirfram, úr tillögum sem borist höfðu í kjölfar auglýsingar í haust. Hörðu- vallaskóli dregur nafn af staðnum sem hann stendur á. Tillaga að aðalskipulagi Akraness árin 2005 til 2017 er til sýnis á bæjarskrifstofum Akraness og einnig hjá tækni- og umhverfissviði kaup- staðarins. Þær munu liggja frammi fram á Þorláksmessu. Einnig eiga tillögurnar að sjást á heimasíðu kaupstað- arins www.akranes.is LIGGUR Í LOFTINU FASTEIGNIR [ VEGGFÓÐUR[ Í þættinum íkvöld BLS. 4 Kristján Þórður Hrafnsson og Borgarbókasafnið BLS. 4 Fótboltavellir eru ekki bara fótboltavellir BLS. 29 FASTEIGNASÖLUR Árborgir 17 Ás 14-16 Draumahús 21-24 Eignastýring 26 Fasteignastofa Suðurn. 17 Fasteignastofan 11 Félag Fasteignasala 36 FMG 11 Foss 13 Fyrirtækjasala Íslands 33 Hof 6 Hóll 20 Hraunhamar 30-31 Húsalind 10&18 Klettur 34 Lundur 28-29 Lyngvík 19 Neteign 25 Smárinn 8-9 X-Hús 7 �������������� ������� ������������������ ������������� �������� ������ ����������������� ��� ���� ������������������� ������� ������� ������������� �������������� �������������� ��������������� �������������� � ��������

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.