Fréttablaðið - 28.11.2005, Page 25
MÁNUDAGUR 28. nóvember 2005
Þegar setja skal upp útiseríur
er að mörgu að hyggja en hafa
ber efst í huga að nota góðan
ljósabúnað og reyna að fara
varlega.
Nú þegar aðventan er hafin fara
margir að huga að því að sækja úti-
seríurnar í geymslurnar og skreyta
hús og garða. Ljósin lýsa upp
skammdegið en myrkrið er ekki
beinlínis þægilegt þegar kemur að
því að hengja upp seríur úti við.
Gæta þarf þess að fara afar varlega
í þau verk, ekki síst þegar verið er
að hengja seríur hátt uppi.
,,Það þarf í fyrsta lagi að vera
viðurkennd sería til útinotkunar,
passa þarf að snúrurnar séu vand-
aðar og helst úr gúmmíi, því þær
harðna ekki þó frost sé. Svo þarf
náttúrlega að hafa þann búnað sem
til þarf ef snúran nær ekki inn í
húsið,“ segir Hannes Vigfússon
hjá raftækjaversluninni Glóey í
Ármúla.
Athuga þarf sérstaklega vel fest-
ingar þannig að ljósin losni ekki.
Til eru margar gerðir sérstakra
festinga sem hægt er að nota, allt
fer þetta eftir seríunni sem vinna
þarf úr. Sé hins vegar verið að gera
meiriháttar skreytingar er vissara
að fá til sín fagmann.
Ef seríur hafa spennubreyti er
betra að reyna að hafa þá innan
dyra að sögn Hannesar. ,,Ef fólk
neyðist til þess að hafa spennu-
breytinn úti þá þarf að koma honum
fyrir í vatnsþéttu eða vel þéttu boxi
eða kassa,“ segir Hannes og ítrekar
að lokum að umfram allt skuli fólk
reyna að hafa vandaðan ljósabúnað.
RÁÐ frá Rakel
RAKEL ÁRNADÓTTIR SEGIR SÖGU KROSSVIÐARINS
Krossviður hefur fyrir löngu sannað gildi
sitt enda eitt elsta samsetta plötuefnið
úr viði á markaðnum og kemur víðar við
sögu en þig grunar. Framleiðslan byggist
á því að sívalir trjábolir eru settir í eins
konar rennibekk, sem maður að nafni
Garand fann upp árið 1870. Bolirnir eru
skrældir í þunnan spón inn að miðju.
Þynnurnar eru síðan flattar út, sniðn-
ar í ákveðna stærð og límdar saman
þannig að trefjarnar í einni þynnu séu
hornréttar við þá næstu. Algengast er að
krossviðarplata sé ýmist sett saman úr
þremur, fimm eða sjö lögum.
Ástæða þess að velja krossvið í stað-
inn fyrir gegnheilan við er sú að kross-
viðarplata er miklu sterkari en venjuleg-
ur viður ef límingin er trygg. Talið er að
krossviðarplata sé fjórum sinnum sterk-
ari en jafnþykkt borð af sömu viðarteg-
und, auk þess sem krossviður er talinn
ólíklegri til að vinda sig.
Hægt er að vinna krossvið úr flestum
viðartegundum. Mýkri tegundir kross-
viðar eru gerðar úr þini, greni og furu. Ef
um skrautvið er að ræða er ysta lagið oft
úr harðviði, eik, hlyn og mahóní. Innri
lög eru þá oft úr ódýrari viðartegundum
og er þessi samsetning oftast notuð í
klæðningar á veggi, hurðir, loft og gólf.
Finnar og Svíar eru helstu framleiðend-
ur á Norðurlöndum, en þeir framleiða
aðallega úr furu, birki og beyki. Einnig
er umtalsverð framleiðsla í Bandaríkj-
unum, Kanada og ýmsum hitabeltis-
löndum.
Helstu framfarir í þróun krossviðar
urðu þegar menn vildu nota hann í flug-
vélar og þegar farið var að nota vatnshelt
lím. Í flugvélum þurfti efniviðurinn að
vera bæði sterkur og léttur. Vatnshelda
límið auðveldaði notkun hans meðal
annars í báta og í utanhússklæðningar
hvers konar. Kanadamenn og Finnar
framleiða meira að segja heilu bjálka-
húsin úr krossviði sem engan grunar að
geti verið annað en gegnheilir bjálkar.
Krossviður er líka órjúfanlegur þáttur af
húsgagnaframleiðslu nú á dögum. Varla
er framleidd sú kommóða eða sófi sem
ekki hefur krossvið sem meginuppi-
stöðu. Ráð vikunnar er: Leitið ekki langt
yfir skammt, krossviður bregst ekki, þó
önnur krosstré bregðist.
Ekki bregst krossviður sem önnur tré
Þegar huga skal að
útiseríum
Það er ekki auðvelt að koma upp ljósaflóði eins og þessu.
Útiljós eru einkar skemmtileg og lífga
heldur betur upp á skammdegið.